Morgunblaðið - 31.12.1970, Síða 2
34
MOROLTNBLAÐIÐ, FEMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1970
hafa skotið niður búfénað
xlianna í stórum stíl.“ Skotmenn
svöruðu óðar fyrir sig og sögðu
„skotfimi sem íþrótt og veiði-
skap sitt hvað.“ Nú komu hrein
dýr í sædýrasafn Hafnfirðinga
og fengu menn svo frið með bú-
fé sitt.
íslendingar urðu 11. í heims-
meistarahandleiknum í París og
Danir töpuðu einum leik með 6
marka mun. „Nú lágu Danir,“
segir á iþróttasiðu Morgunblaðs
ins. Larsen vann svo Friðrik á
stórmeistaramótinu i Sviss.
Haukar unnu Islandsmótið í
handknattieik fyrir Frammara
undir mánaðalokin með því að
sigra FH og um líkt leyti vann
Eggert verðgæzlumálið fyrir
stjómarandstæðinga með því að
vinna stjómarstefnuna. í»á var
meðalafli báts á loðnuvertíðinni
orðinn 2240 tonn.
Nær 7000 manns tóku þátt í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík 9. marz og sýndu hag
skýrslur Sameinuðu þjóðanna
um líkt leyti, að konur á Is-
landi eru langlífastar allra jarð
arbúa. Vék þá Ulfar læknir taf
arlaust úr listasæti fyrir
Sigurlaugu og sagði: „Það er
ekki nóg að lengja líf manna, ef
þeim er ekki um leið sköpuð
hamingjusöm elli.“
í apríl varð Henny Hermanns
dóttir nr. 1 i Miss Young Inter-
national í Japan. Hlaut hún 3
þúsund dala verðlaun, auk
fjölda tilboða. Þá lýsti Reykja-
vík eftir tilboðum í skuttogara.
Bílstjóri fann mink i aftursæti
slnu, þar sem óhræsið hafði haft
sólarhringsviðdvðL Um líkt
leyti voru fyrstu minkamir flutt
ir til minkabúanna hér frá
Noregi. Kæra kom frá Agli
sterka um að Thule-öl væri
of sterkt. Yfirvöld voru á sama
máli,,en allur almenningur taldi
Egils-öl of veikt. Framboðslisti
Sjálfstæðisflokksins var lagður
fram, og 200 manns föstuðu á
Hungurvöku. Leiðakerfi Strætis
vagna Reykjavíkur var breytt,
og tók fólk því brosandi í
fyrstu. Síðar áttu hinar breyttu
biðstöðvar SVR eftir að valda
nokkurri ringulreið. Borgarbú-
ar voru aldrei vissir hvot á
ferðinni væri ein nýju biðstöðv
anna eða mótmælafundu Æsku-
lýðsfylkingarinnar, þegar fólk
hópaðist einhvers staðar saman.
Kosningamar tóku að nálgast.
Geir kvaðst bara vilja verða
borgarstjóri með beinum stuðn-
ingi kjósenda, en 5 sundurleitir
hópar birtust almenningi í kosn-
ingabaráttunni. Lofað var á
báða bóga og einn frambjóðand
inn lofaði, að 180 litlar íbúðir
yrðu byggðar á næsta ári fyrir
ungt fólk ásamt tuttugu og eitt-
hvað skíðalyftum. Mikill reki
kom á fjörur Akumesinga.
Unglingar fundu þar plastbrúsa
með um 320 lítrum af spíritusi,
og urðu ölvaðir af gleði. Þessu
mun hafa verið hellt í sjóinn og
var þá landburður af fiski
sunnanlands og vestan. „ísland
er sama og fiskur,“ varð fiski-
málaráðherranum brezka að
orði. Hætta var á aurbleytu á
vegum í þessum mánuði, og flug
freyjur Flugfélags íslands
fengu sér nýja búninga.
Maður ársins
Á yfirferð okkar um atburði
og málefni liðins árs höfum vér
annálsritarar ekki komizt hjá
þvi að veita athygli einum manni
sem gerzt hefur eins konar sam-
vizkubit þjóðarinnar i öllum við-
kvæmustu málum þjóðlífs okkar,
svo sem Þjóðleikhúsinu, kynlíf-
inu og verndun gamalla húsa.
Þessi maður er Freymóður
Jóhannsson, sem einnig er þekkt
ur lagasmiður og textahöfundur
undir heitinu 12. september.
Hann fæddist þann dag fyrir
réttum 75 árum, þar sem „Fjörð-
ur — Eyja frægur er,“ eins og
sagði í afmæliskvæði til hans
hinn 12. september sl. Vegna alls
þessa hljótum vér annálsritarar
að telja Freymóð Jóhannsson
mann ársins 1970.
Afskipti hans af viðkvæmnis-
málunum hófust strax í janúar
1970, þegar hann þeysti á
Pegasusi fram á ritvöllinn vegna
„Brúðkaups Fígarós." Ástamall
þótti honum óperan, og taldi
hann minningu Mozarts vera
gert lágt undir höfði, að ópera
þessi skyldi ekki þýdd á is-
lenzka tungu. Um sama leyti var
kynlífsmyndin „Vixen" sýnd í
Hafnarbíói, og beitti Freymóður
penna sínum gegn þeirri mynd,
auk þess sem hann kærði hana
fyrir saksóknara. Ekki varð
honum mjög ágengt i þessari við
ureign sinni, og tekjur Hafnar
bíós vegna sýninga á henni
urðu minni en efni stóðu til.
í maíjmánuði var verndun
gamalla húsa við Lækjargötu
mjög á dagskrá. í Velvakanda
greinir Freymóður frá því, að
sér hafi verið boðið að skrifa
undir áskorun um vemdun þess-
ara húsa en hafnað boðinu. „Að
vísu hafa umrædd hús menning-
arlega þýðingu og nokkra stíl-
fegurð til að bera,“ segir hann,
en telur hins vegar viðbygging-
una (nú Amtmannsstígur 1)
„hræðilega afkáralega og ljóta.“
1 júní fer hann nokkrum vel
völdum orðum um hátíðarsýn-
ingu Þjóðleikhússins á Merði
Valgarðssyni, og fer á kostum.
Sá leikstjórinn, Benedikt
Árnason sig tilneyddan að
svara leikdómi Freymóðs,
þar sem hann mótmsélir þeirri
skoðun Freymóðs, að Njála hafi
lifað vegna landslags á Suður-
landi. Hann telur Freymóð ekki
hæfari til að dæma um meðferð
Þjóðleikhúsmanna á verkinu, þó
að hann (Freymóður) hafi ekki
haft efni á þvi að sjá sýningu á
leikritinu i Kaupmannahöfn 1918
eða hafi hitt Jóhann Sigurjóns-
son á bryggju á Akureyri. Loks
tekst Benedikt að koma þvi að,
að hann sé ekki siður frændi
Jóhanns en Freymóður.
Hinn 12. september á
Freymóður svo 75 ára afmæli,
en var ekki heima á afmælisdag-
inn. Ritað var um hann í Morg
unblaðið í tilefni afmælisins, og
er eftirfarandi úr afmælisljóðinu:
„Sjáið drenginn sjötugan
sveifla dömu, kattmjúkan
berjast hart við Bakkus karl
bragðvísari en nokkurn jarl.
Þjóðskrá þegna’ófá
þú hefur letrað blöðin á;
málað leilcsviðs töfra tjöld,
trúlega enn berð sverð og
skjöld.“
í nóvember komst svo orust-
an um „Táknmál ástarinnar“ í
algleyming, og var Freymóður
þar í broddi fylkingar andklám-
manna og kvenna. Er þáttur
hans i þessu máli löngu orðinn
þjóðkunnur. Freymóður átti i
þessu máli marga fylgjendur, en
einnig nokkra andmælendur.
Þannig ritaði „Einn af átján“
Velvakanda bréfkorn í nóvem-
ber og var alveg gáttaður: „Al-
veg er ég hissa á honum Frey-
móði, honum sem málar svona
fallegar sólskinsmyndir og sem-
ur þessi fallegu sólskinslög, sem
yndi hefur verið að hlýða á und
anfarin ár. Þökk sé honum fyr-
ir það.
Því má ekki fræða um sólskin-
ið í ástinni? Hvemig konan get
ur forðazt þungun? Að enginn
höndlar sólskinið i ástinni með
lauslæti ? Hvernig elskhuginn
getur hjálpað ástmeynni til að
öðlast sólskinið í ástinni?" o.s.
frv. Ein 19 ára ritaði líka Vel-
vakanda bréfkorn og taldi víst
að Freymóður hefði fengið sér
eiginkonu bara til að vera vinnu
kona, ef.hann á annað borð ætti
þá eiginkonu. Freymóður svar-
aði og gat upplýst, að hann
hefði lifað um áratuga skeið
í ástríku hjónabandi. Sú 19 ára
dró ummæli sín til baka. Þessu
næst kærði Freymóður „Tákn
málið" til saksóknara, og krafð-
ist að sýningum yrði hætt. Sak-
sóknari treysti sér ekki til að að-
hafast neitt, en framganga Frey-
móðs og fylgismanna hans á höf-
uðborgarsvæðinu varð til þess að
ekki þótti ráðlegt að sýna mynd
ina dreifbýlisfólki, og þvi látið
vera að sýna hana úti á lands-
byggðinni. Má því segja, að hálf
ur sigur hafi unnizt, þar eð að-
eins 40 þúsund manns sáu mynd-
ina af 200 þúsundum, sem land
þetta byggja. Má Freymóður því
vel við una.
nuar
þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem
er að líða.
'Jlhwuí
Austurstræti 17
(Silla og Valda húsinu).
Að lokinni samkomu í Háskólanum frá kl. 20,30 —
21,30 fagna stúdentar nýju ári í Laugardalshöll frá
kl. 23.00 á gamlárskvöld til kl. 04.00 á nýjársnótt.
Húsinu lokað kl. 01.00.
Miðasala við innganginn.
ATH. Flugeldasýning framan við Háskólann
um klukkan 21,30.
ÁTTADAGSGLEÐI