Morgunblaðið - 20.02.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1971
19
Fremst á myndinni eru enskar karamelluboliur, þar næst fljót-
legar bollur með toppi, krem-boliur með súkkulaði, vínar-
brauðsbollur með þeyttum rjóma og súkkuiaði og bollur
með súkkati og rúsínum.
Bolla - bolla
BOLLUR ME» StlKKATI
OG RÚSÍNUM
IV4 1 volgur rjómi,
30 g þurrger
100 g mjúkt smjörlíki
eða smjör
2—3 matsk. sykur,
1 tsk. nýmalaðar kardi-
mommur.
250 g hveiti,
50 g rúsínur,
25 g súkkat, smáttbrytjað,
egg til að pensla með.
Þurrgerið hrært út með rjóm
anum, hinu bætt í nema rúsín
um og súkkati. Deigið hnoðað,
rúsínur og súkkat sett í og síð
an er það látið bíða í u.þ.b.
20 mín. Gerð rúlla úr deiginu,
sem skorin er í jafnar Sneiðar.
Hveiti stráð undir og á hendur
meðan verið er að þessu. Sneið
arnar lagaðar með fingrunum,
gerðar jafnar og bollulaga. Sett
ar á smurða plötu og látnar
bíða og hefa sig í u.þ.b. hálfa
klst. Penslað ofan á með þeyttu
eggi, bakað við góðan hita, (225°
til 250° C) i 12 mín.
KREMBOLLUR
ME» SÚKKULAÐI
150 gr. kalt smjör eða smjörl.
250 g hveiti,
1 tsk. kardimommur,
2 matsk. sykur,
% 1 volg mjólk eða rjómi,
25 g þurrger,
1 egg.
Kremið: 2 eggjarauður, 2 msk.
hveiti, 2 msk. sykur, Vt 1 mjólk,
1 tsk vanillusykur.
Glassúr: 100 g flórsykur, 2
msk kakó, 1 msk mjög mjúkt
smjör, 3 msk sjóðandi vatn.
Smjörlíkið hnoðað upp í hveit
ið, kardimommur og sykur sett
út í, þá gerið og mjólk eða
rjómi hrært saman, og að síð-
ustu eggið, aðeins þeytt. Deig-
ið hnoðað vel og látið bíða í
íremur heitum stað í eina klst.
Kremið búið til á meðan. Allt
sem á að fara í það, nema van-
illusykur, sett í pott og þeytt
vel saman, suðan látin koma
upp og hrært í á meðan. Bragð
bætt með vanillusykri, kælt.
Þegar deigið hefur hefazt er
það hnoðað enn einu sinni, síð
an flatt út og skorið í ferhyrn-
inga 8x8 sm. Dálítið af hinu
kælda kremi sett í miðjan fer-
hyrning, hornin beygð inn yfir
kremið svo að úr verður bollu-
laga stykki. Bollurnar settar á
vel smurða plötu, látnar hefast
í 10 mín. en j>& bakaðar við
góðan hita (225°C) í 12—15
min. Glassúr smurt á bollurnar
meðan þær eru heitar.
VÍNARBRAU»SR»DLLUR
50 g þurrger,
114 dl kalt vatn
1 egg,
50 g sykur
250 g hveiti,
200 g smjörlíki.
Gerið hrært út í vatnið, egg
sykur og hveiti sett út í og hnoð
að vel saman. Látið bíða á köld
um stað í 10—15 mín. Deigið
flatt út í ferhyrning aðeins
lengri en hann er breiður, kalt
smjörið smurt á helming deigs-
ins, hinn helmingurinn lagður
yfir, þá rúllað út aftur í upp-
haflega stærð, en nú lagt saman
í þrennt, það síðan endurtekið
nokkrum sinnum. Enn auðveld-
ara verður að fletja deigið, ef
það er látið bíða á köldum stað
á milli. Að síðustu er deigið
flatt út fremur þunnt, skorið í
ferninga og sett á þá krem (eins
og í krembollum með súkku-
laði, hornin lögð yfir, bollurnar
settar á vel smurða plötu og
látnar bíða í 20—30 mín. Bak
aðar við góðan hita (225°C) í
13—15 mín.
í staðinn fyrir að setja krem
á bollurnar, má setja smjör-
klatta. Þegar bollan hefast,
myndast gat eftir smjörið, og
má þá fylla það eftir bakstur
með kremi eða rjóma. Bollan
þakin með bræddu súkkulaði
eða flórsykri.
FLJÓTLEGAR BOLLUR
ME« TOPPI
25 g ger,
% dl rjómi,
V4 dl volgt vatn,
1 egg,
1 msk sykur,
% tsk vanillusykur,
125 g mjúkt smjörliki,
250 g hveiti.
Toppur: — Súkkulaðiglassúr,
þeyttur rjómi eða gott krem
með þeyttum rjóma í.
Gerið hrært út í rjóma og
vatn, hinu bætt út í, og deigið
hnoðað vel saman. Látið hefast
á fremur heitum stað í u.þ.b.
45 mín. Þá er það hnoðað aftur
og gerðar úr því bollur, sem
settar eru á Vel smurða plötu.
Látnar hefast í 10 mín. Bakað
við góðan hita (225°C) í 12—15
mínútur. Bollurnar þaktar með
súkkulaðigiassúr eða bræddu
súkkulaði, hola gerð efst, sem
siðan má fylla með þeyttum
rjóma, (og þá fallegt að sprauta
í hana) eða þá kremi, sem hef-
ur nafnið: Fínt krem.
Fínt krem.
2 eggjarauður,
114 msk. sykur,
2 msk maizenamjöl,
V4 1 sjóðandi mjólk,
1 tsk. vaniliusykur,
1 dl þeyttur rjómi.
Eggjarauður, sykur og maiz
enamjöl hrært saman, sjóðandi
heitri mjólkinni helit í og hrært
í á meðan. Öllu hellt í pott,
þeytt vel í þar til kremið þykkn
ar og það er komið að suðu.
Vanillusykri bætt í og kremið
kælt. Þeytta rjómanum hrært
saman við kremið og sett í rétt
áður en á að borða bollurnar.
ENSKAR
KARAMELLUBOLLUR
175 g hveiti,
1 Va tsk. ger,
30 g ókrydduð fita eða
30 g smjör (smjörlíki),
6—7 msk. mjólk.
Fylling: 2 msk. púðursykur,
rifinn börkur af 1 sítrónu, 1
msk. sítrónusafi, 1 msk. sykur,
1 msk. smjör.
Hveiti og ger sigtað, fitan
hnoðuð upp í ásamt mjólkinni.
Það, sem fara á í fyllinguna,
hrært saman. Suðan látin aðeins
koma upp úr glassúrnum. Deig-
ið flatt út á stærð við bökunar-
plötu, fyllingunni smurt á og
deiginu rúllað upp eins og rúllu
tertu. Skornar 3 sm sneiðar,
sem settar eru upp á rönd í
eldfast fat eða ofnskúffuna og
bakaðar við 200°—225°C í u.þ.b.
10 mín. Þá er heitum glassúrn-
um hellt yfir og bakað áfram í
5 mín.
FLJÓTLEGAR BOLLUR
250 g hveiti,
2 tsk, ger,
150 g smjör,
2 msk. púðursykur,
50 g litlar rúsínur,
rifinn börkur af % sítrónu,
2 egg,
Vs dl mjólk.
Hveiti og geri blandað sam-
an, smjörlíkinu blandað saman
við, bætt í púðursykri, rúsínum,
sítrónuberki, eggi og mjólk. —
Deigið hnoðað vel saman og
gerðar litlar bollur sem settar
eru á vel smurða plötu og
smurt á þær með eggi. Bakað
við góðan hita (200°—225°C) í
13—15 mín. Mjög góðar nýbak
aðar.
LAUKUR
Það er yfirJeitt ekki um jög
auðugan garð að gr: .ja, hvað
grænmeti við/'kur svini um hi
veturinn, og því full ástæða lil
að notfæra jér fy' ''ega juið,
sem til er. Lauk ir er mcira en
aðe'n.í gr-’n'ueii t'l að bragð
bæta an inr :nat, hari o: górr,
sætui se n : ttur moð kjöti og
fiski og þá gjarnan eina græn-
metið fyrir utan kartöflurnar.
Brúnaður laukur.
4 stórir laukar.
3—4 matsk. olía.
1 grænn piparávöxtur.
Lítil dós tómat- eða grænmet
issafi.
Salt og pipar.
1 rif hvitlauk, rifið eða smátt
saxað.
Vs tsk basilikum eða
marjoram.
Grænar olifur, kanill.
Hýðið tekið af laukunum og
þeir brúnaðir í olíunni, teknir
af pönnunni og piparinn í sneið
um brúnaður. Safi og krydd
sett út á pönnuna og allt látið
sjóða, síðan hellt í eldfast mót,
laukurinn ofan á. Álpappír sett
ur yfir og bakað í ofni i 1—1*4
klst.
Lauksúpa
1 kg laukur
70 g smjörlíki
2 mtsk. olía,
70 g hveiti
IV2 peli vatn,
2 lárberjalauf.
Vs tsk múskat, salt, pipar.
1 peli mjólk, V* peli rjómi.
Steinselja.
Laukurinn skorinn í sneiðar,
hýðið tekið af og látið krauma
í olíunni dálitla stund án þess
að brúnast. Hveiti og síðan
vatni hrært út i, látið sjóða í
örfáar mínútur, þá er kryddi
bætt í og lok sett yfir pottinn,
síðan látið sjóða í 1 klst. hrært
í við og við. Lárviðarlaufin tek
in upp, mjólk og rjóma bætt I,
haldið heitu en má ekki sjóða.
Laukhringir
Laukurinn skorinn í meðal-
þykkar sneiðar, losaðar og
hverjum hring dyft í mjólk og
síðan í hveiti með kryddi í.
Steikt i olíu i potti, fitan látin
drjúpa af á pappír. Gott með
ýmsum réttum.
Lauk-Ragout
500—750 g litlir laukar,
70 g smjörlíki,
35 g hveiti,
Vi peli soð eða vatn og
súputeningar,
1 ds. tómatar. V» tsk negull.
% tsk. kanill.
2 lítil lárviðarlauf.
Salt, pipar.
Hýðið tekið af lauknum og
hann steiktur i smjörlíkinu,
hveiti bætt í ásamt vatni eða
soði, og síðan öðru því, sem
fara á i. Lok sett á pönnuna og
þetta látið krauma í 1 klst,
þangað til laukurinn er meyr
en heill. Gott með ýmsu kjöti,
sérstaklega lambakjöti.
Rakaður fylltur laiikur.
4 laukar,
2 sneiðar franskbrauð.
Salt og pipar
Vi tsk. sinnepsduft.
Dál. af rifnum sítrónuberki.
70 g rifinn ostur,
35 g smjörlíki.
Hýðið tekið af lauknum og
hann settur í pott með söltu
vatni í 10 15 mín, teknir upp
úr og kældir. Sneið skorin ofan
af laukunum með beittum hníf,
síðan tekið innan úr þeim og
það saxað smátt. Skorpan skor-
in af brauðinu og það skorið í
smábita, blandað saman við sax
aðan laukinn, kryddið sett út í
og osturinn. Þessi fylling er
sett í laukana, sem látnir eru á
eldfast fat, smjörbitar yfir og
bakað í 30—40 mín, eða þar til
þeir eru meyrir.
Ég þakka hjartanlega hlýjar
kveðjur, góðar gjafir og kær-
komnar heimsókrtir á 80 ára
afmæli miinu 14. febrúar sil.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug I. Guðjónsdóttir
Frainnesi, Keflavik.
Innilegar þakkir ti’l allra vina
og vandamanna, sem á einn
og annan hátt sýndu mér
ástúð og vináttu á afmælis-
degi mínum þann 16. þ.m.
Ragnliildiir Ólafsdóttir,