Morgunblaðið - 29.09.1970, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SUPT. 1970
3
40 þús. kr.
þjófnaður
BROTIZT var inn í Hljóðfæra-
húsið, Uaug'avegi 96, aðfaranótt
sunnudagsins og stolið tveimur
mfmagnsgíturum, magnara, plötu
albúmum og einhverju af piöt-
um, samtals að verðmæti rösk-
lega 40 þúsund krónur. Brotizt
var inn um bakdyr.
Antnar gítariintn er baasiaiglítar,
brúnin að lit, alð veT'ðmiæti tólf
þiúisiumd króinur oig hinm er hivíitiur
sóiágítar, Bialdwim, mierfctur
Hiamk Marvin, að veirðmnæti 15
þiúsumd farómiur. Maigmiarimin, sem
stoilið var, er af Phiilips-gierð og
kloistar um tíu þúisiumd krórnur.
Auk þiesisia var svo isitolið um
eiibt þúsiumid krónum í sikiptimyint.
Þakkar
móttökur
MORGUNBLAÐINU hafa borizt
tvær fréttatiikynningar frá for-
sætisráðuneytinu vegna heim-
sóknar forsætisráðherra Búlgar-
íu. Fara þær hér á eftir:
„FRÁ 24. til 27. september 1970
voru i opinberri heimsókn á Is-
lamdi forsætisráðherra Búlgarxu,
Todor Zhivkov, og kona hans,
dr. Mara Maleeva Zhivkova, í
boði rikisstjórnar Islands. í föru
neyti þeirra voru meðal annarra
prófessor Ivan Popov, ráðherra
vísinda- og tækniframfara, Har-
alambi Traikov, varautanrikisráð
herra, Laliou Gantchev, sendi-
herra Búlgaríu á Islandi og aðr-
ir háttsettir embættismenn.
Búlgarski forsætisráðherrann
átti viðtal við forseta Islands og
sat hádegisverð hans að Bessa-
stöðum.
1 viðrasðum búlgarska forsæt-
isráðherrans og Jóhanns Haf-
stein, forsætisráðherra, tóku þátt
ráðherrarnir Eggert G. Þorsteins
son og Ingólfur Jónsson og is-
lenzkir embættismenn. Rædd
voru mál varðandi samskipti Is-
iands og Búlgaríu og ýmis alþjóð
leg málefni. Forsætisráðherra
Búlgaríu bauð forsætisráðherra
Islands í opinbera heimsókn til
Búlgairiu.
Fyrir brottför búlgörsku gest-
anna skiptust forsætisráðherrarn
ir á bréfum um eflingu sam-
skipta íslands og Búlgaríu á
sviði vísinda-, tækni- og menn-
ingarmála og viðskipta- og ferða
mál.
Gestirnir sátu kvöldverðarboð
rilkisstjórnar Islands á Hótel
Sögu og hádegisverðarboð borg-
arstjórans í Reykjavík að Höfða.
Þeir höfðu gestamóttöku að
Hóted Sögu.
Reykjavikurborg var skoðuð,
farið var til Þingvalla, að Búr-
íeiisvirkjun og í Hveragerði."
Sr. Hreinn Hjartarson og fjölskylda.
Frá Ólaf svík til Kaup-
mannahafnar
Sr. Hreinn Hjartarson tekur
við starfi sendiprests í Höfn
EINS og kunnugt er, var séra
Hreini Hjartarsyni veitt sendi
prestsembættið í Kaupmanna
höfn, eftir að séra Jónas
Gíslason sagði því lausu.
Morgunblaðið hafði tal af sr.
Hreini og spurði hann um
starfið. Hann sagði:
„Starf prestsins í Kaup-
mannahöfn er eiginiega þrí-
þætt. 1 fyrsta lagi að veita
þeim 2000 Islendingum, sem
nú eru í Kaupmannahöfn, al-
menna prestþjónustu, m.a.
með þvi að halda reglulega
messur. 1 öðru lagi að veita
í aðstoð þeim fjölmörgu is-
I lenzku sjúklingum, sem njóta
7 lækningar í Kaupmannahöfn.
1 Þetta starf hefur sr. Jónas
þegar mótað að mestu leyti
og ég mun halda því áfram
án mikilla breytinga. En nú
hefur bætzt við starfið, þar
sem er umsjón húss Jöns Sig-
urðssonar, en prestsíbúðin er
i því húsi. Þar verður komið
upp safni til minningar um
Jón Sigurðsson, og ég mun
sjá um þetta safn.“
— Eru þetta ekki mikil við-
brigði að taka við starfi í
Kaupmannahöfn eftir að hafa
starfað á Islandi?
Jú, þetta eru frekar mikil
viðbrigði. Ég er búinn að vera
eina viku i Kaupmannahöfn
til að kynnast þessu og að
sjálfsögðu er margt öðruvísi
en heima. Ég hef nú þjónað
í tæp sjö ár I Nesþingapresta
kalli á Snæfellsnesi og haft
aðsetur í Ólafsvík. Þar var
mjög gott að vera og mér
iíkaði starfið vel, en ég sótti
um sendiprestsstarfið til að
fá nokkra tilbreytingu. Ég
geri mér þó fulla grein fyrir
því, að þetta er erilsamt starf,
ekkert hvíldarstarf, og mörg
vandamál, sem þarf að leysa
úr."
— Og hvað býzt þú við að
starfa lengi þarna í Höfn?
„Það er æskilegt, að menn
séu ekki mjög lengi í einu í
þessu starfi, og ég býst því
við að vera þarna í aðeins
þrjú ár. Ég tek fjölskyiduna
að sjáiísögðu með mér og
börnin verða þvi að ganga i
danska skóla, en þáð hlýtur
að vera skemmtilegt."
Sr. Hreinn Hjartarson fór
utan með fjölskyldu sína á
sunnudag.
Innbrotafaraldur, og
íkveikja á
Siglufinði, 28. septeimber.
A» MORGNI þriðjudagsins 22.
siðastliðins varð maður var við
talsverðan reyk koma úr mann-
lausu húsi hér í bæ og gerði
hann umsvifalaust slökkviliðs-
manni, sem hann hafði séð á
gangi í nágrenninu viðvart og
innan nokkurra mínútna hafði
slökkviliðsmönnum tekizt að
ráða niðurlögum eldsins með
slökkvitækjum.
Siglufirði
Eldiuriinn var eikkd imdkill, að-
eins nýkvilknaðuT, en það sem
þeiim er að kornu virtist undair-
legt, vair að brjótast þuirfti inn í
ihúsið gegnum tvíilæistar dyr, þar
sem neglt var rækilega fyrir alla
glugga í Ihinu yfirgeifnia húsi.
Húsið er eins konar braggi. —
Elklkert raifmagn var á húsinu og
umimerki þanmig að talið er að
urn íkveikju sé að ræða.
Ef það reynist rétt, þá mun
brennuvargurin.n hafa sloppið.
Samkvæmt upplýsin.gum bæjar-
fógeta, Elíasar 1 Elíassonar er
málið í rannsókn.
Nókkuð hetfur borið á ianníbrot-
um og öðruim afbrotum að undan
förnu hér, m. a. var brotizt inn
í Áfengiisverzlun ríkisins fyrir
nokkru, en þar voru memn staðn-
ir að verlki. Tvö til þrjú irunibrot
eru enn óupplýst, þar á meðal
innibrotið í afgreiðsílu Morgun-
blaðsinis í fyrri vi/ku. Ndkkuð hef
ur og borið á öilvun umgliinga hér
í bæ, m. a. síðastliðið iaiugar-
daigskvöld. Þá murnu ærsl hafa
verið á götum úti, m. a. brotnar
tvær rúður og ikiveikt bál í rusli
og bensíni á götum.
Þ R I
R KÍLÓMETRAR
Á áklæðalager Hiísgagnahallarinnar er eitthvað á
fjórða kílómeter húsgagnaáklæða, sem fólk getur
valið sér á húsgögn eða keypt í metratali.
Áklæðin eru úr 100% ull eða 70% ull og 30%
bómull, dralon, „Mohair“, Trevira svo og leðurlíki.
Og svo eigum vér „Lansinaefnin“ sem eru eins og
ekta leður.
Áklæðalitirnir eru eitthvað á annað hundrað.
1» I
cjc* cvrycx-------------
Simi-22900 Laugaveg 26
STAKSTEIMAR
N ey ðar úr r æði
Fyrir nokkru birtist forystu-
grein í Þjóðviljanum, þar sem
því var haldið fram, að klofn-
ingi í kommúnistaflokknum væri
nú lokið og tekizt hefði að ráða
bót á því sundurlyndi, sem
hrjáð hefur hreyfingu kommún-
ista og vinstri manna á íslandi á
annan áratug a.m.k. Þetta er
mikill misskilningur. I borgar-
stjómarkosningunum í vor voru
þrír listar í framboði, þar sem
einn var fyrir áður og kommún-
istar töpuðu einum borgarfull-
trúa sinum. Fyrirsjáanlegt er,
að Sósíalistafélag Reykjavíkur,
sem þá bauð fram í fyrsta skipti
og hlaut lélega útkomu hefur
ekki í hyggju að hætta stjóm-
málastarfsemi enda hefur félag-
ið haldið áfram blaðaútgáfu S|ð-
an. Gleggsta dæmið um það
ástand, sem ríkir í röðum komm
únista er þó sú staðreynd, að
þeir verða nú að leita til annarra
flokka til þess að koma saman
framboðslista í kjördæmi, sem
þeir áður höfðu sterka vígstöðu
í. í Norðurlandskjördæmi eystra
hafa kommúnistar ákveðið að
bjóða fram yfirlýstan Framsókn-
armann, Stefán Jónsson, frétta-
mann. Það framboð er vísbend-
ing um að kommúnistar treysta
sér ekki nú fremur en áður til
þess að bjóða fram eingöngu
eigin flokksmenn. Þrátt fyrir
slæma reynslu af samstarfi við
Hannibal hafa þeir enn leitað út
fyrir eigin raðir að frambjóð-
endum, bersýnilega í von um að
veiða einhver atkvæði út á það.
Hitt er svo annað mál að Stefán
Jónsson er enginn Hannibal.
Framboð Stefáns Jónssonar er
neyðarúrræði, bæði vegna þess,
að kommúnistar gátu ekki kom-
ið sér saman um framboð úr sín-
um röðum og vegna hins, að þeir
treysta sér ekki enn til þess að
ganga til kosninga nema sýna
andlit úr öðrum flokkum á fram-
boðslistum sínum en þennan leik
hafa þeir nú stundað um þriggja
áratuga skeið. Allir þeir, sem til
þess leiks hafa gengið, hafa horf-
ið frá slíku samstarfi við
kommúnista reynslunni ríkari en
það breytir ekki því að alltaf er
til nóg af nytsömum sakleysingj-
um til þess að taka þátt í þessum
leik. Nú er Stefán Jónsson þar
fremstur í flokki.
Karl hættir
Annað dæmi um það, að
kommúnistum hefur ekki tekizt
að stöðva þá upplausn, sem ríkir
í þeirra röðum er sú staðreynd,
að Karl Guðjónsson hefur ákveð
ið að fara ekki í framboð fyrir
þá á ný. Karl Guðjónsson hefur
verið einn fremsti forystumaður
kommúnista á þriðja áratug.
Fyrir einu ári lýsti hann því yf-
ir, að hann hyggðist ekki ganga
á ný til kosninga undir merki
„Þjóðviljaklíkunnar". Nú hefur
framboðslisti kommúnista í Suð-
urlandskjördæmi verið birtur og
er komið í ljós, að Karl Guð-
jónsson hefur staðið við þá yfir-
lýsingu, sem hann gaf fyrir einu
ári. Brottför Karls Guðjónsson-
ar er í rauninni meira áfall fyrir
kommúnista en þegar samstarf
þeirra við Hannibal rofnaði. Þá
var aðeins um að ræða slit á
samvinnu milli tveggja stjórn-
málaafla. Nú er það einn helzti
forystumaður kommúnista í ára-
tugi, sem yfirgefur þá.
Ekki einleikið
Það er heldur ekki einleikið
live mjög Þjóðviljinn hefur ham-
ast á móti prófkjörum að undan-
fömu. Þrir stjómmálaflokkar
hafa þegar tekið upp prófkjör
eða skoðanakannanir. Vitað er
að Alþýðuflokkurinn hefur slíkt
í undirbúningi. Kommúnistar
eru þeir einu, sem ekki hafa
treyst sér til þess að taka þessa
aðferð upp við val manna á
framboðslista. Það segir sína
sögu.