Morgunblaðið - 22.10.1970, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1970
7
DAGBÓK
Hatnr vekur illdeilur en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti.
(Orðskv. 10.12).
í dag er fimmtudagur 22. október og er það 295. dagur ársins
1970. Eftir lifa 70 dagar. Tungl á síðasta kvarteli. Veturnætur.
Árdegisháflæði kl. 12.07 (Úr Islands almanakinu).
AA- samtökin.
VjStalstími er í Tjarnarfe'ötu 3c aila virka daga frá kl. 6—7 e.h. Sim<
«1373.
Almeouiar npplýsingar nm læknisþjónustu í borginnl eru gefnar
simsvara Læknafélags Reykjavíkur, sima 18888. Lækningastofur eru
lokaðar á laugardögum yfir sumarmánuðina Tckið verður á mótí
beiðnum um lyfseðla og þess báttar að Garðastræti 13. sími 16195
frá kl. 9-11 á laugardagsmorgnum.
Mænusðttarbólusetning fyr-
ir fullorðna, fer fram í Heilsu-
verndarstöð Reykjavikur, á
mánudögum frá kl. 17—18. Inn-
gangur frá Barónsstig, yfir
brúna.“
Geðverndarfélagsins
þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að
Veltusundi 3, sími 12139. Þjón-
ustan er ókeypis og öllum heim-
U.
Tannlæknavaktin
er í Heilsuverndarstöðinni, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. 5—6.
Næturlæknir í Keflavik
22.10 og 21.10 Kjartan Ólafsson.
22.10 Arnbjörn Ólafsson.
23.10, 24.10 og 25.10 Guðjón
Klemenzson.
26.10 Kjartan Ólafsson.
Ráðgjafaþjónusta
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74,
er opið sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl.
1.30—4. Aðgangur ókeypis.
Arnad heilla
Sextugur er i dag Guðjón
Mýrdal, Silfurteigi 6, Rvik.
Hann verður að heiman í dag.
FRETTIIT
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði hefur kaffisölu i
Alþýðuhúsinu sunnudaginn 25.
okt. kl. 3. Eélagskonur og aðrir
velunnarar félagsins, sem vildu
gefa kökur og annað til kaffi-
sölunnar, komi með það á sunnu
dagsmorgun.
Kvenfélagið Hrönn
heldur kökubasar laugardaginn
24. okt. kl. 2 að Bárugötu 11.
Úrval af heimabökuðum kökum.
Allir velkomnir.
Kvenfélag Langholtssafnaðar
hefur fótaaðgerðir fyrir aldrað
fólk alla þriðjudaga frá kl. 8.30
—12 árdegis í Safnaðarheimili
Langholtssóknar. Sími 33115.
Blöð og tímarit
Faxi, 8. tbl., okt. blað, XXX.
árg. 1970 er nýkomið út og hef-
ur verið sent blaðinu. Af efni
þess má nefna: Ný og vönduð
dráttarbraut i Ytri-Njarðvíkum.
Frá Berlin til Búðardals. Viðtal
við dr. Fridu Sigurðsson. Guðni
Magnússon skrifar um Bindind-
ishreyfinguna á Suðurnesjum og
er það 10. grein. Nýr bæjar-
stjóri ráðinn í Keflavik. Faxi
vakti áhuga minn til ritstarfa,
heitir viðtal við Skúla Magnús-
son, ungann mann, sem vinnur
að Sögu Keflavíkur. Ný glæsi-
leg útflutningsverzlun með inn-
lendum iðnaðarvarningi. Bréf
frá Kóreu frá Keflvíkingi.
Minningargrein um Erlend Sig-
urðsson skipstjóra. Handbolta-
grein. Ný nefnd — barnavernd-
arnefnd. Úr flæðarmálinu, ýms-
ar fréttir frá Suðumesjum. Blað
ið er prentað í Alþýðu-
prentsmiðjunni á vandaðan
pappír, og fjöldi mynda prýðir
það. Ritstjóri er Hallgrimur Th.
Björnsson yfirkennari, en útgef
andi er Málfundafélagið Faxi,
Keflavik.
9. tölublaó Sjóniannablaðsins
Víldngs er komið út. Áf efni
þess má nefna:
Hjalti Einarsson verkfræðing
ur skrifar greinina: Bókvitið
verður látið i askana. Hjálmar
R. Bárðarson siglingamálastjóri:
Siglingamálastofnun rikisins. Þá
eru í blaðinu frúmsamdar og
þýddar greinar: Hafrannsóknir.
Vísindalegar aðferðir við fisk-
veiðar i Sovétrikjunum. Suez-
skurðurinn 100 ára. Sjómanna-
menntun í Vestmannaeyjum.
Merkur uppfinningamaður.
Langskólanám. Heldur ísbjörn-
inn vel'li? Jules frændi, eftir
Guy de Maupassant. Skipun frá
London. Vanræktur atvinnuveg-
ur. South Street 25. Taugastyrk
kona. Framhaldssagan Mary
Deare. Frívaktin o.m.fl. Ritstjór
ar eru Guðm. Jensson og örn
Steinsson.
VÍSUKORN
Aldrei höfðum á þvi mætur,
á öllu varð að hafa gætur,
þegar reiðar ránardætur
reistu falda um dimmar nætur.
Giinnlaugur Gunnlaugsson.
Haustið kallar
Vorhret spjallar vaxtarhring
veiklast blómasjóður.
Haustið kallar, samt ég syng,
sölnar vallargróður.
I>ó er ennþá indæl tíð
ársól kyndir k>ga,
glitrar lind í grænni hlíð,
geislar um tind og voga.
Sigríðiir Jónsdóttir
frá Stöpum
við Reykjanesbraut.
Olafur K. rak upp stór augu
1 gamla daga var það siðtir að
segja þá gamansögu af Færey-
ingum, sem hér komu í Anstur-
strætið, skömmu eftir að
Nathan og Olsen-húsið var
byggt, þar sem nú eru Borgar
skrifstofur og Reykjavíkur-
apótek, að þeir hefðu staðið þar
og starað í „forundran“ upp eft-
ir þessu risaháa húsi, og annar
hefði sagt við hinn:
„Allan andsk . , . geta íslend-
ingar.“
Ólafur K. Magnússon var um
daginn á ferð í Færeyjum og
stóð framan við búðarglugga,
þar sem auglýst var verð á nýju
lambakjöti, bæði í heilum
skrokkum og niðurbrytjuðu, og
rak upp stór augu, því að verð-
ið var kr. 7.25 og kr. 8.50, og
þótt þetta megi margfalda með
rúmum 10, þá varð Ólafi á orði:
„Ja, allan andsk . . . geta Fær-
eyingar,“ og voru þá loksins
frændþjóðirnar kvittar.
PRESTOLITE brotamAlmur
rafgieym'ar, a'Miar stærðir í ai- ar tegutn'dir bila. Lamg ódýrastir. NÓATÚN 27, sími 2-58-91. Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiösla. Nóatúni 27, sími 2-58-91.
Sendisveinn óskast
Viljum ráða röskan sendisvein, pilt eða stúlku á skrifstofu vora.
Upplýsingar á skrifstofunni.
HF. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON
Þverholti 20.
BÍLASTÆÐI
Nokkur bílastæði til leigu við Laugaveg, neðarlega.
Þeir sem vilja fá stæði á leigu Jeggi nafn, heimilisfang og
símanúmer á afgr. Mbl. með upplýsingum um hve mikið
viðkomandi vill borga í mánaðarleigu fyrir 26. þ.m. merkt:
„Bílastæð' — 8381".
H afnarfjöröur
3ja—4ra herb. 93 ferm. íbúð til sölu í Norðurbæ. íbúðin er
á 3. hæð og er tilbúin undir tréverk til afhendingar nú þegar.
Sérgeymsla i kjallara. Lóð verður frágengin. Veðdeildarlán
fengið. Otborgun eftir samkomulagi.
GUÐJÓN STEINGRÍMSSON HRL.,
Linnetsstíg 3, sími 52760.
Málmar
Ég kaupi ekki bara eir og kopar, heldur
Al Krómstál Nimonium
Blý og spæni Plett
Brons Kvikasilfur Ónýta rafgeyma
Eir Mangan Silfur
Gull Magnesium Stanleystál
Hvitagull Monel Tin
Hvítmálm Messing Zamak
og spæni Nikkel Zink
Kopar og Nikkelkróm Vatnskassa
koparspæni afklippur og
Króm spæni
Mikið hækkað verð fyrir ónýta rafgeyma
Langhæsta verð — staðgreiðsla.
NÓATÚN 27 — Sími 2-58-91
Simnefni Masjomet.
íþróttafólk! íþróttaunnendur!
NÝKOMIÐ
★ Fyrir skólann: Leikfimibolir (stúlkna), — leikfimiskýlur
og strigaskór. Einnig húfur og treflar i félagslitum.
Á Innlendir og erlendir félagsbúningar i miklu úrvali.
★ Æfingatöskur með og án félagsmerkja.
■Á Blakboltar, fótboltar, handboltar, körfuboltar.
★ Útvegum skólum, félögum og starfsmannahópum bún-
inga.
— Póstsendum. —
Sportvöruverzlun
Ingólfs Oskarssonar
Klapparstíg 44. — Sími 11783.