Morgunblaðið - 27.09.1970, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.09.1970, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPT. 1970 'VÍW Nýbyg gingrar. Hótel Víkurröst. Frá Dalvík Helgi Þorsteinsson fréttaritari Mbl. segir frá HELGI Þorsteinsson, frétta- ritari blaðsins á Dalvík, var á ferðiruni í höfuðstaðnum nýlega. Við notuðum tæki- færið til að leita frétta úr hans heimiabæ, og byrjuð- um á að spyrja um sjávarút- veginn. — Sæmilegur afli hefur verið hjá togbátum, en frek- ar slakur afli í dragnót, sagði Helgi. Útgerðarfélag Dalvík- inga hefur gert út tvo báta, Björgúlf og Björgvin, sem báðir leggja upp hjá Hrað- fryistihúsi KEA á Dalvík. Frá áramótum hafa þeir lagt upp samtala um 2500 leata afla. Auk þeas eru gerðir út þrír minni bátar með dragnót og leggja þeir líka upp hjá frysti húsinu. Auk þess eru nokkrar trillur, sem menn hafa frem- ur sér til gamans. — Hvernig gengur hjá frystihúsinu ykkar? — Frystihúsið er búið að vinna um 2600 lestir frá ára- mótum. Það er töluvert minna en í fyrra, sem stafar fyrst Og fremst af því að verkfallið eyðilagði bezta tímann. Til að glöggva sig á því, má gera aamanburð við árin 1968 og 1969 en á þeim tirna sem verk fallið stóð í ár, höfðu aflazt á þessum árum fimmti hluti og sjötti hluti af ársaflanum. — Nokkuð verið að vinna að hafnarframkvæmdum? — í fyrra voru töluverðar Dalvík. Hitaveita um áramót Fyrsta landspróf sdeildin í vetur framkvæmdir við höfnina. Þá var aukið viðleguplássið við syðri hafanrgarðinn, þannig að ágætt rými er nú fyrir báta. En í sumar hefur ekk- ert verið unnið þar. Og síld- arplönin standa auðyitað auð og tóm, og sömuleiðis síldar- verksmiðjan. — Er mikið byggt hjá ykk- ur? — Jú, eftir hlé á bygging- um í 3—4 ár, eru nú í bygg- ingu 15 hús. Á sumum var byrjað nú í vor, en önnur hafa verið í smíðum í eitt eða tvö ár. Þessi húis eiga heima- menn, ungir Dalvíkingar, sem hafa verið að stofna heimili á undanförnum árum en ekki farið út í að byggja eigin hús fyrr. — Og nú er í fyrsta skipti verið að byggja hús, sem sér- staklega eru ætluð með sölu fyrir augum, bætir Helgi við. Hallgrímur Antonsison, bygg- ingameistari, er að byggja fjögurra húsa raðhúslengju, sem hann ætlar að selja. Að því er ég bezt veit, er hann þegar búinn að selja tvö hús- anna. — Eru einhverjar fram- kvæmdir á vegum hreppsfé- lagsins? — Já, miklar framkvæmd- ir hafa verið á vegum Dal- víkurhrepps. í fyrsta lagi er það hitaveitan, sem byrjað var á í fyrna. Síðan hefur verið haldið áfram að leggja dreifikerfið í sumar og búið að leggja það í allan suður- hluta kerfisinis. Munu vera Helgi Þorsteinsson eftir um 60 hús. Ekki er búið að tengja þetta allt, en vonir standa til að því verði lokið fyrir áramót. — Verður þá hleypt á kerf- ið? — Já, við vonum að allt verði tilbúið þá. Á einhverj- um næstu dögum á að koma norður bor frá Jarðborunum ríkisins til að bora eina holu í viðbót, eftir tilvísun jarð- fræðinga. Áður var búið að bora fjórar holur, en aðeins ein gaf verulegt vatnismagn. Því er talið öruggara að bæta einni við. Þá ætti þetta að duga vel, en vatnið sem upp kemur er 58—59 gráðu heitt. — í sambandi við þetta hafa farið fram gatnafram- kvæmdir, heldur Helgi áfram. Búið er að byggja upp eina nýjia göitu otg verið að viimna að annarri. Allar nýjiar götur hjá okkur eru þannig byggð- ar, að leggja má á þær varan- legt slitlag undirbúnings- laust, þó ekki sé það gert nú. Auk þeiss hefur víða verið dkipt um skiolplieiiðs'lur og vatnslögn endumýjuð. —- Atvinnuástandið, hvem- ig er það? — Það hefur verið hörgull á mönnum í sumar, t.d. í byggingarvinnu. — Og skólarnir? — Við erum sæmilega sett- ir með þá. Á næstia ári er ætl- unin að reiisa heimavistarhús við Gagnfræðaskólann fyrir 50—60 nemendur. Leyfi hef- ur verið fengið hjá ráðuneyt- inu fyrir byggingunni og ætl- unin að vinma að teikningum í vetur, þannig að þær verði allar tilbúnar í vor og hægt að byrja á byggingunni þá. Skólahúsnæði er nofckuð gott, að segja má, og er um það bil að verðá fullnýtt. Fjögurra vetra gagnfræðaskóli hefur starfað í 3 ár og á næsta vetri verður þriðja bekk gagn fræðaiskólams þrískipt. Þann- ið verða landsprófsnemendur í sérdeild í fyrsta skipti. — Nokkur kennaraskortur, eins og víða? — Fram að þessu höfum við ekki verið í vandræðum með kennara. En nú er óráð- ið í eina stöðu. Tvær stöður losnuðu, og er íþróttakennari óráðinn. — Hvernig gekk heyskap- urinn í sumar í Svarfaðar- dalnum? — Heyskapur hafur í sjálfu sér gengið vel, það sem var til að hirða. En víða var geysimikið kal og að auki var lítil spretta. Mér skilst að margir muni minnka mikið bústofninn. Framan af sumri var ákaflega balt. í júnknán- uði kom góður kafli, en síðan hefur aftur verið fremur kalt. — Hafa berin þá ekki sprottið i'lla? Þarna er mikið berjaland. — Ber hafa sprottið sæmi- lega. Fólk hefur farið og tínt yfir daginn 30—40 potta af krækiberjum. Einnig mátti fá reiting af bláberjum. Fólk kom með 9—10 potta eftir að hafa verið seinni hluta dags við að tína. En bláberin eru smærri og verr þrosfcuð en verið hefur. — Nú höfum við spurt um framkvæmdir og sprettu, en hvernig er með mannfólkið sjálft. Er fjörugt félagslíf? — Féiagsmál eru heldur í daufaria lagi. Alltaf gerist þó eitthvað á því sviði. Á laug- ardag og sunnudag fyrir rúmri viku hélt Æiskulýðs- samband kirkjunnar fund á Dalvík. Þar voru urn 40 fundarmenn, prestar og leik- menn og margir skiptinemar þjóðkirkjunnar. Loftbremsukerfi Pressur og varahlutir í þær, Membrur, Mebruhús, Öryggisrofar, Tengi fyrir aftanívagna, Ventlar fyrir aftanívagna, Viðgerðarsett í ventla, Fittings. öryggis- og handbremsusett sem koma má fyrir í öllum bifreiðum með loftbremsukerfi. BERGUR LARUSSON HF., Ármúla 32 — Simi 81050. Hvað er afstæíiskenningin: eftir rússnesku pró- fessorana Levlandau og Juris Rumer. I bókinni er afstæðis- kenningin skýrð svo að allir geta skilið. 25 skýringamyndir eru í bókinni. Verð með söluskatti kr. 190,00. STAFAFELL. Dvalarleyfi Rudis framlengt London 25. september. AP. Reginal Maudling, innanríkis- ráðherra Bretlands hefur nú fram lengt frestinn, sem hann gaf v- þýzka stúdentaleiðtoganum fyrr- verandi, Rudi Dutschke, til að fara úr landi. Upphaflega átti Rudi að fara með fjölskyldu sína frá Bretlandi ekki siðar en 30. september, en nú hefur innanrík isráðherrann boðizt til að fram- lengja frestinn, til að Rudi geti betur gengið frá sinum málum. Talið er að Rudi muni áfrýja máli sínu, en brezku stúdenta- saimtökin hiafa lýst yifir eindreigtn- um stuðningi við hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.