Morgunblaðið - 27.09.1970, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.09.1970, Blaðsíða 28
28 MORG'UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPT. 1970 — Já, þér finnið það í síma- skránni. — Þakka yður fyrir. — En munið, að ég fullyrði ekki neitt. — Þakka yður samt. Aftur tók Raeburn til við símaskrána. Hann fann nafnið og valdi núm erið. — Leon-fatagerðin. — Hr. Turner Roberts, þakka yður fyrir. Hann beið ofurlítið og þá kom önnur rödd í sím- ann. — Einkaritari hr. Turner Ro- berts. — Gæti ég talað við hann sjálfan? — Hvaða nafn? — Raeburn. Mark Raeburn. Enn þögn. LENGI..AJ 26. hvað og láta þá hinn aðilann mótmæla því. — Viljið þér biða andartak. Ég ætla að líta I skrána fyrn úti búin okkar. Löng þögn. — Nei, hér er enginn Turner Roberts á skrá. Við höfum hér J.R. Roberts, Llewellyn Roberts og Sam Roberts. — Nei, það á áreiðanlega að vera Tumer Roberts. — Ég skal hringja í starfs- mannaskrána. Já, bíðið þér and artak hver veit nema hann hr. Gardner geti hjálpað yður. Svo kom karlmannsrödd í simann. — Þér viljið ná í Turner Ro- berts? — Stendur heima. — Hann hefur aldrei verið hjá okkur. Hann var einu sinni hjá Pollards, en það var áður en Pollards rann inn i Assec. Ég býst við, að það sé hann, sem þér eigið við. Röddin var íbygg in. — Já, ég býst við því. Poll- ards var gamla fyrirtækið hans Ricks. — Ég hugsa, að hann sé núna hjá Leon-fatagerðinni. — Er það í London ? — Hr. Turner Roberts er á fundi. Gætuð þér sagt mér er- indið? — Nei, það get ég ekki. — Ef svo er, þá. .. — En þér getið sagt, að ég hafi verið hjá hr. Riek. Eftir sekúndubrot var hann farinn að tala við Turner Roberts. — Halló, hr. Raeburn! Hvern ig líður Harry kallinum? Röddin var mjúk eins og jóla terta. — Ekki sérlega vel, er ég hræddur um. — Það er leiðinlegt. Svo virt- ist sem Turner Roberts stæði ekki lengur í mjög nánu sam- bandi við Harry Rick. Hann kom með nokkrar spurningar, sem Raebum leysti úr. Þá sagði Mark: — Ég veit ekki, hvort ég mætti koma og tala við yður, hr. Ro- berts? — Jú, auðvitað. Allir vinir Harrys. . . ég er nú mikið upp- tekinn en líklega gæti ég skot- ið yður einhvers staðar inn. Get ið þér gefið mér nokkra hug- mynd um. . . Það var sýnilegt, að maðurinn viðraði einhvern gróða af endurnýjuðu sambandi við Rick, jafnvel með millilið- um. — Það get ég ekki almenni- lega í síma. — Nei, vitanlega. Hvað segið þér þá um klukkan þrjú í dag? — Þá skal ég koma. Raeburn leit á úrið sitt. Hálftólf. Hann greip aftur símann og valdi núm erið hjá Pete Loder. — Ég ætla að hitta hann klukkan þrjú, sagði Raebum. — Og lengri er sagan ekki, upp til þessarar stundar. Hann smakkaði á rjómais. Hann var í svefnherbergi Loders og Loder sat uppi í rúminu. Hann var föl ur, en tekinn að hressast, og ætl aði — þrátt fyrir þrábeiðni kon unnar sinnar — að fara í vinnu daginn eftir. Meðan þeir voru að borða, hafði Mark sagt hon- um allt, sem gerzt hafði í Des- mondmálinu. Pete smakkaði líka á matnum, en lagði svo frá sér diskinn og hallaði sér aftur á koddann. — Þið verðið að ganga i þetta Underwoodsjálfsmorð og upp- lýsa það, sagði Mark lágt. — Þegar ég segi Werner þessa sögu, rífur hann mig í tætl ur. — Vitleysa. — Þetta er hval- reki fyrir Wemer. Hann fær all an árangurinn minn fyrir ekki neitt. — Ég býst ekki við, að hann kæri sig um neinn hvalreka, sagði Pete ólundarlega og tók aftur til við matinn. — Hver hefði getað skrifað þetta ábendingarbréf ? sagði hann. — Einhver, sem hefur vitað, að ég var að fást við Desmond málið. Og þar af leiðandi ein- hver, sem vissi, að þetta morð var ekki allt sem það sýndist. — Þar getur nú ekki verið um marga að ræða. — Nei, og kannski ennþá færri en við höldum. Þetta hef- ur verið einhver, sem vissi, að ég hafði heimsótt Rick. — Hve margir vissu það? — Auðvitað hann Alec Des- mond. Og svo sagði ég Sally VAKK tSX KRISTJÁNSSON h.f. Ingólfsstrœti 12 Simar: 12800 - 14878 Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Farðu snemma á fætur og farðu í kirkju. Að öðru leyti rólegur sunnudagur. Nautið, 20. apríl — 20. maj. Sýndu ástvinunum hinar raunverulegu tilfinningar þínar. Tóm- stundastörfin taka mestan tíma í dag. Tvíburamir, 21. maí — 20. júní. Bjóddu vinum þínum í veizlu og skemmtu þér vel í kvöld. Krabbinn, 21. júni — 22. júlí. Þér gengur allt að óskum í dag. Farðu í kirkju, heimsæktu gamla vini og lestu blöðin. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Haltu þig heima og þjónaðu ástvinum þínum. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Reyndu að halda góða skapinu við í allan dag. Vogin, 23. september — 22. október. Hafðu ekki einkamál pín í flimtingum. Gcrðu enga lilraun tii að leiðrétta misskilning. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Haltu áfram að vinna. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Skilaðu þvi, sem þli hefur fengið að láni, og gerðu allt, scm í þínu valdi stendur, fyrir vini þína. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Láttu aðra sjá um aUar áætlanagerðir, þó ekki sé nema í þetta eina skipti. Skemmtilegur dagur og þú getur orðið margs vísari. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Hvíldu þig frá félagsstörfunum af og til í dag og hugleiddu málln. Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz. Þú færð tækifæri til að kynnast nýju fólki. Þú færð eitthvert til- efni til að halda upp á í kvöld. Evans frá því. Hvort þeirra fyr ir sig hefði getað sagt það öðru fólki. Og svo er það þjónustu- fólkið hjá Rick. En þá er líka hér um bil upptalið. — Hér þarf ekki að vera um svo fáa að ræða. Bæði Desmond og frú Evans hefðu getað sagt frá þvi. — Ég skal spyrja þau. Rae- bum hellti í báða tebollana. — Hlustaðu nú á, Mark. Ef þetta bréf er að marka, er það bending um, að Rick hafi myrt frú Desmond. Raeburn setti syk ur I bollana og rétti annan að Pete. — Vitanlega, sagði hann. — Við skulum fara yfir þetta. Ég skal sækja og þú verja. — Mín vöm er fjarverusönn- unin. Alec Desmond sá Rick í sjúkrahúsinu, tveim dögum seinna, svo veikan, að hann gat ekki hreyft sig. — Gat hann ekki hafa gert sér upp þetta veikindakast? — Hjartslátt, hita og blóð- rannsókn? 1 St. Stefánssjúkra- húsinu? Gætir þú gert þér upp svo mikið sa*»j flensu við kon- una þína, auk heldur við heil- an her af læknum og hjúkrunar konum? Pete hugsaði sig um, stundarkorn. — Nei, það væri óhugsandi. En erum við vissir um, að hann hafi verið kominn í sjúkrahúsið fyrir morðið ? — Nei, ekki vissir. En það er alltaf hægt að komast að því. Hann gekk fram í ganginn og hringdi í sjúkrahúsið. — Ég ætlaði að spyrja um hr. Harry Rick. — Er hann sjúklingur? — Já. 1 einkaálmunni. Þögn og svo kom önnur rödd. — Einkaálman. Voruð þér að spyrja um hr. Rick? — Já. ■— Hann er hér ekki lengur. Það var skozkur hreimur í rödd inni — Glasgowhreimur. Rae- TERMIIMAL QUICK Hámæringavökuinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.