Morgunblaðið - 08.03.1972, Síða 8

Morgunblaðið - 08.03.1972, Síða 8
MÖRGUNBLAÐIÐ, MIÖVIKUDÁGUR 8. MARZ 1972 Ólafur B. Thors: Afskipti sveitarstjórna af fasteignaviðskipt- um óeðlileg Á FUNDI borgarstjórnar fyrir nokkru urðu snarpar um ræður út af tillögru frá borgrar- fulltrúa Alþýðuhandalagrsins, Svavari Gestssyni. Gerir tillagr- an ráð fyrir að sett verði á stofn þjónustuskrifstofa á veg- um borgarinnar, er hafi það hlut verk að vera almenningri til leið beiningrar og: ráðgjafar vegna eigendaskipta á ibiiðum. í tillög unni segir m.a.: „Reglur þessar skulu svo úr garði gerðar, að tryggt sé svo sem verða má fjárhagslegt ör- yggi almennings við íbúðakaup In- Skal í þessu sambandi reynt að framkvæma gæðamat á við- komandi íbúð um leið og leið- beint yrði um verðlag, kaup, sölu, kaupsamninga og annað, er að eigendaskiptum lýtur. Þjónustuskrifstofunni skal heimilt að annast alla milli- göngu um íbúðakaup samhliða ráðgjafarhlutverki sínu. Henni skal heimilt að taka fast gjald fyrir þjónustu sína.“ Að loknum nmræðum, var til- lögunni vísað til 2. umræðu og borgarráðs. Flutningsmaður tillögunnar, Svavar Gestsson (Ab) fór fyrst nokkrum orðum um það ástand, sem hann taldi vera í fasteigna- viðskiptamálum í Reykjavík nú. Sagði hann m.a., að nú væru starfandi um 25 fasteignasölur i borginni, og væri kostnaður við refcstur þessara fyrirtækja gíf- urlegur. Ef gert væri ráð fyrir þvi að þrír menn ynnu að með- altali á hverri skrifstofu mætti reikna með, að kostnaður við fasteignasölukerfið væri um 60 milljónir króna á ári. Þá nefndi Svavar sem dæmi, að fasteignasali annaðist sölu á meðal íbúð, sem kostaði um 1,5 milljón króna, og tæki i sinn hlut 2%, eins og venjan væri, hlyti hann í sinn hlut um 30 þúsundir kr. Vinnan við sölu þessarar íbúðar væri þó varla meira en þrjú dagsverk. Maetti af þessu sjá, að þetta væri mjög arðvænleg atvinnugrein, enda hefðu fasteignasölur sprott ið upp eins og gorkúlur á haug undanfarin ár. Hins vegar sýndi skattskráin að menn þessir borg uðu ekki mikið til almannaþarfa. Hlutverk frsteignasalans sagði Svavar vera að gera hlut seljandans sem beztan, en hins vegar væri ekkert sem tryggði hlut kaupandans. Ef menn, sem hygðust kaupa sér íbúð, væru ekki búnir að birgja sig upp með refskap er þeir héldu á fund fasteignasalans, ættu þeir á hættu að verða þessu fast- eignasölukerfi að bráð. Fasteignasalakerfið eins og það væri í dag, tryggði engan veginn fjárhagslegt öryggi al- mennings við íbúðakaup eða íbúðaskipti. Því væri þessi til- laga flutt, enda ætti það að vera borginni eðlileg kvöð að tryggja svo sem bezt væri kostur hags- muni almennings í þessum efn- um. Ólafirr B. Thors (S) sagðist vera þessari tillögu andvígur; í fyrsta lagi vegna þess, að hann teldi það óeðlilegt og næsta hættulega þróun, að opinberir aðilar gripi þannig inn í sam- skipti borgaranna, og í öðru lagi vegna þess að hann teldi tillöguna byggða á verulegum misskiiningi. Ólafur sagðist ekki kann- ast við þetta voðalega ástand sem Svavar hefði talað um að ríkti í þessum málum, en tók það fram, að hann hefði sjálf- ur aldrei stundað fasteignasölu. Fasteignaviðskipti sagði hann að byggðust á sömu lög- málum og önnur frjáls viðskipti. Framboð og eftirspurn réðu mestu um verðlag, og grundvöll- ur kaupanna væri samkomulag aðila, kaupanda og seljanda. Það væri þó einkenni á þess- um viðskiptum, að um verulega íjármuni væri ið tefla, enda /æri yfirleitt ^kki gengið að samningum nema að vand- lega yfirveg- uðu ráði. Ólafur sagð- ist ekki sjá hvaða hags- munum það þjónaði að koma á opinberri fasteignasölu, — enda þættist hann hér kannast við gamalt áhugamál flutnings- manns og hans skoðanabræðra um aukinn opinberan rekstur. Að því er ráðgjafarþjónustu varðaði, sagðist Ólafur ekki skilja hver betri skilyrði stofn- un á vegum sveitarfélags ætti að hafa, en aðrir, til að meta þarf- ir, greiðslugetu og önnur atriði, sem máli skiptu þann aðila, sem á fasteignakaup hygði. Varðandi framkvæmd gæða- mats sagði hann, að hann sæi ekki nauðsyn þess, að sveitar- félag tæki á sig slika ábyrgð. Til væri fjöldi aðila, sem fram- kvæmt gætu slíkt mat á eigin ábyrgð, annað hvort gegn greiðslu eða gert það sem vinar- greiða eins og algengt væri. Og ef Reykjavikurborg ætti að fara út á þá braut að meta fasteign- ir, hvers vegna þá að einskorða slikt mat. Hvers vegna þá ekki að fara út i sömu þjónustu í sam bandi við kaup og sölu á bif- reiðum, skipum, húsgögnum o.fl. Því ekki að veita ráðleggingar um keypta þjónustu og mat á störfum verkfræðinga, lögfræð- inga, lækna og ýmissa iðnaðar- manna. Þá lýsti Ólafur furðu sinni yf ir þeirri staðhæfingu flutnings- manns, að fasteignasalar ættu einungis að bera hag kaupenda fyrir brjósti. Bæri þessi stað- hæfing vitni um verulega van- þekkingu á störfum fasteigna- sala. Fasteignasalar yrðu að gæta hagsmuna bæði selj- anda og kaupenda, og það' gerðu þeir ekki af góðmennsk- unni einni saman. Fasteignasali einn hefði sagt við sig að sá fasteignasali sem ekki gætti hagsmuna beggja aðila gæti fljótlega farið að leita sér að nýrri atvinnu. Enda væri það svo í borg sem Reykjavík þar sem samkeppni væri mikil í þess um viðskiptum, þá yrði það fljótt að berast út ef einhver ákveðinn fasteigpiasali túlk- aði einungis sjónarmið annars aðilans, og þá myndi eðlilega ekki verða leitað til hans. Loks lagði Ólafur B. Thors til að þessi tillaga yrði felld. Svavar Gestsson sagðist ekki hafa látið sannfærast af rökum Ólafs B. Thors, enda væru þau harla léttvæg, og myndi hann því alls ekki draga tillöguna til baka. Hann lýsti furðu sinni yfir því hversu mjög fyrri ræðumað- ur hefði talað um nauðsyn á frjálsum verzlunarháttum, en hann hefði hins vegar nýlega greitt atkvæði með því að tak- marka opnunartíma sölubúða, og væri það þó skerðing á frjáls ræðinu. Það væri því sýnt að Ólafur bæri líklega fremur hag þeirra sem standa að fasteigna- sölu fyrir brjósti en þeirra sem stunduðu smásöluverzlun. Þá sagðist hann ekki skilja þann ótta, sem borgarfulltrúinn hefði af því að leggja mat á hina ýmsu hluti. Hann fengi hins veg ar ekki séð hvert hlut- verk borgarfulltrúa væri ef ekki væri það að vernda félags- legt öryggi borgaranna. Það væri vafalaust rétt hjá Ólafi, að það mætti þá fara út í að rneta ýmis önnur viðskipti, og ' einnig keypta vinnu. Það væri MIÐSTOÐIN KIRKJUHVOLI SÍMAR 26260 26261 TIL SÖLU Sólheimar Skemmtilegt raðhús á þremur hæðum með innbyggðum bílskúr á hæðinni. Reynimelur Glæsileg 3ja herb. íbúð á 4. hæð í fjöl-býli'sbúsi. Framnesvegur 3ja herb. risíbúð i steinhúsi. íbúð ín.ni fylgja 2 herbergi í efra risi. Efstasund snotur 2ja herb. risíbúð, útb. að- eirns kr. 200 þús. Smáíbúðahverfi — skipti embýlishús fæst í skiptum fyrir 4ra til 5 herb. blokkaríbúð. 3/o herbergja íb. er 100 fm lítið niðurgr. góð kjallaraíb. við Nesveg. Sérinng. og hiti, góð teppi. Einstaklingsíbúð Hef m. a. góða íb. á 1. hæð við Dverga- bakka. — Tvennar svalir, þvottavél í þvottah., stór og góð geymsla. Sameign að fullu frág. Hgst. verð. I smíðum 4ra herb. fokheld íb. með rúmgóðum bílskúr við Kársnesbraut. Verð 1 millj. og 40 þús. 5 herb. íb. í tvíbýlishúsi í Hraunsholti í Garðahr. íb. selst fokh. Útb. er aðeins kr. 500 þús. Fasteignasala Siguröar Pálssonar byggingarmeistam og Cunnars Jónssonar lögmanns. Kambsvegi 32. Símar 34472 og 38414. 3 t.d. ekki vanþörf á að hafa slfka stofnun til að meta vinnu ým- issa iðnaðarmanna, og jafnframt atð veita ráðleggingar varðandi útboð og tilboð. Þessi tilaga gerði hins vegar aðeins ráð fyr- ir að gera tilraun á þessu sviði, og ef vel til tækist væri það þá atttaf skref í áttina. Albert Guðmunðsson (S) fagnaði þvi, áð mikill mismunur væri á skoðunum þeirra Ólafs B. Thors og Svavars Gestsson- ar, og lýsti sig algjörlega mót- fallinn tillögunni. Þá mótmælti Albert þeim málflutningi flutn- ingsmanns tillögunnar, er hann talaði um það sem óheiðarleika að leggja á við almenn verzlun- arviðskipti. Um atkvæðagreiðsluna um opnunartíma verzlana sagði Albert, að þar væri ekki um neina skerðingu að ræða, og gæti vel verið að Ólafur, Svav- ar og hann gætu einhvern tímann orðið sammála um að takmarka opn- unartíma fast- eignasölufyrir- tækja á sama hátt, ef nauð- syn bæri til. Þá sagði FÉLAGS STARFSFÖLKS i VEITINGAHÚSUWI Ákveðið hefur verið að veita ián úr sjóðnum á þessu ári. Unvsókn um S'kal skila til skrifstofu félags ins, Óðinsgötu 7, fyrir 31. marz 1972. Umsóknareyði/blöð eru afhent á sama stað Stjómin. 2/d herbergja 2ja herb. íbúð á 3. hæð við Eyja- bakka, um 65 fm. Harðviðarinn- réttingar. Teppalagt. Útborgun 900 þús. til 1 milljón. 4ra herbergja 4ra herb. mjög vönduð íbúð á 2. hæð í Breiðholtshverfi og að auki sérherb. og geymsla í kjallara. Tvennar svalir. Þvottahós og búr á sömu hæð. Harðviðarinnrétting ar, teppalagt. Verð 2,3 milljónir Útborgun 1300 þús. Einbýlishús 6—7 herb. einbýlishús í Vestur- bænum í Kópavogi, um 180 fm og 40 fm bílskúr, 5 svefoherb., 2 stofur og fleira. Húsið er um 9 ára gamaft, harðviðarinnrétting- ar, teppalagt. Útborgun 2,5 til 2,7 milljónir. Upplýsingar ekki gefn- ar í ®íma, bara í skrrfstofu vorri. Raðhús 5 herb. raðhús á einoi hæð í FosSvogi, um 135 fm að mestu frágengið. Útborgun 2,2 til 2,3 milljónir. Bílskúrsréttur. 3ja herbergja 3ja herb. vönduð íbúð á 1. hæð við Álfaskeið í Hafnarfirði, um 90 fm Útborgun 1 milljón. Harð- viðarinnréttingar, Teppelagt. tstsbins&eh T&misiuH Austarstrsetl lð A, S. haeC Sími 24850 Kvöldsími 37272. - Albert að ráðstöfun sú, sem til- lagan gerði ráð fyrir væri að eins liður í taflinu hjá fíutti- ingsmanni og skoðanabræðrum hans, eða aðeins eitt skref eins og hann hefði komizt að orði. Sem betur fer væru nú ekkt nema tveir fulltrúar Alþýðu- bandalagsins í borgarstjórn, og væri það tveimur of mikið. Hins vegar væru nú 8 fulltrúar Sjálf stæðisflokksins í borgarstjórn, og sýndi það glöggt hver hug- ur meirihluta borgarbúa væri til stjórnarhátta I Reykjavík. Þaff væri ekki í borgarmálum sem hætta væri á ferð, en hins veg- ar væru stórum alvarlegri hlut- ir að gerast annars staðar í þjóð félaginu. Ólafur B. Thors (S) sagði, að það væri ekki rétt að hann bæri hagsmuni hinna 25 fasteignasala fyrir brjósti fremur en annarra, eins og flutningsmaðuir tiiiög- unnar hefði sagt. Þegar hann hefði greitt at- kvæði um opnunartíma verzlana hefði hann gert það vegna þess. að hann taldi það hagsmuni verzlunarinnar, og allra þeirra sem við hana ynnu, og auk þess: hefði hann talið, að ekki væri verið að skerða hagsmuni neyt- enda. Framh. á bls. 19 Hafnarfjörður Ti'l sölu 3ja herb. íbúð í fjölbýWs- húsi við Álfaskeið. Hagstæð greiðslukjör ef samið er strax. HRAFNKELL ÁSGEIRSSON HRL Strandgötu 1 - Hafnarfirði. Simi 50318. Til sölu l Árbæ 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Falleg íbúð. Verð 1250 þús. — Áhvílartdi 250 þús. veðdeildartán. Útborgun 1 milljón. 2ja herb. íbúð á 3. hæð í sér- ftokki. Verð 1500 þús., áhvílandi 600 þús. Útborgun 900 þús. 2ja herb. íbúð á 1. hæð, vönduð og vel frágengin. Verð 1450 þús. Útborgun 1 nrvMljón. í Breiðholti 2ja herb. íbúð, gull- falleg. Verð 1500 þús. Útborgun 1 milljón. 1 Veturborginni 3ja herb. íbúð, 80 fm 3. hæð í samtoýlishúsi. Verð 1750 þús. Útborgun 1200 þús. 3ja herb. íbúð á 3. hæð í sam- býlishúsi. Verð 1800 þús., sér- lega fatleg íbúð. 4ra herb. íbúð í Vesturborginni á 1. hæð í sambýlishúsi. Verð 2 milljónrr. Útborgun 1 mitljón. Stór húseign í Austurborginní. 600 fm á tveimur hæðum og ris, sérlega hagkvæmt fyrir atvinnu- rekstur eða félagsheimili. Verð 8 miHjónir. Útborgun 3 mitljónir, ekkert áhvílandi. Upplýsingar að- eims í skrrfstofunni. Höfum kanpanda ai 2ja og 3ja herb. íbúðum með lágum útborgunum. 3ja herb. Ibúð i háhýsi. Há út- borgun í boði. 3ja herb. íbúð í Árbæ. Há útborg un í boði. Opið til kl. 8 í kvöld. V 33510 f 85650 85740 IEKIMVAL Sudurlandsbrout 10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.