Alþýðublaðið - 03.07.1958, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 03.07.1958, Blaðsíða 4
Alþýðublaðið Fimmtudagur 3. iúlí 1958 jörn Ha HALLBJÖRN HALLDORS- SON prentari, yfirverkstjóri í Ríkisprentsmiðjunni Guten- . berg, er sjötugur í dag. Hann <-,er fæddur í Vilborgarkoti í Mosfellssveit 3. júlí 1888, ' Bönur Halldórs bónda Jóns- sönar, er síðast bjó á Bringum '' j sömu sveit, og konu hans, Vilborgar Jónsdóttur frá Ur- riðakoti. f afmæliskveðju er ekki ; .,unnt að gera skil þótt ekki • væri nema ágripi af æviþátt- . um þessa höfðingja íslenzkr- "ar prentarastéttar og forustu- '‘inanns alþýðusamtakanna, svo ' inargt er það. sem hann hefur lagt að snillingshendur og snarpan huga. En minnast skal hans á þessum tímamótum í ævi hans, þótt ófullkomið verði. i Fyrstu sagnir af Hallbirni hef ég frá móður minni, sem , kynntist honum á unglingsár- um hans. Þær sögðu frá ráuð- hærðum pilti. sérkennilegum, greindum, snarráðum og úr- J! i iræðagóðum. Þegar þau voru bæði flutt til Reykjavíkur, ' fannst henni það sjálfgefið mál. að bessi rauðhærði piltur væri vel til forystu fallinn. Eins var það að hennar hyggju alveg eðlilegur hlutur, að maður með skapferli og hjarta- j lagí Hallbjarnar, veldi sér baráttuvöll þar, sem slíks manns var þá mest þörf: í röðum alþýðunnar. Og í röð- um verkalýðsins hefur hann alltaf staðið og oft farið fyrir fylkingu. Hallbjöm hóf prentnám í Félagsprentsmiðjunni 1. októ- ber 1903, en fór þaðan í Gut- • enberg 1905 og lauk þar námi. í Gutenberg starfaði hann síðan sem setjari og verkstjóri til ársins 1922. Arið 1922 tekur Hallbjörn við ritstjórn Alþýðublaðsins og er ritstjóri þess til ársins Í927. Jafnframt er hann for- st j óri Alþýðuprentsmið j unnar frá stofnun hennar 1926 og til ársins 1935, og valdi hann til hennar öll letur, áhöld og vél- ar. Hann er fulltrúi Alþýðu- flokksins í bæjarstjórn árin 1922—28. í skólanefnd Mið- HALLBJÖRN HALLD ÓRSSON, bæjarskólans er hann árin 1923—29 og átti einnig sæti í skólanefnd Gagnfræðaskólans í Reykjavík um nokkur ár. Þegar Hallbiörn lét af for- stjórastarfi við Alþýðuprent- smiðjuna, fór hann aftur til vinnu í Gutenberg, tók þar við yfirverkstjórn og hefur gegnt því starfi óslitið síðan. Hallbirni er þannig farið, að hann hlýtur að fara fyrir öðr- um mönnum, sem hann starfar með eða velur sér að félögum. Hans eðli hefur verið að sjá lengra og hugsa dýpra en flestir aðrir. Slíkir menn þykja sérvitrir, en öll vizka er í upp- hafi sérvizka eins manns, sem hugsar öðru vísi en fjöldinn. Á þeim árum, sem Hall- björn tók virkan þátt í stjórn- málalífinu, var bæjarfulltrúi og ritstjóri eina málgagns al- þýðunnar, þurfti hann oft að brýna rödd sína í ræðu- mennsku og rita . .eldheitar greinar um áhugamál fólksins, réttmætar kröfur um hærra kaup og mannréttindi, sem nú þykja sjálfsögð, en kostuðu þó áratuga baráttu hans og annarra forustuman'na. Allt þetta átti Hallbjörn auðvelt með, því að lifandi og fagurt íslenzkt mál er honum svo eðlilegt og samgróið, að fáir munu þeir. er kunna þar betri tök á. Og enn er penninn lið- ugt vopn í hendi hans og ræðumennskunni bregður hann fyrir sig, þegar þörf gerist á liðsinni við góðan málstað. í röðum prentara hefur Hallbjörn Halldórsson ekki að- eins verið forustumaður og góður félagi, þótt það sé ærið. Hann hefur einnig alla tíð verið sístarfandi lærifaðir hinna yngri manna, hefur kennt þeim og leiðbeint um fagurt handbragð í listgrein- inni, íslenzkað hugtök yfir verkfæri iðnarinnar og efni- við, hvatt til aukinnar- mennt- unar og menningar og reitt miskunnarlaust svinu vandlæt- ingar að hvers konar óvand- virkni og slóðaskap. Nú á þessu tímamótaári > ævi Hall- bjarnar tók til starfa prent- listarskóli við Iðnskólann, og væri óskandi, að hann mætti byggja á þessu merka starfi hans og halda því áfram og auka þannig hróður prent- listarinnar. 'Hallbjörn Halldórsson var fyrst kiörinn í forustu Hins íslenzka prentarafélags árið 1911, er hann var kosinn ritari sjúkrasamlags þess. Síðan hef- ur hann verið nær óslitið í ein- hverju trúnaðarstarfi fyrir H.Í.P., að undanskildum þeim árum, sem hann var forstjóri Alþýðuprentsmiðjunnar. Hann hefur tvívegis verið kjörinn formaður félagsins, margoft og langtímum verið varaíormað- ur þess, átt sæti í mörgum nefndum, lengst í bókasafns- nefnd. og á þar enn sæti. Rit- stjóri Prentarans. varð hann fyrst 1910 og hefunveríð rit- 'stjóri hans oftar og lengur en nokkur ánná;r, ýmist einn eða með öðrum. Hefur hann ritað þar fjölmargar greinar um .prentlist og prentfræði, aúk greina um kjaramál og þjóð- félagsmál. Vegna málakunnáttu sinnar hefur Hallbjörn verið kjörinn fulltrúi Hihs íslenzka prent- arafélags á fundi Alþjóða- sambands prentara og hefur hann sótt þrjá slíka fundi. Auk þess .hefur hann komið fram sem fulltrúi stéttarinnar Kveðja ti H MÉR er skylt að senda Halibirni Halldórssyni kveðju sem fyrrverandi rit- stjóra Alþýðublaðsins á þess- um heiðursdegi hans, þakka honum mörg og góð störf í þágu íslenzkrar verkaiýðs- hreyfingar og jafnaðar- stefnu, frumlegar og sjálf- stæðar skoðanir, heita bar- áttugleði og þróttmikinn á- huga samfara frjálslyndi og víðsýni. Þá hefur því skeyti verið komið til skila. En svo langar mig að bæta við ör- stuttri skilgreiningu á mann- inum Hallbirni Halldórssyni og rithöfundinum meistara H. H. Einu sinni vorum við Hall- björn mötunautar um nokk- urra mánaða skeið, og sjald- an hef ég kynnzt manni kímnari í fróðleiknum og fróðari í kímnÍHni. Hallbjörn er einstakur íþrÓTtamaður orðlistarinrtar i mæltu máli, segir frá eins og sá, sem valdið hefur, neytir aldrei afls skapsmunanna, en sigrar með því að kunna glögg skii á mönnum og málefnum og koma skemmti.ega á óvart, reynist jafnvígur í sókn og vörn og leikur við hvern sinn fingur, þó að honum sé viðureignin mikil alvara. Og þá víkur sögunni að meist ara H. H. Hadbjcrn hlýtur að teljast frábær rithöfund- ur, vandlátur, sérstæður og fjöl'hæfur. Stíll hans og frá- sagnarmáti rís eins og fjall af flatlendi. Aðíerð hans mun vandasöm, því að Hall- björn er engum öðrum lík- ur, en slíkt sannar einmitt íþrótt mannsins. Sumum finnst hann krókagjarn í’völ- undarhúsi íslenzkrar tungu, og víst hefur stundum verið logið meira, en þannig er til komin sú þekking á her- bergjaskipun og híbýlakosti, sem hversdagsmennirnir fara á mis. Hallbjörn er eng- inn hversdagsmaður. Og guði sé lof. Þeir ættu að vera nógu margir! Ég þekki engan mann, sem orðið hefur yngri sjötugur en Hallbjörn Halldórssón. Og mig langar að mælast tii þess, að hánn lifi ‘lengi, hraustúr og glaður, sjálf- stæður og sviphýr eins og ís- lenzkur júlídagur. Helgi Sæmundsson. við ýmis tækifæri, bæðj er- lendis og hér -á landi. í þakklætis. og viðurkenn- ingarskyni fvrir þessi störf öll kaus Hið íslenzka prentarafé- lag Hallbjörn heiðursfélaga sinn af tilefni 60 ára afmæiis þess 4. apríl 1957. Hið rauða hár Hallbjarnar er nú orðið nærri hvítt, og ég er fyrir löngu búinn að kynn- ast þeim eiginleikum hans, sem móðir mín þekkti og vissi að leiða myndu hann til for- ustu í baráttuliði alþýðunnar. En ég hef einnig kynnzt hinu, að maðurinn var ekki einn og að gæfa hans lá einnig fólgin í því. hve hann hefur átt ham- ingjusamt og ánægjulegt lí£ með hinni ágætu konu, sinni, Kristínu Guðmundardóttur, sem er í öllu samhent manni sínum og -iafnoki hans í flestu tilliti, skemmtin og gestrisin, svo að af ber. Hún hefur a£ smekkvísi búið þeim yndislegt heimili, þar sem gaman er að köma og hlýða á frásögn þeirra hjóna um ólíkasta efni, því að margt hafa þau lesið og hum- ið, mörgú kynnzt á langrí ævi af sjón -bg reynd. Slíkar stund- ir eru áfengar eins og gámalt vín, festast í minni, greipast í sál, gleymast seint, og .fyrir þær ér gesturinn þakklátur. Um leið og ég flyt Hallhirni og Kristínu hugheilar árnaðar- óskir í tilefni af þessum. ára- mótum á æviskeiðinu, ber ég þessum höfðingjum og heið- urshjónum innilegustu óskir og kveðjur Hins íslenzka prentarafélags. Ellert Ág. Magnússon. C - Kastljós •) SKA ALASKA, sem á næst- unni verður 49. ríki Banda ríkja Norður-Ameríku verð ur lang-stærst þeirra ríkja að flatarmáli, þótt það verði hins vegar næst minnst að fólksfj ölda til. Að fllatar- máli er Aíaska helmingi stærra en Texas, sem nú er stærsta ríki Bandaríkjanna. Það er nokkurn veginn jafn- stórt og Fhaikkland, Spánn og Vestur-Þýzkaland sam- anlögð. íbúatala ríkisins var við síð,lasta aHsherjarmann- tal, árið 1950, um 120.000 manns, er nú áætluð um 200.000. Aðeins eitt ríki, Ne- vada, hefur færri íbúa. Um 33.000 af íbúum Alaska •er-Ju ejskimóaa, indjánar ,og aleutar. Alaska -hefur tilheyrt Báuidariíkj unum. síjðan jþa.u keyptu það af Rússum ái'ið 1867 fyrir 7,2 milljónir doll- ara. Ekki þarf að benda á það, að þau kaup hafa fyrir löngu borgað sig, því að Al- aska er mjög ríkt land og í örum vexti. Menn muna enn eftir Klondyke, enda var gull gröftur þáð, sem fyrst „opn aði“ Alaska fyrir hvítum mönnum..En gull er ekki eini málmurinn, sem þar finnst í jörðu. Þarna er eina tin- náma í Norður-Ameríkú og auk þess. finnst þar platína, kol, silfur, tungsten, anti- mony og fleiri verðmæt efni. Þær framleiðsluvörur, sem Alaska framleiðir mest af, eru samt fiskur og timbur, en landbúnaður er fremur lít Landbúnaðarland og skóg- ar þekja um 35% af yfirborði Alaska, en hinn hlutinn er túndra, fjöll, jöklar, ár og mýrlendi. Einn þriðji hluti landsins liggur fyrir norðan heimskaútsbaug. Nokkrar allstórar borgir eru í land- inu, og er höfuðborgin Jume au stærst þeirra, en aðrar meiriháttar borgir eru Anc- horage og Fairbanks. Þess má geta, að á sínum tíma fór Jón Ólafsson, rit- stjóri, til Alaska til að kanna þar landkosti með það fyrir augum, að íslendingar flytt- ust þangað. Fékk hann . sér- stakt leyfi Bandaríkjafor- seta til fararinnar og sörhuleið is til að íslendingar mættu setjast að í hinu nýkeypta landi, sem stjórnin í Was- hington vissi ekkert hvað hún átti við að gera. Af þessu varð þó ekki, sem kunnugt er. LEIGUBÍLÁR Bifreiðastöð Steindór* Sími 1-15-80 Bifreiðastöð Reykjavikrar Sími 1-17-20

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.