Morgunblaðið - 27.11.1971, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1971
>
1
^ 22*0-22*
UVERFISGÖTU 103
VW SeodiferðabifrewJ-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW ðmanna-Landíover 7manna
BÍLALEIGA
CAR REMTAL
21190 21188
Bilaleigan
SKÚLATÚNI 4 SÍMI15808 (10937)
biláleigan
AKBRA TJT
car rental service
BÍLALEIGA
Keflavík, simi 92-2210
Reykjavik — Lúkasþjónustan
Suðurlandsbraut 10, s. 83330.
0 Hátíðarhöld stúdonta
1. des. 1971
„Kæri Velvakandi.
í Morgunblaðinu 23. okt. si.
er sagt frá því að: „Kosið var
hjá stúdentum um tilhögun 1.
des. hátíðarhaldanna í ár og
voru 3 listar í framboði, sem
hver hafi gert tillögu um fund-
arefni og ræðumenn. I kosning
unni tóku þátt rúmlega 470 stúd
entar, en innritaðir stúdentar í
Háskólanum eru nú yfix 2000
talsins.
Úrslit urðu þau, að C-listi,
borinn fram af vinstri sinnuð-
um stúdentum, sem kölluðu sig
sjálfstæðismenn, sigraði og
hlaut 271 atkvæði. B-listi, bor-
inn fram af Vöku, félagi lýðiræð
issinnaðra stúdenta hlaut 107
atkvæði og A-listi, borinn fram
af áhugamönnum um náttúru-
vemd hlaut 103 atkvæði. Sam-
kvæmt þessum úrslitum verður
1. des. helgaður baráttu fyrir
brottför bandariska herliðsins
og verða ræðumenn Bjarni Ól-
afsson stud. mag., Björn Þor-
steinsson stud. mag. og Ólafur
R. Einarsson.“
Háskóli íslands tók til starfa
17. júní 1911 og varð því 60 ára
á þessu ári. Háskólarektor
Magnús Már Lárusson mælti á
þessa leið: A þessum tímamót-
um er mér efst í huga, að 200
þús. manna þjóð skuli yfirleitt
sjá sér fært að halda uppi há-
skóla, — því háskóli er dýr,
mjög dýr. Og svo hitt, að for-
verarnir skuli á sínum tíma
hafa haft dirfsku að koma upp
háskóla. Háskólahátíðin er af
staðin, hún fór fram með glæsi
brag og ísl. þjóðinni til sóma.
0 Ekki móðins að vera
þakklátur
Nú er framundan 1. des.
hátíð stúdentanna. Sá dagur hef
ur um áratugi verið helgaður há
skólanum og þjóðinni allri, en
það eru blikur á lofti. Núna
virðist eiga að viðhafa óþverra
hugtakið: „Hvað varðar mig
um þjóðarheill?" Venjulegur
vegfarandi hefði vænzt þess, á
þessum tímamótum, að dagur
inn væri helgaður þakklæti til
Guðs, manna og alþjóðar, sem
lagt hafa allt af mörkum þess-
ari stofnun til eflingar. Og einn
ig mætti minnast með þakklæti
þess stóra átaks, sem framund
an er, t.d. nú á þessum áratug,
sem á að kosta þjóðina um 1
milljarð kr. Ekkert af þessu
verður minnzt á í dagskránni.
Það er ekki móðins í dag að
vera þakklátur.
1. desember hátíðahöldin eiga
að vera helguð baráttunni fyrir
brottför bandaríska herliðsins.
Skv. lýðræðisreglum hafa C-
lista menn fullan rétt til að
framfylgja stefnuskrá sinni,
eins og um var kosið.
0 Að sofa á verðinum
Það er önnur hlið á þeasu
máli, sem marga furðar á að
skuli írafa átt sér stað, en það er
að aðeins 481 af rúmum 2000
innrituðum stúdentum tók þátt
í kosningunum og allir 3 iistarn,
ir leggja fram stefnumál sín.
Það er því engin tvimæli um, um
hvað á að tala 1. desember. C-
listi, borinn fram af vinatri sinn
um sigraði, hlaut um 4,7% at-
kvæða kosningabærra stúd-
enta. Af þessum úrslitum verð
ur ekki dregin önnur ályktun
en sú, að yfir 1500 stúdentar, er
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna
gáfu kommúnistum og meðreið
armönnum þeirra frjálsar hend
ru: að nota daginn til æsinga og
áróðurs og þjóðinni til ógagtis.
Þeir mega blygðast sín þess-
ir 1500 stúdentar, sem ekki
höfðu manndóm til að kjósa og
láta áiit sitt í ljós, þegar málin
lágu eins skýrt fyrir og við þess
ar kosningar. Eða á að skilja
það þannig, að þeir séu allir á
sama máU og C-lista menn?
Er það þetta sem koma skal?
Guð hjálpi íslenzku þjóðinni, ef
hún ætlar að sofna á verðinum,
ef til hennar verður leitað uni
að rétta við þjóðartiag og sóma,
eins og 1500 stúdentarnir gerðu,
er þeir gáfu öfgamönnum frjáls
ar hendur 1. desember 1971.
Júlíus K. Ólafsson."
Ný glæsileg sending
af hinum eftirspurðu BON-GOUT töskum, ennfremur rúskinns-
töskur í mörgum gerðum og litum, ódýr kvenbelti í úrvali.
TÖSKUBÚÐIN, Laugavegi 73.
Teiknnror — hönnuðir
Viljum ráða 2 starfsmenn, til greina koma byggingafræðingar,
byggingatæknifræðingar, húsgagnaarkitektar og teiknarar.
TEIKNISTOFAN, Laugardal s/f.,
Sími 83323.
Fullveldisfagnaður
Fullveldisfagnaður Stúdentafélags Reykjavíkur verður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu þriðjudaginn 30. nóvember n.k. og
hefst með borðhaldi kl. 19,30.
Aðgöngumiðar verða seldir í anddyri hússins laugardaginn
27. nóvember og sunnudaginn 28. nóvember kl. 16—18.
Borðpantanir á sama stað og tíma.
STJÓRNIN.
Fulltrúi óskust
Stórt heildsölufyrirtæki óskar að ráða full-
trúa. Bókhaldsþekking skilyrði, þar sem
starfið felur í sér umsjón með bókhaldi.
Væntanlegir umsækjendur komi til viðtals
við Júlíus S. Ólafsson, framkvæmdastjóra
í skrifstofu félagsins, Tjarnargötu 14,
fimmtudaginn 2. desember kl. 10—12.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Farið verður með veittar upplýsingar sem
trúnaðarmál, ef óskað er.
Skrifstofa F.Í.S.
ORÐ DAGSINS
f
A
Hringið, hlustið og yður
mun gefast ihugunarefni.
SÍMÍ (96)-21840