Morgunblaðið - 13.10.1970, Side 32

Morgunblaðið - 13.10.1970, Side 32
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1970 SAMEINAÐA VATRYGG/NGAFÉLAGID HF. HAtON 4A REYKJAVfK StMI 25850 25851 SlMNEFNI: SAMVA 11 stjórnarfrumvörp lögð fyrir Alþingi - — meðal þeirra frumvörp um Lagarfossvirkjun, Lífeyrissjóð bænda og Olíuhreinsunarstöð — þingsályktunartillaga um staðgreiðslu opinberra gjalda RÍKISSTJÓRNIN lagði I gær fram á Alþingi 11 stjórnarfrum- vörp og eina tillögu til þings- ályktunar. Veigamesta frum- varpið er frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1971 og eru því gerð skil á öðrum stað í blaðinu. Þá var lagt fram frumvarp um virkjun Lagarfoss, en flest hin frumvörpin höfðu verið lögð fyrir þingið í fyrra, en ekki blotið afgreiðslu þá. Þingsálykt- unartillagan fjallar um stað- greiðslukerfi opinberra skatta og er með henni lagt til að A1 þingi álykti að fela ríkisstjórn- inni að undirbúa fyrir næsta þing frumvarp um staðgreiðslu- kerfi opinberra gjalda. Skal leitazt við að gera skattheimtu- kerfið það einfalt, að staðgreiðsla opinberra gjalda auki ekki kostnað og fyrirhöfn við álagn- ingu og innheimtu gjaldanna. í stjórnarfrumvarpinu um virkjun Lagarfoss eru ákvæði þess efnis, að rikisstjórninni sé heimilt að fela Rafmagnsveitum ríkisins að virkja Lagarfoss á Fljótsdalshéraði til raforku- vinnslu í allt að 8000 hestafla orkuveri og leggja þaðan aðal- orkuveitu að Egilsstaðakauptúni til tengingar þar við veitukerfi Grimsárvirkjunar, og að rikis- stjórninni skuli heimilt að taka lán fyrir hönd ríkissjóðs eða á- byrgjast lán er Rafmagnsveitur rikisins taka, allt að 180 milljón- um króna, eða jafngildi þeirrar upphæðar í erlendri mynt, til greiðslu stofnkostnaðar þessara mannvirkja. Þau fruimvörp er ríkisstjórnin endurflytur nú eru eftirtalin: ■ SÉfMÍf I S Baldur Guðlaugsson, stud. jur. Frumvarp til laga um olíu- hreinsunarstöð á íslandi; Frum- vatrp til laga um breytingu á lög- um um Aflaitrygginigasjóð sjáv- arútvegsins; Frumvarp til laga um Lifeyrissjóð bænda og Frum- varp til laga um samþykkt á ríkisreikningMum fyrir árið 1968. Bkkert þessara mála var útrætt á síðasta þingi. í frumvaxpinu um olíuhreins- unarstöð eru ákvæði þess efnis, að ríkisstjórnin skuli beita sér Þyrlan nauð- lenti á heiðum uppi ÞYRLA Landhelgisgæzlunnar varð að nauðlenda á heiðum uppi inn af Skagafirði, þegar vélarbilun varð í henni í gær. Lenti vélin um 4 km austur af A ð ailtmiairmav atni O'g sakaði hvorki þyrluna né flugmemmina tvo, sem 1 henini voru. En það voru þeir Páli Halldórsson, fiugmaður og Bergsveinn flugvirfki hjá Land- heÍgisgæzQunni. Veður var ágætt á staðnum. Þetta gerðist um þrjúleytið og var þyrlan á leið suður, frá varðskipinu Ægi, sem var fyrir utam Dalvík. Gerðu fluigmennirm- ir Lamdhelgisgæzlummi aðvaxt. Fékk hún Þóri í Stafni í Svairt- árdai, sem hefur ágætan jeppa, til að fara fram eftir og var hann komimn til mannanna um klukk- an 7. Ætluðu þeir með homum til byggða og huigðust gdsta í Stafni í nótt. Pétur Sigurðsson, forstjóri Landheigisgæzlumnar. tjáði Mbl., að ekki væri búizt við að hægt yrði að gera við þyrluna á staðn- um, og mundi verða sendur bíll- tifl að flytja hana suður á morg- un. Bn auðvitað' hefðu þyrlu- menn lent skammt frá velfærum jeppavegi. Þyrlan hafði verið fyrir norð- an til að flytja efni frá varðskip- inu í vitamn á Gjögri og er búið að byggja hann. Gekk það fljótt og vel, og kom þyrlam þar að góðu gagni. fyrir stofnun hlutafélags, ex hafi það að markmiði að kamna að- stæður til að reisa og reka olíu- hreinsunarstöð hér á landi og stuðla að því, að slíku fyrirtæ'ki verði komið á fót, og í þessum tilganigi er ríkisstjóminnd heim- ikt að leggja fram allt að 5 milljóndr króna eða jafnvirði þess í ehllendri mynit, sem hluta- fé í félagi eða til greiðslu á kostniaði þeiss, af fé ríkissjóðs eða lánsfé, sem henni skal heim ilt að afla ríkissjóði í því skyni, — að veita ríkisábyrgð fyrir láni eða lánum er hlutafélagið teíkux til starfsemi sinnar, að fjárthæð samtals allt að 5 millj. króna eða jafmvirði þeirra í er- lendri mynt, eða taka lén imman sömu marka og endurlána fé- laginu í samia tilgangi, og — að leyfa félaginu umfexð og afnot af löndum og maninivirkjum eft- ir því sem nauðsynilegt kann að vera í þágu rannsókna, enda igreiði félagið fullair bæitux fyrir það tjón, sem umferðin eða af- motin kunna að valida eigendum Framhald á bls. 21 Frú Auður Auðuns í skrifstofu sinni í dómsmálaráðuneytinu í gær. Fyrstu verkefni dómsmálaráðherra; Tvö stjórnarfrum- vörp til Alþingis - í GÆR var fyrsti starfsdagur hins nýja dórns- og kirkju- málaráðherra, frú Auðar Auðuns. En frú Auður er fyrsta, konan, sem situr á ráð herrastóli á íslandi. Mbl. spurði hana eftir þennan fyrsta starfsdag, hvemig hún hefði kunnað við sig. — Mjög vel, svaraði írú Auður. Og fyrirfram viissi ég að ráðuneytisstjóri og amnað starfslið ráðuneytisins væri það þezta, sem völ er á. Þá spurðum við hana hvaða erindi hefðu fyrst legið fyrir henni í embættinu. — Ég var í dag að kynna mér ýmis er- indi, sem hafa verið til af- greiðslu í ráðuneytinu og bíða ákvörðunar. En mitt fyrsta verk var að senda tvö stjórn- arfrumvörp til þingforseta. Annað er samskonar frum- varp, sem jafnan er flutt á hverju ári um veitingu ríkis- borgararéttar. Hitt frumvarp- ið var um breytingu á lögum um kirkjuþing og kirkjuráð íslenzku þjóðkirkjunnar. Það er staðfesting á bráðabixgða- lögum, og er að nokkru leyti afleiðing af nýjum lögum um prestaköll og prófastdæmi og breytingu á kosningu til kirkjuþings. Yfirmenn ganga í land Prír Fossar, Herjólfur og Litla- fell höfðu stöðvazt í gær f GÆR höfðu þrír Fossanna stöðvazt í Reykjavíkurhöfn, svo og Herjólfur, og Litlafell var væntanlegt í gærkvöldi. Má svo búast við að skipin stöðvist hvert af öðru, ef ekki næst sam- Kosið i stjórn Stúdentafélagsins: Vaka fékk meirihluta 8 atkv. skildu á milli listanna seðlar og ógildir VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, fór með sigur af hólmi i kosningum til stjómar Stúd- entafélags Háskóla íslands, sem fram fóru sl. laugardag. A-Iisti Vöku fékk 588 atkvæði og fjóra menn kjöma, en B-iisti Verðandi fékk 580 atkvæði og þrjá menn kjörna. Atkvæði greiddu 1204, en auðir voru 36. Formaður stjórnax Stúdenta- félagsins er kjörinai af stjóm fé- lagsins, en gert er ráð fyrir, a-ð hún komi saman til fyrsta fund- ar í dag og verði þá kjörinn nýr formaður. í stjómina voru kjönn- ir af A-lista Vöfku: Baldur Guð- laugsson, stud. jur.; Hallgrímur Guðmundsson, stud. sociol.; Stef- án Hreióarsson, stud. med. og Tryggvi Pálsson, stud. oecon. og af B-lista Verðaindi: Viðar Thoreid, stud. med.; Gísli Páls- son, stud. sociol. og Skúli Thor- oddsen, stud. jur. Vaka hefur haft meirihluta í stjórn Stúdentafélagsins undan- farin tvö ár. Morgumblaðið sneri sér í gær Framhald á hls. 21 komulag milli yfirmanna á kaup skipum og útgerðarfyrirtækj- anna. Og í næstu viku yrði þá um þriðjungur af kaupskipa- flotanum stöðvaður, að því er formaður Stýrimannafélags ís- lands, Óli Valur Sigurðsson, tjáði Mbl. Höfðu yfirmenn á kaupskip- uiraum, stýrimenn, vélatjórar, loftskeytamenn og brytar, eaigt upp frá miðnætti aðfaramætur sunmudags, og reyndust fundir fuilltrúa beggja aðila til mála- miðlunar, árangurslausir, þó þeir stæðu með litlum hléum frá kl. 2.30 á föstudag og fram á sunraudagsnóttina og síðan aft- ur frá k'l. 4 síðdegis á suranudag til kl. 2 um nótthna. Skipin höfðu mörg farið út fyrir imiðnætti á laugardag. En í gær var enn uranið við að af- fenma Skipin, sem komin voru í Reyk j av íkuirh öfn, því útgerðin hefur rétt til að krefjast að unraið sé í tvo daiga eftir að Skipið kemur í höfn, að því er ÓH Valur upplýsti. Þó sagði hann að menmámir væxu famir að yfirgefa skipin, og sumir hættir — þó eftir aðstæðum. Haran sagði, að flestir yfirmenn kaupskiparana hiefðu sagt upp, en ek)ki vanðskipsmeran, emda væru sérstök laigaákvæði um fjöldauppsagnir opiniberra starfs- manna. í gærkvöldi voru srvo furadir í stjómum og trúnaðar- mfl'nnaráðum félaganna til altf kynraa stöðuna. Framhald á bls. 2 Lézt eft- ir slys UMFERÐARSLYS varð í Skip- holti hinn 4. september síðast- liðinn. Var þá ekið á aldraða konu, Guðrúnu Guðmiundsdótt- ur til heknilis að Skipiholliti 47. Guðrún lézt í sjúkrahúai hinn 8. október 81 árs að aldri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.