Morgunblaðið - 18.11.1971, Page 10

Morgunblaðið - 18.11.1971, Page 10
10 MORGU'NBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1971 i. Fjölsóttasta þing Landssam- bands sj álf stæ ðiskvenna Tryggingamálin sérstaklega tekin fyrir EINS og getiö hefur verið í fréttum hélt Landssamband sjáifstæffiskvenna landsþing sitt í Hafnarfirffi sl. föstudag. Var þing þetta hið fjölmennasta sem sambandiff hefur haldið og ber vott um mikinn baráttuhug sjálfstæffiskvenna um gjörvallt landiff. Alls voru mættar til þlngs um 100 konur frá 17 fé- lögum. Þar að auki mættu kon- ur frá svæffum, þar sem ekki eru starfandi sjálfstæðiskvennafé- lög. — Þingiff var aff nokkru leyti helgað tryggingamálum og hélt Guffjón Hansen trygginga fræffingur mjög frófflegt er- indi um tryggingamál, þau sem affallega varffa konur. Svaraði hann fyrirspurnum fundar- kvenna, og voru umræffur óvenju fjörugar og leysti trygg- ingafræðingurinn mjög vel úr öllum fyrirspurnunum, þannig að fundarkonur voru margs fróðari um þau mál öll á eftir. í ráði er að fjölrita erindið og senda til allra sjálfstæffiskvennafélaga til þess aff gera sem flestum félags- konum efni þess kunnugt. í upphafi þingsetningarræðu sinnar minntist formaður Lands- sambandsins, Ragnheiður Guð- mundsdóttir, læknir, KristínaT L. Sigurðardóttur, alþingis- manns, sem var fyrsti formaður Landssambandsins, sem á 15 ára afmæli á þessu ári. Vottuðu fund arkonur hinni látnu heiðurs- konu virðingu sína með því að rísa úr sætum. SKÝRSLA STJÓRNAR OG FÉLAGA I skýrslu formanns kom fram að starf Landssaimbamds sjálf- stæðiskvenna hafði verið öflugt og hvatti formaður fundarkonur til áframhaldandi dáða, því oft hefði verið þörf, en ntá. væri nauðsyn á öflugu starfi allra sjáifstæðismanna. Væri nú öðru vísi ástatt um þjóðmál en áður er sambandið hefði haldið lands- þing sitt, þar sem flokkur okk- ar væri nú í stjómarandstöðu. Gerðu fundarkonur góðan róm að ræðu formannsins. Síðan var kosin kjörnefnd. Þar næst las gjaldkerinn, Elín Jósefsdóttir, Hafnarfirði, upp reikninga sam- bandsins og þeir samþykktir, Þá fluttu fulltrúar frá hinum ýmsu sjálfstæðiskvennafélögum skýrslur sínar. Voru þær bæði fróðlegar og skemmtilegar og báru vott um blómlegt starf fé- laganna á umliðnum tveim ár- um, jafnvel þótt víða sé erfitt viðfangs um íundahöid, svo sem eins og í strjálbýlum sýslum þar sem samgöngur eru erfiðar. Eftir að fulltrúar höfðu lokið málflutningi sínum kvaddi sér hljóðs Ragnhiidur Helgadóttir alþingismaður, og fyrrverandi formaður Landssambamdsins. Þakkaði hún Ragnheiði Guð- mundsdóttur hennar mikla og ötula starf á kjörtímabilinu og hylltu fundarkonur Ragnheiði með innilegu lófataki. — Að því loknu þakkaði Ragnheiður al- þingismanninum hlý orð. Benti hún einnig á hversu mikils virði það væri hve þingið hefði verið fjölsótt og þakkaði sérstaklega þeim, sem lengra að voru komn- ar. Var síðan gert fundarhlé. TRYGGINGAMÁL Þingið var nú flutt í Skiphól, en þangað bauð miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins fundarkonum til hádegisverðar. í því hófi flutti Jóhann Hafstein, formaður flokksims ræðu, þar sem hanm ræddi stjórnmálaviðhorfið og skýrði afstöðu Sjálfstæðisflokks- ins til þeirra mála sem efst eru á baugi. Eggert fsakason, formaður fulltrúaráðs Sj álfstæðisf lokksins í Hafnarfirði, ávarpaði fundinn. Lýsti hann gleði simni yfir þvi að þetta þing skyldi haldið í Hafn- arfirði, en sjálfstæðiskonur þar hefðu ætíð staðið framarlega í flokksbaráttunni. Að hádegisverðinum loknum hófst á sama stað umræðuþátt- ur þimgsins. Guðjón Hansen tryggingafræðingur flutti sitt er- indi og svafaði síðan fyrir- spurnum. Urðu þessar umræður um tryggingamálin mjög lífleg- ar og fjölda fyrirspurna var beint til framsögumanma. Að umræðunum loknum var aftur skipt um fundarstað og haldið í Sjálfstæðishúsið. Þágu þingfulltrúar kaffiveitingar í boði Vorboðans. Höfðu félags- konur sjálfar undirbúið það glæsilega boð. STJÓRNARKJÖR Næst var gengið til stjórnar- kjörs. Formaður var ejnróma og án mótframboðs endurkjör- inn, frú Ragnheiður ^J-uðmunds- dóttir, læknir, og var hún hyllt með löingu lófataiki. Aðrar í stjóm voru kjömar: Frá Reykja í hádegisverffarboffinu. Ragnheiffur Guffmundsdóttir, formaður Landssambandsins, vík Auður Auðuns, Geirþrúður Hildur Bernhöft, Ólöf Benedikts dóttir og Sigurlaug Bjamadótt- ir. Frá Hafnarfirði: Elin Jósefs- dóttir og Jakobína Mathiesen og ennfremur Ingibjörg Johnaen, Vestmannaeyjum, Svava Kjart- ansdóttir, Selfossi, Kriatjana Ágústsdóttir, Búðardal, Marfa Haraldsdóttir, Bolungarvík, Sesselja Magnúsdóttir, Keflavík, Ragnheiður Þórðardóttir, Akra- nesi og Sigríður Gísladóttir, Kópavogi. Endurskoðendur voru kjörnir Kristín Magnúsdóttir og Jórunn ísleifsdóttir, Reykjavík. Síðan fóru fram umræður um lagabreytingar. Að lokum var lögð fram til- laga um stjómmálaályktun. Landssambandsins og var hún einróma samþykkt. Er hún birt á öðrum stað á síðunni. Fundarstjórar þingsins voru: Laufey Jakobsdóttir, Hafnarfirðí, Sigríður Pétursdóttir, Árnes- sýslu, og Auður Auðuns, alþm. Ritarar þingsins voru Eiríka Árnadóttir, Keflavík, Ásthildur Pétursdóttir, Kópavogi, Svava Kjartansdóttir, Selfossi og Mar- grét Einarsdóttir, Reykjavík. Við þingslit kvöddu sér hljóðs Jakobína Mathiesen, Hafnaxfirði og Sesselja Magnúsdóttir, Kefla- vík, en síðan sleit Ragnheiður Guðmundsdóttir þinginu. Þakk- aði Vorboðakonum hlýjar mót- tökur og árrtaði þingfulltrúum góðrar heimferðar, gæfu og gengis. A. Bj. Miðstjóm Sjálfstæffisflokksins bauð til hádegisverffar. Ályktun landsþings sjálfstæðiskvenna 12. nóvember 1971 Lamdsþing sjálfstæðiskvenna haldið í Hafnarfirði 12. nóvember 1971 telur, að ábyrg þátttaka íslendinga í varnarsamtökum þjóða N-Atlantshafsbandalagsins sé þjóðinni náuðsynleg til verndar sjálfstæði lands- ins og öryggi og stuðli að varðveizlu lýðræðis, frelsi þjóðanna og friði í heiminum. Landsþingið hvetur því landsmenn alla til að standa dyggan vörð um öryggi landsins svo að sjálfstæði þjóðarinnar verði sem bezt tryggt í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.