Morgunblaðið - 03.12.1970, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1970
19
100. Kiwanisklúbburinn
í Evrópu vígður:
Keilir Keflavík
Keilir, nýr Kiwanisklúbbur í
Keflavík var vígður á fimmtu-
dag. Er það 10. Kiwanis klúbb-
urinn hér á landi og 100. klúbb-
urinn í Evrópu. Fyrsti klúbbur-
inn var vígður hér árið 1964, og
hefur starf þeirra klúbba allra
verið mikið siðan, en þeir starfa
eins og kunnugt er, að góðgerða
málum, og bættu þjóðfélagi inn-
byrðis.
1 tilefni af vígslu klúbbsins,
er f ramkvæmdast j óri allra
klúbbanina, Kenneth Greena-
way frá Bandaríkjunum, stadd-
ur héma (hann er annars stað-
settur í Zúrich), ásamt umdæm-
isstjóra Norogs, Jakob Jansen.
Boðaði umdæmisstjórn klúbb-
anna hérna ásamit ritara og vara
formanni Kiwanisklúbbanna,
Fáli H. Pálssyni til fundar með
blaðamönnum í gær í tilefni af
þessu.
Kom 'þar þetta m.a. fram:
Klúbbamir í Bandaríkjunum
hafa starfað í meir en 55 ár, en
i Evrópu síðan 1963, en þar aru
þeir starfandi i 12 löndum, en
alls eru klúbbar í 36 löndum
heims.
Bjarni Ásgeirsson, umdæmis
stjóri á Norðurtöndum, sagði 30
Kiwanisklúbba vera starfandi í
Orðsending til
kaupenda „Sögu“
1 ritsmíð mína „Upphaf hölda
og hersa“ í nýútkomnu bindi af
„Sögu“, tímariti Sögufélagsins,
hefur við prentun komizt mjög
bagalegur brenglingur á ofan-
verðri 122. blaðsiðu, þar sem
niður hefur fallið fyrirsögnin
„Nokkur atriði úr fornsögu
Noregs", sem sýndi um hvaða
ritgerð Jóns Steffensens prófess
ors er fjallað i þeim kafla grein-
ar minnar sem þar hefst, en
hann er þungamiðja greinarinn-
ar og verður að sumu ieyti óskilj
anlegur og að sumu torskilinn,
a.m.k. framanaf, ef lesandi held-
ur að þá sé enn verið að ræða
fyrstu óslenzfcu ritgerð próf-
essorsins um ætterni landnáms-
manna, „Uppruni Islendinga,"
en sú kaflafyrirsögn í grein
minni er neðst á bls. 119. Fyrir-
sögnin, sem vantar, á að koma
milli 5. og 6. línu að ofan á bls.
122. Raunar hefur og fallið nið-
ur fyrirsögnin „Víkingar", sem
er nafnið á annarri íslenzku rit-
gerð Steffensens um efnið, en
það gerir l'ítið til, þvi að ég sá
ekki ástæðu til að gera neinar
athugasemdir við þá ritgerð
framyfir þær sem gerðar voru
við þá fyrstu. Hins vegar hefur
og dálítið efni fallið niður úr
byrjun kaflans sem átti að hefj-
ast með fyrirsögninni „Nokkur
atriði úr fornsögu Noregs“, og
var sumt af því nauðsynlegt til
fulls skilnings á því sem prent-
að er framantil í þeim kafla. Er
það einkum í sambandi við nýj-
ar skýringar prófessorsins á að-
alatriðum er sýna skoðanaskipti
frá því sem fram kom í tveimur
fyrri ritgerðujn hans. Er hér
einkum um að ræða tvær tilvitn
anir úr þriðju ritgerðinni: „. . .
varla (er) hægt að hugsa sér
annað en að nýr þjóðflokkur
(stofn „austrænna vikingakyns-
ins“) hafi tekið sér þar (í Nor-
egi og Norðurlöndum yfirleitt)
bólfestu á járnöldinni." Jaín-
framt leggur prófessorinn nú
áherzlu' á það, sem hann hafði
drepið laúslega á í 1. ísl. rit-
gerðinni (1 nokkurri mótsögn
við annað efni þar): að óliklegt
sé að fundnar beinaleifar þessa
„sto-fns" séu týpiskar fyrir
þorra íbúanna, heldur hafi hann
að lákindum verið takmarkaður
við tiltölulega fámennt yfirráða-
lið. Raunar ríður sumt annað
einnig í þriðju ritgerð prófess-
orsins í fullan bága við þessa
vafalítið réttu hugmynd, sem þó
lýsir sér líka (óbeint kannski) í
öðrum ummælum hans hér, um
„. . . að aðkomumennimir hafi
myndað sérstaka stétt, innan
þjóðfélagsins, er ekki hafi
blandað blóði við aðrar stéttir
þess,“ og mun það rétt skilið
(sbr. seinna í ritsmíð minni).
Jafnframt tekur prófessorinn
fram í þessari ritgerð, að fyrir
hafi verið í landinu fólk af forn
um stofni er ekki hafi notað
járn, og er sú hiið málsins at-
huguð rækilega nokkru aftar í
grein minni.
Ástæðan til þess að ég leið-
rétti þetta ekki í próförk er sú,
að ég var erlendis er prófarkir
voru lesnar. Hins vegar verð ég,
þvi miður, að kenna sjálfum mér
um, að þegar farið er að minn-
ast á blóðflokka í greininni
(„O-gen" og „A-gen“ á bls. 124),
þá hafði mér láðst að viðhafa
fáein inngangsorð um það. En
athugull lesandi áttar sig vænt-
anlega hjálparlaust á því —
a.m.k. þegar iengra er komið
lestri greinarinnar, þar sem þau
viðhorf eru nánar rædd. Þessi
handvömm stafar meðfram af
tímaþröng, er ég, rétt fyrir ut-
anlandsförina, varð að stytta
handritið nokkuð. Og bið ég les
endur velvirðingar á þessu.
Hins vegar eru fáeinar villur
aðrar, bagalegar. Þegar á bls.
125 er byrjað að tala um „nor-
ræna kynið" átti, skv. handriti,
að feitletra þau orð eins og nöfn
annarra kynstofna „frumbyggj-
anna" við fyrstu nefningu. Á
bls. 126, í 6. línu neðanmáls-
greinar „1“ stendur: „hafi verið"
en átti að vera „hafa verið“
(bezt samt liklega að sleppa báð
um orðunum!). Á bls. 1??,, fremst
í 3. línu að ofan, átti að vera
komma (á eftir „Englar"), og er
hún nauðsynleg tii rétts skiln-
ings. Á sömu síðu, í 5. linu neð-
anmálsgreinar „2“, er þanka-
strik á undan orðinu „Herúla",
en átti að vera svigi; seinni svig
inn á að koma í greinarlok á
undan punktinum; þankastrikið
torveldar skilning. Á bls. 134, of
antil í neðstu greininni, stendur:
„Hér er það sem rannsóknir
Jóns Steffensens, er sýna sam-
eiginlega undirrót Islendinga og
Ira-Skota, gætu veitt skýr-
ingu . . .“, en i handritinu: „Hér
er þa® sem kenning Jóns Steff-
ensens prófessors um sameigin-
lega undirrót íslendinga og Ira-
Skota gæti veitt skýringu . . .“
Neðst á bls. 135 þyrfti að skjóta
inn þessari svigamálsgrein, næst
á undan feita letrinu: „(Jafn-
framt urðu — undan sömu áhrif
um — allar líkgrafir þessara
svæða haugf járiitlar og óáber-
andi.)“ Á bls. 137, í neðstu línu,
er svigi, sem ekki hefði átt að
koma fyrr en í lok 4. linu á bls.
138. Á þeirri blaðsíðu, aðeins
neðan við miðju, stendur „ísl. rit
gerðinni", en á að vera „fyrstu
isl. ritgerðinni." Á bls. 139, í
byrjun efstu linu, á að vera
komma á eftir „Það . . .“. 1 lok
þeirrar, tveggja lína, greinar
hafá fallið niður orðin „er
þetta", og á að vera komma á
undan þeim. Á sömu blaðsíðu, í
næstneðstu línu næstsein-
ustu greinarinnar, á eftir orð-
inu „Noregs", er komma, sem
ruglar réttan skilning.
Ofangreindar leiðréttingar bið
ég góðfúsa kaupendur ritsins
færa inn i eintök sín, eftir því
sem við verður komið.
Reykjavík, 24. nóv. 1970.
Björn O. Björnsson.
Bjarni Ásgeirsson, umdæmisstjóri á Norðurlöndum, Jakob Jan-
sen, umdæmisstjóri í Noregi, Kenneth Greenaway, framkvæmda-
stjóri Kiwanisklúbbanna, Páll H. Pálsson varaformaður klúbb-
anna og Ólafur Einarsson, ritari.
Svíþjóð, Noregi og Danmörku,
auk Islands, og unnið væri að
stofnun þeirra í Finnlandi. Kvað
hann Kiwanis klúbbana gjam-
an vilja starfa með fleiri aðilum,
hrinda í framkvæmd stór-
verkefnum, sem nauðsyn krefði,
að fleiri störfuðu að en þeir
einir, og efla þannig samstarf í
þjóðfélagi. Sagði hann þá hafa
unnið verk fyrir Heyrnleys-
ingja, Krabbameinsfélögin,
DAS, ýmis bamaheimili, Rauða
krossinn, fyrir einstök heimili
o.þ.u.l. í samráði við presta, auk
tækjakaupa íyrir góðgerðastofn
anir og sjúkrahús.
I Vesitmannaeyjum kvað hann
vera til orðið fyrsta félagsheim-
ilið, sem Kiwanismenn eign-
uðust, og það væri algerlega
verk 28—30 manna, en kvað
sllfct algerlega óskylt allri fjár-
öflun klúbbanna, einkaframtak,
sem nytsamt yrði, er fram liðu
stundir.
Sagði Bjarni enhfremur að
samstarf væri m.a. oft haft við
Lions menn og Rotary blúbba
og fLeiri, er ynnu að líkum verk
efnum eins og t.d. í Bandaríkj-
unum gegn eitri, og efldi slík
starfsemi skilning á miUi klúbb-
anna. Fjáröfium félaganna felst í
því, að meðlimir selja jólasokka,
mæðrablóm, páskaegg, frímerki,
sælgæti, hafa herra- og kútmaga
kvöld, svo að nokkuð sé nefnt.
Aðrar samkomur og félagslíí
kosta félagsmenn sjálfir.
Forseti Kiwanis klúbbanna er
kjörinn til eins árs í senn og er
nú dr. Karl Schutz, þingmaður í
Bonn. Hann er einnig efnahags-
ráðunautur rikisstjómar sinnar.
Einkunnarorð hans í Kiwanis er:
Frá orðum til athafna.
Sinawik heita klúbbar eigin-
kvenna Kiwanismanna. Eru þeir
fyrst og fremst til þess að kynn
ast innbyrðis, og siðan til að láta
igott af sér leiða. Halda klúbb-
konur kökusölu og jólaskreyt-
inga á Hótel Sögu núna um
heigina.
Félagar eru flestir 76 í Heklu
í Reykjavík og er hann stærstur
klúbba í Evrópu, en tuttugu
manns þarf til að geta starfrækt
klúbb. (I Bandarikjunum eru
flestir 400 í einum klúbb). Aðr-
ir klúbbar Kiwanis hér eru:
Esja og Katla, Reykjavík, Kald-
bakur, Akureyri, Búrfell, Sel-
fossi, Eldborg, Hafnarfirði Þyr-
ill, Akranesi, Askja, Vopnafirði,
Helgafell, Vestmannaeyjum og
Keilir, Keflavik, sem vígður
verður í kvöld í Stapa.
Til sölu verzlunorhúsnæði
Til sölu ca. 70 ferm. verzlunarhúsnæði innarlega við Laugaveg.
Skip og fasteignir
Skúlagötu 63 — Sími 21735.
GIMLI
Við bjóðum yðurglæsileg og vönduð efni.
Efni, sem aðeinsfásthjá okkur.
Efni, sem við höfum valið sérstaklega erlendis
ogfluttinn sjdlf-yðar vegna.
Gangið við í Gimli.
Verzlunin Gimli, Laugavegi 1. sími14744