Morgunblaðið - 26.11.1971, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMRER 1971
EM i bridge:
Töp gegn Bretlandi
og Tyrklandi
ÞOKAN setti heldur betur
strik í reikninginn í innan-
landsfluginu, sem féli alveg
niður í fyrradag, en í gær
tókst að fljúga til Akureyrar,
Isafjarðar, Sauðárkróks og
Húsavíkur, Hornafjarðar og
Á SAMEIGINLEGUM mfii
fundi Verzlunarskóla fsiands og
Kennaraskóla íslands 23. nóvem-
ber sl. var samþykkt ályktun um
varnarmálin þess efnis, að skora
á núverandi ríkisstjórn að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu um dvöi
varnarliðsins og þátttöku ís-
lands í NATO. í ályktuninni er
einnig fyrrverandi ríkisstjóru á-
felld fyrir tillitsleysi gagnvart
þjóðaratkvæðagreiðslum í þess-
um málum.
Á fundi þessum mættu full-
trúar allra stjórnimálaflofckanina
og gerðu þeir grein fyrir stefn-
um flokkanna í varnarmálum. —
Fundurirm stóð í rúmar fjórar
Egilsstaða. Báðar þotur Flug-
félagsins tepptust í fyrrinótt
vegna þokunnar, önnur með
90 farþega í Glasgow og hin
með 20 tonn af heimilistækj-
um á Akureyri. Á myndinni
sést Sólfaxi lenda á Reykja-
klukkustundir og sóttu harun á
þriðja hundrað nemendur. Á bls;
10 birtist grein um þetta mál. í
fréttatilkynningu frá fundar-
bjóðendum segir m. a,:
„Þegar á leið, gerðust umiræð-
ur á fundinum all’neitar, og fóiru
menm þá í harðar deilur. Nokkr-
ar ályktunartillögUT komu fraim,
og voru mikið ræddar. Mikil mia-
klíð kom upp er líða tók á fund-
inn, er varð þess valdandi að
hluti viðstaddra yfirgaf fundinn
í mótmælaskyni við samþykkt,
sem fundurinn hafði gert.“
f fundarlok var eftirfarandi á-
lyfctun um vairoarmálin sam-
þykkt:
víkurflugvelii um tvöleytið í I
gær með 20 tonn af heimilis- i
tækjum frá Mílanó og frá
Giasgow fór Gullfaxi með
farþegana um sama leyti.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.).
_______________________________
„Sameiginlegur málfundur
Verzlunarskóla íslamds og Kenn-
araskóla ísilands, haldinn í Verzl-
unarskólanum 23. nóvemiber
1971, skorar á núverandi rtfkis-
stjórn íslands að efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um eftirfarandi
atriði:
1) Hvort fslendingar eigi að taka
þátt í starfi NATO.
2) Hvort hér á landi skuIL vera
erlendur her.
Þessi þjóðaratkvæðageriðsla
gæti farið fram í nik. bæjar- og
sveitarst j órnakosningum.
Það er trúa þeirra, serni að bafci
þessari tillögu standa, að í
herunii sé fólgin lausnin á þessu
eilífðarþrætuepli þjóðarimmar.
Eininig áfellumst við fyrrver-
andi ríkisstjóm fyrir tillitsleyai
henmar gagnvart þjóðaratkvæða-
greiðslu í mikilvægum málum
sem þessu “
fSLENZKA sveitin, sem keppir í
opna flokknum á Evrópumótinu
í bridge, sem fram fer í Grikk-
landi þessa dagana, tapaði í 3.
umferð fyrir Tyrklandi 4—16 og
í 4. umferð fyrir Bretlandi með
1 stigi gegn 19.
Úrslit í 4. umferð urðu þessi:
Bretland—Island 19— 1
Sviss—Noregur 14— 6
Belgía — Spánn 18— 2
Ty rkland—J ú góslavia 10—10
Holland—Irland 19— 1
Italía—Israel 20— 0
Ungverjaland—Frakkland 13— 7
Austurrifci—Portúgal 13— 7
Danmörk—Pólland 15— 5
Finnland—Grikkland 17— 3
Svíþjóð—Þýzkaland 16— 4
Að 4 umferðum loknum er
Ítalía efst með 80 stig, hefur
sveitin unnið alla leikina með
hámarkstölu. Sveitin er nú skip-
uð hinum frægu heimsmeistur-
Æ.S.Í. og rauðsokkar efna til
almenningsráðstefnu í Árna-
garði dagana 27. og 28. nóvem-
ber í stofu 201, og hefst hún kl.
2 e.h. báða dagana.
Hefst hún með skemmtiþætti.
Síðan verða umræður um mis-
munun kynjanna, og er þar frum
mælandi Haraldur Blöndal, stud.
jur. Aðrir ræðumenn verða
Svava Jakobsdóttir, alþm.,
Bjarni Guðnason, alþm., Rann-
veig Jónsdóttir kennari og Gunn-
laugur Ástgeirsson, stud. phylol.
um, sem höfðu ákveðið að haítba
að spila I landskeppnum, en létu
freistast til að keppa enn einu
sinni á EvrópumótL
Röð efstu sveitanna er þessi:
1. ítaMa 80 stig
2. Bretland 64 —
3. Belgía 64 —
4. Vestur-Þýzkaland 57 —
5. Danmörk 56 —
6. Holland 51 —
7. Sviss 51 —
ísland hefur 14 stig og er i
næst neðsta sæti, en neðstir eru
gestgjafarnir með mínus 4 stig.
f kvennaflokki er lokið 3 um-
ferðum og er staðan þessi:
1. Itaiía 56 stig
2. Holland 46 —
3. Sviþjóð 45 —
4. Noregur 39 —
5. Frakkland 35 —
6. Grikkland 34 —
7. Portúgal 34 —
8. Irland 29 —
Því næst verða hringborðsum-
ræður, en þar verða Gerður
óskarsdóttir kennari, Guðrún
Hallgrímsdóttir verkfræðingur,
Helga Sigurjónsdóttir kennari og
Maia Sigurðardóttir sálfræðing-
ur, spjallarar. Skráning í starfs-
hópa verður að því loknu,
Seinni daginn verður dagskrá
á þá leið, að fyrst verður Hopp
og hí, sem er söngur og fl., vinna
í starfshópum, greinargerð og
niðurstöður starfshópa og þáttur
úr Blýhólknum.
1> j óðar atk væði
um varnarmálin
Ráðstefna Æ.S.Í.
og rauðsokka
Sameiginlegur málfundur nemenda
Verzlunarskólans og Kennaraskóians:
Félagslegur van-
þroski vinstrimanna
Hörður og Anders.
Siðastliðið þriðjudagskvöld
var haldinn sameiginlegur mál-
fundur nemenda Kennaraskól
ans og Verzlunarskólans. Fund-
arefni var herverndarsamningur
inn við Bandaríkin og aðild ís-
lands að NATO. Fundarmenn
voru um 300 talsins.
Frummælendur voru þrír frá
hvorum skóla (einn frummæl-
enda forfallaðist þó á síðustu
stundu vegna veikinda). Strax
í upphafi kom í ljós, að hægri-
menn voru í miklum meirihluta
á fundinum, enda var málflutn-
ingur vinstrimanna ekki með
þeim hætti að hann væri vænleg
ur til að afla flutningsmönnum
hans fylgis. Svo mjög var hann
gjörsneyddur öllu því sem heit-
ir málefnalegur málflutningur.
Einnig komu þarna fulltrúar
allra stjórnmálaflokkanna.
Fluttu þeir stutt ávörp og svör-
uðu síðan fyrirspurnum. Fylk-
ingunni var einnig boðið að
senda fulltrúa á fundinn, svo
fremi sem þeir tilkynntu um
ræðumann sinn áður en fundur
hæfist. Það gerðu þeir ekki.
Hins vegar mættu á fundinn
nokkrir meðlimir Fylkingarinn-
ar, auk nokkurra menntaskóla-
nema. En strax og mælendaskrá
var opnuð, bað einn Fylkingar-
drengurinn um orðið. Kom þá
fram dagskrártillaga þess efnis,
að aðeins nemendur viðkomandi
skóla skiyldu hafa málfrelsi á
fundinum auk áðurnefndra
gesta þeirra. Var sú tillaga sam-
þykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða. Verða það að telj
ast eðlileg málalok, þar sem
fundurinn var haldinn af nem-
endum þessara skóla, fyrir nem-
endur þessara skóla. Eftir þessi
úrslit fóru vinstrimenn að verða
mjög uggandi um sinn hag, enda
fundu þeir greinilega að mál-
flutningur þeirra fann ekki
hljómgrunn meðal fundarmanna.
Hrópaði þá einn herverndarand
stæðingurinn upp í örvæntingu
sinni: „Ég skora á Kennaraskóla
nema að ganga úr salnum!"
Stóðu þá um 50 fundarmenn upp
og gengu úr salnum. Voru það
vinstrimenn úr skólunum báðum,
svo og menntaskólanemarnir og
drengirnir úr Fylkingunni. Eftir
sátu þeir sem voru meira þrosk-
aðir úr báðum skólunum. Voru
þeir jafnt úr Kennaraskólanum
sem Verzlunarskólanum.
Var fundinum síðan haldið á-
fram, og voru samþykktar tillög
ur þess efnis, að skorað var á
ríkisstjórnina að láta þjóðarat-
kvæðagreiðslu skera úr um varn
armálin og aðild Islands að NA
TO. Skyldi atkvæðagreiðsian
fara fram um leið og næstu bæj-
ar- og sveitarstjórnakosningar.
Tillagan var samþykkt með yfir
gnæfandi meirihluta atkvæða.
í lofc fundarins kom síðan
fram formaður Málfundanefnd-
ar Skólafélags Kennaraskólans,
og lýsti því yfir að fyrir hönd
nefndarinnar lýsti hann því yfir
að Kennaraskólanemar bæru
enga ábyrgð á þeim tillögum sem
þarna hefðu verið samþykktar.
Taldi hann það vera fyrir neð-
an virðingu Kennaraskólans að
taka þátt í svo fasistískum fundi
eins og hann komst að orði.
Sjálfur gerði hann sig hins veg-
ar sekan um mjög svo ólýðræð-
isleg vinnubrögð, er hann tekur
að sér að gefa yfirlýsingar í
nafni Málfundanefndarinnar fyr
ir hönd Kennaraskólanema, án
þess að ráðfæra sig við aðra
nefndarmenn fyrst, hvað þá
hinn almenna nemanda Kennara
skólans.
Það að vinstrimenn skuli hafa
gengið úr salnum eftir að hafa
orðið undir í atkvæðagreiðslu,
gefur óneitanlega til kynna lít-
inn félagslegan þroska þeirra.
Gefur þetta greinilega til kynna
að ef hægrimenn vilja mæta
vinstrimönnum á fundi, þá verði
þeir að gæta þess að mæta nú
alls ekki of fjölmennir til leiks,
þá yfirgefi vinstrimenn bara sal
inn.
Daginn eftir — árdegis —
var boðað til fundar í Kennara-
skólanum. Skyldi annar fundur
haldinn síðdegis. Á fundi þess-
um hugðust vinstrimenn knýja
fram ályktun þess efnis, að
Kennaraskólanemar lýstu sér ó-
viðkomandi ályktanir fundarins
frá kvöldinu áður. Urðu umræð-
ur allharðar og ólga mikil í saln
um. Var síðan gengið til at-
kvæðagreiðslu um tillöguna.
Voru tveir fundarmenn fengnir
til að aðstoða fundarstjóra við
talninguna. Ekki virtust teljar-
arnir sammála, og stóð í þófi um
hríð. Heyrðust þá ýmsar tölur
nefndar, • en loks tók fund-
arstjóri af skarið og kvað til-
löguna hafa verið samþylkkta
með 45 atkvæðum gegn 42. Hvað
an fundarstjóri féklk þær tölur
veit enginn. Upphófst nú há-
reysti í salnum, og var óskað
endurtalningar. En sökum upp-
lausnarinnar er í salnum rikti
reyndist ekki unnt að telja aft-
ur. Þar með hafði tillagan fall-
ið um sjálfa sig, og var engin
samþykkt gerð á þessum skyndi
fundi. Voru vinstrimenn nú að
vonum sneyptir mjög, og aflýstu
fundinum sem vera átti síðdegis.
Undanfarin frásögn sýnir
glöggt innræti og vanþroska her
verndarandstæðinga. Eftir að
hafa beðið óvefengjanlegt af-
hroð á áðurnefndum fundi í
Verzlunarskólanum ætluðu
vinstri sinnar að fá Kennara-
skólanema — þar á meðal nem-
endur sem ekki voru á fundin-
um — til að samþykkja ályðktun
um að fundurinn væri mark-
leysa ein.
Ekki er hægt annað en að
furða sig á vinnutorögðum sem
þessum, eins ólýðræðisleg og á-
róðurskennd sem þau eru. Er
ánægjulegt til þess að hugsa, að
Kennaraskólanemar létu ekki
blekkjast af þessari fáránlegu
tilraun herverndarandstæðinga
til að breiða yfir þá hneisu sem
þeir urðu fyrir á mangnefndum
fundi s.l. þriðjudagskvðld.
Er greinilegt að stefna núver
andi ríkisstjórnar í utanríkis-
málum, á ekki upp á palltoorðið
hjá unga fólkinu. Það hefur
löngum verið talið, að æska
landsins sé fremur vinstri sinn-
uð, en nú virðist sem hinir lýð-
ræðissinnuðu meðal unga fólks-
ins séu að ranka við sér. Þeir
gera sér grein fyrir þörf okkar
nú á að halda óbreyttu sam
bandi við NATO, og harma þá
flausturslegu ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að ætla að vísa
varnarliðinu úr landi.
Anders Hansen,
Hörður Hilniarsson.