Morgunblaðið - 07.07.1972, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.07.1972, Blaðsíða 4
4 MÖRGUN'BLAÐIÐ, FÖSTUDAGUIR 7. JÚLl 1972 ® 22-0*22- RAUDARÁRSTÍG 31 ------—-------/ 14444 *• 25555 14444-2^25555 BÍLALEIGA ’ CAR RENTAL n 21190 21188 BILALEIGAN AKBllAUT 8-23-47 sendum Bíla- báta- og verðbréfasalan við Miklatorg. Simar: 18677 — 18675. Við seljum VÖRUBÍLA FÓLKSBÍLA DRÁTTARVÉLAR. Miðstöð vörubílanna er: Bila-. báta- og verðbréfasalan við Miklatorg. Símar: 18677 — 18675. FERÐABlLAR HF. Bílaleiga — simi 81260. Tveggja manna Citroen Mehary. Fimm manna Citnoen G. S. 8—22 manna Mercedes-Benz hópferðabílar (m. bílstjórum). SKODA EYÐIR MINNA. Shodh LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. STAKSTEINAR Sameining úr sögunni Bæði fyrir og eftir Aljiing- iskosningarnar í fyrrasumar spunnust miklar umræður um sameiningarhugleiðingar hinna svonefndu vinstri flokka. Fagurgalinn, sem fram kom í þessum umræð- um, hefur ugglaust haft tölu- verð áhrif á úrslit kosning- anna. Ýmsir hafa t.a.m. trúað því, að upp væri að rísa nýtt afl á vinstra kanti stjórnmál- anna, sem gæti tekið með festu á viðfangsefnunum. Áð- ur hafði reynslan sýnt, að Jtessir fiokkar gátu ekki starfað saman vegna sundur- lausra skoðana, tortryggni og persónulegra deilna einstakra forystumanna. Þau nýju við- horf, sem Iwiðuð voru i sam- einingarumræðiinum, hafa ugglaust fengið margan manninn tii þess að trúa hinu gagnstæða. Fyrst eftir kosningarnar í júni i fyrra lýsti sigurvegar- inn, Hannibal Valdimarsson, yfir þvi, að kosningaúrsiitin ætti að nota til þess að knýja á iim sameiningu jafnaðar- manna og samvinnumanna í einum stjórnmáiaflokki. Flokksþing Framsóknarflokks ins hafði áður tekið vel undir Jwssar hugmyndir; að visu með Ioðnu orðalagi, sem opið var í báða enda. Alþýðu- flokkurinn lagði síðan til, að stofnsett yrði sérstakt sam- einingarráð þessara flokka. Eftir að kosningarnar voru afstaðnar og ný ríkisstjórn mynduð, hafa Jæssar hugleið- ingar smám saman verið að f jara út. Þegar í júlí á fyrra ári lýsti formaður Alþýðu- flokksins, dr. Gylfi Þ. Gísla- son, yfir því, að ekki væri unnt að búast við sameiningu meðan stjórn og stjórnarand- stöðu væri eins háttað og nú. Ráðamenn Framsóknar- flokksins hafa í vor látið ótví- rætt í ljós, að sameiningar- hugleiðingarnar séu hrein fjarstæða. Þeir gefa um leið í skyn, að samstarf í rikis- stjórn sé ærið nóg í þessum efnum. Óheilindi Samtök frjálslyndra og vinstri manna voru stofnuð á sinum tima, að þvi er virtist fyrst og fremst tU þess að sameina jafnaðarmenn i einn ftokk. Formaður samtakanna sagði í fyrrasumar, að kosn- ingaúrslitin sönnuðu stuðning við þessa stefnu. Nú hefur blaðinu einnig verið snúið við á þessum vig- stöðvum. Nýtt land segir fyr- ir skömmu, að einhliða sam- eining SFV og Alþýðuflokks- ins nú væri mjög varhuga- verð. Fjögur atriði eru dreg- in fram Jiessu til stuðnings. í fyrsta lagi segir blaðið, að sameiningin „væri likleg til að tef ja eða eyða hugrsjóninni um víðtæka stefnu". I öðru lagi segir, að „hún gæti vald- ið örðugleikum við áfram- haldandi stjórnarsamstarf vinstriflokkanna — vegna mis- munandi afstöðu SFV og Al- þýðuflokksins til ríkisstjórn- arinnar". Þá segir Nýtt land, að „vafalaust yrði stefnusam- bræðsla þessara tveggja flokka ekki nægilega róttæk og fersk til að obbinn af is- lenzkum jafnaðarmönnum gæti fylkt liði um hana.“ Síð- an segir blaðið: „Við því má búast, að forysturnar vinni ekki báðar að fullkomnum heilindum, heldur jafnframt, eða fyrst og fremst til að tryggja aðstöðu fámennra skoðana- eða valdahópa." Loks segir: „Ekki hefur ver- ið nægilega kannað, hvort fólkið í landinu, — væntan- legir kjósendur nýs flokks, — óski eftir sameiningu SFV og Alþýðuflokksins að svo stöddu." Eftir eins árs samstarf i ríkisstjórn er óeiningin orðin svo mögnuð, að ekki Jiyklr tækt að halda sameiningar- talinu lengur áfram. Fram- sóknarflokkurinn telur stefnu stjórnarinnar ágæta; Alþýðu- bandalagið krefst hins vegar nýrrar efnahagsstefnu, og Samtök frjálslyndra og vinstri manna heimta, að stjórnin hverfi af Jwirri braut, sem hún er nú á og láti af undan- látssemi sinni t verðlagsmál- uniim. Til Túnis á vængjum • • Kór Oldutúnsskólans kemur fram á þingi alþjóöasamtaka tónlistarkennara UNGT fólk setur svip sinn á Norræna húsið Jiessa dagana, því þar stendur nú yfir sýning á teikningum íslenzkra barna og á morgun, laugardag ætla ungar hafnfirzkar stúlkur að syngja þar íslenzk og erlend lög. Stúlkurnar, sem eru 12 að tölu eru allar í kór Öldutúns- skólans og eru þær á fiiriim til Túnis, Jiar sem þær ætla að syngja fyrir þátttakendur í þingi aljijóðasamtaka tónlist- aruppalenda. Samtökin eru deild innan UNESCO, menn- ingar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna og eiga flest Iönd S. Þ. aðild að sam- tökunum. Mót samtakanna eru haldin annað hvert ár og var það síð- asta haldið í Moskvu árið 1970, þar sem þátbtakendu r skiptu þúsundttm er með var talið allt það unga fólk sem þangað kom til þess að Skemmta mótsgestuim með kórsöng, einsöng, hljómsveit- arleik, einleik, dansi og öðrum greinuim, sem tengdar eru tón- listinni. Aðdragandinn að því að kór Öldutúnsskólans gafst kosbur á því að koma fram í Túnis má rekja aftur ti'l ársins 1970 er kórinn tók í annað skipti þátt í barnakórakeppni á veg- um útvarpsstöðva Norður- landa. Dagskrá keppninnar söngsins var tekin upp og hefur síðan verið útvarpað víða um heim, tiil dæmis í Japan og á Filipps- eyjum. — Þannig hljóta forráða- menn þessara alþjóðasamtaka að hafa frétt af oktour, þvi vorið 1971 bárust okkiur þær fréttir að ökkur stæði tiá boða að koma og syngja á næsta móti samtakanna, sem haldið verður í Túnis dagana 13.—20. júití, sagði söngstjórinin Egill R. Friðleifsson er við lituim inn á æfingu hjá kórnum í Norræna húsinu. — Sjálfur hafði ég sótt þinig samtákanna í Mostkvu, sagði Egill, og gerði mér gretn fyrir því hve mi'kiil heiður kómum var sýndiur með þessu og einnig hve lær- dómsrítot þetta myndi verða. Síðastliðið haust var síðan farið að afihu'ga möguleika á þábttöku og ákvörðun tekin Framhald á bls. 22 Ungu hafnfirzku stiílkurnar æfa nú af kappi fyrir Túnisferðina J»ví þær vilja verða landi sínu til sóma og efar enginn að svo verður. Ljósm. Sv. Þ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.