Morgunblaðið - 08.12.1970, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1970
45
Youghurt svipar mjög til dósa-
skyrsins. Dósaskyrið mætti einn
ig blanda með ýmiss konar ávöxt
um.
4. SMJÖR
Aðeins er ein tegund smjörs
framleidd hér á landi, þar eru
einnig fleiri möguleikar fyrir
hendi. T.d. framleiðsla á Sýrðu
smjöri, það er bragðmeira og af
ýmsum talið betra. Þá má nefna
kryddsmjör, sem notað er tU
matargerðar með kjötréttum.
Wiský-smjör væri ekki dónalegt
að fá á franskbrauðið og rún-
stykkin á morgnana. Einnig er
hægt að nefna smjörfeiti á túp-
um, en það er komið á markað
í V-Þýzkalandi og e.t.v. víðar.
Smjör er að tapa vinsældum.
Margar ástæður eru fyrir því,
fyrst og fremst vegna áróðurs
smjörlíkisframleiðenda, gegn kol
esterólinnihaldi smjörsins, sem er
talin ástæða fyrir æðakölkun.
Engar sannanir eru þó fyrir þvi
að smjör sé hættulegra en smjör
líki. Ýmislegt bendir tU hins
gagnstæða.
1 blaðinu Food Manufacture
skrifar ástralskur vísindamaður
G.W. Coombs frá Brisbane með-
al annars: „Við sjúkdómum í lif
ur-gallkerfinu, er smjör eina
fitutegundin, sem sjúklingarnir
fá og þola. Af bandariskum
fjöldarannsóknum má sjá að
hjartasjúkdómum fækkar ekki
við að breyta fituinnihaldi fæð-
unnar frá dýrafitu til jurtafitu.
Fullyrðingar um, að serum-kól-
esterólið falli við þessa breyt-
ingu er e.t.v. rétt, en um leið
verður að taka tillit til, að kól-
esterólmagnið í öðrum vefjum
eykst."
sjúkdómum í lifur-gallkerfinu
og gæti orðið til að draga úr
tíðni hjartasjúkdóma, krefst
nánari rannsóknar, segir G. W.
Coombs 1 lok greinar sinnar.
Þessi orð hins ástralska vis-
indamanns eru mjög svo verð at
hugunar. Nýútkomin bandarísk
skýrsla setur spurningarmerki
við sambandið milli kólesterol-
innihalds blóðsins og fituinni-
halds fæðunnar. Skýrslan, sem er
visindalega mjög athyglisverð,
er gefin út af þeim vísindamönn
um sem stjórnuðu hinni svoköll
uðu „Farmingham áætlun" en
það var rannsókn á hjartasjúk
dómum hjá fólki í bæ i nágrenni
Boston í Massachusetts. Niður-
stöður skýrslunnar var: Það er
ekki unnt að benda á beint sam
band á milli fæðunnar, sem til-
raunirnar voru byggðar á, og
kólesterólinnihalds blóðsins hjá
því fólki sem tók þátt i tilraun-
unum.
Skýrslan er gefin út af dr.
William B. Kannel og Tavia
Gordon frá The National Heart
and Lung Institute. . Hún er
byggð á tíu ára rannsóknum á
912 manneskjum 437 mönnum og
475 konum. Vísindamennirnir
benda á að fitan í fæðunni hafi
ekki neina þýðingu fyrir hjarta
sjúkdóma að minnsta kosti hafði
fitan ekki neina þýðingu fyrir
það fólk, sem þátt tók í til-
raununum. Af öllu þessu má sjá,
að sá beygur, sem fólk hefur af
smjöri er ástæðulaus. Fróðlegt
væri að vita hvað miklu fé hafi
verið eitt i að telja fólki trú um
að smjör væri óhollt og jafnvel
lífshættulegt, og hve miklu
hafi verið eitt í að sanna hið
gagnstæða.
Bandarískar rannsóknir hafa
nýlega sýnt, að í blóði Masai ætt
bálksins í Kenya sé mjög lítið
kólesteról og mjög fá hjarta-
sj úkdómstilfelli þrátt fyrir kól-
esterólríka fæðu. Það sjónarmið
að smjör sé mjög heppilegt við
5. OSTUR
Mestu möguleikamir á ný-
breytni eru á ostasviðinu. Is-
lendingar hafa mikla möguleika
á að framleiða virkilega góða
osta vegna þess hve gott hrá-
efni við höfum. En þar hefur
orðið misbrestur á. Að visu eru
framleiddar hér ýmsar ágætar
ostategundir, en þær gætu ver-
ið miklu fleiri. Mætti ekki fram
leiða ýmiss konar kryddosta úr
skyri? Þá eru nokkrar ostateg-
undir, sem við gætum framleitt
til útflutnings t.d. Emmenthall-
er fyrir Bandaríkjamarkað en
mikil eftirspurn er á þeim osti
þar. Emmenthallerosturinn á
uppruna sinn í Sviss, stærð
hans er um 80—100 kg. Þá má
nefna „Fynsk rygeost“ sem er
nánast reykt skyr, gæti Reyk-
skyr ekki orðið vinsælt? 1
Frakklandi eru framleiddar um
800 tegundir osta — hérna um
30.
6. MYSA
Bæði skyrmysa og ostamysa
gæti orðið vinsæll varningur.
Úr mysu má framleiða duft
s'em notað er í bamamat, bakst-
ur, sósur, búðinga, súpur og
svaladrykki. Mysa er mjög holl,
sérstaklega vegna albúmínsins,
sem í henni er, en það inni-
heldur margar lífsnauðsynlegar
amínósýrur. Þá má nota mysu
til öl og kampavinsbruggunar.
7. ÍS
Á þessu sviði stöndum við
við okkur allvel. Við getum
þakkað samkeppninni að veru-
legu leyti fyrir það. Þrátt fyrir
nokkuð mikla ísneyzlu hérlend-
is stöndum við öðrum þjóðum að
baki. 1 Danmörku er ársneyzla
á einstakling um 6,5 ltr., i Svi-
þjóð er hún u.þ!b. 11 ltr. og í
Bandaríkjunum, þar sem neyzlam
er mest, er hún um 20 ltr. á
hvern einstakan. Hjá okkur er
ársneyzla einstaklings aðeins 2,5
ltr. (1968) meðan Grænlending-
ar neyta 8—9 ltr. á mann.
Við óettum að taka ísinn
meira inn í okkar matarvenjur,
því í ísnum eru öll næringar-
efni, sem mjólkin inniheldur, og
jafnvel fleiri. Sem sagt er ísinn
mjög holl fæða en ekki aðeins
sælgæti.
ÚRVAL AF ENSKUM OG HOLLENZKUM
KÁPUM NÝKOMIÐ
KÁPAN HF.
Laugavegi 35 — Sími 14278
8.-9. NIÐURSOÐIN MJÓLK
OG MJÓLKURDUFT
Sem stendur eru til miklar
birgðir af niðursoðinni mjólk og
mjólkurdufti í heiminum. Á
meðan svelta margar þjóðir.
Vandamálið er: hver á að ann-
ast dreifingu og borga brúsann.
Niðursoðin mjólk er mikið not-
uð á skipum ásamt niðursoðnum
rjóma. Mjólkurduft er notað til
ísframleiðslu, súkkulaðifram-
leiðslu, til baksturs og pylsu-
gerðar. Á þessu sviði er fram-
þróunin líka hröð.
10. MJÓLKURKREM,
BÚÐINGAR OG TILBÚNIR
MJÓLKURRÉTTIR
Vafalaust munu mjólkurbúin í
framtíðinni framleiða mjólkur-
krem, búðinga og tilbúna mjólk
urrétti. Framleiðslutæknin þekk
ist i dag, en erfiðast verður þó
líklega að kenna neytendum að
nota þessar vörutegundir.
Mjólkurkrem er erlendis fram-
leitt i fjórum tegundum aðal-
lega: karamellu, súkkulaði,
romm og vanillu. Mjólkurkrem
er hægt að nota í ábæti, ís og
ávaxtarétti, kökur og mjólkur-
drykki. Kremið er framleitt með
UHT-aðferðinni svo það geymist
í eitt ár án þess að vera í
kæliskáp. Einnig er hægt að
framleiða mjólkurkrem, sem leys
ist upp í kaldri mjólk, sem þá
er tilbúin til framreiðslu.
Tilbúnir mjólkurréttir verða
án vafa vinsælir hjá húsmæðr-
um, sem vinna úti.
LOKAORD
Það er margt, serh við þurf-
um að taka til endurskoðunar,
ekki er of snemmt að hefjast
handa, þvert á móti verðum við
að byrja nú þegar, ef sam-
settu vörurnar eiga ekki að ná
yfirhöndinni yfir mjólkurafurð-
unum.
Um allan heim er unnið að
endurbótum á þessum gervi-
mjólkurvörum, og jafnvel nú
þegar er komin mikil og hörð
samkeppni. Þróunin er mjög ör,
þeir tímar geta komið, að aðrir
en neytendur verða að skera úr
um hvort mjólk sé mjólk.
Okkar verkefni er ofur ein-
falt: það er að gera fullkomn-
ustu fæðu náttúrunnar ennþá
fullkomnari.
KOYO-saumavéíin
ER KVENNA VAL
Vélin er til sýnis og sölu hjá:
JES ZIMSEN H/F., Suðurlandsbraut 32, Rvík,
GUMA, Hverfisgötu 72, Rvík.
ÁRBÆJARBÚÐIN, Rofabæ 7, Reykjavík.
GLER & MÁLNING H/F., Akranesi.
STAPAFELL H/F., Keflavík.
VERZLUNIN „VARMÁ", Hveragerði.
Viðgerðaþjónusta: GUMA, Hverfisgötu 72.
10 ára ábyrgð.
Hinn mikli meistari
5ímenon
Georges Simenon varð víðfrægur fyrir
hinar listilegu sögur um lögreglufulltrúann
Jules Maigret, bezt gerðar sögur þeirrar
tegundar, sem ritaðar hafa verið. Síðar sneri
hann sér að nýrri grein skáldsögunnar, hinni
hnitmiðuðu, djúpsæj'u sálfræðilegu skáld-
sögu um manneskjuna í margvíslegum
vanda, hugstola, ráðþrota, flækta í neti, sem
hún fær ekki iosað sig úr.Sögur þessargrípa
sérhvern Iesanda geysisterkum tökum. Frá-
sögnin er gædd hraða og spennu, eins og
bezt gerist í góðum skemmtisögum, en jafn-
framt eru þær frábærar bókmenntir.
Á þessum skáldsögum grundvallast heims-
frægð Simenons I dag. Jafnólíkir menn og
Henry Miller, Thornton Wilder og André Gide
eru sammála um að skipa honum á allra
fremsta bekk mestu rithöfunda heimsins I
dag. Nú f haust var hann tilnefndur sem
einn af örfáum liklegum Nóbelsverðlauna-
höfum f bókmenntum.
IÐUNN
Skeggjagötu 1
símar 12923, 19156
Skáidsögur Simenons
hafa verið þýddar á
144 þjóðtungur og selzt
í meira en 300
milljónum eintaka.
Aðeins Biblían og verk
Lenins hafa Verið
þýdd á fleiri tungumál.
Saga þessi gerist á vettvangi Mafíunnar t
Bandaríkjunum. Hún er þó ekki sakamála-
saga í venjulegri merkingu, enda þótt hún
sé æsispennandi. Simenon segir hér sögu
nianns, sem hefur óbeit á glæpum og of-
beldi, en stendur skyndilega andspænis
miklum vanda, þar sem undankomuvonin
er sú ein að fremja óhæfuverk. Það er fórn
mannsins, sem berst fyrir aðstöðu sinni og
þjóðfélagslegu sæti, háður kerfi, sem hann
verður annaðhvort að lúta eða fyrirgera öliu
því, sem hann hefur öðjazt.
BRÆÐURNIR
Slíkan mann getum við hitt víða. Simenon
velur honum svið Mafíunnar. Við gætum líka
hitt hann í hvaða stofnun eða stærra fyrir-
tæki, sem vera skyldi. Og ekki sfzt gætum
við hitt hann í gervi stjórnmálamanns. Sag-
an er afar snjöll sálgreining manns í þess-
um vanda. Hún hrífur lesandann með sér af
ómótstæðilegu afli vegna mjög spennandf
atburðarásar og knýjandi mannlegs vanda-
máls, sem hver og einn getur átt við að
stríða hvenær sem er.
Bók, sem enginn
mun lesa ósnortinn.