Morgunblaðið - 08.12.1970, Blaðsíða 20
52
MORG-UNKLAÐIÐ, ÞRXÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1970
Guðmundur Gíslason Hagalín: Slurla í Vogum
Hin sígilda og rammislenzka hetjusaga.
í „Heildaráhrif þessarar sögu eru mikil og sterk;
hver einasta persóna er Ijóslifandi og sérstakleg;
||e8li þeirra, kjör og örlög í sterku og föstu sam-
: rœmi." — Helgi Hjörvar rithöfundur.
,,Sturla í Vogum er þróttmikið verk, sem unun er a8 kynnast. Bókin
kemur me8 sólskin og vorblœ upp í fangið á lesandanum." — Sveinn
Sigurðsson ritstjóri.
„Þetta er ótvíreett bezta rit, sem fram a3 þessu liggur eftir Hagalín,
það rit, sem stenzt venjulega bókmenntaalin frábœrlega og þarf ekki
að spanna til þess aS standist mál." — GuSbrandur Jónsson prófessor.
Þiiit snrni'li ' »oi'
Gunnar M. Magnúss: Það voraði vel 1904
Gengið gegnum eitt ar Islandssogunnar og
atburðir þess raktir frá degi til dags.
Árið 1904 er stjórnarfarslegt tímamótaár. En það
markar einnig tímamót á fleiri sviðum. Hér er sagt
frá ýmsu, smáu og stóru, sem einkennir þetta ár
öðru fremur. M. a. er fjallað um: Landshöfðingja-
tímabili lýkur — ísland fcer innlendan ráðherra — símamálið — varð-
skip og erlenda veiðiþjófa — leynilegar kosningar í fyrsta sinn — mennt-
unarástand þjóðarinnar — iðnskóli tekur til starfa — samþykkt laga-
skóla — fyrstu raflýsingu kaupstaðar — upphaf togaraútgerðar —
fyrsta skipbrotsmannaskýlið — sundnám kvenna — róstur í Laerða
skólanum — listir og listamenn, sem þá koma fram, og margt fleira.
Jakobína Sigurðardóttir:
Sjö vindur gráar
Hér er bók, sem vekja mun
| verðskuldoða athygli allra
jgóðra bókamanna. Hún
íber öll beztu einkenni höf-
lundarins; ríka frásagnar-
| gleði, glöggskyggni á
mannlegar veilur og raun-
lar kosti líka. í augum
IJakobínu er allt betra en
hrœsnin og lífslygin. Sögur eins og Elías Elías-
son og Mammon í gœttinni spegla þetta við-
horf hennar og munu báðar þessar sögur
verða lesendum œrið minnisstœðar.
Jóhannes Helgi:
Svipir sækja þing
Mergjaðar svipmyndir úr ís-
lenzku mannlífi og atvik úr lífi
höfundar hér heima og erlendis.
! Einnig skemmtiiegar mannlýs-
ingar, svo sem svipmyndir af
Jónasi frá Hriflu, Ragnari í
iSmára, þjóðkunnum listmálara,
nóbelsskáldi og mörgum fleiri
kunnum mönnum, sem ekki eru nafngreindir, en
lesendur munu strax kannast við. — Það er til-
breytni að því, þegar höfundar koma glaðbeittir
til dyranna ó morgunskóm, eins og hér hefur gerzt.
helsason Maðkar í mysunni
1S4AÐKAR FIa?1u1r1 °9 mikilúðlegur
■ skaldskapur og svo lifs-
I MVSUNNI ,rúr' að ° hann slœr of’
' , svipmóti sögu, sem gerzt
hefur í raun og veru.
Lesendur og aðdáendur
|| mannlífsþátta Jóns Helga-
sonar vita, að hann skrif-
ar fagurt mál og snjallan
stíl og frásagnarlist hans bregzt ekki, hann
segir aldrei leiðinlega sögu. Þessar sögur
hans munu verða taldar til bókmenntavið-
burða þessa árs.
Oscar Clausen: Affur í aldir
í þessu nýja sagnabindi eru m. a. þessir þœttir:
Gullsmiðurinn í Æðey, Frásagnir af Thor Jensen,
Galdramál í Arnarfirði, Tveir sýslumenn Skagfirð-
inga drukkna, Hrakningar hvalveiðimanna í Norð-
urhöfum, Yfirgangur útlendra sjómanna á Langa-
nesi, Um Einarslón, Natan trúlofast undir Jökli, Ing-
unn skyggna á Skeggjastöðum, Ferð séra Friðriks
Eggerz í skóla, Seljalandsfeðgar berjast við Dani
— og margir fleiri fróðlegir og skemmtilegir þœttir
víðsvegar að af landinu.
Jakob Krisfinsson: Yaxlarvonir
Áhrif Jakobs Kristinssonar fyrrum frœðslumála-
stjóra og skólastjóra alþýðuskólans að Eiðum, sem
rceðumanns og fyrirlesara, voru svo sterk, að hann
mun á stundum hafa unnið meira gagn með ein-
um fyrirlestri en aðrir með tíu. Bók þessi, sem hefur
að geyma úrval úr rceðum hans og ritgerðum, er
lítið sýnishorn af því margþcetta efni, sem hann
fjallaði um í rceðu og riti og gerði hann að einum
eftirminnilegasta rœðu- og ritsnillingi samtíðar
Theresa Charles: Draumahöllin hennar
Fögur og spennandi ástarsaga.
Dena var alltaf heilluð af hinum rómantísku
sögum, sem frœndi hennar sagði henni frá
d'Arvanehöllinni. Og nú höfðu örlögin hagað
t því svo, að hún var gest-
Vur í þessari draumahöll.
s En gat hún treyst hjarta
l sínu, þegar hún þuVfti að
\ velja á milli brœðranna,
sem bjuggu þar? Hún var
;! á báðum áttum, — en þá
! tóku örlögin í taumana
og áhrifamiklir atburðir
; gerðust, — og hún varð
* að taka ákvörðun.
Paul Maritin: Hjariablóð
Eftirsóttasta lœknaskáldsaga síðari ára, skrifuð af
þekktum amerískum skurðlœkni, sem vel kann til
verka bœði á sviði hjartasjúkdóma og á ritvelli. —
Bókin er öðruvísi en allar lœknaskáldsögur, sem
hér hafa komið út. Hún er trúverðug lýsing á lcekna-
og sjúkrahúslífi, eins og það gerist á stóru amerísku
sjúkrahúsi og lýsing höfundar á hjartasjúkdóma-
frœðingnum Matthew Kraft er með miklum snilld-
orbrag. Ferill hins snjalla og
' [ einþykka lceknis er rakinn frá
fyrstu skrefum hans á lœknis-
brautinni og þar til hann stend-
ur á hátindi frœgðar sinnar,
— þar til hann sjálfur fœr
hjartatilfelli og gerir aðstoðar-
lœkni sínum fáheyrt tilboð. —
Hjartablóð er óvenjuleg bók,
öðruvísi en venjulegar lœkna-
skáldsögur og geysilega spenn-
andi.
Kenneth Cooke: Hefjur í hafsnauð
Hrikaleg og spennandi hrakningasaga.
Þetta er hreinskilnisleg frásögn af þrautseigju
og þolgœði, sjálfsaga og viljastyrk. — Tveir
úttaugaðir, skinhoraðir sjómenn bjargast eftir
I að hafa háð ofurmann-
! lega baráttu við ógnir og
. óblíð öfl og hrakizt í
i fimmtíu sólarhringa á
1 timburfleka um úfið haf
| og undir brennandi geisl-
] um hitabeltissólar. Þetta
j er hrikaleg og spennandi
hrakningasaga, þýdd af
' Jónasi St. Lúðvikssyni.
Þorsfeinn Anfonsson: Innflyijandinn
Á hótelherbergi í Reykjavík fer fram leynileg samn-
ingagerð milli háttsetts embœttismanns og fulltrúa
erlends ríkis. Hvorugum er Ijóst, að fylgzt er með
gerðum þeirra utan úr náttmyrkrinu, og þar með
er hafin spennandi atburðarás þessarar óvenju-
legu skáldsögu. — Spurningin er: Geta þeir atburðir,
sem hér er lýst, raunverulega gerzt?
Elínborg Lérusdótfir: Hverf liggur leiðin?
Nýtt og áður óprentað efni um fjóra landskunna
miðla og samstarf höfundar við þá.
Elínborg Lárusdóttir segir hér nýjar
sögur af samstarfi og kynnum við
miðlana Hafstein Björnsson, Mar-
grétu frá Öxnafelli, Kristínu Kristjáns-
son og Andrés Böðvarsson. Auk þess
eru frásagnir fjölda nafngreindra og
kunnra manna, þar sem þeir geta
eigin reynslu í dulrœnum efnum, og
eru þcer margar hverjar vottfestar.
Sigurður Hreiðar: Gálan ráðin
Hér eru rakin nokkur dómsmál, sakamál, sem öll
vöktu á sínum tíma heimsathygli, og hvernig þessi
mál voru leyst á vísindalegan hátt. Þetta er fróð-
leg og spennandi bók, umfram allt spennandi, því
óhcett er að fullyrða, að enginn höfundur hefur enn
náð að flétta saman efni á svo spennandi eða
dularfullan hátt, að það taki fram þeim örlögum,
sem lífið sjálft hefur búið sumum mönnum.
HÉR ER
BÓKIN
SKUGGSJÁ
Sími 50045
Strandgötu 31 — Hafnarfirði
íslendingasögur með nútíma stafsefningu
Það er 25% ódýrara að vera áskrifandi
að þessari heildarútgáfu.
Það finna allir, hve miklu auðveld-
ara er að lesa og njóta Islendinga-
sagna með þeirri stafsetningu, sem
menn eru vanastir. Árlega koma út
tvö bindi af þessari vönduðu heild-
arútgáfu. I ár koma út 4. og 5. bindið,
en alls verður þessi útgáfa níu bindi.
íslendingasögur með nútíma stafsetn-
ingu eru öndvegisrit, sem skipa eiga
heiðurssess í bókaskáp hvers einasta
■slendings.
lilUMMf I
moA