Morgunblaðið - 25.07.1972, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAEHÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 25. JÚLt 1972
Næsti handritafundur
verður í Reykjavík
NÆSTI fundur handritanefndar-
innar, sem fjallar um skiptingu
handritanna, verður í Reykjavík
um mánaðamót september —
október.
Fyrsti fundur nefndarinnar
vaæ í Danrmörku á föstudag.
Jónas Kristjéunsson forstöðu-
maður Handritastofnunar, sem
var annar íslenzki fulltrúinm
sagði Mbl. í gær að umræður
hefðu farið hægt af stað, eina og
Þjónar
sömdu
SAMNINGAR tókust i kjaradeilu
framreiðslumanna og veitinga-
manrua sl. laugardagskvöld og
kom því ekki til boðaðs verkfalls
aðfararnótt sunnudags. Samning
ar voru undirritaðir með þeim
fyrirvara að samþykki begigja
aðildarfélaga þyrfti áður en þeir
tækju gildi. Framreiðslumenn
héldu félagsfund síðdegis í gær
og síðan framhaldsfund, sem
hófst kl. 9 í gærkvöldi, en veit-
ingamenn halda fund í dag.
búizt var við, menin þreifað fyrir
sér og fundurmm farið fra.m með
mestu kurteisi. Var rætt um
vinnutilhögun, en engar áikveðn-
ar bækur nefndar.
í biaði þvi sem Mbl. gaf út
þegair fyrstu tvö handritim voru
afhent 21. apríi 1971 segir Jóm
Helgason í viðtalinu, að í Kaup-
mannahöfn séu um 2000 hand-
rit af íslenzkum uppruna og auk
þess 800 eriend, mest norsk og
dönsk. Af þeim hafi við laus-
lega áætlun verið gert ráð fyrir
að um 1500 handrit að minnsta
kosti fari heim, og efst á list-
anum mundu þá vera handrit af
íslendimgaisögum og lögbækur.
Brfitt sé að svara þvi hvaða
handrit séu verðmætusit, því
verðmætið fari fyrst og fremst
eftir því hverju memm sækist
eftir.
Enginn sótti um
ENGIN umsókn barst um stöðu
prófessors í dönsku við Háskóla
íslands, en umsókmarfrestur
rann út fyrir helgina.
Undirrituðu
einnig
samningana
Kór Öldutúnsskólans ásamt stjórnanda á sviði tónleikasalarins
er mynd af Bourgruiba Túnisforseta.
Fékk boð frá Italíu og Kanada
— eftir ad hafa sungið á
alþjóðlegu móti í Túnis
KÓR Öldutúnsskólans í Hafn
arfirði kom heim sl. sunnu-
dagskvöld eftir frægðarför til
Túnis, og heim kemur kórinn
með tilboð nm að koma og
syng.ja í Kanada og á Ítalíu
og jafnvel á fleiri stöðum. f
Túnis kom kórinn fram á al-
þjóðlegu móti tónlistarkenn-
ara, sem haldið var á vegum
menningarmála-
Sameinuðu þjóð-
UNESCO,
stofnunar
anna.
Á mótinu, sem haldið var
i Túnisborg og Karþagó, var
kórinn einn af 48 flokkum
söngvara o>g hljóðfæraleikara,
sem boðið hafði verið að
koma fram á mótinu. Mótið
sjálft sóttu á fjórða þúsund
manns alls staðar að.
Kór Öldutúnsskólans kom
fram með dagskrá sána síð-
degis 14. júlí í Túnisborg og
vakti það mikla hrifningu að
honum var boðið að syngja
aftur og í það skiptið i útileik-
húsi, sem reist var á rústum
hins forna útileikhúss í
Karþagóborg. Öldutúnskórinn
var eini kórinn, sem boðið var
að koma fram tvisvar, en ein
hljómsveit, strengjasveit frá
Dallas I Texas, kom emnig
fram tvisvar.
í Túnisborg. Fyrir ofan sviðið
(Ljósm. Á.G.).
Tónleikar Öldutúnskórslns
í Túnisborg voru kvikmynd-
aðir og teknir upp á segul-
band og mun hvort tvegigja
fara í sérstakt tóniistar-
fræðslusafn á vegum UNES-
CO. Einnig var tekin upp
tveggja tíma æfing að kórn-
um óafvitandi og mun hún
einnig fara í þetta safn.
Að loknum söngnum í Tún-
is var kór Öldutúrisskólans
boðið að koma og syngja í It-
alíu og í Kanada og fleiri stað
ir voru nefndir, en að sögn
stjórnandans, Egils R. Frið-
leifssonar er enn ekki tíma-
bært að íhuga þessi góðu boð.
UM NÆSTU helgi halda héraðs-
mót Sjálfstæðisflokksins áfram
og verða þá haldin þrjú mót,
sem hér segir:
Bildudal, föstudaginn 28. júlí
kl. 21. Ræðumenn verða: Pétur
Sigurðsson, alþingismaður og
Matthías Bjarnason, alþingismað
ur.
Hnífsdal, laugardaginn 29. júlí
kl. 21. Ræðumenn verða: Jóhann
Hafstein, formaður Sjálfstæðis-
flokksins og Matthías Bjarnason,
alþingismaður.
Suðureyrl sunnudaginn 30.
júlí kl. 21. Ræðumenn verða:
Jóhann Hafstein, formaður Sjálf
stæðisflokksins og Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, alþingis-
maður.
Skemmtiatriði á héraðsmótinu
annast Ómar Ragnarsson, Ragn-
ar Bjarnason og hljómsveit hans.
Hljómsveitina skipa: Ragnar
Bjarnason, Árni Elfar, Grettir
Björnsson, Helgi Kristjánsson,
Hrafn Pálsson og Stefán Jóhanns
son.
Að loknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur þar
sem hl.iómsveit Ragnars Bjarna-
sonar leikur fyrir daosi.
QGURLEGUR HVELLUR:
Seyðfirðingar
hrukku við
— er djúpsprengjan úr E1 Grillo
var sprengd öllum að óvörum
Seyðisfirði 24. júlí.
Frá fréttaritara Morgun-
biaðains, Sveini Guðmunds-
syni.
EINS og frá var sagt í Morgun-
blaðinu á sunnudaginn koniu kaf
ararnir á Óðni upp með eina
djúpsprengjti úr flaki E1 Grillo
á laugardagsmorguninn. Á laug
ardagskvöldið kom svo Banda-
ríkjamaðnr af Keflavíkurflug-
velli til að eyða sprengjunni.
Sprengjan hafði verið á dekkinu
á Óðni á laugardaginn, en var nú
tekin á vörubíl og flutt út á
Vestdalseyri. Þangað fóru einnig
Bandaríkjamaðurinn og Bretinn
Brammall, sem nú er komið í
Ijós að er biörgunarsérfræðing-
ur, en eltki mengunar- og
sprengjusérfræðingur, eins og
áður var taiið, skipherrann á
Óðni, og allmargir af áhöfninni,
undir yfirstjórn bæjarstjóra og
lögreglu.
Framhald á bls. 31
(Ljosm. Hilmar Snorrason).
Ályktun Alþýðuflokksins:
Mótmælir skattahækk
unum á gamla fólkið
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
utanríkisráðuney tinu:
„I sambandi við frásagnir af
undirritun viðskiptasamninga
Austurríkis, Islands, Portúgals,
Sviþjóðar og Sviss við Efnahags-
bandalag Evrópu i Brússel sl.
laugardag vill ráðuneytið láta
koma fram, að auk ráðherra und-
irrituðu aðalsamningamenn við-
komandi landa einnig samning-
ana.
Fyrir hönd Islands undirrituðu
því téða samninga þeir Einar
Ágústsson, utanrikisráðherra, og
Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneyt-
isstjóri í viðskiptaráðuneytinu,
en hann hefur frá upphafi verið
formaður íslenzku samninga-
nefndarinnar.
Utanríkisráðuneytið, 24. 7. 1972.“
Utanríkisráðuney tið,
24. 7. 1972.“
MORGUNBLAÐINU barst í gær
fréttatilkynning frá Alþýðu-
flokknum, þar sem segir, að svo-
felld ályktun hafi verið samþykkt
á fundi þingflokks Alþýðuflokks
ins sl. mánudag:
„Þingflokkur Alþýðuflokksins
mótmælir harðlega hinum miklu
hækkunum opinberra gjalda á
gamla fólkið, sem í ljós hafa kom
ið við birtingu á skattskrám und
anfarna daga.
Með því að íþyngja gamia
fólkinu eru byrðar lagðar á þá,
sem sízt skyldi og erfiðast eiga
með að standa undir þeim. I
fjölmörgum tilvikum hafa undan
famar hækkanir á ellilaunum
verið algerlega teknar aftur og
tiðum meira til.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
krefst þess, að ríkisstjórnin geri
þegar ráðstafanir til leiðrétting-
ar á þessu misrétti.
Þessi þróun mála sannar bet-
ur en nokkuð annað, hversu van-
hugsuð og illa undirbúin þau
skattalög voru, sem ríkisstjórn-
in knúði fram á Alþingi síðast-
liðinn vetur.“
Mattliías
Þorvaldur
Jóhann
Pétur
Héraðsmót
S j álf stæðisf lokksins
á Bíldudal, Hnífsdal og Suðureyri