Morgunblaðið - 07.07.1972, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.07.1972, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1972 Otgeíandi hf Árvakur, Reykjavfk Framkvaamda stjófi Harafdur Svemsson. Rteitjórar Matthlas Johannessen, Eyjóífur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjórí Styrmir Gurmarsson. RrtS'tjornarfull'trúi Þorbijöm Guðmundsson Fróttastjóri Ðjörn Jóhannsson Auafýsingastjðri Árni Garðar Kristinsspn. Ritstjórn og afgreiðsla Aðafstræti 6, sfmi 1Ó-100. Aug’ýsinga.r Aðatetrseti 6, sfrni 22-4-60 Áskrrftargjald 226,00 kr á vnórtuði innanlands ! teusasöfu 15,00 ikr eirvtekið 95 LEIÐIR AÐ LOKUM TIL GENGISFELLIN GAR“ Tffækkun framfærsluvísitöl- unnar um hvorki meira né minna en 8,5% 1. maí sl. og fyrirsjáanleg hækkun hennar um 5—6% til viðbót- ar 1. ágúst nk. og raunar mun meira, ef rétt væri reiknað, eru þær dapurlegu stað- reyndir, sem menn verða að horfast í augu við í sambandi við verðbólguþróunina. Þessi mynd er enn ömurlegri, þeg- ar jafnframt er haft í huga, að eftir áfallaárin 1967 og 1968 hafði jafnt og þétt mið- að í jafnvægisátt í íslenzku efnahagslífi, fram til þess er stefnu núverandi ríkisstjórn- ar tók að gæta eftir áramót- in. 5. þing Verkamannasam- bands íslands var haldið í maílok. í ályktun þess er m.a. lögð áherzla á, að langtíma- samningar, eins og gerðir voru í desember sl., „reynist því aðeins til hagsbóta og farsældar fyrir vinnustétt- irnar, að stjórnvöld nái fullu valdi á verðlagsþróuninni og takist að hemla þá verð- hækkanaskriðu, sem dunið befur yfir að undanförnu og þingið telur háskalega hags- munum vinnustéttanna, heil- brigðum atvinnurekstri og öllu efnahagskerfi þjóðarinn- ar“. Hér er ekki talað neinni tæpitungu, heldur staðreynd- ir efnahagslífsins viðurkennd ar og um leið undirstrikað, að ef svo fer sem horfir, held- ur kaupmáttur launanna áfram að rýrna, jafnframt því sem stefnt er í algjöra tvísýnu með atvinnuöryggið í landinu. En það var ekki aðeins 5. þing Verkamannasambands íslands, sem kvað hart að orði í maímánuði, eftir að engum gat lengur dulizt, að ný verðbólguskriða hafi dunið yfir með slíkum hraða, að naumast verður til nokk- urs jafnað. I útvarpsumræð- um frá Alþingi 15. maí kvað einn af stjórnarþingmönnun- um svo sterkt að orði, að fari verðþenslan úr hófi fram, „grefur verðbólgan smám saman undan atvinnugrein- unum og leiðir að lokum til gengisfellingar . . Jafn- framt lét þingmaðurinn í ljósi ugg um, að ríkisstjórnin hefði „ekki enn mótað sér nægilega samræmda og skipu lega fjárfestingarpólitík.“ I málgagni forsætisráð- herra hefur verið veitzt að stjórnarandstöðunni fyrir það, að hún geri nýrri geng- isfellingu skóna og grafi þannig undan trausti manna á krónunni. Eins og fram kemur af hinum tilvitnuðu ummælum er vantrú manna á efnahagsstefnu ríkisstjórn- arinnar og óttinn við fyrir- sjáanlegar og ófyrirsjáanleg- ar afleiðingar hennar, engan veginn bundinn við stjórn- arandstöðuna. Þvert á móti gætir vantrúarinnar innst í hugskoti stuðningsmanna rík- isstjórnarinnar á Alþingi. Að ekki sé minnzt á hin fleygu orð forystumanna Kaupfelags Eyfirðinga um „Hrunadans kostnaðarverðbólgu með tap- rekstri fyrirtækja, sem þvi miður hlýtur að leiða til at- vinnusamdráttar, þegar til lengdar lætur“. Nú síðustu daga hefur æ oftar kveðið við þann tón í málgögnum ríkisstjórnarinn- ar, að dýrtíðarráðstafanir séu á næsta leiti og heitið á stuðningsmenn hennar að taka þeim vel. Af skiljanleg- um ástæðum hefur ekki tek- izt að fá upplýst, í hverju þessar ráðstafanir eru fólgn- ar. Það hefur þó mátt lesa það á milli línanna, að einka- neyzlan sé of mikil og því sé nauðsynlegt að draga úr henni, sem þýðir á mæltu máli að minnka kaupmátt launanna með opinberri íhlut- un. Ef til vill verður fyrsti afmælisdagur ríkisstjórnar- innar 14. júlí nk. notaður til þess arna. Kjarninn í dýrtíðarráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar verður þó ugglaust sá, að hneppa atvinnulífið á ný í fjötra opinberra afskipta. Þannig er berum orðum talað um það í Þjóðviljanum í gær, að „opinber áhrif“ verði að auka „á fjárfestingarákvarð- anir einkagróðans“, eins og það er orðað, en með því er átt við atvinnureksturinn í landinu. í staðinn á enn að auka hinar óarðbæru fram- kvæmdir, stækka „hinn opin- bera geira“ í heildarfjárfest- ingunni.. Það sjá allir hvert slík stefna hlýtur að leiða og hefur raunar þegar leitt. Stórfelldar lántökur innan lands og utan hafa að vísu fleytt ríkisstjórninni fram til þessa, — lántökur, sem voru því aðeins mögulegar, að á 12 ára stjórnartímabili fyrrver- andi ríkisstjórnar tókst að byggja upp á ný lánstraust íslands erlendis, sem var gjörsamlega þrotið, þegar fyrri vinstri stjórnin hrökkl- aðist frá, þannig að brugðið gat til beggja vona um það, hvort það tækist að fá brýn- ustu nauðsynjar til landsins. Það var því sannarlega ekki ofmælt hjá stjórnarþing- manninum, þegar hann sagði það í útvarpsumræðum 15. maí, að fari verðþenslan úr hófi fram, — og það hefur hún þegar gert, — „grefur verðbólgan smám saman und- an atvinnugreinunum og leið- ir að lokum til gengisfelling- ar“. ?íeiujlíark Simes A rv > • ■ Litli Gullkálfurinn Eflir C. L. Sulsberger London. — Fyrir f.jórum árum, sagði De Gaulle við mig meðan hann var enn forseti Frakklands: ,,Nú vilja Bandaríkin ekki breyta um stefnu varðandi gullið og þau gera allt sem hægt er til að halda stefnu sinni til streitu. Þau lána öðrum bönkum og reyna að hafa eins miklar gullbirgð- ir og þau geta. Afleiðingarnar eru þær, að Bandaríkin eiga of marga dollara, sem þau vilja ekki geyma heima fyrir. Þau vilja senda þá til annarra landa, flytja þá út sem lán eða til fjárfestingar til þess að koma í veg fyrir of mikið framþoð heima fyrir og verðbólgu, sem af því skapast. Þessir útfluttu dollarar eru notaðir til að kaupa upp evrópsk fyrirtækí og koma um leið i veg fyrir verð- bólgu hjá ykkur. Auðvitað er þetta óhagræði fyrir Evrópu . . . Okkur í Frakklandi langar ekkert tfl að siá Bandarikin komast i vand- ræði og hefðum enga ánægju af slíku. Við viljum aðeins sjá heíl- brigt, eðlilegt efnahagslegt jafnvægi komast á þar.“ De Gaulle hafði tilhneigingu til að einfalda lausn þessa vandamáls, sem nú er orðið alvarlegt. Hann stakk upp á því, að verð gulls yrði tvö- faldað úr þeim 35 dollurum á úns- una, sem það var þá, í 70 doliara á únsuna. Siðan þá hafa verið stigin tvö lítil skref í þessa átt. Síðar á árinu 1968 komu seðla- bankastjórarnir, sem hittust í Frank furt, á tvöföldu verðkerfi gullsins og létu opinbert verð þess haldast í 35 dollurum fjtrir únsuna, en leyfðu frjálsu verði þess (gull til skartgripa o.s.frv.) að „fljóta“ upp á við. Á síðasta ári hækkuðu síðan ráðamenn í Washington opinbera gullverðið í 38 dollara á únsuna. En þessar ákvarðanir voru ekki nóg til að hjálpa heiminum út úr þessu feni. Kenning De Gaulle var, að með því að tvöfalda gullverðið mundu eignir Bandarikjanna tvöfaldast og skuldir þeirra minnka um helming. Árið 1962 var opinber gull- eign Bandaríkjanna 16.950.000.000 dollara virði. Núna hefur þetta minnkað niður í 10.490.000.000 doll- ara. Sióðir Evrópu hafa aukizt stöð- ugt, þannig að núna á hún u.þ.b. helming gufflbirgða heimsins, — en hún á líka um 23 milljarða Bandaríkja dala, sem ekki er hægt að skipta. Gamla hugmynd Gaullistanna um að ráðamenn i Washington ættu að tvöfalda opinbera gullverðið — hið ópinbera verð þess nálvast nú það mark — er enn vinsæl meðal margra Frakka. En fvlgi þessarar hu°-mynd ar í Bandaríkjunum, hve mikið sem það kann að hafa verið. hefur minnk að með minnkandi gullbirgðum. Enn fremur er einfaldlega ekki til nógu mikið gull í heiminum til að fjár- magna hinn gífurlega viðskiotavöxt. Hugmynd De Gaulle var raun- verulega sú, að þvinga Bandaríkin til að taka upp stöðugri peninga- stefnu út á við. Gull mun eflaust halda áfram að stíga í verði, en heimurinn verður að venia sig við að nota í æ ríkara mæli gerviráð- stafanir svo sem sérstakar vfirdrátt- arheimildir og ef til vill sitthvað ann að í staðinn fyrir gula málminn sem lítið framboð er af. Evrópudollarinn gegnir æ stærra hlutverki í alþjóða- viðskiptum, á svipaðan hátt og sterl ingspundið gerði fyrir 1939. 1 allri þessari ringulreið segir Al- þjóðabankinn í ársskýrslu sinni: „Höfuðhlutverk gullsins við núver- andi kerfi er ekki not þess sem gjaldmiðils héldur notkun þess sem staðals til viðmiðunar fyrir verðgildi gjaldmiðla og sem trygging fyrir verðgildi sjálfra yfirdráttarheimild- anna og fyrir lánsaðila hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum." Allt varðar þetta núverandi erfið leika í Evrópu, en þá má sjá á ákvörðun Breta að gefa verðgildi pundsins frjálst. En það eitt ásamt hinum mikilvægu pólitísku málefn- um, sem þessu fylgja, þ. á m. framtíð Efnahagsbandalagsins, eru aðeins í táknrænu samhengi við gullverðið. Heimurinn hefur færzt langt frá alt- ari litla gullkálfsins, sem hann einu sinni dáði. Erfiðleikarnir núna eru afleiðing mikils vaxtar í heimsviðskiptum og bættra lífskjara, sem gífurlegt pen- ingamagn þarf til að halda uppi. Að vissu leyti má segja, að peninga þurfi að „finna upp“. Samspil orsakar og afleiðingar hef ur búið til hreyfanlega verðbólgu, sem færir sig land úr landi. Ótti De Gaulle var i raun og veru sá, að Bandaríkin mundu annað hvort flytja verðbólgu sína út til annarra landa, eða ef það mistækist verða henni að bráð heima fyrir. Bandaríkin hafa á einhvern hátt dreift svo mörgum milljörðum doll- ara erfendis, að heimurinn stendur fastur ef ekki verður tekin upp kerf isbundnari peningastefna í Banda- ríkjunum gagnvart útlöndum. Þetta er kjarni vandamáls Heaths forsæt- isráðherra Breta, en einnig Nixons forseta Bandaríkjanna. Nixon er þetta augsýnilega Ijóst og hef- ur unnið að lausn í a.m.k. tvö ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.