Morgunblaðið - 26.10.1971, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1971
5
Gylfi Jónsson, íormaður Stúdentaráðs:
Algjör krafa námsmanna
að fallizt verði á tillögur lánasjóðs
um fjárframlag til námslána
Á háskölahAtíðinni sl.
laagardag hélt forniaðnr Stiid-
ehtaráðs, Gylfi Jónsson, stud.
theol. ræðu þar sem hann gagn-
rýndi mjög nnverandi ástand í
húsnæðisniálum stúdenta. Enn-
frennir lagði hann áherzlu á að
stúdentar ættu rétt á auknum
áhrifum innan skólans, og gætu
þannig haft hönd í bagga með
að efla hagkvæmni í námi frá
því sem nú er. Loks ræddi hann
það ófremdarástand, sem ríkir
i lánaináhim námsmanna, og
sagði það vera aigjöra kröfu
■láinsnianna að á tillögur lána-
sjóðs væri fallizt um fjárveit-
ingar til hans.
Hér fer á eftir ræðu Gylfa
.lónssonar:
Gylfi Jónsson stud. theol.
Herra forseti! forsetafrú!
Háttvirta samkoma, góðir ls-
lendingar!
Sjung om studentens lykkliga
tag, sungu ísl. stúdentar fyrir 60
árum. — Þeir höfðu ástæðu til
þess — þá var gleðidagur, há-
skóli stofnaður á íslenzkri grund
— ástæðulaust fyrir alla stúd-
enta að sækja heim erlendar
menntastofnanir til frekara
náms. Þennan dag fyrir 60 ár-
um var lagður grundvöllur að
veru okkar í þessum skóla í
dag. Það spor var þó aðeins eitt
af mörgum og íslenzk menntun
tók miklum framförum —
stúdentum fjölgaði. Því hlaut að
koma stærri skóli og fleiri deild-
ir. Áræðnir menn settu markið
hátt. Skólinn — þ. e. stúdentarn-
ir þurftu húsnæði og Gamli
garður var reistur — tilbúinn
1934 og svo kom aðalkennslu-
húsið 1941 og 1943 er Nýi garð-
ur tilbúinn. Árið 1945 rúma
garðarnir Y* hluta allra stúd-
enta við háskólann, en núna —
það má varla segja frá þvi —
núna rúma garðarnir jafnmarga
og þá, um 115 stúdenta, en nem-
endur i skólanum i dag teljast
á þriðja þúsund. Þetta er samt
ekkert skrítið, því ekkert íbúð-
arhúsnæði fyrir stúdenta hefur
verið byggt síðarliðin 28 ár. Af
hinum myndarlega stúdentahópi,
sem brosti méti júnísólinni i vor,
fengu 10 herbergi á görðunum
— hinir sem ekki fengu, reyndu
samt að bera sig vel — horfast
í augu við að ástandið er ekki
betra.
Þessa dagana er verið að taka
i notkun mikið og gott kennslu-
húsnæði og reyndar er farið að
undirbúa byggingu hjónagarðs
og húrra fyrir því. Þetta verð-
ur vonandi gott hús svo að þeim
60 hjónum, sem flytja inn i 1.
áfanga líði betur en þeim 340
sem ekki fá inni strax. Ekki er
úr vegi að minnast á börn
stúdenta — þar eiga stúdentar
efnilegan vaxtarsprota gróandi
þjóðlífs. Vandinn er bara sá, að
einhvers staðar þurfa þessir
sprotar vermireiti til að vaxa
úr grasi meðan foreldrarnir
vinna í námi og að tekjuöflun.
Þau 100 stúdentabörn sem þegar
eru á dagvistunarheimilum búa
lika sæl að sínu, en öðru máli
gegnir um hin 100 sem bíða .—
þau þyrftu að komast að og það
strax á mánudaginn.
Nú finnst einhverjum að stúd-
entar gangi helzt til of langt —
spyrja hvort annað hjónanna
geti ómögulega verið heima og
gætt bús og barna.
Hægt er það — en á hverju á
þá fjölskyldan að lifa — sumar-
kaup annars makans trúi ég
hrykki skammt.
En, vel á minnzt, fá ekki
stúdentar rífleg námslán, til að
brúa bilið! Nei, um slíkt er
hreint ekki að ræða, þó að aðstoð
við námsmenn hafi aukizt síð-
astliðin ár. Betur má ef duga
skál. Nú fer Lánasjóöur isl.
námsmanna fram á 245 milljónir
króna til námslána — er
það algjör krafa námsmanna
að á þær tillögur verði fall-
izt. Nám er vinna. Vinnuna
ber að meta ekki aðeins að
styrkja með lánum — heldur er
æskilegt að jafnframt hækkun
á greiðslu umframfjárþarfar þá
breytist lán þessi i óafturkræfa
styrki hjá þeion stúdentum, sem
vinna heima að loknu námi. Þá
fyrst geta félitlir stúdentar
stundað nám sitt af öryggi og
þurfa ekki að snapa uppi snatt-
vinnu út um bæ. Við sem nám
stundum í þessari 60 ára ryk-
föllnu stofnun, kaupum fokdýr-
ar námsbækur, og í haust hefur
bóksala stúdenta selt okkur
bækur fyrir nær 4 milljónir
króna. Til fróðleiks má geta
þess, að meðal bókakostnaður
þeirra sem nú hefja nám við
hina nýstofnuðu sálfræðideild
háskólans er um 10 þús. krónur.
Þessar vitsmunalegu kræsing-
ar eru síðan framreiddar af
lærimeisturum stofnunarinnar
á hinn fjölbreytilegasta hátt.
Að þessari veizlu sitja stúdent-
ar og ber að innbyrða mikið og
margt þvi hver okkar er nokk-
uð dýrt fyrirtæki. En sem neyt-
endur að allri þessari fræða-
súpu eigum við rétt á að hafa
hönd í bagga með framreiðsl-
unni.
Framhald á bls. 18
VOLVO Hö (SAE) Hámarksþungi á franiöxul (kg) Hámarksþungi á afturöxul (kg) Heildarþungi <kg> Burðarþol á grind
Leyfilegt frá Volvo Leyfilegt skv. vegalögum.
N84 122 3800 8000 11800 7800 7800
F84 122/170 4100 9000 12500 8600 8600
F85 170 4100 9500 13500 9200 9200
N86 165/210 5350 11000 16000 10900 9900
NB86 165/210 5350 16500 21500 15200 14700
F86 165/210 6000 11000 16500 11400 10400
FB86 165/210 6000 16200 22000 15600 15400
N88 208/270 6000 11000 16500 10500 9500
NB88 208/270 6000 16500 22000 15000 14500
F88 208/270 6500 11000 17000 10800 9300
FB88 270 6500 16500 22700 15300 14300
F89 220/330 6500 11000 17000 10500 9000
FB89 330 6500 16500 22700 15000 14000
Tolurnar tala sínu máli, en hin hagstæða reynsla
Volvo vörubifreiða hérlendis, hefur ef til vill mest að segja.
ÞAÐ ER KOMIÐ í TlZKU AÐ FÁ MIKIÐ FYRIR PENINGANA.
Suðurlandsbraut 16 • Reykjavík • Simnefni: Volver • Simi 35200
HUNDRAÐ KRÓNUR Á MÁNUÐI
Fyrir EITT HUNDRAD KRÓNUR á mánuii seljum viS
RITSAFN JÚNS TRAUSTA
8 bindi í svörtu skinnlíki
Við undirskrift samnings greiðir kaupandi 100C krónur. SlÐAN 100 KRÖNUR Á MÁNUÐ!
Bókaútgáfa GUÐJÓNSÓ
Hallveigarstíg 6a — Símí 75434