Morgunblaðið - 25.07.1972, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.07.1972, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLl 1972 Úitgofandi hif Árvdcor, Riyh]«vfk Frswkvwndastjóri HareMw Svokiaaon. R'rt»t/6rar Mírtthfae JohonnosMf), Eyfólifur Konróð Jónaaon ASstoðarritstífón' Snymdr Qumwewon, RrtstíórrYorftHltnúi Þorbjjönn Guðmumfoson Fréttastióri Bjöm Jóharwwwon Au^lýsirvgastfóri Árrri Garðar Kr!sttn*«qn Rrtstjórn 09 afflroiðsla Aöalstrsoti 6, slmi 1Ö-100. Augíysingar Aðatstreati ©, afmi 22-4-60 Askr'rftorgjal'd 225,00 kr á 'ménuði innanlands I teiUsaaöTu 15,00 Ikr eintakiö skattbyrði kemur því fram sem hrein skerðing á ráðstöf- unarfé ellilífeyrisþega, sem einhverjar aukatekjur hafa. Kannski er það ömurlegast við skattpíningu elztu borg- aranna nú, að á undanförn- um mánuðum hafa ráðherr- arnir notað hvert tækifæri til þess að skjóta því að, að þeir beri hag einmitt þessa fólks sérstaklega fyrir brjósti. Það sjá allir nú, hvaða alvara hefur legið að baki þeim yf- irlýsingum. ÞJOÐARHNEYKSLI — Island ekki lengur velf erðarríki? Á undanförnum árum hef- au viðtöl, sem Morgunblað- ið átti sl. sunnudag við ellilífeyrisþega, hafa vakið óskipta athygli, enda gefa þau raunhæfa mynd af því, hvernig skattahækkanirnar leggjast á þennan hóp skatt- borgaranna. Viðbrögð al- mennings hafa líka verið sterk. Fæstir þurfa að fara út fyrir fjölskylduna til þess að finna dæmin um það, hvernig tekjuskatturinn leggst á ellilífeyrisþegana. Nefna má níræðan bónda, verkamann á áttræðisaldri eða ekkju. Á öllu þessu fólki hækka opinberu gjöldin jafn- vel svo tugum þúsunda skiptir. í sumum tilvikum er skattahækkunin beinlínis meiri en tekjuaukningin frá fyrra ári. Engu er líkara en núverandi ríkisstjórn hafi með einu pennastriki þurrk- að ísland af skrá yfir vel- ferðarríki. Enginn vafi er á því, að sumir af ellilífeyrisþegum sjá ekki fram á, að þeir geti staðið í skilum með opinberu gjöldin, þótt það dragi við sig neyzluna eins og unnt er. Ellilífeyririnn hefur að vísu hækkað, en sú hækkun hefur jafnóðum verið étin upp af verðbólgunni. Hin aukna ur skilningur manna vaxið á því, að mönnum væri ekkert of gott að lifa áhyggjulitlu eða áhyggjulausu lífi, eftir að sjötugsaldrinum er náð. Af þessum sökum hafa t.d. flest sveitarfélögin undanþegið ellilífeyri við álagningu út- svars og viðreisnarstjórnin lögfesti vorið 1971, að á þessu ári skyldi sérstakur aukafrá- dráttur við álagningu tekju- skatts veittur ellilífeyrisþeg- um. Áður en þessi réttarbót kom til framkvæmda, var núverandi ríkisstjórn búin að afnema hana. Menn sjá svo afleiðingamar í marg- földun tekjuskattsins á elli- lífeyrisþegum. Einn megintilgangurinn með því að hlífa ellilífeyris- þegum við opinberum gjöld- um er sá að gera þeim kleift að búa lengur út af fyrir sig, þannig að þeir geti lagt í ein- hvern kostnað til þess að fá hjálp við erfiðustu húsverkin í sambandi við hjúkrun og annað, eins og fram kom í samtalinu við hinn aldna skipstjóra Júlíus Júliníus- son. Inn í myndina kemur einnig það tilfinningalega atriði, að fólk verður sam- gróið þeim stað, þar sem það hefur búið kannski megin- hluta ævinnar og alið upp sín böm. Það verður loks að teljast í hæsta máta sann- gjarnt, að á það sé litið, að þetta fólk hefur lokið sínum starfsdegi. Það hefur á langri ævi greitt ótaldar fjárhæðir í sameiginlegar þarfir, en ein- hvern tíma er mál að linni. Eins og áður segir bera nýju skattalögin það með sér, að núverandi valdhafar telja, að fyrrverandi ríkisstjórn hafi búið of vel að hinum öldruðu, — veitt þeim of mik- il skattahlunnindi. Þau hafa nú verið tekin til baka og meira til. Með því eru þyngstu álögurnar lagðar á þá, sem veikust hafa bökin og það er þjóðarhneyksli. ENN A AÐ HÆKKA SKATTANA Að sjálfsögðu er það öllum ** ljóst, að ríkissjóði verð- ur að afla tekna með ein- hverjum hætti. En fram að þessu hefur það þótt skyn- samlegt, að gæta að því fyrst, hversu miklir tekjuöfl- unarmöguleikarnir væru, áð- ur en útgjöldin eru ákveðin. Þetta var ekki gert við af- greiðslu síðustu fjárlaga. Því fór sem fór og þess vegna var hlaupið til og skattalögum breytt. Eftir reynsluna nú, skyldu menn halda, að ríkis- stjórnin hefði eitthvað lært, a.m.k. það, að greiðsluþoli skattborgaranna eru takmörk sett. En svo er ekki að sjá. Síðast á föstudaginn var það boðað í Þjóðviljanum, að enn frekari skattahækkanir væru framundan, — það er „nauð- synlegt að auka tekjur ríkis- sjóðs“, eru ummæli blaðsins í tilefni af útkomu skattskrár- innar. Stríðið og kosningarnar Eftir James Reston Miami Beach. BANDARÍSKA þjóðin á í stríði í Víet nam, stendur í friðarsamningum og heyr kosningabaráttu fyrir forseta- kosningarnar. í kosningunum er stríð ið, aðferðirnar í þvi, markmiðið með því og sjálft framhald þess, höfuð- málið. Og þetta skapar viðkvæmt og erfitt vandamál fyrir bæði Nixon forseta og McGovern þingmann, en það er að rökræða um striðið án þess það hafi áhrif á hið sameiginlega markmið þeirra, sem er að binda enda á manndrápin í Suðaustur-As- íu. Þessa tvo menn greinir augljós- lega verulega og einlæglega á um þetta höfuðmál kosningabaráttunnar. Þetta mál er ekki hægt að leggja til hliðar. Ríkisstjórnin getur ekki þagg að niður i McGovern varðandi Viet- nam og McGovern getur ekki neit- að því, að hið opinbera loforð hans um að hætta öllum loftárásum 21. janúar 1973 og flytja allt bandarískt herlið burt frá Suðaustur-Asíu fyrir apríllok 1973, hlýtur að hafa áhrif á friðarviðræðurnar í París. Hvorki Nixon forseti né McGov- ern hafa raunverulega staðið frammi fyrir þessu vandamáli. Þingmaður- inn flutti mál sitt með sterkum orð- um í útnefningarræðunni hér. í orð- um hans lá þetta: Tuttugu þúsund kistur hafa komið heim í forseta- tíð Nixons. Kjósið mig og ég skal stöðva manndrápin og færa alla pilt- ana og fangana heim fyrir- næsta vor. Hann var að minnsta kosti ákveð- inn og tók persónulega ábyrgð á loforðum sínum, jafnvel þótt hann hefði ekki alveg útskýrt hvernig hann hygðist standa við þau. Forsetinn var slyngari en ekki eins ábyrgðarfull- ur. Hann gagnrýndi ekki McGovern og stefnu hans sjálfur, en lét demó- kratann, bandamann sinn, John Conn ally, fyrrv. fjármálaráðherra, ráð- ast á McGovern fyrir að „spilla fyrir“ friðarviðræðum ríkisstjórnar- innar í París. Enginn hefði neitt á móti því, ef John Connally teldi demókrata hafa rangt fyrir sér, en repúblikana rétt fyrir sér varðandi stríðið, efnahags- ástandið, skattamál og tryggingar að hann skipti um flokk eins og Lind- say borgarstjóri í New York. Eða jafnvel þótt hann héldi kyrru fyrir í stjórn repúblikana sem demókrati og héldi sér við starf sitt og ynni að vandamálum þeim, sem stjórnin verður við að fást. En svo virðist sem Connally vilji það bezta af öllu. Hann notar demó- krata, sem eru alls ráðandi í Texas til að verða ríkisstjóri og aftur til að verða flotamálaráðherra í Wash- ington, þegar þeir fara með völd þar, en síðan þegar þeir tapa völdum, fer hann yfir til repúblikana og verð- ur fjármálaráðherra. Eitt af vandamálunum með hinn laglega, kreddufulla Connally er það, að þegar honum tekur að leiðast starf sitt, annaðhvort hjá demókröt- um eða repúblikönum, hættir hann og fer heim á búgarðinn sinn. Fyrir hann sjálfan er þetta vafalaust ágætt, en virðist dálítið eigingjarnt í augum annarra. Áformin eru augljós. Hann kem- ur og fer þegar honum dettur í hug. Nú er hann nýkominn heim úr ferða- lagi umhverfis jörðina og er í San Clemente þar sem hann talar illa um demókratana fyrir stefnu þeirra 1 utanríkis- og innanríkismálum og segist ekki geta suttt hana, en jafn- framt hrósar hann repúblikana- flokknum, sem hann vill ekki ganga í. Enginn getur ásakað forsetann fyr ir að nota Connally, fyrst Connally notar repúblikana án þess að ganga i flokk þeirra. En sá vandi er enn fyrir hendi, hvernig heyja skuli kosn ingabaráttuna um Víetnam án þess það hafi áhrif á samningaviðræður forsetans um frið. Til alirar hamingju er til fordæmi, sem forsetinn gjörþekkir. í kosninga baráttunni fyrir forsetakosningarnar 1944, einmitt þegar komið var að lok- um síðari heimsstyrjaldarinnar, komu Roosevelt forseti, utanrikisráð- herra hans, Cordell Hull, og repú- blikanarnir i þeim kosningum, Thom as Dewey og ráðunautur hans um utanríkismál, John Foster Dulles, sér saman um að það væri þjóðarhagur að halda flokkadeilum, meðan á kosn ingunum stæði, utan við friðarsamn- ingana. Árangurinn af því var sá, að Roose velt og Dewey, sem voru á margan hátt meira ósammála 1944 en Nixon og McGovern eru nú, voru sammála um að halda friðarumleitunum og stofnun samtaka Sameinuðu þjóð- anna utan við kosningabaráttuna. Dulles var útnefndur fulltrúi Deweys í þessum málum og hann var trúr bæði flokk sinum og hagsmunum þjóðarinnar. Ef til vill er þetta hið nauðsynlega, áður en flokkaátökin verða of mikil, er hin raunverulega harða barátta hefst um forsetasætið í nóvember. Ekki er öruggt að láta vandamálið ósnert þar sem það er nú, er McGov- ern vill frið á ákveðnum degi, hver svo sem áhrifin verði á friðarvið- ræðurnar i París og Nixon heldur sig utan baráttunnar og lætur Connally og Agnew skamma McGov- ern og stuðningsmenn hans fyrir að vera óábyrgir og jafnvel óþjóðhollir skemmdarverkamenn. Komist friður á í Víetnam áður en komið er fram I nóvember kann það að hjálpa Nixon og skaða Mc Govern. En ef stríðsandstæðingar halda því fram í alvöru, að stríðið sé höfuðmál kosningabaráttunnar, verða þeir að vinna samvinnuþýðir að friði, hvort sem það verður til þess að Nixon nær endurkjöri eða ekki. Og í minnsta lagi verður McGov ern að fá að vita, hvað fram fer í friðarviðræðunum í París, til þess að hann geti barizt fyrir friði án þess að segja hluti, sem áhrif geta haft á viðræðurnar. Það er ekki nógu gott fyrir McGov ern að ráðast aðeins á friðarviðræð- urnar í París, án þess að hafa þar mann frá sér, sem fræðir hann um staðreyndirnar. Né er það nógu gott fyrir Nixon að bjóða að láta McGov- ern allar upplýsingar í té um vanda- málin í Paris, en leyfa Connally á sama tíma að ráðast á McGovern fyr- ir að vera óupplýstur og óábyrgur í gagnrýni sinni á Parisarviðræðurn- ar. Eins og Connally hefur sagt er kos- ið um grundvallaratriði í þessum kosningum og þýðingarmestu mál frá því í kosningunum milli John- sons og Goldwaters 1964, en Connally virðist einhvern veginn hafa gleymt þeim kosningum. En þessi mál á ekki að kaffæra í fölskum áköllum til þjóðerniskenndarinnar, heldur mæta á grundvelli þeirra staðreynda sem fyrir liggja í París. Og aðeins for- setinn getur veitt McGovern upplýs- ingarnar, á sama hátt og Roosevelt gerði við Dewey 1944.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.