Morgunblaðið - 21.06.1972, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.06.1972, Blaðsíða 20
20 MÖRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1972 Fró Norræno íélcginu Umsóknarfrestur um þátttöku í norrænu píanókeppninni er framlengdur til 1. ágúst. Norræna félagið. Hef flutt tannlækningastofu mína í Garðastræti 16. Gengið inn frá Öldugötu. Óbreytt símanúmer 15713. Kjarfan Guömundsson AUKIN ÞJONUSTA Volkswagen, Land Rover og Range Rover eigendum er bent á að smurstöð okkar að Laugavegi 172 er opin alla virka daga nema laugardaga kl. 8.00—12.00 og 13.00—18.00. A SMURSTÖÐ HEKLU er eingöngu unnið við V.W. L. R. og R.R. bifeiðar. ^ Sérhæfð þjónusta. ■fc Góð þjónusta. AÖ smyrja er sparnaöur 1 HIEKLA HF. Laugavegi 170—172 — Sími 21240. — Umhverfi manns Framh. aí bls. 17 um og dýrum og mörmum hefur haft í för með sér stöðugt vaxandi notk- un hvers konar lyfja. Enda þótt skammtar þeir, sem notaðir eru af þessum lyfjum séu miðaðir við það, að þeir geri sitt gagn án þess að vera heilsuspillandi, þá getur svo farið við stöðuga notkun lyfjanna, að þá safnist leifar þeiira fyrir á vissum stöðum t.d. í jarðvegi eða vatni í svo miklu magni að hætita stafi af. Þekktasta dæmið af þessu tagi eru klórkolvatnsefnin s.s. D.D. T. o.fl., sem notuð hafa verið sem skordýraeitur við ræktun ýmissa mat jurta. Af þessum efnum hefur um margra ára skeið verið notað mjög mikið í landbúnaði, og er nú svo kom ið að þau hafa víða safnazt fyrir í jarðveginum og berast þaðan í ár og vötn og síðan i thafið. Bæði í fersku vatni og hafinu berast þessi efni í fisk og safnast þar fyrir í feitinni, t.d. í þorsklifiur. Er nú svo komið að bannaö hefur verið að hirða til mat- ar þorsklifur í Eystrasalti vegna þess mikla magns, sem I henni er af D.D.T. Annar flokkur lyfjaleifa hef- ur valdið nokkrum á'hyggjum, en það eru 'fúkalyf, sem gefin eru ali- dýrum við ýmsum sjúkdómum. Lyf þessi berast þá í kjöt og mjólk og með þessari fæðu í manninn. Kemur það ekki að söfc þótt sliikrar fæðiu sé neytt einstaka sinnum, en sé um stöð uga neyzlu að ræða getur afleiðing- in orðið sú, að neytandinn fái of- næmi fyrir viðkomandi fúkalyfi. Verður þá fúkalyfið ónothæft fyrir neytandann, komi að þvi að hann þurfi sjálfur á því að halda. VIÐBÓTAREFNI Við framleiðsiu matvæla og við matreiðslu er bætt í fæðuna margvís legum efnum (food additives) til þess að bæta gerð hennar eða bragð, eða til þess að auka geymsluþoll henn ar. Þessum efmum er það sameiigin- legt að þau eru æskileg og óskaðleg innan vissra takmarka, en í auknu magni geta þau verið óheppileg eða beinlínis hættuleg. Þetta á einkum við um þau efni, sem notuð eru til rotvarna, en til þeirra er gerð sú krafa, að þau séu gerildrepandi en þó hættulaus til neyzlu fyrir mann- inn. Þekktust af þessum efnum er matarsaltið, en það er manniniuim Iií'fs nauðsynlegt í hæfilegri þynningu, en sterkari upplausnir af því eru hon- um skaðlegar. Til viðbótar matar- salti eru oft notuð nitröt (saltpétur) eða jafnvel nitrit. Efni þessi eru eitr uð og þvi notuð í örlitlu magni. Nökkrar sýrur eru notaðar til rot- varna s.s. ediksýra, mjólkursýra, vín sýra og sítrónsýra, sem eru skáðlaus ar í allmiklu magni, og auk þess maurasýra, bórsýra, benzóesýra og scorbinsýra, sem aðeins má nota í miklum þynningum. Annars er sinn siðiur i landi hverju um það, íhivaða efni megi nota sem viðbótarefni i mat vælli og í hvensu miklu magni. Við reykingu matvæla berast margs konar efni úr reyknum í vör- una, sem eru bæði bragðgefandi og rotverjandi. Um nokkur þessara efna er vitað að þau eru skaðleg heilsu manna, sé mikið af þeim i mat vælunum. Matvæli eiga því að vera léttreykt. Matvæli, sem eru mjög mik ið reykt, má líta á sem menguð. Menn skyldu hafa það hugfast í öllu þessu mengunarspjalli, að fæða mannisins er samsett af f jölda næring arefna. Um öll þesei ef.ni gildir það, að hlutfallslegt magn þeirra i dag- legri fæðu getur orðið of mikið, jafn vel svo að hætta stafi af. Einhæf fæða er varasöim. Fjölbreytni fæð- unnar er manninum fyrir beztu. Og mengun einnar fæðutegundar verður því þýðingarminni, sem viðkomandi fæðutegund er minni hluti af máltíð inni. — íslenzk verzlun Framh. af bls. 16 sambærilegar en gefa þó vissar vís- sem hér hafa verið nefndar ekki bendingar. G.M.: Nú er á sumum sviðum allt á einnd hendi, fram.leiðslan dreifing- in og salan. Hvað er afurðakaup og afurðasala stór liður í starfseminni? E.E.: Afurðasaila var í upþhaifi ann ar aðalþátturinn í starfsemi sam vinnufélaganna, enda bændurnir brautryðjendur. Rétt er að vekja at- hygli á þvi, að afurðasala kaupfé- laganna og Sambandsins er svo til öil á umboðssölugrundveHi og um- boðslaun mjög lág, 1V2—2%. Ef við lit- um á landbúnaðarvörurnar, þá nam söluuþphæð þeirra hjá Sambandinu á s.l. ári 18,75% af heildarveltunni. Varðandi landbúnaðarafurðirnar þá er rétt að taka það fram, að grunnframleiðsdan fer fram hjá bændunum en ekki samvinnufélög- unum. Síðan koma til vinnslustöðv- ar, sw sem sláturhús og mjólkur- bú, sem eru á vegum félaganna og síðan kemur afurðasalan, en stór hluti hennar fer í gegnum Sam- bandið, heiidsala til smiásöluverzlun arinnar og svo útflutningur, einnig sala á ull og gærum til innlendra verksmiðja. Sala sjávarafurða er ekki beint sambæriieg við sölu landbúnaðaraf- urða. Sambandið tekur sjávarafurð- ir til sölumeðferðar frá fleiri aðil- um en kaupfélögunum, bæði frá ein staklingum og félögum. G.M.: Iðmfyrirtæki y'kkar hafa eflt mjög iðnað á Islandi og sýnUegur árangur náðst. Hve mikið er flutt út, hvað helzt og hve stór hluti sam svarandi útflutnings er það? E.E.: Útflutningur iðnaðarvara frá Sambandsverksmiðjunum hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Árið 1971 var flutt út fyrir 270 miHj. kr. Ef litið er á sölu þriggja verk- smiðja, sem framleiða fyrir útflutn- in.g, þ.e. Gefju.ni, Heklu og súitwnar- verksmiðju Iðunnar, þá nam útflutn ingur þessara þriggja verksmiðja um 51% af sö'lunni árið 1971. Hlutdeild samvinnuverksmiðjanna í heildarútflutningi eftirtalinna vöruflokka var sem hér segir árið 1971 (skv. hagskýrslum): Prjónavörur úr ull 67,1% Ullarabreiður (ullarteppi) 97,8% Loðsútaðar gærur og skinn 65,1% G.M.: Viðhorfin I fríverzlunarmál- um eru mjög ðljós um þesisar mund- ir. Hefur iðnaðurinn ekki hagsmuna að gæta þar? E.E.: Iðnaðurinn, eins og t.d. ull- ar- og skinnaiðnaður, sem selur vör- ur siðar bæði á innlendum og er- lendum mörkuðum, hefur því aðeins hagsmuni af friverzlun, að verðiags- þróun og þá á ég við þróun fram- leiðsl uko.stnaðar geti nokkuð hald- izit í hendiur við þróiunina í mark- aðslöndum okkar. Ef framleiðslu- kostnaður hjá Okkur vex verulega meira en í markaðslöndunum, þá gieriisit tvennt: a. Erfiðara verður að selja erlend is fyrir verð sem þarf til þess að standa undir framleiðsílu kostnaðinum og b. Lækkun toUa á innfluttum vör- um greiðir enn betur götu inn- flutnings á íslenzka markaðinn. Vegna aukins framleiðslukostn aðar innlendra verksmiðja, stór versnar samkeppnisaðstaðan. Ef hins vegar reyndist unnt að halda verðbólgu hér á landi það mikið í skefjum, að hún væri ekki meiri en í markaðslöndum okkar, þá greiðir fríverzílun fyrir útflutningi. Það getur munað verulega að þurfa efcki að klífa yfir tollmúra í við- Skiptalöndum okkar. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.