Morgunblaðið - 07.07.1972, Side 11
MORGUIfpLAÐIÐ, FÖSTUOAGUH 7,. JÚ-U 1972
II
Rotary-þing
að Laugarvatni
Rotary-klúbbarnir beita sér
fyrir því að merkja og skýra
sögustaði og aðra merkisstaði
Grein um haf rannsókn
ir við ísland í Oceans
ISLENZKU Rótarýklúbbamir
héldu árlegt umdæmisþlng sitt á
Laugarvatni 23.—24. júní og
sátu það um 180 manns. Klúbb-
amir eru 22 viðs vegar um land
með nær 900 félögum. Umdæm-
isstjóri 1. ár hefur verið Vil-
hjálmur Þ. Gislason, en nú tek-
ur við Ólafur Guðmundsson,
bankastjóri í Stykkishólmi. Er
hamn nýkominn af alþjóðafundi
Rótarý í Lake Placid og Houst-
on. Rótarý er alþjóðafélagsskap-
ur, sem starfar i 149 löndum.
Á Laugarvatnsfundinum var
Leif Thielén frá Sviþjóð fulltrúi
forseta alþjóðasambandsins og
voru ltona hans og dóttir hér
með honum.
Þetta var 25. þing íslenzka um-
dæmisins, en fyrsti Rótarýkiúbb-
urinn var stofnaður i Reykjavík
1934, en tilheyrði framan af
dönsku umdæmi. Enn em í
Reykjavíkurklúbbnum 4 elí stofn
endum hans: Ásgeir Ásgeiirsson,
fyrrv. forseti, Benedikt Gröndal,
verkfræðingur, Lúðvíg Storr, að-
alræðismaður og Tómas Tómas-
son, forstjóri.
1 skýrslu sinni rakíti Viihjálm-
ur Þ. Gíslason hag og störf ís-
lenzku klúbbzLnna. Ákvörðun var
tekin um merkileg framtiðar-
verkefni, sem lýst var í þremur
athyglisverðum erindum um
„Að þekkja landið sitt og sögu
þess“. ’ Erindin fluttu Baldvin
Tryggvason, forstjóri, Sigurður
Jóhannsson, vegamálastjóri, og
Þór Magnússon, þjóðminjavörð-
ur. Ætlun Rótarýklúbbanna er
sú, að beita sér fyrir öflugri
starfsemi að þvi að kynna
merka og fagra staði og sögu-
staði og merkja þá til leiðbein-
inga og upplýsinga fyrir ferða-
rnenn. Á þessu er nú mikil þörf
og mundi verða til mikils hag-
ræðis þeim, sem um landið fara
og til þekkingarauka. Sértök
nefnd starfar að þessu á vegum
Rótarý i samvirmu við þjóð-
mSnjavörð, sem heitið hefur að-
stoð sinni.
Frjósamar ær
hjá frumbýlingi
BÚNAÐARRITIÐ Freyr seg-
ir frá frumbýUngi að nafni
Ármann Rögnvaldsson, sem
nýlega hefur hafið búskap á
Syðri-Haga við Eyjafjörð, en
blaðið átti við hann tal I
síðustu viku maímánaðar í
tilefni þess, að ær hans höfðu
reynzt mjög frjósamar. Af 59
fullorðnum ám voru þá flest-
ar bomar og að meðaltali tvö
lömb á hverja á. Af 12 vetur-
gömlum voru þá 9 bornar og
þar af þrjár tvílembdar.
Ekki kvaðst Ármann hafa
notað frjósemislyf handa án-
um og mundi aldrei gera það.
Hins vegar fóðraði hann þær
vel i vetur og hóf fengifóðr-
un 5. desember með töðugjöf
og fóðurblöndu og hélt henni
áfram allan femgitímann.
Ármann er í fjárræktar-
félagi með þátttöku allra
ánna, en ekki bara þeirra
beztu, eins og ýmsum er tamt.
Það getur varla orkað tvi-
mælis, að þessum bónda tekst
að fá 50% meiri afurðir eftir
ána en landsmeðaltalið er og
sýna þannig og sanina, að
auðvelt er að auka afurðim-
ar verulega frá þvi sem nú
gerist. Hvort það er munur
eða þar sem varla er eitt
lamb á hverja á, segir i Frey.
Þetta er umfangsmesta verk-
efni Rótarý hér á næstu árum,
en í yfirliti sánu um síðasta
starfsár nefndi Vilhjálmur Þ.
Gíslason meðal verkefna klúbb-
anna á ýmsum stöðum á liðnu
ári: Fegrunar- og skipulagsmál,
ræktunarmál, iþróttamál, gerð
skautasvells, skógrækt, veitingu
námsstyrkja og ferðir utanlands
og innan, stofnun leikfélags,
náttúmvemd, starfrækslu blóð-
gjaíasveita, bókagjafir í söfn og
skóla, listsýningar, vemdun eða
endurnýjun mannvirkja, s.s. út-
sýnisskifur, eyktamörk, rann-
sóknir og vemdun fomminja,
kirkna og kirkjugarða og loks
framlög i ýmsar safnanir og
sjóði utan Rótarýklúbbanna.
Sumt af þessu hefur farið fram
á vegum klúbbanna sjálfra, en
Einnað einnig í SEunvinnu við
aðra aðila.
1 klúbbunum fer eirmig fram
mikið fyrirlestra- og fræðslu-
starf um innlend og erlend mál,
þjóðmál og visindi og fræðsla
um störf og stefnu Rótarýklúbb-
anna. Á sumum stöðum hafa
klúbbamir rekið starfsfræðslu i
samvinnu við skóla og margir
þeirra halda uppi starfsemi fyr-
ir gamalt fól'k og nokkurri
æskulýðsstarfsemá.
Á vegúm Rótarý er öflugUr
alþjóðlegur námsstyrkjasjóður,
Rotary Foundation, sem ýmsir
Islendingar hafa einnig notið
góðs af og félagsskapurinn gef-
ur út ýmis tímarit.
í HINU kunna tímariti Oceans
birtist nýlaga mjög skemmtileg
grein eftir Daniel Behrman um
rannsóknaferð, sem hann fór
með Bljaima Sæmundsisyni við
strendur íslands. Er greinin löng
og ítarleg og skreytt skemmtileg
um teikningum eftir John Daw-
son.
Greinin nefnist „Cruise B-5-71“
og með fyrirsögninm segir til
skýringar. — Þessir tvö hundruð
þúsund ísLendingar lifa við beztu
kjör í Evrópu og mega þakka það
hafinu kringum landið og nokkr
um haffræðingum sínum. Hefur
höfundur kynnzt Unnsteini Stef
ánssyni, haffræðingi, sem nú er
hjá UNESCO í Paris, og þessari
rannsóknarför með Bjama Sæ-
mundssyni stjórnar Svend Aage
Malmherg, haffræðingiur, siem
höfundur vitnar mikið í og er
sýniiiega hrifinn af. Skipstjóri er .
Sæmundur Auðunsison, sem höf-
undur segir að þurfi ekki mæling
ar heldur sjái á litnum hve mikið
lif er í því. Hann lýsir ferðinni
dag fyrir dag og rannsókmuan
öllum og viðkomu skipsins i Vest !
mannaeyjum, þar sem tekin voru
sýni júr höfninni til að rannsaka
mengun i sjávarvatninu. Ferðin
virðist hafa tekið fimm daga og
viðfanigsefnið verið mælingar og
rannsóknir á Faxaflóasvæðinu
og við Suðvesturland.
Höfundur greinarinnar er
BEmdaríkjamaður og starfar hjá
UNESCO í París. Ritíð Oceans
kiemur út sex sinnum á árt og er
mjög vandað.
KNA
Œ
...\-SÍsxW.‘..¥.., StY.ly- c •,
CATHRIMLLAR.CAT og [B cru vörumerki Calerpillar Tractor Co.
CATERPILLAR aflvélar eru fyrir-
ferðarlitlar og léttar, en lítil og létt
aflvél þýðir í rauninni þrennt:
ÓDÝRA OG AUÐVELDA NIÐUR-
SETNINGU.
MUN BETRI AÐSTÖÐU TIL UM-
HIRÐU OG GÆZLU.
AUKIÐ DÝRMÆTT LESTARRÝMI.
Þetta eru þrír af kostum CATER-
PILLAR aflvélanna, en þeir eru að
sjálfsögðu, miklu fleiri. Það er hlut-
verk söludeildar okkar að veita
allar hugsanlegar upplýsingar, svo
frekari upptalning hér er óþörf.
Spyrjið okkur út úr.
HEKLA HF.
Sölumenn okkar eru í síma 21240 og til
viðtals augliti til auglitis að
Laugavegi 170-172.