Morgunblaðið - 22.10.1970, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.10.1970, Blaðsíða 16
16 MORGUN'BLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBBR 1970 ttgtlttfrlflfrifr Útgefandi hf. Arvakur, Reykjavik. Framkvaemdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjómarfulltrúi Þorbjöm Guðmundsson. Fréttastjórj Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. RHstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. Áskriftargjald 165,00 kr. á mánuði innaniands. i lausasölu 10,00 kr. eintakið. FJÖLMIÐLAR OG HLUTVERK ÞEIRRA Cvonefndir fjölmiðlar, og er ^ þá aðallega átt við dag- blöð, útvarp og sjónvarp, geigna hvarvetna vaxandi og þýðingarmiklu hlutverki. Mun það ekki otfmælt, að mikilvægi fjölmiðla hafi auk- izt mjög hin síðari ár. í sum- um löndurn, eins og t.d. í Bandaríkjunum hafa fjölmiðl ar raunar um lanigan aldur verið mjög áhrifamiklir og stjórnmálamenn og talsmenn félagasamtaka og fyrirtækja bafa lengi lagt ríka áherzlu á náið og gott samstarf við þá. I>að er ekki fyrr en á síð- ari árum, sem almenningur á íslandi hefur að marki vakn- að til vitundar um þýðimgu fjölmiðla, en þess gætir nú mjög, að skilninigur og stuðn- ingur almennings er talin for- senda fyrir framgangi mála. Þess vegna verða dagblöð, út- varp og sjónvarp nú fyrir vaxamdi ásókn hinna ýmsu aðila, sem vilja koma mál- efnum sínum á framfæri við alþjóð, og er ekkert nema gott um það að segja. Á hinn bóginn leggui- þetta aukna ábyrgð á herðar þeirra, sem starfa við þessa fjölmiðla. Þeirra er að velja og hafna. Hingað til hefur það ekki tíðkazt að ráði, að opinberir aðilar, félagasamtök eða at- vinnufyrirtæki kæmu sam- skiptum sínum við fjölmiðla í fast form á þann hátt að ráða sérstaka blaðafulltrúa eða efna til reglulegra blaða- mannafunda. Þó hafa flug- félögin tvö um langan aldur haft starfamdi blaðafulltrúa í sinni þjónustu og hefur það að sjálfsögðu auðveldað sam- skipti fjölmiðla við þau og Eimskipafélag íslands og Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna fylgdu í kjölfarið fyrir nokkrum árum. Geir Hall- grímsson, borgarstjóri, hafði forystu um það, fyrstur ís- lenzkra stjórnmálamanna, að efna til nokkuð reglulegra blaðamannafunda. Einstakir ráðherrar hatfa efnt til blaða- mannafunda eftir því, sem þeim hefur þótt tilefni gefast til. Hins yegar hefur hvorki stjómarráðið né Reykjavíkur borg eða aðrir opinberir aðil- ar ráðið blaðafulltrúa til starfa og veldur það starfs- mönnum fjölmiðla oft veru- legum erfiðleikum að geta ekíki snúið sér til ákveðins starfsmanns til þess að leita upplýsinga og jafnframt hlýt- ur það að leiða til þess, að upplýsingaþ j ónusta þessara aðila verður meira og minna í molum. f>að viðhorf er enn mjög ríkt. meðal íslenzkra ernbætt- ismanna og stjórnmálamanna og rnargra annarra, að dag- blöð, útvarp og sjónvarp séu tæki, sem þeir eigi að hafa greiðan aðgang að, þegar þeim þóknast og þeir telja sér hag af því, en á öðrum tím- um sé ekki ástæða til að veita þessum aðilum viðhlítandi þjónustu. Þetta rótgróna við- horf nálgast stundum beina ókurteisi í garð fjölmiðla og starfsmanna þeirra og er hægt að nefna dæmi um slíkt, ef ástæða þætti til. Þegar um erlenda gesti er að ræða, sem fjölmiðlar hafa hug á að ræða við, er það að sjálfsögðu ekki á valdi þeirra aðila ís- lenzkra, sem taka á móti þeim, að greiða fyrir slíku, ef hinir eriendu gestir hafa sjálf ir ekki áhuga á því, en þá er algjör lágmarkskrafa, að blaðamönnum og fréttamönn- um útvarps og sjónvarps sé sýnd tilhlýðileg kurteisi, en á það hetfur því miður skort. Þess ber að gæta, að blöð- in, útvarpið og sjónvarpið eru þjónustufyrirtæki við almenn ing og sem slíka eiga þau krötfu á, að þeim sé veitt við- unandi starfsaðstaða t.d. þeg- ar opiuberir aðilar eiga í hlut, en opinberir aðilar eru ein- ungis trúnaðarmenn almenn- ings og þeim ber að líta á störf sín sem þjónustustörf við fólkið í þessu landi. Á því er knýjandi nauðsyn, að ríkisvaldið og stærstu Stofnanir þess, stærri sveitar- félög, hin stærri fyrirtæki í landinu, mikilvæg almanna- samtök og aðrir aðilar, sem máli skipta í þessu sambandi, taki samskipti sín og afstöðu til fjölmiðla til algjörrar endurskoðunar. Þessum aðil- um ber að gera ráðstafanir til þesis, að þessi þjónustufyrir- tæki almenninigs eigi greiðan aðgang að hvers kyns upplýs- ingum, sem almenningur á rétt á að fá, þegar fjölmiðl- amir sjálfir meta það svo, en ekki einungis, þegar viðkom- andi aðilar telja sjálfum sér hag af því. íslenzk dagblöð, útvarp og sjónvarp hafa sýnt vaxandi metnað í því að rækja skyld- ur sínar við lesendur og not- endur. Störf þeirra verða jafnan gagnrýnd vegna þess að sitt sýnist hverjum í þeim efnum. En þýðing þeirra mun enn vaxa á næstu árum og þá er nauðsynlegt, að úr- eltum viðhorfum verði rutt úr vegi og eðlilegt samstarf takist á j afnrétt isgrundvelli milli þeirra aðila, er hér eiga hiut að máli. 4 il 3 De Gaulle bar enga ábyrgð á byltingunni 1958, sem kom honum aftur til valda í Frakk landi. — ÞJóðin misskildi hann, þegar hann sagði við frönsku mælandi Alsirbúa „Ég skil yikkur.“ 1 rauninni leit hann svo á að franskt Alsír væri nánast sæliuriki. — Árið 1958 var hann reiðubúinn að lláta Frakkland ganga úr Atlantshafsbanda- laginu og fór að þreifa fyrir sér um leiðir til að ná því marki. — Harold MacMillan, for- sætisráðherra Breta, hvatti hann til að láta Efnahags- bandalag Evrópu lönd og leið. — Það hefði hann gert, ef De Gaulle. — John Kennedy sagði hon um árið 1961, að Bandarikja- menn myndu beita kjarnorku vop-num til að koma í veg fyrir, að Evrópa féliii í hend- ur kommúnista. Frá þessu og fléiru skýrir Charles de Gaulie, fyrrum Frakklandsforseti i nýjasta bindi af sjálfsævisögu sinni, sem kom út í Frakklandi fyr- ir fáeimum dögum. Þetta bindi heitir „Le Renoveau" og spannar yfir árin frá því de Gaull'e varð forseti árið 1958 og til ársins 1962. Út- koma bókarinnar vakti mikla atíhygli, og hafði ekki verið búizt við henni svo snemma hausts. Útigefendur sögðu, að allt hefði gengið samltvæmt áætlun við prentun o>g Nýtt bindi af endurminninguin de Gaulle: Vildi að Frakka færu iir NATO ] — Dulles bauð þeim kjarnorkuvopn það sama ár löndin hefðu ekki orðið sam- máia um sameiginlega land- búnaðarpóldtík. — Utanrikisráðherra Bandaríkjanna, John Foster Dulles bauð Frökkum kjarn- orkuvopn árið 1958 til að firra þá úbgjöldum við upp- byggingu eigin kjarnorku- afla, en lagði málið á hilluna, þar sem de Gaulle gerði það _að s’kiilyrði, að um afdráttar- lausa sölu yrði að ræða og Frakkar fengju allan og ó- skoraðan umráðarétt yfir vopnunum. vinnslu bókarinnar og því hefði verið ákveðið að senda hana fyrr á markaðinn en áður var auglýst. Við setn- ingu bókarinnar var viðhöfð hin mesta Heynd, aðeins eitt og eitt blað sett í hendur hvers setjara og afflt gert til Með Adenauer.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.