Morgunblaðið - 13.07.1971, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.07.1971, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLl 1971 13 Staða þjóöarbúsins: Þjóðartekjur aukast um 10% 20% hærra útflutningsverðlag Þjóðarframleiðsla eykst um 6V2% GREIN ARGERÐ, sem Morgunblaðinu barst í gær frá ráðuneyti Jóhanns Haf- stein um stöðu þjóðarbúsins, kemur fram, að gera má ráð fyrir, að þjóðarframleiðslan í ár aukist um 6x/2% frá fyrra ári, en að raunverulegar þjóðartekjur geti orðið allt að 10% hærri en í fyrra. Þá er einnig skýrt frá því, að sennilega verði útflutnings- verðlag um 20% hærra í ár en það var á árinu 1970. Hér fer á eftir sá kafli í greinar- gerðinni, sem fjallar um þjóðarframleiðslu og þjóðar- tekjur og um útflutnings- framleiðslu og þróun afurða- verðlags. ÞJÓf) ARFR AMLEIÐSL A OG ÞJÓÐARTEKJUR Svo sem málin standan nú, eru taldar horfur á, að þjóðar framleiðsla þessa árs sýni um 6 ’,í> % aukningu frá fyrra ári; en að meðtöldum áhrifum hækkaðs útflutningsverðlags afurða frá meðaltali fyrra árs, má aetlá, að raunverulegar þjóðartekjur geti orðið allt að 10% hærri en í fyrra. Aukning þessi leggst við fyrri aukningu þjóðarfram- leiðslu um 6% árið 1970 og 2% árið 1969, eða þjóðartekna um 10,5% 1970 og 3% 1969. Má þannig að óbreyttum horfum gera ráð fyrir, að miðað við fast verðlag muni þjóðarfram- leiðsla áranna 1969—71 alls sýna um 1514% aukningu, en þjóðartekjur sömu ár um 25% aukningu. Yfir tímabilið frá 1960 (11 ára tímabil) mun þann ig hafa orðið 63% aukning þjóð arframleiðsiu eða sem svarar 4,6% aukningu á ári, og þá jafn framt aukning þjóðartekna um 8214% eða sem svarar 5,6% á ári. Miðað við áætlaðan meðal fólksfjölda áranna við upphaf og lok umrædds tímabils, nem ur aukning þjóðarframleiðslu á mann alls um 39% eða 3% á ári, en aukning þjóðartekna á mann alls um 55% eða 4,1% á ári. Eru aukningartölur þessar mjög vel sambærilegar við sams konar tölur um hagþróun ann- arra vestrænna rikja. Þessi mikla aukning þjóðar- framleiðslu og þjóðartekna hef ur átt sér stað þi'átt fyrir það, að auðlindir sjávar eru svipuð um takmörkunum háðar og fyr ir áratug, þar sem styrkur síld arstofnanna reyndist tímabund- inn. Stóraukinn floti vel búinna veiðiskipa hefur verið nýttur til öflugri sóknar og fjölbreytilegri afla, og bætt nýting hráefnisins, aukið vinnsiustig afurða og markaðsöflun hafa mjög aukið Þjóðarauðurinn aukizt um 72% síðasta áratug 64% aukning kaupmáttar atvinnurekenda FRÁ ársbyrjun 1960 til árs- loka 1970 hefur þjóðarauður- inn, þ.e. afskrifað verðinæti fastafjármuna, véla og tækja ásaint einkabifreiðum, aukizt um 72% og svarar þetta til þess, að um 60 milljarða verðmæti hafi myndazt á þessu tímabili. Þetta kemur frarn í greinargerð þeirri, sem Morgunblaðinu barst í gær frá ráðuneyti Jóhanns Hafstein um stöðu þjóðarbús- ins. Þar segir ennfremur, að kaupmáttur atvinnutekna hafi aukizt um 64% eða ráð- stöfunartekna um 55% frá 1960. Hér fara á eftir þeir kaflar í greinargerðinni. sem fjalla um verðmætaaukningu og kaupmáttar launa. A yfirstandandi ári eru horf ur á, að allir helztu þættir verð mætaráðstöfunarinnar muni auk aat mjög verulega. Þannig eru likur til þess, án þess að frek- ari grunnlaunahækkanir komi til, að einkaneyzílan muni auk- ast að raunverulegu magni um 1214% frá fyrra ári, og eru þá meðtalin kaup varanlegra neyzlu muna, svo sem einkabifreiða, heimilistækja o. fl. Jafnframt muni fjái’munamyndunin í heild aukast um 20%. Fjárlög ríkis- ims og fjárhagsáæt'lanir sveitar félaga bera, í heild með sér á- form um mun minni aukningu samneyzlunnar, þ.e. þjónustuút gjalda hins opinbera, sem áætl að er, að muni aukast um 6,5% að raunverulegu magni. Er þetta annað árið i röð, sem stórstíg aukning verður á verðmætaráð stöfun, einkum til einkaneyzlu. og fjármunamyndunar, í kjöl- far óhjákvæmilegs samdráttar af völdum efnahagsáfallanna. — Bæði þessi ár til samans mun magnaukning einkaneyzlu vænt anlega nema 2614%, eða rúm- lega sem svarar hlutfailslegri aukningu þjóðartekna árin 1969 —71. Aukning fjármunamyndun ar mun væntanlega nema um 29%, og samneyzlu um 11% að magni þessi tvö ár. Yfir allt timabilið frá 1960 að líta mun einkaneyzlan þá hafa aukizt um 87% eða ívið meira en þjóðartekjur, en það svarar til 5,8% vaxtar á ári. Fjármunamyndunin mun þá hafa aukizt um 62%, eða 4,5% á ári, en samneyzla um 79%, eða 5,3% á ári. Þjóðarauðurinn, þ.e. afskrifað verðmæti fastafjármuna, véla og tækja, ásamt einkabifreiðum, hefur aukizt um 72% frá árs- byrjun 1960 til ái'sloka 1970. Er verðmætisupphæð þjóðarauðsins þá áætluð 145,7 milljarðar króna miðað við verðlag 1970. og svar ar ofangreind aukning til þess, að um 60 milljarða króna verð mæti hafi myndazt á tímabil- inu. VERÐLAG OG KAUPMÁTTUR Um áratuga skeið hefur, með fáum undantekningum, tekizt að viðhalda fullri atvinnu, og hefur með köflum rikt umfram eftinspurn eftir vinnuafli. í sam bandi við viðreisnarráðstafanirn ar 1960 bar nokkuð á ótta um atvinnuleysi. En með þeim að- gerðum var stefnt að öflugri at vinnustarfsemi, enda efldist at vinna fljótlega svo mjög, að of langur vinnutími var talinn vandamál. Efnahagsáföllin 1967 og 1968 leiddu þó til verulegra atvinnuvandkvæða, og urðu þau einkum alvarleg veturinn 1968—69, er verkföll á flotanum oHu jafnframt rekstrarstöðvun um. Að meðtöldum áhrifum þess, svo og atvinnuleysisskrán ingar í allt öðru formi en áður, reyndist meðalatvinnuleysi árs ins 1969 2,5% af mannaflanum. Úr því dró mjög ört, þegar efna hagsaðgerðirnar ásamt hinum sérstöku aðgerðum til atvinnu aukningar tóku að blása nýju lífi í atvinnustarfsemina. At- vinnuleysið hjaðnaði i 1,3% ár ið 1970 og er nú því sem næst algerlega horfið. Hinar séi’stöku ráðstafanir skv. lögum um ráð stafanir til stöðugs verðlags og atvinnuöryggis hafa tryggt enn frekar, að atvinnugrundvöllur- inn raskaðist ekki. Enda þótt verðlag hérlendis hafi hækkað mjög ört, hefur hækkun þess staðið í nánu sam bandi við mjög öra aukningu tekna alls almennings, og að miklu leyti verið afleiðing hi-nna miklu sveiflna í útflutningsverð lagi og aflabrögðum. Meðan vísitala framfærslukostnaðar hefur rúmlega þi-efaldazt fi'á 1960, hafa kauptaxtar verkafólks og iðnaðarmanna rúmlega fjór- faldazt, en tekjur atvinnufólks i heild, svo sem atvinnutekjur verka-, sjó- og iðnaðarmanna, meira en fimmfaldazt og ráð- stöfpna rtek j u r af þeirn eftir skatta og fjölskyldubætur því sem næst fimmfaldazt. (Eru tekjur þessar áætlaðar með framreikningi fiá 1969 til 1971). Niðurstaðan er því sú. að kaup máttur atvinnutekna hefur auk izt um 64% eða ráðstöfunartekn anna um 55% frá 1960, hvort tveggja á mælikvarða fram- færslukostnaðar. Jafnframt hef ur kaupmáttur kauptaxtanna, sem eru þýðingarmesti þáttur tekjuþróunarinnar, aukizt um 31,4%. Þótt rakið sé lengra aft ur, svo sem tii 1958, er niðurstað an svipuð eða hagstæðari, sé þess gætt að hafa hliðsjón af öllum þáttum framfærslukostn aðar og þar með þeim breyting um skatta og fjölskyldubóta, er gerðar voru sem þýðingarmiklar F'ramhald á bls. 23. gjaldeyrisverðmæti framleiðsl- unnar. Iðnaðarframleiðsla hef- ur vaxið mjög, bæði til inn- lendra nota og til útflutnings, og margs konar þjónusitustarf- semi hefur eflzt við hlið hinna fyrri undirstöðugreina. Að allri þessari þróun hefur verið stuðl að af opinberi'i hálfu með öfl- un lánsfjármagns, rannsóknum og leiðbeiningum og hvers kon- ar fyrirgreiðslu, sem of langt yrði að telja. ÚTFLUTMNGSFRAM- LEIÐSLA OG ÞRÓUN AFURÐAVERÐLAGS Framleiðsla sjávarafurða jókst hröðum skrefum á fyrri hluta sjöunda áratugarins. Árið 1965 var framleiðsluverðmæti sjávar afurða á föstu verðlagi um 50% meira en árið 1960. Þessi gifur lega aukning var að mestu reist á síldveiðum og vinnslu síldar. Sarrifara hinni miklu magnaúkn ingu varð mikil verðhækkun helztu útflutningsafurða. Reikn að í erlendum gjaideyri hækk- aði verðlag sjávarafurða um 54% frá 1960 til 1965. Árið 1966 urðu vatnaskil, og 1967 og 1968 varð nær samtímis stórfeild aflaminnkun og verðlækkun á heimsmarkaði. Botni var náð 1968, en það ár vaí' framleiðslu verðmætið miðað við fast verð lag um 5% minna en árið 1960 og verðlagið aðeins 31% hærra, en hafði 1966 verið 54% hærra en 1960. Gjaldeyrisandvirði sjávar afurðaframleiðslunnar hafði þannig minnkað um nær 45% á tveim árum Þessi stórkostlegi afturkippur var meginástæða gengisbreyting anna 1967 og 1968. Gengisskrán ingin 1960 var í raun og veru þess eðlis að rétta af falsaða og margbreytilega gengisskráningu frá tímum vinstri stjórnarinnar 1956—1958. Efnahagsráðstafanir áranna 1967 og 1968 greiddu fyrir þvi, að þróunin snerist við og frarn leiðslumagnið jókst um 16%; 1969 og samtímis hækkaði út- flutningsverðlag um 6%. Þessi þróun hélt áfram á árinu 1970. Framleiðslumagn sjávarafurða hefur sennilega aukizt um 6>4% og verðþróunin erlendis varð mjög hagstæð, því ó árinu hækk aði útflutningsverðlag sjávaraf- urða að meðaltali um 21%. Þótt vetrarvertíð brygðist að nokkru suðvestanlands í ár, virðist ekki ástæða til að ætla, að fram- leiðslumagn sjávarútvegsins minnki um meira en 4 til 6%, og afurðaverðlag er enn hag- stætt í flestum greinum og fer . enn fremur hækkandi á mikil vægum afurðum. Sennilegt virð ist, að útflutningsverðlag verði um 20% hærra í ár- en 1970. Hagur sjávarútvegsins er því góður sem stendur og hefur ver ið undanfarin tvö ár. Hefur tek izt vel að tryggja að nýju rekstr argrundvöll sjávarútvegsins eft ir áföll áranna 1967 og 1968, einkum þegar þess er gætt, að síldveiðar skila nú aðeins ör- litlu broti þess, sem þær áður gófu af sér. Jafnframt endur- bata í afkomu fyrii-tækja. og starfsfólks sjávarútvegsins hef- ur tekizt að mynda verulegan verðjöfnunarsjóð á árinu 1970 og það sem af er 1971, þannig að sjávarútvegurinn er mun bet ur búinn en áður til þess að mæta verðfalli, ef til þess skyldi koma. Sé litið yfir allan áratuginn frá 1960 til 1970 jókst fram- leiðslumagn sjávarútvegs um , 16% á föstu verðlagi, en vegna hækkandi verðlags erlendis milli áranna 1960 og 1970 jókst gjald eyrisverðmæti framleiðslunn- ar miklu meira, eða um 94%. Með til- komu verðjöfnunarsjóðsins og með þvi að nú er ekki í sama mæli og áður treyst á svikul an síldarafla stendur sjávarút- vegurinn traustari fótum við lok áratugarins en á fyrri hluta b.ans. En á þessum tiu árum hafa einnig verið stigin mikil- væg spor til þess að tryggja mefri fjölbréytni og festu 1 út- flutningsiðnaði landsmanna. Stóriðnaður til útflutninga, sem reistur er á orku fallvatna landsins, hóf starfsemi sína á árinu 1969, auk þess sem mikill fjörkippur hefur komið í út- flutning ullar- og skinnavöru á síðustu tveimur órum. Árið 1961 var hluti annarra greina en sjávarútvegsins um 9—10% af heildarútflutningsverðmætinu, þar af lítt unnar landbúnaðar- vörur 5—6% , þegar álútflutning ur er kominn til, var þetta hlut fall 22%, þar af lítt unnar land búnaðarvörur 3—4%. Hlutur almenns verksmiðju- iðnaðar í útflutningnum hefur þannig aukizt verulega á síð- ustu tíu árurn, og væntanlega þar með öryggi útflutnings- tekjuöflunar. Fyrirsjóanlegt er að á næstu árum getur hlutur hinna nýju útflutningsgreina aukizt verulega, ef vel er á haldið. Traust staða ríkissjóðs Mikil aukning til félags- og fræðslumála Stjórnsýslukostnaði haldið niðri Á TÍMABILINU frá 1960 hafa útgjöld ríkisins til félags- og fræðshunála aukizt um 80,6% og 130% hvors um sig, en á sama tíma hefur hinn eigin- legi stjórnsýslukostnaður rík- isins einungis aukizt um 23,1%. Þetta sýnir, að þróun ríkisfjármála hefur í vaxandi inæli cinkennzt af viðleitni til þess að jafna aðstöðuna í félags- og fræðslumálum. „Þróun ríkisfjármála það sem af er þessu ári ber vitni traustri stöðu ríkissjóðs,“ seg- ir í greinargerð þeirri, sem Morgunblaðinu barst í gær frá ráðuneyti Jóhanns Haf- stcin um stöðu þjóðarbúsins. Hér fer á eftir sá kafli grein- argerðarinnar, sem fjallar um fjármál ríkisins: FJÁRMÁL RÍKISINS Á tímabilinu f rá 1960 hefur þróun ríkisf jármálanna í stórurn dráttum einkennzt af vaxandi þjómustu ríkisins við borgarana og viðteitni til aöstöðujöfnunar, einkurn á sviði félags- og fræðslumála, þótt segja magi, að flestir eða allir útgjaldaflokkar beri þessari þróún vitni. Á þessu timabili hafa rikisútgjöildin ft föstu verðlagi vaxið uim 43,9% á mann, meðan tveir ofannefndir flok’kar hafa aukizt um 80,6% og 130,0% hvor um sig. Á sama tímabili hefur hinn eiginlegi stjómsýslukostnaðui' einungis aukizt um 23,1%. Þá hafa verk- legar framkvæmdir ríkisins inn- an fjárlaga rösklega tvöfaldazt á þessu timabili miðað við fast verðlag, og enn meiri er aukn- ingin, sé framkvæimdaáætlun rikisstjórnarinnar talin með. Augljóst er, að til þess að standa undir þessari auknu þjón- ustu og framkvæmidum hefur ekki verið hjá því komizt að auka skattheimtu, Enda þótt hallarekstur hafi orðið einstök ár þessa tímabils, einkum þegar utanaðkomandi efnahagsörðug- teikar hafa steðjað að, hefur sá halli unnizt upp önnur ár. Þá ber þe®s sérstaklega að geta, að sú viðleitni að viðhalda á raun- hæfan hátt þeim kjarabófcum, sem leiddi af kjarasamningun- um á sl. ári, lagðist þumgt á ríik- issjóð með verðstöðvunaraðgierð- unum skömmu fyrir sá. áramót. Vegna þess, hve fjárhagur ríkis- sjóðs var þá orðinn traustur, reyndist þetta unnt án þess að grípa til verulegra skattálaga á almenning. Þróun ríkiafjármálanna, það sem af er þessu ári ber vitni traustri stöðu ríkissjóðs. Að vísu er um talsverðan yfirdrátt að ræða á aóalviðskiptareikningi ríkissjóðs í Seðlabankanum, en hér er þó einungis utn eðlilega árstiðarsveiflu að ræða, sem ávallt leiðir til verulegs yfir- dráttar á þessum mánuðuim árs- ins. Hins vegar er staðan gagn- vart Seðlabankanum nú nokkru betfi en fyrirfram hafði vei'ið gert ráð fyrir. Þrátt fyrir þá óhjákvæmilegu aukninigu út- gjalda, sem orðið hefur frá sam- þykkt fjárlaga, gerir aukning tekna væntanlega betur en vega þá aukningu upp, og má búast við, að §ú myjnd ríkisfjármál- anna haldist að óbreyttu út árið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.