Morgunblaðið - 27.11.1971, Síða 25
MORGUNBLAÐK), LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBBR 1971
25
félk
í
fréttum
'/ém
. * 'T *
FJÓRIR ÍSRAELSKU
FIMMBURANNA A LÍFI
Fyrir mánuði síðan fæddust
fyrs.u ídmmburarnir í ísrael,
tveir drengir og þrjár telpur.
Annar drengurinn lézt nokkr-
um dögum síðar, en hin börn-
in fjögur eru við góða heilsu,
eins Qg sjá má á þessari mynd,
sem tekin var fyrir nokkrum
dögum.
— Ég hef góðar fréttir að
færa þér, elskan. Forstjórinn
lofaði mér kauphækkun, næst
þegar bakhlið mánans snýr að
jörðinni!
Forstjórinn Hefur nokkuð
sérstakt gerzt, á meðan ég var
í burtu?
Lærlingurinn: Já, herra,
veggurinn, sem þér hallið yður
upp að, hefur verið málaður?
Forstjórinn (við nýja einka-
ritarann): Þetta gengur mjög
vel, Sigurbjörg. Reynið þá að
vélrita næstu linu!
Dagblað í New York spurði
lesendur sína, hvernig þeir
gætu hugsað sér paradís.
Þetta svar hlaut fyrstu verð-
laun:
Þægindi ársins 1966, verðlag
ársins 1933 og skattar ársins
1909.
FLASKAN MlN FRÍÐA!
Kona frá Bradford i Englandi,
sem var á ferðalagi einhvers
staðar við Kyrrahafið, henti
flösku í hafið með orðsendingu
til finnandans. Flaskan fannst
nýlega í Nýja-Sjiádand: og firin
andinn var — gestur frá Brad-
ford!
-X
Sot'ðu bara áfram — en af hverj u heldur þú að húsið hafi verið
svona ódýrt.
Pablo Picasso
PICASSO OG
GÖTULÝÐURINN
Lögreglan í Barcelona á
Spáni hefur skýrt frá því að
götuskrill hafi ráðizt inn í vinnu
sibofu Pab'o Pi'laissios, málarans
fræga, skömmu eftir dögun á
mánudag. Fólkið, sem enn hafa
ekki verið borin kennsl á, kast
aði eldfimum vökva inn í húsið
og olli skemmdum fyrir tæp-
lega 20 þúsund krónur. Engin
listaverk eftir Picasso voru í
vinnustofunni, sem hann er hætt
ur að nota, en var 'hin fyrsta,
sem hann vann í á austur-
strönd Spánar.
Picasso, sem um langan tima
hefur verið andstæðingur ríkj
andi stjórnar á Spáni, býr í
Frakklandi. Pieasso fær þó ekki
að vera í fríði, þótt níræður sé.
Nýlega var stolið úr listaverka
safni fyrir nútímalist í Skopje
í Júgóslavíu, málverki eftir
hann, sem heitir „Konuhöfuð
Málverkið er virt á 1,5 milljón
ir króna.
KÓNGURINN TÓK FLUGIÐ!
Stytta af gömlum Spánar
kóngi, Sancho 11 af Navarra,
tök fliugið um daginn, þegar
krani lyfti henni yfir aliar tor-
færur tid að setja hana á kon-
ungshöllina í miðborg Madrid,
þar sem hún á að vera til
sikrauts. Sýnisit okkur kóngur-
inn bera sig á'kaflega ve! og
ekki er haagt að neita því, að
stelilinig hans er sérlega til-
komumikil!
’
HÆTTA Á NÆSTA LEITI - Eftir John Saunders og Alden McWilliams
Hérna eru trjálMilirnir Terry, þeir eru
ekki alveg jafn iangir, en . . . þelr nægja
Troy. Og við þnrfum líka veiðijakkann
þinn. (2. mynd). Ég sný ermunum við,
og hneppi jakkanum yfir þær, svona. (3.
mynd). Svo smeygjum við trjástofnun-
um í gegnum ermarnar og þá höfum við
börur, sem þið notið til að bera frú
Randolph.
YNGSTA MÓIR ÍRANS
Shahnaz Mohammedi frá
Melayer, sem er suðvestur af
höfuðborginni, Teheran, er
yngsta móðir landsins, el'lefu
ára gömu.l. Barnið, sem hún
heldur á, fæddist 17. nóvember
og vó rúmar fjórtán merkur.
Faðirinn e.r fjórtán ára og bæðí
eru þau nemendur.
VfNIÐ ER VARHUGAVERT!
Tveir munkar í klaus ri
heilagrar Önnu létust nýlega á
óvenjulegan hátt. Þeir höfðu
þann s tarfa I klaustrinu að
gæta ouzo-birgða klaustursins
(ouzo er gris'kt brennivín, sem
framl.eitt er 1 'klaustrinu). Þeg-
ar ekkert spurðist til þeirra uim
nokkurt skeið, var hafin leit
að þeim og fiundusl: þeir í einni
ouzo-tunnunni. Höfðu þeir doú
ið niður í hana og drukknað.