Morgunblaðið - 25.01.1972, Blaðsíða 4
'í
MORGUNBLAÖIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 19T2
4
® 22*0-22* I
RAUÐARÁRSTÍG 3lJ
■■■——■ 1 - """. ^
HVERFISGÖTU 103
VW Sen&fðréatifreiÓ-VW 5 manna-VW svefnvaga
VW 9 manna - LarKÍrowr 7 manna
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TZ 21190 21188
biláleigan
AKBJIA VT
car rental service
8-23-4T
setulum
Ódýrari
en aárir!
SHODa
ieic*s
44-46.
SIMI 42600.
Hópierðir
“il leigu I lengri og skemmri
ferðir 3—20 farþega bílar.
Kjartan Ingimarsson
sími 32716.
HLUSTAVERND
STURLAUGUR JONSSON & CO.
Vesturgö*u 16, Re/kjavík.
Símar 13280 og 14680
0 Húsaröðin varðveitist
Þekktur arkitekt, sem kýs
ekki að láta nafn sitt uppi „að
sinni“, skrifar:
„Bréfadálkur Velvakanda,
Morgunblaðinu.
Vonandi bera forráðamenn
Reykjavíkurborgar og ríkis
stjómin gæfu tii þess að bjarga
Bemhöftsborfuhúsunum og
varðveita hina fögru og sam-
feUdu línu í gömlum húsabygg-
ingum fyrir ofan Lækjartorg
og Lækjargötu. Hin sterfca og
almenna hreyfing, sem upp er
komin meðal Reykvikinga ttl
varðveizlu þessara menningar-
erfða, er gleðUegur vottur þess,
að fólk lætur sér ekki á sama
standa um þessa hluti og met-
ur meira listrænt og sögulegt
gUdi gamalla húsa en praktísk
sjónarmið skrifstofuburgeisa,
sem dreymir um gler- og
steypuhalUr. Línan frá Stjóm-
arráðinu og suðureftir er hrein
að öðru leyti en þvi, að hreinsa
þarf tU á „Gimli-lóðinni“;
þe.a.s. GimU þarf að rífa.
0 Glaumbær spillir lía-
unni: Ryðjum burtu
steinsteypukögglunum
úr gamla íshúskumb-
aldanum!
En sumir virðast hafa
gleymt þvi, að Unan nær lengra
í suður. Mikilvægt er, að arki-
tektónískt jafnvægi fáist í
þessa húsaröð suður eftir
Lækjargötu og Fríkirkjuvegi.
Nú er guUvægt tækifæri til
þess að bæta fyrir fyrri yfir-
sjónir borgaryfirvalda. Svo
heppilega vildi til fyrir útlit
borgarinnar, að Herðubreið,
gamla og ljóta ishússflykkið
fyrir sunnan Fríkirkjuna, sem
seinna var kallað Framsóknar-
húsið og síðan Glaumbær,
brann um daginn. Eftir standa
ömurlegar rústir (frá listrænu
og estetísku sjónaxmiði séð þó
heldur skárri en hjallurinn
sjálfur meðan hann var og
hét), og kostar ekki mikið að
sprengja það sundur, sem eftir
stendur og ryðja steinsteypu-
ÍBÚÐ
125 — 150 fm. óskast til kaups, helzt í Lækja-
eða Laugaráshverfi. Mikil útborgun.
Tilboð sem greini stað, stærð og verð sendist
Morgunblaðinu fyrir 28. jan. merkt: „Vor
1972 — 3418“.
VERKAMANNAFÉLAGIO
DAGSBRÚN
verður í GAMLA BÍÓ fimmtudaginn 27. þ.m.
kl. 8,20 síðdegis.
FUNDAREFNI:
KOSNINGAR OG FÉLAGSMÁL.
Dagsbrúnarmenn fjöimennið og sýnið skír-
teini við innganginn.
STJÓRNIN.
Atvinna — Húsnœði
ÞVOTTAHÚSIÐ FÖNN óskar eftir hálfsdags
stúlkum.
A. Við frágang.
B. Við létta saumavinnu. Upplýsingar í
Langhoitsvegi 113.
kögglunum úr gamía Ishúss-
kumbaldanum burtu. Svæðið
ætti siðan að standa autt, og
ykist CegurðargikU Miðbæjar-
ins mikið við það.
0 Ekki endurreisa
skrímslið!
Ég skora alvarlega á borg-
aryfirvöld að nota þetta ein-
stæða tækifæri til þess að
bæta um útlit borgarinnar, því
að verði reistur þama nýr
hjallur, gæti orðið bið á því, að
hann yrði rifínn. AUa vega
verður að koma í veg fyrir það,
að hið einstaklega ljóta og
óUstræna hús, sem þarna stóð
áður, verði endurreist. Það var
sannkaUaður augnasærir („eye-
sore“, eins og Englendingar
segja um ámóta skrímsli í
borgum sínum).
VirðingarfyUst,
X. X.,
arkitekt FAl.“
0 Hvað er
„Bernhöftstorfa“?
Þórarinn Jónsson skrifar:
„Kæri Veivakandi!
Hver skyldi hafa búið til
hið skrítna orð „Bernhöfts-
torfa“? Ég þykist sæmilega
kunnugur sögu Reykjavíkur,
en minnist ekki að hafa heyrt
þetta einkennilega orð fyrr e*n
farið var að skrifa um varð-
veizlu húsaraðarinnar neðst í
Þingholtum, næst fyrir ofan
Lækinn. Auðvitað veit ég um
Bemhöftsfjölskylduna o.s.frv.,
en þetta saunsetta orð held ég
samt að sé tilbúningur þeirra,
sem hófu skrif um þessi mál
eftir pöntun (?) og með massa-
undirskriftum. Mér er það
mjög að skapi, að húsaröðin sé
varðveitt, — sennilega mest af
ihaldssemí og af því að mér
er kært að hafa þá hluti áfram
fyrir augum, sem ég hef horft
á frá barnæsku. Hins vegar
geri ég mér ljóst, að kröfur
hins nýja tíma gera það ef til
vill nauðsynlegt, að gömlu hús-
in hverfi. Þeim, sem beita sér
fyrir varðveizlu húsanna á
þessum stað, virðist vera mjög
í nöp við Gimli, en sumum
finnst það nú vera skásta hús-
ið í gjörvaHri hússdengjunnL
og mætti brenna alH hntt drasl-
ið niður í grunn þeirra vegna,
fengi Gimli að standa. Ég er
nú ekki á þeirri skoðun, en ég
vil leyfa Gimli að standa áfram
með hinum, þótt það stingi
nokkuð í stúf við þau.
§ íshúsið (Glautnbær)
hverfi
Ég hef ekki mikið vit á
húsagerðarlist, nema hvað ég
vil helzt hafa glugga á húsum
og ofna inni í þeim. Já, og gott
er tika að hafa dyr á húsum.
Þó þori ég að hafa þá skoðun,
að Glaumbær (gamla Herðu-
breiðar-íshúsið) hafi verið al-
veg einstaklega ljótt hús, og
þarf víst enginn að hafa tiltak-
anlega þróaðan og fíngerðan
fegurðarsmekk til þess að kom-
ast að þeirri niðurstöðu! Það
var því eiginlega lán í óláni og
happ fyrir útlit Reykjavíku r,
að innvolsið í þessári hrika-
legu steinsteypuhiussu skyldi
brenna. Endilega ætti að ryðja
gróthroðanum í burtu hið snar-
asta og gera þarna fagran
skemmtigarð fyrir vorið. Alis
ekki á að leyfa að byggja þarna
aftur, aliia vega ekki að endur-
reisa þetta klunnalega hús-
bákn, sem eyðilagði samræmið
í húsaröðinni fyrir ofan tjöm-
ina.
Þegar „klakahöllin" er horf-
in, kemur loks sæmilegur
svipur á Frikirkjuveginn.“
0 Tvær prentvillur
Höfundur bréfs í dálkum
Velvakanda á sunnudaginn var
biður um leiðréttingu á tveim-
ur prentvillum. Millifyrirsögn
hafi átt að vera „Afsannaðar
dellukenningar (ekki „afsann-
ar“), og setning þar skömmu
áður hafi átt að hljóða svo: „Á
þessu er smjattað af postulum
eiturefnanna, og yrðu þeir vist
sumir hissa, vissu þeir, að feg-
urstu lýsingarnar eru sannan-
lega búnar til af starfsmönn-
um glæpahringanna í stórborg-
unum erlendis, sem raka sam-
an morð fjár á óhamingju ann-
arra, morði sálarinnar og oft
líkamans.“
Sniðskóli Bergljótar Ólnisd.
Sniðkennsla. Námskeiðin hefjast mánudaginn 31. janúar.
Innritun í síma 34730.
SNIDSKÖLINN. Uugamesvegi 62.
Heildverzlun
Hef góðan og öruggan kaupanda að heildverzlun.
Sameign kemur einnig til greina.
FASTEIGN ASALA - SKNP
OG VERBBRÉF
Strandgötu 1, Hafnarfirði
Símar 51888—52680.
Sölustjórí Jón Rafnar Jónsson.
Heimasimi 52844.