Morgunblaðið - 07.07.1972, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1972
Lúðrasveit Reykjavíkur 50 ára
Sveitin fer til Kanada í ágúst
f DAG, 7. júlí, er Lúðrasveit
Reykjavíkur 50 ára. Til
sveitarinnar var stofnað með
sameiningu tveggja lúðra-
félaga í Reykjavík, Hörpu og
Gígju. Fyrsti stjórnandi
iúðrasveitarinnar var þýzki
hornleikarinn Otto Bötcher, en
stofnfélagar voru 31. Bötcher
stjórnaði sveitinni í ^ tvö ár,
en þá tók dr. Páll fsólfsson
við. Aðrir stjórnendur hafa
verið: Dr. Franz Mixa, Karl
O. Runólfsson, Albert Klahn
og Páll Pampichler Pálsson
frá árinu 1949.
Lúðrasveitarmenn hafa á
þessum 50 árum unnið mikið
að málefnum tónlistarinmar
á íslandi. Hljómskálann
byggðu þeir og var honum
fulllokið 1923. Þeir áttu þátt
í stofnun tónlistarskólans,
sem starfaði í Hljómskálan-
um í 15 ár, og hafa verið
starfandi í Tónlistarfélaginu
og Sinfóníuhijómisveit ís-
lands.
Lúðrasveit Reykjavíkur
hefur komið fram við ótal
tækifæri í Reykjavík og úti
á landi. Eimnig hefur sveitin
farið til Færeyja. Nú stendur
fyrir dyrum hjá sveitinni
þriggja vikna ferðalag til
Lúðrasveit Reykjavíkur í hljó mskálagarðiniuu ásamt stjórnandanum, Páli Pampichler Pálssyni.
Núverandi stjóm LúðrasveitarReykjavíkur; f.v.: Ólafur Gisla-
son gjaldkeri, Magnús Sigurjónsson, varaform., Björn R. Einars-
son formaður, Eyjólfur Melsted meðstjórnandi, Eyjólfur Jónas-
son, ritari.
Bandaríkjanna og Kanada og
hefst ferðin í byrjun næsta
mánaðar. Sveitiin mun leika í
byggðum Vestur-íslendinga
og m.a. koma fram á íslend-
ingadeginum 7. ágúst. Til-
gangur fararininar er m.a. sá,
að kynna þjóðhátíðina 1974
meðal Vestur-íslendinga og
nýtur hún til þess fulltingis
þjóðhátíðarnefndar og ann-
arra aðila. Með í förinni verða
26 blásarar auk eiginkvenina
þeirra, alls um 50 manins. GíSli
Guðmundsison hefur skipu-
lagt ferðina og er jafnframt
fararstjóri. Formaður ferða-
mefínidar sveitarinnar er Guð-
mundur Nordal, en núver-
andi formaður Lúðrasveitar
Reykjavíkur er Björn R. Eim-
arsson.
V erksmið j uf r amleiðsla
á húsum á Siglufirði
HCSEININGAR h.f. heitir félags-
skapur, sem stofnaður var á
Siglufirði síðastliðinn sunnudag,
en tilgangur félagsins er að
kanna mögulcika á að verk-
smiðjuframleiða hús. Er vonazt
til að unnt verði að fá húsnæði
Tunnuverksmiðju ríkisins á
Siglufirði undir starfrækslu
verksmiðjunnar, en málið er á
algjöru könnunarstigi enn.
Hafsteinn Ólafsson, stjórnar-
formaður félagsins, tjóði Mbl. í
gær að félag þetta nyti mikils
óhuga Siglfirðinga, en þar eð lik-
ur bentu til að þörfin fyrir tunn-
ur mirmkaði hefðu menn velt fyr
ir sér þeim möguleika, að unnt
yrði að nýta húsnæði Tunnu-
verksmiðjunnar undir verk-
smiðjuframleiðslu ó hús'um.
Enn hefur fjöldi hiiuthafa ekki
verið ókveðinn, en líkur benda
til þess að þeir verði 10 eða 15.
Fjölbreyttar skemmti-
ferðir frá Akureyri
FERÐASKRIFSTOFAN, Akur-
eyri, efnir í sumar til fjölmargra
skemmtiferða um Norðurland
fyrir einstaklinga og hópa og
verður meðal aninars farið dag-
lega til Mývatns og er þar sér-
stakur leiðsögumaður með i
ferðinni. Af öðrum ferðum má
nefna flugferð yfir Öskjusvæð-
ið, skipsferðir til Grimáeyjar og
Hríseyjar, sjóstangaveiði á Eyja-
firði og miðnætursólarflug, en
alls efnir ferðaskrifstofan til
ferða til 16 mismunandi staða.
í fi’éttatilkynningu frá ferða-
skrifstofunni er á það bent að
hún sé eina ferðaskrifstofan ut-
an Reykjavíkur sem starfi með
fullum réttindum og selur hún
farseðla út um allan heim, hef-
ur viðskipti við erlendar ferða-
skrifstofur, skipuleggur ferðir
fyrir einstaklinga og hópa og
annast afgreiðslu fyrir alla sér-
leyfishafa á leiðum til og frá
Akureyri. Sérleyfisafgreiðslan
er sem fyrr í húsnæði skrifstof-
unnar við Strandgötu en á
Brekkugötu 4 hefur skrifstof-
an nýlega opnað sérstaka deild
sem sér um sölu á farmiðum til
útlanda og i skipulagðar ferðir
innanlands.
Stjórn KÍ kosin
AÐALFUNDUR Kirkjukórasam-
bands Islands var haldinn í 1.
kennsliistofu háskólans 21. jiiní
sl. FTindinn sátu 17 fulltriiar frá
15 kirkjukórasaniböndiini, auk
söngniálastjóra Þjóðkirkjunnar,
Róberts A. Ottóssonar, og aðal-
stjórnar K. 1.
í skýrslu formanns, Jóns Is-
leisfssomar, kom fram, að 6 tón-
listarleiðbeinendur heíðu starfað
á vegum sambfmdsins sl. starfs-
ár í 4 kirkju'kórasamibönd'um.
Þrjú sambönd efndu til söngmóta
á árinu, þ. e. Árnes-, Borgar-
fjai’ðar- og Þingeyjarpiófasts-
dæmi. Auk þess hafa fjölmargir
kii'kjukórar staðið fyrir samsöng
og kirkjukvölduim í sínum byggð-
arlögum.
Á þessu starfsáx'i var gengið
endanlega frá aðild Kirkjukóra-
sambands íslands að Sambandi
noirænna kirkjutónlistarmanna.
Stjóm K. í. skipa nú: Formað-
ur Jón Isleifsson, organleikari
Reykjavík, ritari frú Hrefna
Tynes, Reykjavík, gjaldkeri
Finnur Ámason, íulltrúi, Hafn-
arfirði, séra Siigurður Kristjáns-
son, Isafirði, Jakob Tryggvason,
organleikari, Akureyri, séra Ein-
ar Þór Þorsteinsson, Eiðum, og
Eiríkur ísaksson, fulltrúi, Rauða-
læk RangárvaMasýslu.
(Frá Kirkjukórasambandi
Islands.)