Morgunblaðið - 21.06.1972, Side 16

Morgunblaðið - 21.06.1972, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1972 O.tgcfandi hlf, Átvakuc R&ykijawík Ffiamkv»m da stjóri Haratdur Svalnsaon. .Rrtatjórar Mattihías Joh.anrvess&n, Eyjóllfur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmk Gurmarsson. Rrtstjómarfulrtrúi Þforbijönn Guðmundsson Fróttastjóri Björn Jólhannsson Aug,lýsirvgastjóri Ámi Geröar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla ASalstreeti 6, sfmi 1Ö-100. Augiýsingar Aðalstrseti 6, símt 22-4-60. Askriftargjald 225,00 fcr á mán.uði mnanlands I la.usasóTu 15,00 Ikr eintakið F’fnahagskerfið er komið úr ■*- skorðum. Verðbólgan eykst dag frá degi og stefnt er vitandi vits að síauknum viðskiptahalla við útlönd, án þess að nokkuð sé að gert. — „Verður að sæta því, þótt nokkuð gangi á gjaldeyris- forðann á árinu, í von um að miði í jafnvægisátt á næsta ári,“ eru þau ummæli, sem fjármálaráðherra lét sér sæma að viðhafa í skýrslu sinni um framkvæmda- og fjáröflunaráætlunina fyrir ár- ið 1972. Það eitt, að fjármála- ráðherra skuli leyfa sér að viðhafa slík ummæli, er fá- heyrt, ekki sízt ef hliðsjón er höfð af hinum hagstæðu viðskiptakjörum okkar út á við. En þetta sýnir svo ljós- lega, sem verða má, að það er rétt, sem sjálfstæðismann hafa haldið fram, að ríkis- stjórnin hefur ekki mátt vita af neinum sjóði, án þess að bollaleggja, hvernig koma megi honum í lóg. Mönnum eru í fersku minni fyrstu mánuðirnir eftir stjórnar- skiptin. Og síðan hefur gang urinn verið sá sami. Það er gengið í einn sjóðinn af öðr- um. Nú síðast er það gjald- tekjuöflun ríkissjóðs byggist á sem mestum innflutningi, eins og nú er. En það er ekki aðeins, að ríkisstjórnin stefni vitandi vits að hallarekstri út á við. Hið sama gildir um afstöð- una til atvinnurekstrarins í landinu. Nú er svo komið, að forráðamenn Kaupfélags Ey- firðinga hafa farið hörðum orðum um viðhorf ríkisstjórn arinnar til atvinnurekstrar- ins. Þannig segja þeir í árs- skýrslu sinni: „Útlit er því fyr ir, að nú eigi að mæta Hruna dansi kostnaðarverðbólgu með taprekstri fyrirtækja, sem því miður hlýtur að leiða til atvinnusamdráttar, þegar til lengdar lætur.“ Þessi gagnrýni forráða- manna Kaupfélags Eyfirð- inga er enn beittari, þegar þess er gætt, að í skýrslu ur, eins og glöggt kemur fram í því, að á sl. ári var heildar- velta þess rúmir tveir millj- arðar króna. Forráðamenn þess vita því vel, hvað þeir eru að segja, og ummæli þeirra nú um stefnu ríkis- stjórnarinnar verða ekki skil in öðru vísi en svo, að þeir telji, að stefna hennar í at- vinnu- og efnahagsmálum hafi beðið algjört skipbrot. Framundan er taprekstur fyr irtækja, sem leiðir til atvinnu samdráttar, þegar til lengdar lætur. Það er næsta aumkunar- vert hlutskipti, sem stuðn- ingsblöð ríkisstjórnarinnar hafa komizt í, þegar þau eru að reyna að verja glundroð- ann í efnahagsmálunum. Ann að veifið reyna þau að halda því fram, að verðbólgan sé svo sem engin. Framfærslu- HRUNADANSINN eyrisvarasjóðurinn. Með sama áframhaldi verður búið að eyða honum einhvern tíma á næsta ári, nema til komi þeim mun meiri erlend- ar lántökur. Fjármálaráðherra segir að vísu: . í von um að miði í jafnvægisátt á næsta ári,“ en hann gerir enga frekari grein fyrir, við hvað hann eigi með þessum ummælum, en borin von, að þróunin snúist við sjálfkrafa. Allra sízt þegar þeirra kemur jafnframt fram, að árið 1971 hafi orðið eitt hagfelldasta rekstursár félags ins um mjög langt árabil og afköst rekstursins mæld í ýmiss konar fyrningum og ágóði meiri en dæmi eru áður um. Rekstursafkoma Kaupfélags Eyfirðinga er fyrir þá sök góður mælikvarði á efnahags ástandið í landinu á hverjum tíma, að á vegum þess er rek- inn hvers konar atvinnurekst vísitalan hefur þó hækkað um hvorki meira né minna en 9% síðan í nóvember og fyrirsjáanleg veruleg hækk- un, jafnvel allt að 10 stig til viðbótar síðari hluta ársins eða meira. í þessum tölum er ekki reiknað með skattahækk uninni og heldur ekki með hækkun húsaleigu, sem allir vita um, en ekki fæst reikn- uð inn í vísitöluna, þar sem bannað er að hækka húsa- leigu á pappírnum. Á sama tíma og stjórnar- blöðin reyna að fela þessar staðreyndir fyrir fólki með næsta furðulegum talnaút- reikningi, verður að viður- kenna, að einstaka sinnum kveður við annan tón, meira að segja í Tímanum. Þannig segir í forystugrein 14. júní sl.: „Nú þarf því eftir megni að forðast allar frekari hækk anir að sinni, hvort heldur er á verðlagi eða kaupgjaldi, því að það getur hleypt skriðu af stað, sem erfitt get- ur verið að fást við.“ Þessi viðurkenning hefur áreiðanlega ekki verið rit- stjórum Tímans þrautalaus. En þeir sjá, að hverju fer. Og hið sama má raunar segja um ríkisstjórnina. Stöku sinnum hefur það komið fram hjá einstaka ráðherrum, að þeir gera sér grein fyrir efnahags- ástandinu í landinu, — þeim Hrunadansi verðbólgunnar, sem stiginn er með æ meiri hraða. Gallinn er bara sá, að ríkisstjórnin veigrar sér við að grípa til gagnráðstaf- ana, takast á við vandann. Það er af þessum sökum, sem for- ráðamenn Kaupfélags Ey- firðinga segja í skýrslu sinni: „Stjórn félagsins vill hins vegar ekki draga dul á það gagnvart félagsmönnum, að mjög hefur syrt í álinn um rekstursútlit á yfirstandandi ári og um næstu framtíð vegna þeirrar holskeflu kostn aðarhækkana, sem nú ríður yfir.“ Gubmundur Magnússon Prófessor■■ ÍSLENZK VERZLUN / Samvinnufélagsverzlun I Samvinnufélagsrekstur er orðinn rótgróinn í íslenzku þjóðfélagi. Sam band islenzkra samvinnufélaga og kaupfélögin eru stærsta fyrirtæki á Islandi. Hér á eftir fer viðtal við Erlend Einarsson, forstjóra SfS, en seinni bluti þess birtist síðar. G.M.: Það er mikið um aÆmæli hjó samvinnuhreyfingunni á þessu ári, Kaupfélag Þingeyinga verður 90 ára og Sambandið 70 ára. Ef litið er yf- ir farinn veg, hverjir eru merkustu áfangamir í sögu samvinnufélags- verzlunar hér á iandi? E.E. Fyrsti merki áfanginn í sögu Sambandsins, ef frá er talin út- breiðslustarfsemi, sem hófst svo til þegar við stofnun Sambandsins 1902 og svo útgáfa tímariits 1907, er stotfn un fyrstu skrifstofunnar í byrjun 1915 í Kaupmannahöfn. Fram að þeim tíma höfðu verzlunarfulil- trúar á vegum Samnbandsins ferðazt til útlanda i sölu og innkaupaerind- um. Árið 1917 er sett á stofn aðal- skrifstofa í Reykjavík og var Hall- grímur Kristinsson ráðinn forstjóri Sambandsins. Oddur Rafnar tók þá við Kaupmannahafnarskrifstofu, sem rekin var til ársins 1961, en þá voru viðskiptin í Danmörku yfirfærð til N.A.F., Samvinnusambands Norður- landa. Árið 1917 var einnig sett á stofn skrifstofa í New York, sem starfrækt var i 3 ár. Þá var Sam- vinnuskólinn settur á stofn 1918. Árið 1919 er tekiin uipp deilda- skipting í Sambandinu: Útflutnings- deild, sem Jón Árnason stjórnaði og Innflutningsdeild, sem stjórnað var af Aðalsteini Kristinssyni, en Hall- grímur var forstjóri. Það má þvi segja, að á árunum 1915—1919 hafi verið lagður grunn ur að viðskiptarekstrinum, skipulega séð, en árið 1919 voru 24 kaupfé- lög innan Sambandsins. Samvinnu- lögin voru svo samþykkt á Alþingi árið 1921, en þau mörkuðu að sjálf- sögðu tímamót í sögu samvinnusam- takanna. Svo má minnast kreppuáranna og þess, að unnt reyndist að forða Sam- bandinu og kaupfélögunum frá stór- um skakkaföllum. Það kom í hlut Sigurða'r Kristinssonar að veita Sambandinu forstöðu frá árinu 1923, (eftir lát Hallgríms), til ársloka 1945. Iðnaður hefst á vegum Sambands- ins árið 1923 með gærurotun á Akureyri, en 1930 kaupir Samband ið Ullarverksmiðjuna Gefjuni. Síð- an komu fleiri verksmiðjur: Sútun, skóverksmiðja og fataverksmiðja. Árið 1946 tók Vilhjálmur Þór við forstjórastörfum Sambandsins. Þá hefst mikil uppbygging. Hafinn er rekstur kaupskipa, iðnaður aukinn, sett á stofn sérstök véladeild, stofn- að samvinnutryggingafélag og sér- stakt olíufélag með þátttöku oliu- samlaga, bæjarfélaga og ein- staklinga, auk samvinnufélaganna. Siðan kom Samvinnusparisjóð- ur 1954 og banki 1964. Samvinnufé- lögin juku mjög þátttöku í vinnslu og sölu sjávarafurða. Fyrstu notkun skýrsluvéla má rekja aftur til ársins 1952 og hafði Sambandið þar að vissu leyti for- ystu, hvað fyrirtæki snertir. Guðmuindilr Magmisson. Svo má minnast á skrifstofurnar erlendis. Skrifstofa var sett á stofn I Leith í Skotlandi árið 1920 og flutt þaðan til London 1962. Skrifstofa sett á stofn í Hamborg 1957. Stofnuð skrifstofa 1 New York 1940, sem starfrækt var til ársins 1962 og sett á stofn sölufélag í Bandaríkj- unum árið 1951, sem starfar ennþá og seldi s.l. ár fyrir rúmar 20 millj. dollara. Sambandið gerðist aðili að Alþjóðasamvinnusambandinu 1928 og N.A.F. 1949. Ég tel, að kaupin á fyrsta stóra íslenzka olíuskipinu, Hamrafellinu, árið 1956, hafi verið mjög merkilegt spor i siglingasögu þjóðarinnar. Þetta skip var keypt án nokkurrar fyrirgreiðslu frá opinberum aðilum hér á landi. Því miður neyddist Sambandið til þess að selja skipið sex mánuðum fyrir sex daga stríð Egypta og ísrael árið 1967. Engin fyrirgreiðsla fékkst þá frá opinberum aðilum. Ef við hefðum getað haldið skipinu eitt ár til viðlbótar, æt-tu Islendimgar trúilega í dag tvö stór olíuskip. Farmgjöld olíuskipa margfölduðust eftir sex- daga stríðið. G.M.: Hve margir meðlimir eru samtals í hinum ýmsu félögum? E.E.: Félaig'simiannatalan i samvinnu félögum innan Sambands íslenzkra samvinnufélaga var hinn 31. des. 1971: 33.444. G.M.: Hve mikinn hluta smásölu- verzlunarinnar hafa samvinnufélög og hvernig er skiptingin milli Reýkjavíkur og landsbyggðarinnar? E.E.: Því miður skortir hér á landi mjög tilfinnanlega skýrslur um verzl unina. Við höfum ekki getað fengið öruggar skýrslur um heildar- smásöluverzlunina, hvað þá flokk- aða niður. Hitt er vitað, að hlutur kaupfélaganna í smásöluverzluninni utan Reykjavíkur er tiltölulega stór. 1 Reykjavik hins vegar er hann lít- ill, trúlega innan við 10%. Síðustu verzlunarskýrslur kaupfélaganna þ.e. fyrir árið 1970 sýna, að af heild arvörusölu félaganna (í smá- sölu) var hlutur Reykjavíkur og Hafnarfjarðar 7.73%. Þá ber að hafa í huga, að kaiupféQögin utam Reylkja- víkur verzla með ýmsa stóra vðru- flokka, sem kaupfélögin í Reýkja- vík verzla ekki með. Má þar nefna fóðurvörur og aðrar rekstrarvörur landbúnaðar og sj'ávarútvegs, svo og olíur. Þess vegma eru þær tölur Framh. á bls. 20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.