Morgunblaðið - 04.06.1971, Page 14

Morgunblaðið - 04.06.1971, Page 14
MORGUNBLAÐEÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1971 14 SÍÐUSTU 6 vikurnar hafa þau Zorba og vin- kona hans, Búbúlína, haft aðsetur sitt í Þjóð- leikhúsinu og þar hef- ur Zorba miðlað gest- um af lífsgleði sinni og lífsspeki og Búbúlína, sem áður lét sig dreyma um aðmírálana fjóra, hefur nú hrifizt svo af Zorba að hún á þá ósk stærsta, að hann biðji um hönd hennar. Búbúiína, sem öðru nafni heitir Her- dís Þorvaldsdóttir, hef- ur margoft áðuV vonazt eftir bónorði frá Eó- bert ZORBA Arnfinns- syni og hefur reyndar á ýmsu gengið í þeim málum. Þau Herdís og Róbert hafa nefnilega leikið „par“ öðru hverju í aldarfjórðung, trúlofazt, gifzt, skilið, elskazt, hatazt......... „Eiginlega ættum við að halda upp á „silfur- brúðkaup“ á þessu ári, þótt reyndar sé það nokkuð óvenjulegt silf- urbrúðkaup, þar sem hjónaböndin okkar á þessum tima eru orðin æði mörg,“ sagði Her- dis er við hittum hana og Róbert að máli stutta stund nú í vik- unni. Þar sem Zorba er eiginlega silfurbrúð- kaupsstykkið báðum við þau að rifja upp helztu hlutverkin sem þau hafa leikið sem „par“. „Við erum búin að vera samferða í 25 ár, fyrst hjá Leikfélaginu og siðan hér í Þjóðleik- húsinu," segir Róbert. „Fyrstu hlutverk okk- ar sem par hjá Leik- félaginu voru í „Ég man þá tíð”, eftir Eug- en O’Neil árið 1946. Þar gerðum við nú ekki meira en trúlof- ast — trúlofuðum okk- ur leynilega úti á báti. t „Manni og konu“, sem við lékum í hjá Fjalakettinum um svip að leyti gerðum við betur, því þar vorum við Sigrún og Þórarinn og höfðum það af að gifta okkur í síðasta þætti, eftir mikla erfið- leika, sem flestum eru kunnugir úr skáldsög- unni. Sumarið 1949 fór- um við með „Sumar- gestum" út á landi og lékum ýmsa smáþætti og m.a. var ég vonbiðill Herdísar í „Bónorðinu" eftir Tékov. Við lék- um víða við mjög frum stæð skilyrði — en ferðin var skemmtileg." „Þegar Þjóðleikhúsið fór af stað haustið 1949 vorum við ráðin þang- að og vorum þá lang- yngstu Ieikaramir", heldur Róbert áfram. „í opnunarleikritunum lékum við sitt í hvoru lagi, Fjalla-Eyvind og Snæfríði íslandssól, en fyrstu hiutverk okkar saman í Þjóðleikhúsinu voru í „Konu ofaukið“, eftir Knud Sönderby. Þar vorum við reyndar systkin og fór mjög vel á með okkur. Reyndar höfðum við leikið par í Grænu lyftunni hjá Fjalakettinum, árið fyr- ir stofnun Þjóðleikhúss- ins." „Svo kom Silfur- tunglið, ekki rétt“, seg- ir Herdís, „Þar hljóp ég reyndar frá þér Robbi minn, með hon- um Rúrik, en svo kom ég til þín aftur — og skömmu seinna lékum við svo Adam og Evu í „Spádómnum" eftir Tryggva Sveinbjöms- son. Þar er mannkyns- sagan rakin frá sköpun Adams og Evu þar til atómsprengjan útrým- ir mannkyninu. í þessu Ieikriti var eigin- lega fyrsta „strip tease" atriðið hér, þegar við risum upp úr jörðinni. Auðvitað máttum við ekki vera nakin og vor- um því í bleikum sam- festingum.“ Árið 1957 lék Róbert Bellmann og Herdís UIlu vinkonu hans í „Ullu Winblad", þar sem þau sungu ma. marga af þekktustu söngvum Bellmans. Næst var Herdís keypt hjákona Róberts í ástr- ölsku leikriti „Sautj- ánda brúðan“. „Ég kunni ekki við mig í þvi hlutverki,“ segir Herdís, „og því minnist ég leikritsins ekki með sérstakri ánægju — þótt það væri ágætis verk.“ „Svo má ekki gleyma því að við höfum leikið konungshjón," segir Ró- bert, „Við lékum Claud íus og Geirþrúði kon- ungshjón í Danmörku í Hamlet — svo hátt höf- um við nú komizt í mannfélagsstiganum. A eftir Hamlet lékum við hjón í „Endasprettin- um“ hans Peters Ustin ov, en það verk spann- ar Iíf hjóna frá því þau eru ung þar til um átt- rætt. Konan, Stella, er leikin af sömu konunni allan tímann, en mann hennar, Sam, leika f jór- ir leikarar; einn tvítug- an, annar fertugan, þriðji sextugan og sá fjórði áttræðan. Ég lék þann fertuga," Og nú eru Herdís og Róbert skötuhjúin Zorba og Búbúlína. Zorba, landshornaflakk arinn hefur flækzt til Krítar þar sem hann hittir Búbúlinu hina frönsku, fyrrum gleði- konu, sem orðið hefur innlyksa á eynnl. Bú- búlína lifir í drauma- heimi með aðmirálun- unum sínum fjórum — þar til Zorba kemur og „rennur á lyktina“. Hún vill giftast, en hann vill ekki giftast, því það samræmist ekki lífsspeki hans um að lifa fyrir liðandi stund. „Það er mikil speki í sögunni um Zorba,“ segir Róbert, „en auð- vitað kemst hún ekki öll til skila i stuttum söngleik — því Zorba okkar er fyrst og fremst söngleikur. Það er því óréttmætt að gera samanburð á skáldsögu og söngleik eins og alH of margir hafa gert, auðvitað með þeim árangri að þeir sakna margs úr sögunni í söngleiknum — en þeir fá í staðinn söng og dans.“ Zorba mun halda áfram að syngja og dansa eitthvað fram eft ir mánuðinum og koma fólki í gott skap, og á hverri sýningu fær hann hring frá Búbiú- línu sinni. „En hann verður að skita mér hringnum að lokinni hverri sýningu,“ segir Herdís, „svo ég getj gef ið honum hann aftur. Hringamál okkar hafa því verið margs konar og þótt við höfum rif- izt út af sutnum þá held ég að við séum reiöubúin að trúlofast og giftast á leiksviðinu ótal slnnum í framtið- inni. Er það ekki satt, Robbi minn?“ Tvær af riiyndunum etfst á siðunni eru úr „Zorba", e*i sú þriðja er úr „Ég man þá tíð“ og tekin fyrir laldarfjórðungi. Myndin neðst til vinstri e-r úr „Si!fur1iunglinu“ og sú til hægri «r úr „Spá- dimnum'1, er Adarn og Eva rísa upp. ZORBA, BÚBÚLÍNA OG „SILFUR- BRÚÐKAUP“ ÞEIRRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.