Morgunblaðið - 04.07.1972, Síða 17

Morgunblaðið - 04.07.1972, Síða 17
 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1972 17 •»i; iili '*» 1 ••!|JI|||| 1 ••m 'iii""iii||jj lllliii 1 0 |f umhverfí manns áiifí Hákon Bjarnason; Herf erðir mannsins á hend- ur náttúrunni unnar um svipað leyti og spendýr- in, hefur þróun spendýra í lofti orð- ið endaslepp. í einum þáttanna um fólk og vís- indi benti Baldur Hermannsson á, að margt sé líkt með skyldum, sauð- kindinni og manninum. Þetta gaf mér ástæðu til að hugleiða þann þátt þróunar lífs á jörðinni, sem ef til vill skýrir að nokkru hið tillits- lausa og ruddalega athæfi mannkyns ins gagnvart öðrum lifandi verum hér á jarðríki. Fyrir nokkur hundruð milljónum ára, löngu áður en sauður og maður sáu dagsins ljós, báru skriðdýrin höfuð og herðar yfir aðrar lifandi verur. Meðal þeirra voru stærstu landdýr, sem nokkurntíma hafa lifað á jörðinni, og greindist þessi dýra- flokkur í ótal ættir og ættkvislir. Stærstu dýrin voru plöntuætur, en á meðal þeirra voru einnig rándýr, sem voru minni vaxtar, og margar tegundir höfðust við í sjó og vötn- um en aðrar svifu um loftin eins og fuglar. Tóku dýrin á sig ýmis konar líkamslögun, hliðstæða því, sem nú er meðal fugla og spendýra. Þessi mikli dýraflokkur er að mestu horfinn af yfirborði jarð- ar. Eftir eru fátæklegar leifar, krókódílar, eðlur, slöngur og skjald bökur. 1 staðinn komu spendýr og fuglar. Spendýrin haifa grei'nzt í fjöida ættbálka og ótal ættir. Plöntu æturnar eru sennilega flestar, en önnur eru rándýr og alætur eins og sum nagdýr og maðurinn. Fjöldi teg- unda lifir í vatni, rándýr eins og selir og hvalir, jórturdýr eins og sæ kýrnar, en önnur bæði á landi og í vatni, svo sem bjórar og otrar. Leð- urblökurnar fljúga og margar teg- undir geta svifið nokkra leið í lofti. En með því að fuglarnir komu til sög Hákon Bjarnason Þessi dæmi sýna, hvernig spendýraflokkarnir aðlaga sig um- hverfinu og þróast i ýmsar áttir eft- ir því, hver lífsskilyrðin eru. Enn- fremur má greina slika tilhneigingu meðal fuglanna, þvi til eru tegund- ir, sem lifa eingöngu í og á sjó nema um varptímann, og aðrir hafa misst hæfileika til flugs en tekið upp háttu landdýra. Þetta, sem nú hefur nefnt verið, kallast samsíða þróun, og að því, er ég bezt veit, mun bandaríski dýra- fræðingurinn Henry Fairfield Osborne hafa einna fyrstur manna bent á þetta fyrirbrigði um og eftir síðustu aldamót. Þá var um hálf öld liðin frá því að Darwin setti fram þróunarkenningu sína, og hafði hún tæpast rutt gömlum fordómum úr vegi, þegar menn fóru að leiða hug- ann að þessu einkennilega fyrir- brigði. Orsakir þessa fvrirbæris, hinn- ar samsíða þróunar, eru skýrðar á ýmsa vegu, og greinir menn á um ýmislegt í því sambandi. En það get- ur ekki verið einberri tilviljun háð að hvalir taka á srg liki fiska, þegar þeir taka upp lifnaðarhætti sjávar- dýra, og það er varla heldur tilvilj- Framhald á bls. 20 i •: v JíeUrJIotkSime$ >*,4iiws\ * Herinn hefur falsað upplýsingar um loftárásir á Norður - Vietnam Eftir Seymour M. Hersh (Washington). - Talsverð- ur fjöldi ljósniyndasérfræð- inga bandariska flughersins en þeir eiga mikinn þátt í vali skotmarka og mati * árangri fyrri árása, halda því fram að herinn hafi hvað eftir annað ýkt eða rangfært árangur loftárásanna á Norð- ur-Víetnam. Meir en tylft manna sem áður voru sérfræðingar leyni þjónustunnar í þessum mál- um og The New York Times átti viðtöil við fyrir skömmu staðhæifðu undantekning- arlaust að miðstöðvar leyni- þjónustunnar í Thailandi, Suður Víetnam, og við aðal- stöðvar Kyrrahafs'flugflotans í Honoiulu, gæfu út stöðug- ar rangfærðar yfirlýsimgar um loftáráisi rnar. Bradley V. Ocanber frá Honolulu, fyrrum liðsforingi sem gekk úr flughernum í maí eftir að hafa verið ljós- myndasérfræðingur við Kyrrahafsherstjórnina, sagði frá árás þar sem fimm eða sex herflugvéiar vörpuðu ár- angurslaust a.m.k. 50 sprengj um á flutningabíi, sem síðan var tilkynnt um að hefði ver- ið eyðilagður. „Hið sanna er að bifreiðin hafði staðið þarna yfirgefin i sex vikur sagði Ocanber. ,,Ég fór aftur yfir könnun- arfilmur okkar og fann hann æ ofan i æ.“ Michael A. Lewis, fyrrum liðsforingi sem var ljósmynda sénfræðingur í höfuðstöðvum Sjötta Fiugflotans í Saigon, sagði: „Við vorum vanir að blása stöðugt út tölur okkar. Við vissum að þær voru ekki réttar, en okkur stóð nákvæm lega á sama.“ Lewis er nú stúdent við Háskólann í Mic- higan: „Yfirumsjónim var meimgöinuð. Majorimm og of- urstinm nenntu aldrei að fylgjast með okkur og ganga úr skugga um að við stæðum vel að verki, bætti hann við.“ Það voru liðsforinginn og at- vinnuhermenmimir sem áttu að hafa eftirlit með okkur, en þeir höfðu meiri áhuga á mannvirðingum og skipulagn ingu en þeim upplýsingum sem við sendum frá okkur.“ Annar fyrrverandi leyni- þjónustusérfræðingur sagði (og lýsing hans var síðar staðfest af tveimur fyrrver- andi starfsbræðrum hans) frá þvi er hann sá sundur- sprengda kirkju inni í miðju þorpi sem sveit hans frá Ud- °n flugstöðinni í Thailandi hafði gert árás á: „Ég gat séð hunda, vísunda og geit- ur,“ sagði þessi ungi maður sem á einn mánuð eftir af virkri herþjónustu, en hann óskaði eftir að nafni hans væri haldið leyndu. „Flest af fólkinu var farið og reykur- inn stóð upp úr kirkjunni. Ég var ævareiður, en yfir- foringinn bannaði að til- kynnt væri um að varpað hefði verið á þorp. Harnn hagaði yfirlýsingunni þannig að svo virtist sem um birgða- svæði væri að ræða.“ Alvin R. Knoblock, áður liðsforingi, frá Birmingham, Michigan, sem var í 432. leyniþjónustusveitinni í Udon, sagði einnig frá tilvik- um er hann og aðrir ljós- myndasérfræðingar töldu sig finna skriðdreka Norður Vi- etnama á könnunarfUmunum. „Þetta var talsvert mikil- vægt,“ sagði Knoblock, „en því var stungið undir stól á höfuðstöðvunum. „Þar eð þessar meintu uppgötvanir um skriðdreka fengust ekki staðfestar, var álitið ekki sent til hærri staða. „Yf- ii-mennirnir voru vanir að segja að það ylli of miklu írafári og að við myndum þurfa að gera aukaeintök aí filmunum," sagði Knoblock ennfremur. í viðtölum sem síðar hafa átt sér stað við nokkra hátt- setta embættismenn ríkis- stjórnarinnar — þ. á m. menn sem voru I lykilstöðum í Hvita húsinu bæði í tið Johnsons og Nixons hafa þeir viðurkennt að þeir höfðu ver ið mjög tortryggnir um áreið- anleika skýrslnanna um loft- árásirnar. „Þær voru ailar ákaflega slæmar,“ sagði f.vrrverandi lykilmaðurinn. „Við vorum alltaf mjög tortryggnir i garð ailra skýrslnanna. Tölurnar voru afleitar. Kissinger vissi þetta eins vel og hver ann- ar,“ sagði hann og átti þar við Henry Kissinger aðalráð- gjafa Nixons í öryggismálum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.