Morgunblaðið - 13.10.1970, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.10.1970, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐEÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓRER 1970 3 Forsetar Alþingis endur k j ör nir — Birgir Finnsson forseti Sameinaðs Alþingis, Jónas G. Rafnar forseti efri deildar — og Matthías Á. Mathiesen forseti neðri deildar í GÆR fór fram kjör þingíorseta á Alþingi. Voru allir þingforset- amir endurkjömir, en þeir eru Birgir Finnsson, forseti Samein- aðs Alþingis, Matthías Á. Mathie- sen, forseti neðri deildar og Jón- as G. Rafnar, forseti efri deildar. Þingfundi Sameinaðs Alþingis í gær stjómaði aldursforseti, Sig urvin 'Einarsson, meðan forseta- kjörið fór fram. Hlaut Birgir Finnsson 31 atkvæði, Eysteinn Jónsson 16 atkvæði, en 9 seðlar voru auðir. Tók Birgir Finnsson síðan við fundarstjóm, og voru kosnir 1. og 2. varaforseti Sameinaðs Al- þingis. CWafur Björrasson var kjörinn 1. varaforseti með 31 at- kvæði, en 27 seðlar voru auðir. Sigurður Ingimundarson var kjörinn 2. varaforseti með 30 at- kvæðum, Stefán Valgeirsson hlauf 1 atkvæði og 26 seðlar voru auðir. Skrifarar Sameinaðs Alþingis voru kjömir Bjartmar Guð- mundsson og Páll Þorsteinsson. Að loknum fundi í Sameinuðu Alþingi vom fundir í Matthías Á. Mathiesen báðum þingdeildum. í neðri deilld stjómaði aldursfor- seti deildarinnar, Sigurvin Einansson, fundi meðan for- setakjör fór fram. Forseti ðeildarinnar var kjörinn Matthí- ais Á. Mathiesen, er hlaut 20 at- kvæði, Ágúst Þorvaldsson hlaut 11 atkvæði og 6 seðlar voru auð- ir. 1. varaforseti deildarinnar var kjörinn Benedikt Gröndal með 20 atkvæðum, 15 seðlar voiru auðir og Gunmar Gíslason var kjörinn 2. vanafonseti með 19 atkvæðum, Stefán Valgeirs- son hlaut 1 atkvæði og 16 seðlar vom auðir. Skrifarar neðri deildar vom Jónas G. Rafnar S j ómannasambandsþing: Vill segja upp samningum Jón Sigurðsson endurkjörinn J>INGI Sjómannasambands ís- lands lauk í gapar og var Jón Sig- urðsson endurkjörinn formaður sambandsins. Á þinginu var samþykkt áskor nn til sjómannafélaganna i land inu að segja upp gildandi báta- kjarasamningum fyrir næstu mánaðamót, svo þeir væru laus- ir um áramót. Tiu ný félög gengu í Sjómannasambandið og eru aðildarfélögin þá 18 talsins. Stjórnarmönnnm var fjölgað úr 7 í 11. Á þdnginu var fjallað um mörg mál. Voru þau hedztu kjaramál, atvinnumál, öryggis- og tryggingamál og undanþágur vélstjóra. Lögum Sjómannasambands Is- lands var breytf og stjórnarmön.n um fjölgað úr 7 í 11. Jón Sig- urðsson var einróma endurkjör- inn formaður, en í gær skipti stjórnin með sér verkum að öðru leyti á síwum fyrsta fundi. Er Magnús Guðmundsson Garða hreppi, varaformaður, Pétur Ság urðsson Reykjavík, riitari og Hilmar Jónsson Reykjavík, gjald keri, en aðrir í stjórn eru Tryggvi Helgason, Akureyri, Kristján Jónsson, Hafnarfirði, Guðlaugur Þórðarson, Keflavik, Jónatan Aðalsteinsson, Vest- mannaeyjum, Sverrir Jóhanns- son, Grindavik og Erlingur Vigg ósson, Stykkishólmi. Þá var kosin framkvæmda- nefnd. Auk formanns, varafor- manns og ritara eiga sæti i henni: Tryggvi Helgason, Akur- eyri og Kristján Jónsson, Hafn- arfirði. Varamenn Hiimar Jóns- son, Reykjavik og Guðlaugur Þórðarson, Keflavík. Birgir Finnsson kjörnir Friðjón Þórðarson og Ingvar Gíslason. Jón Árnaison, aldursforseti efri deild'ar stýrði þar fundi, meðan forsetakjör fór fram. For- seti var kjörinn Jónas G. Rafnar með 12 atkvæðarm, Ásgeir Bjarna son hlaut 5 atkvæði og 3 seðlar voru auðir. Jón Þorsteinsson var kjöriinn 1. varaforseti með 11 at- kvæðum, 9 seðlar voru auðir og Jón Árnason var kjörinn 2. vara- forseti með 10 atkvæðuim, auðir seðlar voru 7. Skrifarar efri dei'ldar voru kjörndr Steinþór Gestsson og Bjarni Guðbjörnsson. Kosið var í eina nefnd Alþing is í gær — kjörbréfanefnd og eiga eftirtaldir þingmenn sæti í benni: Matthías Á. Matíhiiesen, Pálmi Jónsson, Geir Hallgríms- son, Jón Þorsteinsson, Ólafur Jóhannesson, Bjöm Fr. Björns- son og Karl Guðjónsson. ii ja eKKi vera með! MORGUNBLAÐINU hefur borizt yfirlýsinig frá fiimm hljómsveitum, sem gagnrýna framkvæmd kosninganna á beztu hljómsveitinni og pop- stjönnu ársins 1970. Jafnframt draga þær sig út úr þessum kosningum. Vegroa rúmleysis í blaðinu verður yfirlýsingin að bíða birtingar, þó vonandi ekki lengur en til morguns. STAKSTEII\IAR Umræður um efnahagsmál Nú hefur Alþingi komið sam- an tii funda á ný, og vafalaust verður það vettvangur mikilla stjómmálasviptinga eins og endranær. Þar sem þetta er sein asta þing fyrir næstu almennar alþingiskosningar, er gert ráð fyrir, að átök verði harðari en venja er til .Að undanfömu hef- ur það víða komið fram að bú- izt er við því, að Alþingi taki nú- verandi ástand efnahagsmála þjóðarinnar til sérstakrar með- ferðar, enda sýnist nú vera al- mennur áhugi á því, að gerðar verði ráðstafanir til þess að stemma stigu við frekari víxl- hækkunum kaupgjalds og verð- lags. Svo sem kunnugt er hafa staff ið yfir viðræður ríkisstjómarinn ar við fulltrúa Vinnuveitenda- sambandsins, Alþýðusambands- ins og Stéttarsambands bænda um viðhorfin í efnahagsmálun- um. Forsætisráðherra hefur ný- lega lýst því á fundi, að þessar viðræður séu að því leyti árang- ursríkar, að nú eigi að vera auð veldara að fá þessa aðila til þess að viðurkenna staðreyndir um stöðu atvinnuveganna. Það væri vissulega spor í rétta átt, ef um ræður kæmust af því stigi að vera einungis orðaskak um það, hvað séu staðreyndir. Hitt er eðlilegt, að menn deili um mis munandi leiðir, en óþarfi ætti að vera að eyða of miklum tíma í deilur um það t.a.m., hver sé raunveruleg staða eða greiðslu geta atvinnuveganna. Fróðlegt verður að fylgjast með því, þegar þessi mái koma til umræðu á Alþingi, hvort þess ar viðræður muni raunverulega leiða til þess, að fyrst og fremst verði deilt um leiðir til úrbóta, en síður þráttað um þær stað- reyndir, sem fyrir liggja um stöðu atvinnuveganna. St j órnarand- stöðuflokkarnir En til þessa hafa umræður um þessi efni af hálfu stjómarand- stöðunnar farið fram af skilnings leysi á greiðslugetu atvinnuveg- anna. Þannig segir Þjóðviljinn í ritstjómargrein sl. sunnudag: — „Nú er aftur hafinn sami áróður inn í íhaldsblöðunum um launa- hækkanir og verðtryggingu launa sem orsök „verðbólgu“ og gengislækkana. Þetta er rakalaus áróður, verðbólguþróunin er vegna óstjómar í landinu og stefnu rikisstjórnarinnar“. Mál- grein þessi er einmitt gott dæmi um skrif Þjóðviljans um þetta efni ,þar sem glöggt kemur fram skilningsleysi á greiðslugetu at- vinnuveganna. Sl. vor var það almennt talið eðlilegt, að almennt kaup yrði hækkað nokkuð. 'En kauphækk animar urðu það miklar, að þær hlutu óhjákvæmilega að hafa á hrif á verðlagið. Þetta em ein- föld sannindi, sem liggja í aug- um uppi, en hafa t.a.m. ekki ver ið viðurkennd af Þjóðviljanum til þessa. Fróðlegt verður að sjá, hvort unnt verður að breyta þessu steinrunna viðhorfi Þjóð- viljans. Dagblaðið Tíminn gaf í skyn fyrir nokkru, að stjórnarandstöðu flokkarnir væm í kapphlaupi um að komast í stjómarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn að aflokn um þingkosningum. Hvort sem þetta er rétt mat hjá Tímanum eða ekki, þá eru þetta mjög eðli leg viðbrögð. En það ætti hins vegar að koma fljótlega í ljós í stjómmálaumræðum á Alþingi og afstöðu flokkanna til ein- stakra mála eins og t.a.m. efna hagsmálanna hvort Tíminn hef ur haft rétt fyrir sér í þessu efni. < c t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.