Morgunblaðið - 01.07.1972, Page 32
IESIÐ
DRCLECn
LAUGARDAGUR 1. JtJLÍ 1972
P*ipnMðÍib
nucivsincsii
^v-«224SD
Heimsmeistaraein-
vígið sett í kvöld
Skáksambandsstjórnin gerir
sér vonir um að Fischer mæti
til leiks á réttum tíma
SETNING heimsnieistaraeinvig-
isins í skák fer fram eins og
fyrirhugað hafði verið í Þjóð-
leikhúsinn í kvöld. Á hún að
byrja kl. 8, en verðnr frestað
til kl. 10, ef Robert Fischer verð
ur kominn.
Setningin hefs<t með því, að
leikinm verður óður Alþjóða-
skáksambandsins, en síðan flyfiur
Guðmundur G. Þórarin.sson stutt
ávarp. Þá flytja ávörp memnta-
málaráðherra, Magnús Torfi Ól-
afsson, borgarstjórinn í Reykja-
vík, Geir Hallgrimssqn, og síðam
flytur ávarp sendiherra Sovét-
ríikjamna, en á eftir verður leik-
inn þjóðsöngur Sovétrikjanna.
Þá flytur ávarp sendifuitrúi
Randaríkjanna og leikdnn verður
bandarísiki þjóðsönguonn. Að
lokum flytur dr. Max Euwe, for-
seti Alþjóðaskáksanabandsins á-
varp og dregið verður um liti,
það er að segja, hvor keppand-
inn eigi að byrja með hvítf, ef
báðir keppendur verða komnir.
Síðan verður leifcimn ísl. þjóð-
sömgurinn.
Að þessu búnu hefur mennta-
málaráðherra boð fyrir gesti ein-
vígsins í Leiikhúsikjallaranum.
Af hálfú skáksantbandsstjóm-
arinnar — er tálið, að Fisdher
muni mæta tii einvigisins, en
óliíklegt er, að hann ferðist miOi
landa á morgun, en þá er hvíld-
ardagur hans (sabbatih) sem
hann virðir mjög stranglega.
Andrew Davis, lögfræðingur
Fischers kom í gær til viðræðna
við ísl. skáksambandið og er enn
ágreinimgur um nokfcur atriði,
enda þótt nokkur árangur hafi
orðið af komu Davis.
Unnið hefur verið af kappi að
lokaundirbúnimgi Laugardalshali
arinnar síðustu daga. Það, sem
valdið hefur mestum áhyggjum,
er hljómburðurinn í höliinni, en
nú hefur verið tekin ákvörðun
um að teppaleggja salinn og er
því verki nær lokið. Jafnframt
hafa verið gerðar ráðstafanir til
að fá betri stóla. Ég geri mér
vonir um að undirbúningurinn
sé alveg á lokastigi, sagði Guð-
mundur G. Þórarinsson, forseti
Skáksambandsins í gær.
Blaðatfulltrúi skáksamibands-
ins skýrði frá þvi, að geíin hefðu
verið út um 50 skirteini tii frétta
manna vegna eimvígisins. Hefðu
þeir allir nema einn undirritað
yfirlýsimgu um, að þeir mymdu
ekki brjóta það fyrirkomulag á
fréttaflutningi frá Laugardals-
höil, sem Skáksamband Islands
hefur ákveðið að eigi að vera. —
Einn blaðamaður hefði borið
fram mótmæli um leið og hann
skrifaði undir framangreinda yf
irlýsingu.
Þá skýrði biaðafuilltrúinn frá
því, að dr. Max Euwe væri vænt
anilegur hingað tii lands síðdegis
í dag.
Raf virk j a verkf allid:
Ekki horf ur á samkomu-
lagi um helgina
- byggingafyrirtæki reyna að kom-
ast hjá uppsögnum starfsmanna
FUNDUR sáttasemjara með full-
trúum rafvirkjasvelna og raf-
virkjameistara stóð frá kl. 17 í
fyrradag til kl. 4:30 í gærmorg-
un, eða f 11V£ kliikkustund, en
samkomulag náðist ekki. „Það
fór allt í strand,“ sagði etnn
fulitrúi rafvirkjasveina í viðtaU
við Mbl. i gær, og taldi hann
ekki horfur á að samkomulag
næðist nm helgina. Nýr samn-
ingafundur hefur ekki verið
boðaður.
Morgunblaðið hafði í gær sam
band við tvö byggingafyrirtæki,
Breiðhodt hf. og Miðás sí., sem
bæði eni með byggingafram
kvæmdir í Breiðholti. Björn Em-
ilsson hjá Breiðholti sagði, að
steypuvinna hjá fyrirtækinu
hefði stöðvazt strax á fyrsta
degi. Unnið væri með sérstök
stálmót og steyptar upp þrjár
ibúðir á dag, en hefði verið ætl-
unin að steypa upp 200 ibúðir í
sumar fyrir Framkvæmdanefnd
byggingaáætlunar. „En það hef-
ur þegar tafizt talsvert og vor-
um við þó í mikiili tímapressu
fyrir, því að áættunin um þess-
ar framfcvæmdir var mjög stíf
og við áttum að atfhenda fyrstu
íbúðimar í desember nk.,“ sagði
Bjöm.
Hjá Breiðholti hf. hafa að und-
anförnu starfað um 200 manns,
þar af um 40 skólastrákar, og
sagði Björn, að eí ekfcert gerðist
í verkfailsmálinu um helgina,
yrði að taka um það ákvörðun
eftir helgina, hvenœr segja ætti
upp þessum skólastrákum. Hinir
starfsmennimir hafa allir unnið
hjá Breiðholti allt árið um kring.
„Frá því að verkfallið hófst hef-
ur hetoningur starfsmanna okk-
ar unnið með háltfum afköst-
um,“ sagði Bjarni ennfremur.
Björn L. SigurSsson hjá Mið-
ási sf. sagði, að enn sem komið
væri hefði verkfaMið ekki hiaft
mikil áhritf á byggingarfram-
kvæmdir fyrirtækisins og í fljótu
Framh. á bls. 20
Stórþota með
brotna framrúðu
BOEING 747-þota frá Air France
tilkynnti í gærkvöldi lendingu á
Keflavíkurflugvelld laust fyrir
kl. 22, þar sem hún væri með
brotna framrúðu, en skömmu
síðar kom önnur tiilikynnmg frá
þotunni um að hún væri hætt
við lendingu, þar eð hún gæti
hvort eð ekki fengið við-
gerð í Keflavík. Boeing 747-þot-
ur eru þær stærstu í farþega-
flugi í heiminum, flytja hátt á
fjórða hundrað farþega.
Bárðarbunga;
í sk j ar narnir
til byggða
— svo að þeir bráðni ekki
VÍSINDAMENN á Bárðar-
bungu þora nú varia að bíða
lengur með að koma ískjörn-
um þeim, sem þeir hafa náð
upp úr jöklintim, til byggða
og í frystihús, því frost fer
minnkandi á Bárðarbungu. —
Hefnr kuldinn farið upp nnd
ir frostmark.
Ætlunin var að reyna að
láta flugvél lenda á Bárðar-
bungu og flytja iskjarnana
til byggða. Var einu sinni
lent til reynslu með fólk á
jöklinum og tókst, en vélin
þurfti langa braut til að ná
sér upp aftur, því loft er
þunnt í svo mikiili hæð, og
skilyrði hafa versnað. Alltaf
snjóar þarna á Bárðarbungu,
sem er í um 2000 metra hæð.
Um helgina fara menn úr
Jöklarannsóknafélaginu inn á
Vatnajökul og leiðangurs-
menn á Bárðarbungu koma á
móti þeim, með ískjarnana á
sleða aftan í snjóbil. — Taka
þeir við sleðanum og fara
með hann aftan í öðrum
snjóbíl að jökulrönd, þar sem
ætlunin er að hafa bíl með
frystigeymslu. Kjamarnir,
sem eru dýrmætir fyrir lofts
lagsrannsóknir og ná aftur
fyrir 18. öld, eru í plastein-
angruðum umbúðum. Hefur
leiðangurinn borað á þriðja
hundrað metra niður og náð
upp ískjörnum til rannsókna.
Verður haldið áfram borun-
Bobby Fischer snýst á hæl og flýr undan fréttamönnum í gegn
nm biðsal flugstöðvarbyggingarinnar á Kennedyflugvelii síðast-
liðið fimmtndagskvöld. — Sjá frásögn á bls. 3. —
Kvikmyndun Brekkukotsannáls:
Leikstjórinn
kemur í dag
— gengið frá ráðningu í
hlutverk eftir helgina
ÞÝZKI leikstjórinn Rolf Haid-
rich, sem mun stjórna kvikmynd-
un Brekkukotsannáls, er væntan-
legur til landsins í dag og með
honum kvikmyndatökumaðurinn
og annar tveggja framkvæmda-
stjóra við gerð myndarinnar.
Munu þessir aðilar eiga fund
með ísl. samstarfsmönnnm
síniim um gerð myndarinnar á
mánudagsmorgiin, og verður þá
væntanlega gengið frá ráðningu
leikara í hlutverk, að sögn
Sveins Einarssonar, leikhús-
stjóra.
„Það hefur þegar verið unnin
geysimikil undirbúningisvinna,"
sagði Sveinn í viðtaii við Mbl. í
gær, „en á mánudaiginn hefj'uan
við nákvæman undirbúninig. Þa@
er m.a. búið að lieggja drög að
öllum sviðsmynduim, og hetfar
Björn Björnsison, leikmynda-
teiknari Sjónvarpsins, haft yfir-
umsjón með því verki. M.a. er
búið að reisa Brekkukot suður í
Garði og margt annað er komið
vel á veig. Baldvin Halldórsson
hefur prófað fjölmörig börm og
unglinga i hliutverk un.ga tfólks-
ins í myndinni og voru kvik-
myndir af prófunum sendar til
Haidrichs fyrir nokkru. Þá hef-
ur það verið orðað við ýmsa ís-
lenzka Leikara að þeir tækju að
sér hliuitverk í myndinini."
Að sögn Sveims stóð til að
hefja kvikmyndunina seinini
hliuta júlímánaðar, en nú er ljóst
að það mun dragast í nokkra
daga. Kvifcmyndahandritið er
þegar tilbúið fyrir töku mynd-
arinnar.
E1 Grillo:
Viðræður
í London
HAFNAR eru í London við-
ræður milli fnlltrúa íslenzka
sendiráðsins í London og
brezka iitanríkisráðuneytisins
um að Bretar sendi hingað til
iands sérfræðinga til að kanna
flak skipsins EI Grillo á botni
Seyðisfjarðar og farm þess,
að sögn Hjálmars Bárðarson-
ar, sigiingamálastjóra.
„Mér virðist sem Bretarniir
hafi hug á að eiga við okkur
Framh. á bls. 20