Morgunblaðið - 25.01.1972, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 25.01.1972, Qupperneq 12
_ - :__:—.— ______i ___—u—i—u ;• u.-i ,-:g MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1972 ! Augun og umgjörð þeirra eru það, sem mestan svip setur á and lit allflestra. Við erum ekki all- ar fæddar með undurfö'gur augu, fallega lagaðar augabrún ir né svört, löng augnahár, því miður. En það er þó ekki næg afsökun fyrir þvi, að við van- rækjum þessa hluti, ekki allar að visu, en alltof margar og sér staklega þær, sem komnar eru yfir það að vera kornungar. Allt of oft sjáum við geðslagar kon- ur og vel snyrtar, að öðru leyti, sem virðast alls ekki hugsa um að láta laga augabrúnir sinar og plokka. Stundum bókstaflega eyðiieggja brúnirnar, ef þær eru miklar og grófar, heildar- svip augnanna. Það er hægt að fara á snyrtistofu í Reykjavík og láta plo'kka augabrúndrnar hjá sérfræðingum og kostar það 40—60 krónur. Tekur það stutta stund og oft hægt að komast að, án þess að panta tíma fyrir- fram. útskýrðar með myndum hér á eftir. Augabrúnirnar eiga að byrja nokkurn veginn fyrir ofan augnakrókana, vera hæstar um miðjuna, eða ef lagður er blý- antur við ytri brún lithimnunn- ar, þegar horft er beint fram, er þar hæsti punktur, svo enda þær þar sem blýantur, lagð- ur frá munnviki upp að auga, segir til um. Sjá myndir. Þegar búið er að plokka, er gott að láta kalt vatn yfir, eða heitt og kalt til skiptis. Varla þarf að taka það fram, að ekki er heppilegt að vera að þessu, ef við ætlum út, því að húðin er stundum rauð undir. Gott er að bursta vel á hverjum degi, til að venja hárin í ákveðna átt. Ef komið er sæmilegt lag á augabrúnirnar, er svo hægt að laga smá misfellur með auga- brúnablýantinum. Eitt þarf þó að hafa í huga, að brúnirnar eiga alls ekki að Augabrúnir Efst er Marlene Dietrich, næst Greta (iarlxi, þá Joan Craw- ford, Audrey Hepbum og neðst Sopliia Ixiren. Nú, svo getum við að sjálf- sögðu gert þetta sjálfar. Það er auðvitað smásársauki, sem fylg- ir þvi, en reynum að draga úr honum eins og hægt er. Gott er að bleyta bómullarhnoðra í heitu vatni og leggja á auga- brúnirnar áður en byrjað er, síð an er haldið við méð fingrunum þannig að húðin er strengd og togað í hárin í sömu átt og þau liggja, eitt hár í einu, Óhætt er að byrja á þeim, sem vaxa nið- ur i átt að augnalokunum og eins ef þau vaxa út að néfi (sambrýnd). Bursta skal brún- irnar með litlurn bursta á milli tii að sjá lögun þeirra. Óhætt mun vera að gefa hér reglur um plokkun, sem eru svo Súkkulaði-soufflé 8 eggjahvítur. 6 eggjarauður. 4 matsk. smjör eða smjörl. 2 matsk. sykur. '/2 bolli hveiti % bolli kakó. 1 boili sykur. '4 tsk. salt. 2 boilar mjólk. 1 tsk. vaniila % cream of tartar 1 bolli rjómi. </4 flórsykur. Eggin eru aðskilin og látin sitt i hvora skálina. Látin standa i klst. til að hitna. Soufflé sikái (eða eldfast mót) smurð að inn- an og ræma af vax-pappír fest hringinn í kring, smurð líka, og stráð á þetta 2 matsk. af sykri. 1 pott eru sett og blandað sam an með handþeytara, hveiti, % bolli sykur og salt. Smám saman er mjólkin hrærð saman við, og síðan er þetta hit- að að suðu (þar til loftbólur myndast á yfirborði), hrært vel í á meðan. Rauðurnar eru þeyttar smávegis í kakóblönd- unni, hrært saman við áður en því öllu er hrært út í pottinn, 2 matsk. smjör sett út í og van- illa. Látið kólna dálítið. Eggja hvíturnar með cream of tartar, þeyttar, M bolli sykur settur smám saman út í. Til að byrja með er % af kakóblöndunni sett yfir hvíturnar og blandað var- lega saman með handþeytara eða gaffli, síðan það sem eftir er í tvennu lagi á sama hátt. Þetta er svo sett í souffléskál- ima og hún sett í heitt vatn í ofnskúffunni eða öðru. Vatnið má ná eins og tommu upp á skál- ina. Sett inn í b,':fan ofn, haft neðst í honum og bakað við 350° F i eina kist. og 15 mín. Pappírinn tekinn af skálinni áð- ur en borið er fram. Rjóminn þeyttur með flórsykri, framreidd ur með. P.S. Betra er að aðskilja egg, meðan þau eru köld, en nauð- synlegt er að láta hvítur standa i stofuhita áður en þær eru þeyttar. Soufflé má aðeins bíða i um 10 min. í straumlausum ofninum áður en þess er neytt, svo nauð synlegt er að borða á þeim tima, sem áætiað er, þegar soufflé er ábætisrétturin'n. IJigiin briinanna fundin. vera of dökkar, helzt svona ein- um til tveimur tónum ljósari en hárið. Sérstaklega þurfa full- orðnar konur að gæta þess, að brúnirnar verði ekki of dökkar, þar sem það gerir þær hörku- iegar á svip og ellilegri. Snyrti- sérfræðingar gefa upp það ráð, að nota ijóst andlitspúðu.r til að lýsa of döklkar brúnir, ef annað er ekki fyrir hendi. Brúnn auga brúnablýantur eða dökkgrár er miklu öruggari héldur en svartur, sem aðeins örfáar geta notað. Lita skal með litlum, stuttum strikum en ekki einu löngu, bogadregnu og gæta skal þess að þetta fari á sjálf hárin, en ekki húðina undir eins og stund um viil brenna við. Auðvitað þarf blýanturinn að hafa góð- an odd og vera mjúkur. Við get- um sem sagt bætt um sköpunar verkið, vopnaðar „pinsettum", bursta og blýanti, og ætti því engum að vaxa^ þau útgjöld i augum. Við l'itum kannski ekki allar út eins og filmstjörnur á eftir, en trúlega myndu margar taka mikium stakkaskiptum. Eigum við ekki að lokum að virða fyrir okkur augnasvip (lokkurra frægra kvenna, og tii gamans að hugsa okkur, hvernig þær hinar sömu litu út, ef augabrúnirnar hefðu fengið að vaxa að vild og umhirðulaus ar. Ráð- legginga- stöð ekkna Nú orðið eru til ýmsar stofn- anir til að létta fólki lífið, hægt er að fá hjálp og ráðlegg- ingar við ýmsum mannlegum vandamálum. Því miður er ekki um slikt að ræða á öllum svið- um hér hjá okkur, enda þótt talsvert hafi þessi mál batnað hin síðari ár. Bkki er þó loku fyrir það skotið, að innan fárra ára verði hér ráðleggingastöð á borð við þá, sem hér segir frá. 1 New York borg tók til starfa fyrir nokkru ráðlegginga- stöð, sem tekur að sér að hjálpa nýorðnum ekkjum með sín málefni. Stöðin er rekin af tveim konum, D. Sheer, félags- ráðgjafa og J. Druss, lögfræð- ingi, og var opnuð með hjálp „Pru dential Insurance Company“ í Bandaríkjunum og hefur þegar vakið mikla athygli. Skrifstofan er i góðum, björtum húsakynn- um og þar starfa auk fyrr- nefndra, þrír félagsráðgjafar. Það hefur komið i ijós, að ým- is vandamál mæta konu, sem. missir mann sinn, eins og allir' gera sér Ijóst. Fyrir utan til- finningaleg vandamál er svo ótal margt sem kemur til greina, fjárhags: og efnalega, skattalega og þjóð'félag'slega. Veitir ekki af að liðsinna kon um með þessi mál, sem margar hverjar hafa kannski ekki kom- ið nálægt slíku í marga áratugi. Ekki sízt þurfa þær konur á hjálp að halda, sem þurfa að fara að vinna úti eftir Iangt hlé. Stöðin stendur fyrir fyrirlestr- um um ýmis efni, sem ekkjur snertir, umræðuhópar 10 12 kvenna starfa o.fl. Stöðin var opihið árið 1970 og fyrstu 2 mánuðina voru tekin fyrir mál efni 100 kvenna. HBEINT STRAU.IÁBN Briina skánin, scni niyndast ncðan á straujárninu eftir nokkra notkun, næst auðveld- lega af á eftirfarandi hátt: Sniyrjið kalt járnið með dálít- illi sápu, hitið járnið, látið það standa iini stund og kóina síð- an. Þvoið með hreinum klút úr volgu vatni, og skánin fcr sam- stundis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.