Morgunblaðið - 29.09.1970, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. S'EOPT. 1970
7
99
Ég er aðeins ferðamaður með ljósmyndavél “
rætt við Gunnar Hannesson
jöklafara og ljósmyndara
„Ég held persónulega, að
Vatnajökull sé einhver dýr-
asta perla, sem við eigum í is-
lenzkri náttúru, og liklega
verður það íslenzka veðrátt-
an, sem forðar honum frá því
að verða erlendum „túristum"
að bráð a.m.k. fyrsta kast-
ið,“ sagði Gunnar Hannesson,
jöklafari og ljósmyndari, þeg
ar við hittum hann á förnum
vegi inni á Hverfisgötu í síð-
ustu viku, en við höfðum þá
nýverið blaðað í hinu merka
riti og fagurlega útgefna „At-
lantica og Iceland Keview“,
en það rit hefur verið gefið
út á ensku í nokkur ár við
vaxandi vinsældir. í þessu ný
útkomna hefti er grein um
Vatnajökul eftir dr. Sigurð
Þórarinsson, en Gunnar Hann
esson hefur prýtt greinina með
gullfallegum myndum frá
Vatnajökli, og Gimnar — sem
margir Beykvíkingar muna
eftír úr Marteinsbúð á Lauga
vegi hér áður fyrri, — ætti að
þekkja Vatnajökul, því að 6
sinnum hefur hann ferðazt
nm hann þveran og endilang-
an.
„Já, síðasta ferð mín á jök
ulinn var í vor með Guð-
mundi Jónassyni; það var í
maí, og var þá farin fyrsta
ferðin á" Vatnajökul með er-
lenda ferðamenn. Við fengum
hið versta veður, eins og þau
gerast þar verst, en það virt-
ust allir ánægðir að lokum.
Annars er það svo undar-
legt, að um þessar mundir
berjast um mig annars vegar
lifandi rósir eins og þær, sem
maður gefur stúlkum og hins
vegar frostrósir.
Það togar í mig tvennt.
Garðurinn minn við Miklu-
braut er enn í blóma, með
gladiólum, liljum og rósum, og
þær eiga mikið eftir, og ég vil
þær standi sem lengst, — en
þó brenn ég í skinninu eftir
að það komi frost, svo að ég
komist á jökla.“
„Hvernig byrjaði þessi jökla
áhugi þinn, Gunnar?“
„Ég byrjaði ungur að ferð-
ast í óbyggðum með góðum
vinum, en svo var það fyrir
nokkrum árum, að við, nokkr
ir félagar fylltumst ofsaleg-
um áhuga á Vatnajökulsferð-
um, keyptum okkur gamlan
snjóbil, sem við skírðum
Nagg, eftir bergtindi i Grims
vötnum. Við höfum samt sam
flot með þeim í Jökla-
rannsóknafélaginu, enda geng
um við i það, og við erum
þakklátir þeim félögum fyrir
samfylgdina, með dr. Sigurð
Þórarinsson í broddi fylking
ar. Hann Sigurður er stórkost
legur maður, undraverður.“
ars, á ég ekki að sýna þér lit-
skuggamyndir frá einni Vatna
jökulsferð, en ég hef tekið
saman svona kjarnann úr
slikri ferð, hef oft sýnt þetta
útlendingum, og þeir verða
nánast agndofa."
Og það er ekki að orð-
lengja, að við göngum inn í
rúmgóðan sýningarsal, sem
Gunnar hefur við Hverfis-
götu, og eftir skamma stund
renna upp á tjaldinu undur-
fagrar myndir frá Vatnajök-
ulsleiðangri, og Gunnar skýr-
ir frá ferðalaginu jafnóðum,
og maður finnur í orðum hans
ástina, sem hann ber til þess-
arar stórbrotnu íslenzku nátt-
úru Vatnajökuls. Þegar leiðin
Gunnar Hannesson blaðar í
(Ljósm.:
„Þú ert orðinn þekktur fyr
ir myndir þínar frá jöklinum,
Gunnar. Ekki ertu samt ljós-
myndari að atvinnu?"
„Nei, það er ég ekki, en ég
er þakklátur fyrir þá viður-
kenningu, sem ég hef hlotið,
m.a. erlendis frá, t.d. frá for-
ráðamönnum Kodakfyrirtæk-
isins, sem hafa komið hingað
til að heimsækja mig. Ég er
eiginlega ekki Ijósmyndari á
ferðalagi, heldur maður með
ljósmyndavél, — og ég tel
jafnvel verra að verða filmu
laus á ferðalagi, en brenni-
vínslaus á fylleríi. Annars
finnst mér allt of lítið gert af
því að kynna landið okkar fyr
ir ungu fólki. Við verðum að
sýna því landið, þá fer það
ekki til útlanda. Heyrðu ann
VISUKORN
Sofnar út af sumarjurt,
sverfur haust að stráum.
Vindar feykja bráðum burt
bjarkarlaufum smáum.
Ó.H.H.
Spakmæli dagsins
Maður nokkur, (sumir segja
Napoleon) sagði, er hann hafði
átt tal við móður Goethe: „Nú
skil ég, hvernig Goethe gat orð-
ið slíkur maður!“ Sjálfur sagði
Goethe um móður sina: „Hún
var lífsins verð." — Þýzkt.
Lífsins draumur
Horfi ég yfir svarta sanda,
sé í anda liðna tíð.
Glæstar flatir gróðurlanda
grónar skógi, fjallahlið.
Vötn og eldur yfir flæddu,
eyddu fögrum blómareit.
Ljótum söndum landið klæddu,
lögðu i eyði fagra sveit.
Vekjum líf og verndum gróður,
vinnum kraft úr elfar straum.
Fegrun vorrar fósturmóður,
er fullkomnun á lífsins draum.
Giinnlaugtir Giinnlaugsson.
Atlantica og Iceland Beview
Sv. Þorni.)
liggur til Kverkfjalla, og
hverirnir bulla og krauma við
jökulröndina, andstæðurnar
eru stórkostlegar og Gunnar
hrópar í hrifningu: „Hvaða
land í heimi getur boðið upp
á svona landslag? Boðið upp á
svona stórkostlegar andstæð-
ur? Ekkert, áreiðanlega ekk-
ert.“
Þegar sýningunni er lokið,
leiðum við talið að hinum
fræga blómagarði hans við
Miklubraut, en þaðan á hann
margar fallegar myndir. „Ég
hef haldið dagbók yfir garð-
inn minn í 20 ár, ég hef
reynt við 600 tegundir af rós-
um, en auk þess við gladíól-
ur, túlipana, daliur og ane-
mónur. Þetta er indæl iðja, og
hefur gert mér mikið gott.“
„Þú ert náttúrlega alltaf
að ferðast, þótt ekki sé á jökl
um?“
„Já, það má heita svo. Um
s.l. helgi ók ég báðar Fjalla-
baksleiðirnar, og núna um
helgina ætla ég í Grænalón,
ef vel viðrar. 1 sumar höfum
við unnið við að setja upp
staðarmerki á hálendinu."
„Segðu mér, Gunnar, ætl-
arðu ekki að fara að gefa út
bók um Vatnajökul?"
„Hún kemur, hún kemur,
vertu viss,“ sagði Gunnar að
lokum, um leið og við kvödd-
um hann og þökkuðum hon-
um mjög vel fyrir skemmti-
lega myndasýningu. — Fr.S.
VOLKSWAGEN brotamAlmur
'66—'68 ósikest. Volvo kœmi tiil greina. Staðgreiðsla. Uppl. S síma 41919 eftir k1. 5. Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatúni 27, sími 2-58-91.
PlANÓKENNSLA 17 ARA STÚLKA
Byrja aftur að kenna 1. oikt. • Laufey Sveimbjörnsson, sim i 82526. ósikar eftir vinnu. Eir vön af- greiðslustörfum. Er laus strax. Símii 34033.
KENNSLU 1 PlANÓSPILI ELDHÚSSTÚLKA
byrja ég 1. öktóber. Katrín Viðar Laufásvegi 35, sími 13704. óskast. Nánari upplýsingar i síma 66200 í kvöld og arnnað kvöld.
TÆKNIFRÆÐINEMA STÚLKA ÓSKAST
vantar 3ja—4ra herberg'ja íbúð strax. Uppl. í síma 38437 frá kl. 12. Fyriirfnaim- greiðsla. tíl heimili'ssta>rfa, fœði og ihúsmæði á staðnuim. Upplýs- ingar ! síma 15320 í dag miiii 'kl. 4 og 6.
TIL SÖLU TIL LEIGU ÓSKAST
Ford Consuil '62, þvottavél, barnastóll, göngugrind og burðarrúm. Sími 51661 eftir kfl. 7 á kvöldin. 3ja—4ra heriberg'ja fbúð í nokkra mánuði í Kópavogi eða Reykjavík. Upplýsingar í síma 25870.
KLÆÐI OG GERI VIÐ bólstruð húsgögn. Húsgagnabólstrunin, Garða- stræti 16. — Agnar tvars. Heimasími í í hádeg'inu og á kvöldin 14213. TÖKUM AÐ OKKUR SMlÐI á eidh'úsin'nrétt'ingum, klœða- skápum o. fl. Gerum föst verðtilfooð. T résmiðaverk- stæði Þorvaldar Bjömssonar, simi 35148, 'kvötdsímii 84618.
MÚRARAR Vantar tvo múrara, góð viinna. Upplýsingar í síma 51306 eftir kl. 7 á kvöldin og í hádeginu. RAÐSKONUSTARF - HÚSNÆÐI Vel menntuð, reglusöm kona óskar eftir sta'rfi hijá eldri hjón'um eða eimih'leyping'um í góðu húsnæði í vetur. Tilfo'oð merkt „Ráðvönd 4440" send- ist afgr. Mbl.
Bókhald
Tek að mér bókhald, launaútreikning og reikningsuppgjör,
fyrir verktaka og smærri fyrirtæki.
Þeir sem áhuga hafa á þjónustu þessari, leggi nöfn sín inn
á afgreiðslu blaðsins, merkt: „Bókhald 4436".
Tóboks- og sælgætisverzlun
með kvöldsöluleyfi óskast til kaups nú þegar eða síðar, á
góðum stað í borginni.
Tilboð með nafni og símanúmeri leggist inn á afgr. Mbl.
merkt: „Verzlun — 4128" fyrir föstudag.
Fjallomenn
- Verktoknr
Þessi frambyggði Willys
jeppi er til sölu eða í
skiptum fyrir fólksbíl eða
minni jeppa.
Uppl. í síma 15434 á dag-
inn, eftir kl. 5 í síma
37416.
Einnig er til sölu Rambler Classic '67 mjög fallegur bífl.
Uppl. í síma 19779.
Skipti á ódýrari bíl möguleg.
ROCKWOOL
Rockwool Batts112
(steinull).
Nýkomið Rockwool f stærð-
unum 60 x 90 cm. Þykktir
50, 75 og 100 mm.
Mikil verðlækkun.'
ROCKWOOL er rétta ein-
angrunin.
Hannes Þorsteinsson
Hallveigarstíg 10,
sími 24459.