Morgunblaðið - 04.06.1971, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNl 1971
3
SJÓMANNADAGURINN
verður að vanda haldinn
hátíðlegur á sunnudaginn
kemur, fyrsta sunnudag í
jiiiu. Að þessu sinni verð-
. ur gerð sú breyting, að
meginn hluti hátíðahald-
amna í Keykjavík fer frarn
í Nauthólsvík. Á allflest-
um útgerðarstöðum úti á
landi fara einnig fram
skipulögð hátíðahöld.
Pétur Sigurðsson, formaður
Sjómannadagsráðs, gerði í
gær fréttamönnum grein fyr-
ir dagskrá Sjómannadagsins í
Reykjavík. Hefst hún með
því, að kl. 8,00 um morgun-
Sjómannadag'Sráð. — Talið frá vinstri: Guðmundur Oddsson, Kristinn Sigurðsson,’ iliimar
.íónsson, Guðmundur Hallvarðsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsins, Tómas Guðjónsson
©g Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs.
Sjómannadagurinn er
nk. sunnudag
Hátíðahöklín fara að þessu
slnni fram í Nauthólsvík
Jandi. Þannig keppir ein sveit
skipuð starfsmönnum Eim-
skipafélagsins í landi og einn-
ig sveitir frá nokkrum frysti-
húsum, þar á meðal kvenna-
sveitir. Þá fer einnig fram
inn verða fánar dregnir að
hún á sikipum í Reykjavíkur-
höfn. Kl. 11.00 fer fram sjó-
mannamessa i Dómkirkjunni.
Þar minnist biskup íslands,
herra Sigurbjörn Einarsson,
drukknaðra sjómanna. Síðan
verður iagður blómsveigur að
leiði óþekkta sjómannsins.
Eru sjómenn og fjölskyldur
þeirra hvattar til þess að fjöl-
menna við sjómannamessuna.
Hátíðahöldin í Nauthóls-
vik hefjast kl. 13.30 með því,
að Lúðrasveit Reykjavikur
leikur sjómanna- og ættjarð-
arlög undir stjórn Páls P.
Pálssonar. Siðan verður
mynduð fánaborg með Sjó-
mannafélagsfánum og islenzk
um fánum.
Þá verða flutt ávörp. Egg-
ert G. Þorsteinsson, sjávarút-
vegsráðherra talar fyrir hönd
rikisstjórnarinnar, en einnig
flytja ávörp þeir Guðmundur
Jörundsson, fulltrúi útgerðar-
manná og Helgi Hallvarðsson,
skipherra, sem verður full-
trúi sjómanna við hátíðahöld
in. Síðan afhendir Pétur Sig-
urðsson, formaður Sjómanna-
dagsráðs, heiðursmerki Sjó-
mannadags.
Að þessum ávörpum flutt-
um fer fram kappróður. Taka
þátt í honum, auk margra
skipshafna, einnig sveitir úr
Sjómannadagsblaðið 1971
kappsigling á seglbátum,
kappröður á kajökum,
stakkasund, björgunarsund
og sjóskíðasýning, sem í
taka þátt 5 menn úr björg-
unarsveit Mýrdals. Þyrla
Landhelgisgæzlunnar kemur
á staðinn og einnig verður
sýnd sjóskotta, sem er nýj-
asta farartækið á sjó og get-
ur farið með 28 milna hraða
á klukkustund.
Á hátíðarsvæðinu verða til
sölu veitingar, merki Sjó-
mannadagsins og Sjómanna-
dagsblaðið.
Um kvöldið verða svo dans-
leikir á mörgum stöðum,
Hótel Sögu, Loftleiðum,
Glaumbæ og Hótel Borg. Einn
ig verður unglingadansleikur
i Tónabæ frá kl. 20.00—24.00.
Aðgöngumiðar að Hótel Sögu
verða seldir í anddyri Súlna-
salarins í dag, föstudag, frá
kl. 16,00—18,00 og á morgun,
laugardag, frá kl. 15,30—16,00,
ef einhverjir verða eftir óseld-
ir. Borðapantanir fara einn-
ig fram á sömu tímum i and-
dyri Súlnasalarins.
SPORTJAKKAR HERRA
FRA VAN GILS HOLLANDI
KJÓLAR TEKNIR UPP I BYRJUN
HVERS MÁNAÐAR
STAKIR JAKKAR OG FÖT
HANNAÐ AF COLIN PORTER
STUTTBUXNAKJÓLAR OG SETT
HERRASKYRTUR FRA
JAYTEX og MR. HARRY
HERRAPEYSUR FRA HOLLANDI
OG ENGLANDI
DÖMUPEYSUR
SOKKABUXUR — SPORTSOKKAR
A\LLT TEKIÐ UPP i VIKUNNI
mio****^
m KARNABÆR
TIZKUVERZLUN
UNGA FÓLKSINS
:* :
STAKSTIINAR
Breytt
umræðuform
Sjónvarpið hefur opnað stjórn
málaflokkiun og frambjóðendiun
nýjan og mikilvægan vettvang
til þess að koma skoðumun sin-
um og sjónarmiðum á framfæri.
Nú er lokið tveimur af þremur
helztu viðfangsefniun sjónvarps-
ins í þessari kosningabaráttu.
Staðnað form þessarar stjóm-
málakynningar hefur þó vakið
nokkra furðu, þar sem sjón-
varpið býður upp á svo marg-
víslega framsetningu á sliifera
efm.
Baldvin Tryggvason, fraan-
kvæmdastjóri, sem sæti átti i
nefnd þeirri, sem gerði tillögu
til útvarpsráðs um fyrirkoimu-
lag kosningasjónvarps, sagði wm
þetta atriði i viðtali við Morg-
unblaðið fyrir skönunu: „Víð
sjálfstæðismenn lögðum til eins
og áður, að umræðum i Rjóra-
varpi yrði hagað á þann hátt, að
þar væri um einhverja nýbreytn!
að ræða, en ekki eins og verið
hefur áður, að útvarpsefni væri
beinlínis flutt yfir í sjónvarplð.
Það var til dærnis skoðun okk-
ar, að flokkakynningum ætti að
haga á þann veg, að hver flokb-
ur tefldi fram 2 tU 3 fuUtrúum,
sem látnir yrðu svara spurning-
um andstæðinga um stefnu flokk
anna og afstöðu til ýmissa mála,
en ekki eins og varð ofan á, að
aUir flokkarnir keppist við að
búa tU glansmyndir af sjálfum
sér. Við töldum einnig, að fella
ætti niður framboðsfundinn I
sjónvarpssal. En ef hann yrði
haldinn, yrði umfram allt ekiil
hafður sá háttur á, að æva-
gömlu útvarpsumræðuformi yrðl
sjónvarpað. Við töldum, að slik-
run þætti yrði að koma þannlg
fyrir, að umræður færu fram,
þar sem hver spyrði annan ©g
menn yrði að standa fyrir máH
sínu, en ekki eins og gera má
ráð fyrir, að þátttakendur koml
fram með fyrirfram skrifaðaar
ræður og svari þá ekki því, sem
að þeim er beint."
Hér er hreyft athyglisverðum
hugmyndum, sem vafalaust
gætu lífgað mjög stjórnmála-
umræður og gefið áhorfendum
réttari mynd af flokkumtm.
Tregða hinna svonefndu vinstrl
flokka til breytinga á þessu
sviði er næsta furðuleg.
Sundurlyndi
Eitt megineinkenni stjórnmála
baráttunnar, sem nú er háð, er
innbyrðis karp og deilur stjórn-
arandstöðuflokkanna. Þesslr
flokkadrættir niagnast dag frá
degi og verða æði broslegir á
köflum. 1 ræðu og riti keppast
málsvarar hvers flokks um sig
að sýna fram á, að aðeins þeirra
flokkur sé þess umkominn að
fella rikisstjórnina. Málgögn
stjórnarandstöðunnar hnakkrif-
ast svo um þessar gagnstæðu
yfirlýsingar meðan aLmenning-
ur brosir að ósköpunum. Jafnvel
landhelgismálið, sem þessir
flokkar voru þó sammála nm að
blása upp í áróðursskyni i kosn-
ingabaráttuni, er nú notað i Inn-
byrðisátökum þeirra í milli.
Það hefur vakið gremju fjöl-
margra bænda, er verið hafa
kjarninn í kjörfylgi Framsókn-
arflokksins, að hann hefur ekbl
að nokkru marki lagt áherzlu á
landbúnaðarmálin í þessum
kosningum. Alþýðubandalagið
hefur ýtt verkalýðsforingjum
sínum til hliðar og óánægja
flokksmanna hefur af þeim sðk-
um farið vaxandi. Flokkadrætt-
irnir innan Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna enduðui
með því, að Hannibal Vaidimars-
son var hrakinn úr framboði i
Reykjavík. Þessa mynd sjá
kjósendur af fylkingum stjórn-
arandstæðinga uni þessar imirtd-
ir.
A
4
l
(