Morgunblaðið - 27.09.1970, Page 17

Morgunblaðið - 27.09.1970, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. SEPT. 1970 17 Gufuorka Jarðhitann er ekki einungis hægt að nota til heilsuræktar, heldur hefur hann verið virkjað ur I rikum mæli í löndum eins og Italíu og Nýja-Sjálandi í því skyni að afla orku bæði til iðnað ar og annarrar rafmagnsnotkun ar. Fróðlegt er að koma til Mý- vatns og sjá þær miklu fram- kvæmdir, sem þar hafa átt sér stað. Kisilgúrverksmiðjan hefur gefið góða raun, eins og allir vita. Hún er knúin gufuorku og í sumar hefur verið unnið að því að auka þessa orku með nýj- um borunum. Sá, sem kemur í Bjarnarflag, hlýtur að hrífast af þeim framkvæmdum, sem þar hafa orðið og þeirri framleiðslu, sem þaðan er send til útlanda. Kísilgúrverksmiðjan fer vel í flaginu og síður en svo, að hún skyggi á náttúrufegurð við Mý- vatn. Pramminn á vatninu, með sogdælu til að sjúga upp botn- leðjuna, er svo fyrirferðarlítill, að ekki er ástæða til að amast við honum. Með hinu ætti að fylgjast rækilega, hvort nokkur mengunarhætta stafar af reykn- um frá verksmiðjunni. Gufurafstöðin við Mývatn er hin fyrsta sinnar tegundar hér á landi, sem nokkuð kveður að. Hún getur framleitt 3.000 kiló- vött eða 3 megavött af rafmagni. í>að er að vísu ekki mikil við- bót við Laxárvirkjun, en þó betri en engin. Laxárvirkjunar.stjórn á miklar þakkir skilið fyrir það framtak að ráðast í þessa gufu- virkjun. Nýting orkunnar hefur af ýmsum ástæðum orðið minni en skyldi. En það er ekki höfuð- atriðið, heldur hitt að hafizt hef- ur verið handa um þessa tilraun. Margs ber að gæta og nauðsyn- legt að fiana að engu, þegar stefnan er mörkuð og lagðar eru undirstöður að framtíðaráætlun- um hér á landi. „Við teljum, að það sé framtíðin, að virkjuð verði miklu meiri gufuorka í Námaskarði," sagði einn af „skæruliðaforingjum" þeirra Mývetninga í samtali við bréf- ritara fyrir skömmu. „Stofn- kostnaður er lægri við gufu- virkjun en vatnsvirkjun," bætti hann við. Rétt er það, en þó mun viðhalds- og rekstrarkostn- aður meiri við gufuvirkjun en vatnsvirkjun. Hugsjónir þeirra, sem helzt hafa bent á mikla möguleika gufuaflsvirkjunar, eru glæsilegri en svo að unnt sé að skella skollaeyrum við málflutningi þeirra. Islendingar verða, öðrum þjóðum fremur, að nýta kunnáttu lærdómsmanna sinna og vísindamanna. Án þess verða framfarir hér hægar og hætt við stöðnun. Ekki andstæður Ef hugsjónir framkvæmda- manna brjóta ekki í bága við óskir náttúruverndarmanna, verður unnt að byggja ísland upp á þann hátt, að okkar kyn- slóð verði sómi að. Togstreita milli þessara tveggja aðila hlýt- ur að vera á misskilningi byggð. Hugsjónir og framkvæmdir eru ekki andstæður. Framkvæmda- menn og náttúruverndarmenn eiga að taka höndum saman að byggja upp lahdið. Þessi upp- bygging á ekki að valda sárs- auka, heldur á hún að auka ör- yggi, auka trú þjóðarinnar og bjartsýni. Framkvæmdir, sem hætta er á að spilli landinu, vekja andúð og mótþróa þeirra, sem tengdastir eru jörðinni og sveitunum og eru harla hæpið fyrirtæki svo að ekki sé meira sagt. Mývatn Margt hefur verið rætt og rit- að um sprengingarnar við svo- kallaða Miðkvísl í Laxá. Fróð- legt er að koma á staðinn og virða kvíslina fyrir sér. Stiflan er horfin, en í miðri kvíslinni stokkur, þar sem Laxárvirkjun- arstjórn ætlaðist til að silung- urinn gengi milli vatns og ár, en allt þetta vatnasvæði er auð- vitað ein heild. Engum dettur í hug að fagna þeim aðgerðum, sem áttu sér stað við Miðkvísl, þegar stíflan var sprengd. Með lögum skal land byggja, en ekki sprengiefni. Hermóður, bóndi í Árnesi afneitaði i sjónvarpsþætti þessum aðgerðum. Það hafa flest ir gert. Aftur á móti fer ekki hjá því, að fyrsta hugsunin, þeg- ar staðið er við Miðkvisl sé sú, að þarna hafi ekki verið eyði- lögð mikil eða markverð mann- virki. Aðgerðirnar voru þvi fyrst og fremst táknrænar. Þær sýndu hug bænda á Mývatns- svæðinu og ótta þeirra við þró- un mála í og við vatnið. Stífl- an við ósana ræður vatnsborði Mývatns. Laxárvirkjunarstjórn taldi, að samgangur milli ár og vatns væri tryggður, en bændur ekki. Þeir bentu á, að vatn næði ekki að stokknum, svo að úti- lokað væri að silungur hefði frjálsan aðgang milli vatnsins og árinnar. Laxárvirkjunarstjórn þykist hafa ummæli færustu manna fyrir þvi, að stokkurinn hafi átt að tryggja þennan sam- gang. Þar stóð hnífurinn í kúnni. íslendingar hljóta að geta tal- azt við án þess þeir fyllist tor- tryggni hver í annars garð. Öll eigum við landið. Engum þykir vænna um það en öðrum. Við eigum að láta staðreyndir og visindalegar niðurstöður ráða, en ekki tilfinningahita dægur- baráttunnar. Undirstaða fram- fara og verndunar landsins eru ekki marklaus gífuryrði, heldur rannsóknir og góðvild. Bændur segja, að mýið kvikni einkum í sandfjörum, en með vatnsstöðuhækkun hverfi sand- fjaran við Mývatn og blasi nú afleiðingarnar við: minnkandi silungsveiði og röskun á öllu lífi við vatnið. Laxárvirkjunar- stjórn svarar: Ekki svæfðum við mýið. Slík orðaskipti eru fyrir neðan svo virðulega málsaðila, sem hér eigast við. Þeim er skylt að kalla til vísindamenn og láta niðurstöður þeirra ráða mál- flutningi. Það eru lokurnar í Geirastaða kvísl, sem ráða vatnsborði Mý- vatns, þó að unnt hafi vérið að hafa betri hemil á vatninu með þvi að stífla bæði Miðkvísl og Syðstukvísl. Lokurnar í Geira- staðakvísl, sem eru talsvert mann virki, voru ekki sprengdar. Ef bændur hefðu viljað bjarga vatninu í eitt skipti fyrir öll, hefðu þeir auðvitað sprengt þær. Það gerðu þeir ekki. Það var of dýrt spaug. Og ekki hefði slík aðgerð leyst nein vandamál, heldur einungis aukið á ágrein- inginn. Samt eru margir bændur í Mývatnssveit, kannski flestir, þeirrar skoðunar, að nauð- synlegt sé að koma vatnsborð- inu i fyrra horf. Höfum við efni á að láta ekki kanna þetta og fleiri ágreiningsatriði til hlítar? „Mýlirfan er aðalfæða silungs- ins og ef til vill fugla líka," sagði fyrrgreindur bóndi og full yrti raunar, að hungursneyð hefði ríkt hjá fuglum við Mý- vatn i sumar, endur flúið hreið- ur sín og skilið eftir óútunguð egg vegna minnkandi ætis. Slík- ar fullyrðingar eru ekki vísindi. En þar sem við erum staðráðin í að vernda Mývatn og umhverfi þess, verðum við að gefa þessum orðum gaum; verðum að krefjast þess, að vísindamenn taki rösk- lega til hendi og geri á þessu rannsóknir, sem byggja megi á. Að slíkum rannsóknum loknum er bæði Laxárvirkjunarstjórn og öðrum skylt að gera þær ráð- stafanir, sem unnt er til vernd- ar vatnasvæði Mývatns og um- hverfi einnar fegurstu sveitar landsins. Upphrópanir, þver- móðska eða hermóðska eru ekki lausn á neinum deilum, hvort sem þær eru um virkjanir við Mývatn og Laxá eðá annað. Vaðlaheiðin er ekkert járntjald. Við tölum sama tungumál og hljótum að geta skilið hvert ann- að. Hér er margs að gæta — en einkum þess að lenda ekki í þvi sem verst er af öllu: að verða geðmengun að bráð. Staðreyndir á borðið Bændur „telja“, að vatnsborðs hækkun í Mývatni sé 30—40 cm; „telja“ er ekki sama og vísinda- leg niðurstaða. Auðvitað ætti slík rannsókn að liggja fyrir, svo að ekki þurfi um það að karpa. Fullyrt er, að orðið hafi stórkostleg spjöll á strand- lengju og hólmum frá þvi stifla var byggð við Mývatnsósa, og bent á að varphólmar undan ströndinni séu nú á förum vegna isreks og of hárrar vatns stöðu. Ætti ekki Laxárvirkjun og landeigendur að sýna þann myndarskap að taka höndum saman og láta fara fram ræki- legar rannsóknir á slíkum full- yrðingum og bregðast drengi- lega við, ef niðurstöðurnar sýndu ótvírætt að hætta væri á ferðum. Engin ástæða er til að ætla annað en stjórn Laxárvirkj unar gæti farið margar leiðir til að tryggja líf i og við Mývatn. Laxárdalur Laxárdalur er langur dalur. Þar eru sex eða sjö bæir. 1 kring um Mývatn eru fimmtán jarðir og víðast eru marg býli, svo að hér eru hagsmunir fjölda heimila í veði. Þessum hagsmunum er ekki hægt að ganga fram hjá. En þá er ekki heldur hægt að sk«Ua skollaeyr- um við hagsmunum þeirra, sem þurfa á rafmagni Laxárvirkjun ar að halda og það helzt án taf- ar. Laxárvirkjunarstjórn hefur ekki hafið framkvæmdir fyrir ofan stífluna í Laxárdal I því skyni að spilla dalnum. Engum mundi detta í hug að bera slíkt á borð. Framkvæmdir hennar stafa einungis af því, að henni er skylt að sjá Laxárvirkjunar- svæðinu fyrir nógu rafmagni. F,f ekki er hafizt handa nú þegar, er fyrirsjáanlegur rafmagns- skortur á svæðinu. Ef nýju virkjunarframkvæmdirnar væru stöðvaðar, yrði auðvitað að fara nýjar leiðir. Sumir segja, að Laxárvirkjunarstjórn eigi að gera samning við Landsvirkjun um að leggja streng með viðbót- arorku inn í Laxárvirkjunar- kerfið. Það mundi bæta úr brýnni þörf. Aðrir virðast þeirr- ar skoðunar að ekki sé ástæða til að fara þá leið, benda m.a. á, að Laxárvirkjunarstjóm hafi gert samninga við Norðurverk og sé hún skuldbundin til að standa við þá. Við virkjunar- framkvæmdir vinni tugir manna, hagsmunir þeirra séu ekki síður mikilvægir en land- eigenda. Nú er sem betur fer hætt við svonefnda Suðurárveitu, sem hefði haft í för með sér yfir fimmtíu metra háan stíflugarð ofan við Laxárvirkjun — og yf- irvofandi flóðahættu. Fróðlegt er að koma að Laxár virkjun og skoða nýju mann- virkin. Byrjað er að sprengja göngin inn í bergið, þar sem stöðvarhúsið á að vera. Það verður mikið mannvirki. Göng þessi hafa alið á tortryggni, sem erfitt virðist að eyða. Landeig- endur segja að þau eigi að vera nógu víð fyrir svonefnda Suður- árveitu og kalli beinlínis á hana. Vilja þrengja göngin. Stjórnend ur Laxárvirkjunar benda á að auðvitað sé hægt að þrengja göngin, en það mundi engu breyta; þrátt fyrir það væri auð- velt að veita öllu vatni úr Suð- urárveitu í gegnum þau. Þannig rekst hvað á annars horn. Deiluaðilar hafa ekki talazt við af þeim skilningi og umburðar- lyndi, sem nauðsyn krefur. Þeir virðast láta stóru orðin ráða I stað þess að láta vísindaleg- ar rannsóknir og niðurstöður þeirra móta stefnuna. Ef bændur í Þingeyjarsýslu eru á móti því, að Laxárdalur fari undir vatn eða hluti hans og ekki er hægt að nota ork- una úr ánni án þess að þær verði afleiðingamar, hlýtur það að teljast mikill ábyrgðarhluti að taka óhikað slika ákvörðun. Vítin eru til að varast þau. Auð- vitað er virkjun vatnsorkunnar íslenzku þjóðinni lífsnauðsyn. En það hlýtur að vera hægt að veita yl og orku inn á islenzk heimili og vinnustaði, án þess að hætta sé á landspjöllum. Sumir segja, að hagkvæmnissjónarmið ið eitt eigi að ráða. En nú á tim um mengunar og þröngbýlis víða um heim er ekki síður hægt að selja náttúrufegurð og óspillt umhverfi en yl og orku. Allir góðviljaðir menn hafa áhuga á að leysa deilurnar á Laxárvirkjunarsvæðinu. Við höf um ekki efni á þvi, lítil þjóð, að geta ekki byggt upp land okkar eins og við þurfum vegna deilna og átaka. Landeigendur við Laxá virðast nú hafa hvað mest- an ótta af því, að nýja virkjun- in komi i veg fyrir fiskirækt fyr- ir ofan stíflu. Á þessu þarf að gera rækilega könnun, niður- stöður eiga að liggja fyrir. Og hvað segja visindamenn um þá fullyrðingu, að virkjun valdi dagsveiflum i Laxá fyrir neðan virkjunina, vegna þess að á mesta annatíma verði miðlunarvatnið notað til að auka rafmagnið og þá flæði áin yfir ís og eyðileggi seiðin? Þær upplýsingar virðast ekki liggja fyrir. Stundum hefur hlaupið vöxtur i ána og hún spýtt laxaseiðunum upp á bakka og sagt er að hún hafi orðið vatns- laus og drepið seiði. Hvað segja vísindamenn um þetta? Eða: er rétt hjá landeigendum að 20 m miðlunarstifla yrði til þess að bændur misstu ræktunarmögu- leika fyrir ofan stíflu? Bent er á í þessu sambandi að laxinn kom- ist ekki á milli þessara svæða, eins og nú er ástatt og ný virkj- un breyti því engu um það. Hvaða leið er hægt að fara i þessum efnum? Hvað segir Sigurjón Rist? Hvað segir Þór Guðjónsson? Loks: mundu bændur fallast á áframhaldandi virkjun, ef þeir sannfærðust um, að þessar og aðrar hættur væru ekki fyrir hendi? Úr því þarf að fá skorið, áður en lengra er haldið. Áframhaldandi virkjun mundi, að því fullyrt er, verða til þess að aðstöðugjöld yrðu engin fyrir Aðaldælinga í nokkur ár. Þarna eru miklir hagsmunir í véði, ekki sízt land- eigenda. En afstöðu sina getur sveitarfélagið auðvitað ekki byggt nema á vísindalegum nið- urstöðum sem eru í samræmi við náttúruverndarsjónarmið. Hvað hefur það gert til þess að þær niðurstöður liggi fyrir? Hvað þá? En fyrst og síðast blasir við sú staðreynd, að Laxárvirkjun- arstjóm hefur ekki leyfi til að virkja nema fyrsta áfanga stíflu gerðarinnar, eða um 8 mega- vatta viðbótarvirkjun, sem borg- ar sig engan veginn, að þvi er talið er. Stjórninni er ekki heim- ilt að hefja annan áfanga virkj- unarinnar, nema með nýjum lög- um frá Alþingi og að undan- gengnum líffræðilegum athugun- um á vatnasvæðinu. Annar áfangi kallaði á 20 m. miðlunar- stíflu, sem mundi veita um 19 megavatta viðbótarorku. Talið er að 4 km af Laxárdal fyrir ofan núverandi stíflu, fegursti hluti dalsins mundi þá fara undir vatn. Er óeðli- legt að allt þetta veki törtryggni, þegar Laxárvirkjun hefur nú hafizt handa um fram- kvæmdir fyrsta áfanga, sem eng- an veginn mundi borga sig, ef annar áfangi yrði ekki leyfður? Hvað ætlar Laxárvirkjunar- stjórn að gera, ef Alþingi neitar um heimild til áframhaldandi virkjunar? Hér í þessu Reykjavíkurbréfi hefur verið fjallað um orku og náttúruverndarmál. Morgun- blaðið hefur áður tekið afstöðu gegn því að spillt sé fögru um- hverfi vegna virkjunarfram- kvæmda. í þessu Reykjavikur- bréfi hefur verið haldið þeirri stefnu, en þó einnig reynt að túlka þau sjónarmfð önnur, sem fram hafa komið. Án þess fæst aldrei nein niðurstaða í þessv viðkvæma máli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.