Morgunblaðið - 21.06.1972, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNl 1972
13
i
Vestmannaeyingar í Færeyjaheimsókn;
Vel heppnuð leikför
og listsýning
BORGARSXJÓRI Þórshafnar
í Færeyjum, Pétnr Christian-
sen, opnaði 17. júni sl. i Lista-
skála Færeyja, málverkasýn-
ingu Guðna Hermansen, list-
málara frá Vestmannaeyjum.
300 gestir voru við opnim sýn-
ingarinnar, en Guðni Her-
mansen er fyrsti islenzki list-
málarinn, sem sýnir í Færeyj-
iun
Að kvöldi 17. júní frum-
sýndi Samkór Vestmannaeyja
Meyjaskemmuna í Sjónleikar-
húsinu í Þórshöfn. Var leik-
húsið fullsetið og var leikur-
um fagnað lengi í ieikslok.
Mjög góð stemmning var á
sýningunni. Samkór Vest-
mannaeyja hafði áður sýnt
Meyjaskemmuna 11 sinnum í
Vestmannaeyjum, en leik-
stjóri er Nanna Egils Björns-
son. Fararstjóri hópsins er
Eyjólfur Pálsson skólastjóri.
Gullfoss kom til Vestmarma
eyja sérstaklega til þess að
sækja hópinai, sem fór til
Færeyja. StanzaSi skipið að-
eins i 20 mínútur og tók far-
þega og 35 oiiumálverk Guðna
Hermansen listmálara. Blaða-
maður frá Morguniblaðinu
íyligdi hópnium til Færeyja og
var við opnuin listsýmitrugar-
innar og frumsýningu Meyja-
skemmunnar og hvort tveggja
var eins og fyrr segir 17. júní.
Að vanda, þegar Vestmanna
eyingar eru á ferð, var laigið
tekið um borð í Gullfossi. Þá
var það ekki verra að veður
var mjög gott og sléttur sjór
að kalIcL Hljómaði söngurinn
því hressilega kvöldin tvö um
borð í Gulifossi.
Strax á föstudagsmorgun
hófu samkórsfélagar að æfa í
Sjónleikarhúsinu, en sviðs-
menn frá Samkómum höfðu
komið til Færeyja nokkrum
dögum áður með leiktjöldin
og voru þeir búnir að ganga
frá þeim á sviðinu.
Á sama táma hóf Guðni
Hermansen að setja upp
myndir sinar I Listaskálanum
en Janus Kamban, formaður
Listaskálans og mjmdhöggv-
ari aðstoðaði Guðna ásamt
Roland Thomsen, sem undir-
bjó sýninguna i Færeyjum.
Var málverkasýningin opn-
uð við hátíðlega atíhöfn kl. 3
17. júní og opnaði borgar-
stjóri, Pétur Christiansen,
sýninguna. 300 manns voru
við opnunina og seldust strax
7 myndir. Fjöldi fólks hafði
þó við orð að það ætlaði að
koma aftur vegna þess hve
erfitt var að skoða myndim-
ar í þeim fjölda sem var við
opnunina. Pétur Christiansen,
borgarstjóri, þakkaði listmál-
aranum heimsóknina og
kvaðst vona að þessi fyrsta
heimsókn íslenzks listmálara
til Færeyja yrði aðeins byrj-
unin á góðum samskiptum í
því efni og um leið veik
hann að þvi að ánægjulegt
væri ef samsikipti Færeyinga
og Islendinga mættu aukast
Leikarar úr Samkórnum á sviði Sjónleikarhússins i Þórshöfn.
(Ljósm. Mbl. á. j.)
Fjölmenni við opnun sýningarinnar í Listaskála Færeyja.
enn meir en verið hefur.
Frumsýningu Samkórsins
á Meyjasikemmunni var mjög
vel tekið og sagði Knut Wang
þingmaður og formaður Hafn
ar Sjónleikafélags í ávarpi
eftir sýntnguna að leiklistar-
fólk í Færeyjum gæti margt
af henni lært og meðal ann-
ars það að gera þyrfti tals-
vert í leikh úsmálum í Færeyj-
um til þess að Færeyingar
sjálfir gætu sett upp slíka
sýninigu. Fannst leikhúsfólki
mjög áhugavert að leikflokk-
ur frá ekki stærri bæ en
Vestmannaeyjum skyldi leysa
verkefnið svo vel af hendi,
sem raun bar vitni. Báru all-
ir mikið lof á leikarana í
Meyjaskemmunni.
Eyjólfur Pálsson fararstjóri
Samkórsins þakkaði Hafnar
Sjónleikafélagi fyrir móttök-
urnar, sem hann kvað svo
góðar að erfitt væri að lýsa
þeim með orðum. Var síðan
haldin veizla i Sjónleikarhús-
inu fram eftir nóttu.
Samkórinn hélt aðra sýn-
ingu á Meyjaskemmunni á
sunnudagskvöld og var hús-
ið fullskipað sem fyrr, en
áformað er að halda fjórar
sýningar í Þórshöfn. Hópur-
inn mun einnig ferðast um
Færeyjar, en heim kemur
hann með Gullfossi nk. sunnu
dag.
Málverkasýningu Guðna
Hermansen mun einnig ljúka
á laugardag og kemur hann
heun með Gullfossi, sem mun
skila fólkinu á land í Vest-
mannaeyjum.
— á. j.
Pétur Christiansen, borgarstj óri í Þórshöfn, opnar málverka-
sýningu Guðna Hermansen, fyrsta íslenzka listmálarans, sem
sýnir í Færeyjum. 300 gestir voru við opnunina. Guðni Her-
mansen er á miðri mynd.
Sjónleikir
Framh. af bls. 5
eins vel unnið sviðsverk og
Tenigdamamma, fyrsta leikrit
bennar og sýnt um allar jarðir,
fieffiiiur enda hvarvetna inn í stað
háttu og tæknibúnað lítiMa sam--
komuhúsa.
í Melkorku þræðir hún var-
færnisfeiga hinn veika söguþráð
þar sem öll saigan ligigur í hnot
Skum úr Laxdælu, frásögninni
um ambáttino, sem kennir syni
siínum tungu írskra forfeðra
sánna.
Mjög sæmHeg var frammi-
staða beggja aðalleikkvenna
flokksins: Soffíu Þorgrímsdóttur
í hlutverki Jóruinnar húsfreyju á
Höskuldsstöðum og Aðalheiðar
Eiríksdótbur í hlutveTki Mel-
korku.
Ég þekki ekki Hörð Torfason
se«m leistjóra, en hann hefði áreið
anleiga haft gott af að kynna sér
ir’sk leikrit t.d. í verkum W. B.
Yeafcs tii að fá réttan hugblæ
á Skiptin við Melkorku.
Leikfélag Seltjarnarneas:
Sköllótta söngkonan
eftir Eguiene Ioneisco og
Jóðfif
eftir Odd Bjömsson.
Fyrsta verkefni.
NÝLEGA kom hdð nýstofnaða
Leikfélag Seltjiarnarness í fyrsta
sinn fram á fjalirnar með tvo ein
þáttuniga, hinn þýddi þó í sæmri
þýðingu en efni stóðu til, þar
sem ágæt þýðinig Karlis Guð-
mundsisionar á Sköilóttu söngkon
umni var látin ónotuð, en þýðing
Þjóðleikihússins höfð.
Full ástæða er til að óska for-
göngumönnum hins nýja leikfé-
lags allra heilla mieð framtakið.
í fyrra o>g framan af ári hélt fé-
laigið uppi leikkennslu fyrir ungt
og áhuigasamt fólk á Nesinu und
ir forystu Péturs Einarssonar
iieikara, síðar tóku við leikarar
frá Þjóðieikhúsiniu, Hákon
Waage og Jónina Jensdóttir, og
eins oig leikendur sögðu sjálfir,
þótti þeirn svo gaman af tilburð-
um hvers annars í ledkarastell-
inigum að þau ákváðu að bjóða
til samsveitungum, sem tóku
flokkmuim m-eð fögnuði oig klapp
aði óspart hver sem betur gat af
-sér .gleðima á gnanna sinn
elns og segir um gleðir gamlar.
Formaður félagsins er Sig-
urður Sigmundsson fulltrúi.
Lárus Sigurbjörnsson.
7 herbergja íbúð til sölu
Til sölu er 7 herb. íbúð, neðarlega við Hraun-
bæ á 1. hæð (ekki jarðhæð) íbúðin er stór
stofa, borðstofa, eldhús, 5 svefnherbergi, bað-
herbergi og gestasnyrting. íbúðin er enda-
íbúð með gluggum í þrjár áttir. Tvennar
svalir, harðviðarinnréttingar, sérgeymsla á
jarðhæð og eignarhlutdeild í þvottahúsi með
nýtízku vélum. Teppalagt stigahús. Lóð frá-
gengin. Bílastæði malbikuð með tengfium fyr-
ir mótorhita. íbúðin er vel staðsett gagnvart
verzlunum. Laus strax.
HÚSAVAL
Skólavörðustíg 12, sími 24647 og 25550.
Þorsteinn Júlíusson hrl.,
Helgi Ólafsson sölustjóri.
Kvöldsími 41230.
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar, er verða til
sýnis föstudaginn 23. júní 1972, kl. 1—4 í
porti bak við skrifstofu vora Borgartúni 7:
Volvo Amazon fólksbifreið árg. 1966
Volvo duett — 1965
Volga fólksbifreið — 1961
IJAZ 15 manna — 1967
Gaz 69 jeppi — 1965
Skoda 1202 station — 1966
Volvo Duett — 1963
Willys Wagoneer — 1965
Ford Transit sendiferðabifreið — 1967
Land Rover benzín — 1965
Willys jeppi — 1964
Skoda 1202 station — 1968
Volvo vörubifreið með krana, sturtum,
snjóplógsfestingum og framdrifi — 1962
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 5.00 að viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðun-
andi.
I INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS 1
|| BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 1
' 'l