Morgunblaðið - 12.11.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1971
5
■ •. •
Fjölbreytt úrval.
SPEGLABÚÐIN,
Laugavegi 15. Sími: 1-96-35.
Kirkjan á Breiðabólstað að brenna.
Manstu þcssa kirkju?
SPEGLAR
Til leigu
1500 ferm. húsnæði, hentugt fyrir hvers konar iðnað, skrif-
stofur og fleira. Innkeyrsla fyrir flutningabíla.
Leigist i einu, tvennu eða þrennu lagi.
Tilboð merkt: „1. hæð — 3336" sendist Mbl. fyrir mánu-
daginn 15. þ. m.
EINHVERJIR kannast við hajia.
Og þeim þykir flestum vænt um
hana. Eða þótti, meðan hún var
til.
Nú er hún horfin, brunnin til
ösku, kirkjan á Breiðabólstað á
Skógarströnd.
Hún var ekki stórt musteri né
íburðarmikið. En hún hafði ver-
helgidómur lítillar sóknar í nær
heila öld. Og aðrar aldir stóðu
kirkjur á sama grunni. Ein tók
við af annarri Þar höfðu menn
komið saman á helgum, átt sínar
hátiðir og miklu stundir, bæði í
gleði og sorg.
Síðast var hringt til helgra tíða
á þessum stað 29. september sl.
Söfnuður var kominn, beið prests
ins síns, sem varð fyrir óvenju-
legri töf. Og í þann mund sem
messa hefði átt að vera hafin
stóð kirkjan í báli. Fólkið sá
hana brenna á andartaki að
kalla, fékk ekki að gert, engu
varð bjargað.
Er sagan þar með öli? Verður
aldrei framar hringt til tíða á
Breiðabólstað?
Skógstrendingar geta ekki sætt
sig við það.
Þeir eru ekki orðnir margir
eftir í sveitinni. En þeir geta ekki
hugsað sér, að þetta brunasár
standi opið og ógróið. Þeim finnst
það væri eins konar feigðarboði
yfir fagurri sveit, vilja ekki sam
þykkja hainn, vilja hnekkja slíkri
hugsun. Þeir hafa ákveðið að
reisa litla kirkju á grunni þeirr-
ar, sem brann. Þeir standa sem
einn maður saman um það.
En þeir eru fáir og hafa orðið
fyrir miklu áfalli. Nú þurfa þeir
að finna það, að þeir séu ekki ein
ir með minningar sínar og drengi
legu ákvörðun, og að skaðinn til-
finnanlegri, sem þeir hafa orðið
fyrir, sé ekki öðrum gleymdur.
Margir, sem nú eiga ekki leng
ur heima á Skógarströnd, eru
tengdir sveitinni ræktarböndum.
Margir þeirra eiga helgar minn
ingar um Breiðabólstaðarkirkju
og legstaði ástvina sinna í garð
inum þar. Þeir þurfa að taka
höndum saman og hjálpa heima
mönnum. Og líklegt er, að ýmsir
fleiri hafi samúð með fátækri
sókn, sem missti kirkjuna sína
svo voveiflega, og vilja rétta örv
andi hönd.
Ég vil biðja þá velunnara
Breiðabólstaðarkirkju og Skógar
strandar, sem vilja hugleiða þetta
nánar og geta komið því við, að
koma til fundar i Oddfellow-hús
inu uppi, Vonarstræti 10, Reykja
vík, á sunnudaginn, 14. þ.m. kl.
2 e.h.
Sigurbjöm Einarsson
íbúð í húhýsi óskost
Reglusöm eldri kona óskar eftir góðri lítilli
íbúð til leigu, helzt í húsi með lyftu.
Upplýsingar í síma 81115.
Ungur reglusnmur muður
óskar eftir fastri atvinnu, helzt akstri. Hef meirapróf og
rútupróf. Vanur stórum bifreiðum. (Talsverð þekking).
Tilboð sendist Mbl. merkt: ,,3463".
I ðnadarhúsnœði
Iðnaðarhúsnæði i Reykjavík óskast til kaups, þarf að vera
200 til 300 fermetra og á jarðhæð.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „3469”.
HLJÓM
GÆÐI
ScuzstíL
WAWÍ
W«W»V
WM
4
£