Morgunblaðið - 31.12.1970, Síða 3
MORGTJNBLAÐIÐ, FEM5MTUDAGUR 31. DESEMIBER 1970
35
„Guð er ekki lengur gamli
maðurinn á himni,“ sagði dr.
James McCord, forseti guðfræði
háskólans í Princeton í spjalli
við Morgunblaðið. Einhverjir
stálu þá prestakrögum og dán-
arvottorði, og fermingadreng-
ur játaði á sig að hafa stolið
skartgripum fyrir 140 þúsund
krónur. Heyvagn valt með stúd-
entsefnum, og 11-menningarnir
hertóku íslenzka sendiráðið í
Stokkhólmi. Var þar fátt til
varnar því sendiherrann var í
Finniandi. Á sama tíma voru
rússneskir listamenn í Háskóla-
bíói í minningu Lenins og sett
var á laggirnar sovézk upplýs-
ingaskrifstofa á íslandi með 8
manna starfsliði. Stokkhólms-
stúdentar fylgdu málinu eftir og
kröfðust aðgangs fyrir pilta i
Kvennaskólann. Fóru þá ís-
lenzkir stúdentar í Kaupmanna-
höfn og Osló í mótmælastöðu
við sendiráð sín þar i borgum,
og Gýlfi Þ. sendi þeim skeyti.
Búrfellsvirkjun var vígð með
pomp og pragt 3. maí — (síðar
var gefið upp að vigslan hefði
kostað 980 þúsund krónur, „að
öllu meðtöldu"). Forseti Islands
sagði i ræðu sinni, að þjóðin
hefði nú endurheimt Þjórsárdal
og kættust menn vel að vonum.
Varla hafði forsetinn þó sleppt
vellinum undir miðjan mánuð-
inn og náðu landarnir jafntefli.
Íþróttafréttaritari Morgunblaðs-
ins sagði, að jafnteflið væri sem
íslenzkur sigur og var því eng-
inn með tólf rétta í tippinu þá
vikuna.
Stórkaupmenn fóru í kynnis-
ferð til Noregs og varð Gylfi að
gefa skýrslu um ferð þeirra fyr
ir ráðherrafundi í Efta. Sagði
Gylfi, að Islendinga vildu ekki
einangrast á viðskiptasviðinu og
var það látið gott heita.
Próf voru í Háskólanum und-
ir miðjan mánuð og var
læknanema stungið í fangelsi i
tilefni þeirra. Sat hann inni
heila nótt en þá var aftur tek
inn upp sá siður að hafa prófin
nógu þung til að fæla menn frá
læknanámi.
mikil veðurhæð í Reykjavik og
nágrenni, en miðar farnir að selj
ast á listahátíð.
1 upphafi júnímánaðar höfðu
Reykvíkingar tryggt sér trausta
stjórn í næstu 4 ár, og Geir,
borgarstjóri allra borgarbúa,
kvaðst mur.du keppa að því að
verða traustsins verður. Næstu
daga var deiit um það hverjir
hefðu í raun unnið kosningam-
ar og hverjir tapað. Sjálfstæðis-
flokkurinn sagðist hafa unnið,
en Framsóknarflokkurinn sagði
að það gæti ekki verið, þar eð
hann hefði unnið. Alþýðuflokk-
urinn kvaðst hafa tapað, en
Sósíalistar sögðu að ekki þýddi
að neita þeirri staðreynd að
þeir hefðu tapað. Enginn vafi
lék hins vegar á, að vafaat-
kvæði réðu meirihlutanum á
Neskaupstað.
Verkföllum fjölgaði og heim-
skautaleiðangur fór út um þúf-
ur. Voru þá lagðar fram bráða-
birgðatillögur Harðærisnefndar,
og varð úr að Flughjálp gæfi
alla flugvélar sinar til Perú.
Rekstur Loftleiða var með bezta
móti um þessar mundir. Einar
Magg kvaddi og kvaðst sjá eft-
ir 4500 stúdentum úr Mennta-
skólanum í Reykjavik, og hefur
orðinu og sett appíratið í gang
en vikur dundi á húsþðkum við
Búrfell og urðu konur og börn
enn einu sinni að flýja dalinn.
Þótti nú einsýnt, að ekki einu
sinni forsetanum leyfðist að
hlakka við rætur Heklu og var
því forðast að minnast á nátt-
úruöfl landsins, er álver-
ið í Straumsvík var vígt þenn-
an sama dag. Sátu því hverir á
Reykjanesi á strákum sínum,
en kostnaðurinn við Straums-
víkurvígsluna var aldrei gefinn
upp.
Sigurður Þórarinsson lýsti því
svo yfir, að gosið við Heklu væri
bara „finasta túristagos" og
jukust við það ferðir rússneskra
sprengjuþota til íslands. Loft-
leiðir brugðu við hart og kváð-
ust ætla að byrja þotuflug lika
-— „eftir niu daga.“
íslendingar og Englendingar
spörkuðu bolta á Laugardals-
1 Danaríki voru handritin met
in á 12 milljarða íslenzkra
króna og brutust þá tveir menn
tafarlaust inn í Reykjavík og
stálu 500 dollurum. Frekari frétt
ir af söfnuninni fyrir skinnun-
um voru ekki látnar koma fyrir
almenningssjónir.
Fyrr á árinu hafði Sana byrj-
að útflutning á öli og gripu
Danir til þess mótleiks að sam-
eina Carlsberg og Tuborg. Olli
þetta breyttum aðstæðum og
komst útfiutningur á islenzku
drykkjarvatni til tals. Brugga
nú Danir nýjan mótleik en er
þungt um hug, því jafnvel Egill
sterki teygar Thule.
Gosið við Heklu með tilheyr-
andi jarðskjálftum hélt áfram að
veiða erlenda túrista en Geir
borgarstjóri lýsti yfir því, að
hann myndi ekki stunda at-
kvæðaveiðar í kosningaskjálíta
Voru þá verkföll hafin og all-
margur séð eftir minna. En
samningar tókust, og urðu þá
ólæti í Eyjum, svo að fresta
varð dansleik. Hafsteinn Sveins
son kom siglandi á hraðbát yf-
ir Atlantshafið frá Noregi um
Hjaltland og Færeyjar, og lifn-
aði yfir atvinnulifinu á ný. Lif-
legt var líka, er Listahátíðin
opnaði með ballet, popphljóm-
sveitum, leikkonu og píanista,
auk ótal annars.
Um sama leyti fékk Rúrik
Haraldsson siifurlampann og
sagði að helzt þyrfti að saga
lampann í sundur. Komu þá
fjögur gáfnaljós frá Bretlandi,
sem ganga undir samheitinu
Led Zeppelin. Veittu þeir ung-
meyjum hér ljós og orku, en
komu auk þess fram á tónleik-
um. Þeir voru þar hávaðasamir
með fiðluboga, æsandi rólegir og
frábærlega berhentir með læti,
ef marka má fyrirsagnir í blað
inu um tónleika þessa.
Ákveðið var, að Gunnar og
Njáll kæmu fram í sjónvarpi,
en Laxárbændur kröfðust lög-
banns. Var þá samið um þotu-
flug til Bandaríkjanna, og
ákveðið að hefja sölu á íslenzku
brennivini úr landi.
Deilur urðu út af þvl hver
ætti Esjunafnið. Kexverksmiðj
an taldi sig eiga það en hótelið
taldi það af og frá. Sumir héldu
hins vegar að fjallið ætti það.
Ekki hefur tekizt að hafa upp
á fyrsta landnámsmanninum á
Kjalamesi til að fá úr þessu
skorið.
Blikur voru á ný á lofti inn-
an Þjóðleikhússins í byrjun
júlí. Guðlaugur þjóðleikhússtjóri
sparkaði ballettmeistara sínum,
þar sem ekki væri hægt að tala
við hann. Ballettmeistarinn var
enskur. Auk þess hefur Þjóð-
leikhússtjóri sjálfur samið ball-
ett, og ætti að vera fullfær
að annast þennan þátt starfsem-
innar sem aðra. Og ríkir friður
enn um sinn.
Viktoría los Angeles og Aske-
nazy fengu krans um höfuðið
við andlát Listahátiðarinnar,
„og tóku því vel eftir atvikum,"
að því er segir í frétt blaðsins.
Áður hafði pianósnillingurinn
Barenboim lýst því yfir, að
hann kæmi hingað bara fyrir
Askenazy en unnusta hams
Jacqulin de Pré kvaðst koma til
að njóta þess sama. Seldust 17
þúsund miðar á Listahátiðina.
Vöruskiptajöfnuðurinn við út-
lönd stórbatnaði á þessum tíma.
Iþróttahátíð var haldin, er
700 . norrænar hjúkrunarkonur
þinguðu hér á landi. Umræður
voru uppi um að koma á lagg-
irnar niðursuðuverksmiðju fyrir
öll Norðurlöndin á Islandi.
10 þúsund manns og 4 þúsund
hestar voru á landsmótinu á
Þingvöllum i misvondu veðri, og
ívar Guðmundssoji kvað Sam
einuðu þjóðimar vera á vega-
mótum. Þá tókst einnig að
tryggja varðskipunum næg
verkefni, er Albert var sendur
til Grænlands í olíuleit með
7—8 milljón króna tæki innan-
borðs. Á sama tíma voru
Margrét krónprinsessa og Hinrik
eiginmaður hennar líka send til
Grænlands. Þau höfðu viðdvöl á
íslandi, og var hann hattlaus en
hún í látlausri dragt, að því er
fregnir herma.
Hannibal Valdimarsson varð
'oddviti í sinni sveit. Stendur
hann í nýrækt, en flýgur á
fundi, að því er samtímaheim-
ildir segja. Var þá ákveðin
brautarlenging á Keflavíkurflug
velli. 1 ljós kom að svartbakar
geta verið hættulegir flugvélum,
en Bakkusi mun hins vegar
stafa lítil hætta af þeim. Þann
ig greindi maður frá því, að
hann hefði reynt að koma svart
bak „í kippinn" við sumarbú-
stað sinn í Mosfellssveit. Vætti
hann fiskstykki úr spíra og
lagði fyrir svártbakinn. Sá
gerði sér lítið fyrir, fór að
næsta læk og þvoði ósómann af
fisknum, sem hann át síðan með
beztu lyst. Sýndist manninum
svartbakurinn glotta, er hann
flaug á braut yfir manninn.
Mun Áfengismálafélag Islands
hafa lognast út af fljótlega eft-
ir þetta og helzti frumkvöðull
þess er fluttur til ísaf jarðar.
Maður nokkur reit Velvak
anda, og benti á, að hund-
ar hefðu stundum ráðist á kvik
fénað. Taldi hann illt að leyfa
slík óargadýr í borgum. Gamall
maður úr sveit reit í sama dálk,
að hundar gætu stundum bjarg-
að mönnum úr fönn. Hefur þessi
ábending vafalaust veitt mörg-
um styrk með tilliti til snjóanna
miklu á götum hér í borg í
febrúar. Umræður um þetta mál
áttu þó eftir að verða líflegri
siðar.
Vart var ágúst í garð geng-
inn, er verzlunarhelgin rann
upp. Segir Morgunblaðið, að út-
lit sé fyrir vota helgi enda bind
indismót víða um land. Forstjóri
Á.T.V.R. gaf landsmönnum upp-
skrift að krækiberjalikjör í
nesti, og voru taldir tólf hundr-
uð bilar út úr borginni næstu
tvo tímana.
Loftleiða var getið í erlend-
um tímaritum og þar kallað
„Hip hop Airline" og „The
Hippie Airlines." Var nú hafist
handa við fyrsta áfanga stækk
unar Kleppspítala.
Húsvíkingar héldu upp á ell-
efu alda byggð þar undir ágúst
lok og Alfreð Flóki sagði í
Morgunblaðinu, að einnig hann
iéti sér nægja að vera svona
fimm árum á undan samtíðinni.
Islenzkur spiritismi fékk
óvænt byr undir báða vængi í
ágústmánuði, þegar upp komst
að brezkur miðill hafði læknað
fótarmein íslenzks knattspymu-
manns; „sár á hægri ökkla og
ein táin bólgin og aum,“ og