Morgunblaðið - 25.07.1972, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.07.1972, Blaðsíða 4
4 MQRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1972 14444 g 25555 mirnifí BHALEIGA - HVEFtSSOTU 103 14444 ** 25555 BÍLALEIGA CAR RENTAL Z1 21190 21188 Opið frá kl. 9—22 al'a virka daga nema laugardaga frá kl. 9—19. Bílasalinn við Vitatorg Sími 12500 og 12600. Hóplerðir "il leigu í lengri og skemimi ferðir 8—20 farþega bíia' Kjartan k'igtnrariióon simi 32716. SKODA EYÐIR MJNNA. SHODB LEIGAN AUÐBREKKU 44 - 46 ' SÍMl 42600.; \ HILMAR FOS5 iögg. skjaiaþ. og dórm. Hafnarstræti 11 — srnru 14824 {Freyjugötu 37 — sim. 12106). HÖflÐUfl ÓLAFSSON hnatarMtariðgmaOui skjaiaþýðandl — enaku Austurstraatí 14 Sfcnar 10332 og 36673 STAKSTEINAR Gerræði íslendingur—ísafoid ræðir sl. fimmtudag í forystugrein um bráðabirgðaráðstafanir rikisstjórnarinnar í efnahags- málum. Þar segir: „Ríkisstjórnin hefur nú seint og um síðir neyðzt til að viðurkenna afglöp sín í stjórn efnahagsmálanna með þeim bráðabirgðaaðgerðum um frestun og skerðingu kaupgreiðsluvisitöiu og fleiri hliðarráðstöfunum, sem hún hefur nú grtpið tU. I þessu sambandi er rétt að minna á, að Óiafur Jóhannesson for- sætisráðherra svaraði þannig fyrirspurn Lárusar Jónssonar á Alþingi sl. haust, að ríkis- stjórnin hefði grandskoðað gögn um ástand þjóðarbúsins þegar hún tók við vöidum og áður en hún gerði margfræg- an málefnasamning sinn. Sé þetta satt og rétt, fer ekki á mílli mála, að rikis- stjórnin taldi ástandið svo gott tim þessar mundir, að hækka mætti rauntekjur laun- þega um 20% á tveimur ár- um, stytta vinnutíma og lengja orlof án meiri verðhækkana en búast mætti við í ná- grannalöndunmn. Sé' þetta ekki rétt og forsætisráðherra þar með gerður að ósanninda- manni á Alþingi, eins og ýmsir stjómarsinnar gera með áróðri síntim, þá er rík- isstjórnin öll sökuð um ein- stæðan aulahátt eða vísvit- andi gerræði við íslenzkt efna- hagslíf. Þannig ferst Hauki Helgasyni, efnahagssérfræð- ingi kommúnista, þegar hann byggir tveggja síðna varnar- grein vegna methækkana á verðlagi í Þjóðviljanum á því, að ríkisstjórnin hafi ekki þekkt nægilega „raunverulegt ástand þjóðarbúsins,“ þegar hún tók við völdum. Hafi hún ekki gert það en samt sem áður lofað öllum gulli og grænum skógum, eins og málefnasamningurinn ber með sér, hiýtur slíkt athæfi að flokkast uiidir blábjánahátt. Hafi ríkisstjórnin á hinn bóg- inn talið, að safnazt hafi fyrir á verðstöðvunartimabilinu á sl. ári „flóðgátt verðhækk- ana“ og samt sem áður lofað þjóðinni þvi, sem í málefna- samningnum stendur, verður það ekki eingöngu talinn blá- bjánaháttur, heldtir vísvitandi gerræði vih íslenzkt atvinnu- og efnahagslíf.“ „Að iðrast eftir dauðann“ Síðan segir: „Öllum er ljóst, að loforða- listi ríkisstjórnarinnar, sem nefndur hefur verið Ólafs- kver, er þess eðlis, að sé reynt að framkvæma hann, þótt ekki sé nema að hluta, á til- töiulega skömmum tíma, hlýzt af óðaverðbóiga. Eina vonin var sú, að ástandið væri svo gott fyrir, að efnahagsiífið þyldi þrátt fyrir allt veruiega verðbólgustefnu. Þess vegna hefði það verið algjör aula- háttur að setja slikt plagg saman við þær aðstæður að vita ekki gerla um ástand þjóðarbúsms, og fullkomið gerræði, eí viðkomandi rikis- stjórn hefðí haft ástæðu tii að ætla að „flóðgáttir verð- hækkana“ væru fyrir í efna- hagskerfinu. Það dugír þvt ekki til varn- a t rikisstiórninni að lýsa forsætisráðherra ósannmda- mann og saka alla ríkisstjórn- ina um þann aulahátt eða sketnmdarverk að setja sam- an stjómarsáttmálann án |>ess að gcra sér glögga grein fyrir því, hversií ástandið var gott, þegar hann var gerður. Þegar þetta er haft í huga, er ljóst, að rikisstjornin hefur á eins árs ferli sinuin orðið að við- urkettna þrjár meginstað- reyndir á sviði efnahagsmál- anna: Hún hefur viðurkennt, að hún mat, að vel yfirlögðu ráði, afkomu þjóðarbúsins og atvinnuveganna einstaklega góða, þegar liún tók við völd- um. Hún hefur viðurkennt með bráðabirgðaráðstól' uniim nú, að henni heftir tekizt að koma á öngþveiti í efnahags- lífi þjóðarinnar með stefnu- Ieysi sínu á einu ári. Hún hef- ur síðast e.n ekki sízt viður- kennt. að hún hefur hlekkt þjóðina freklega á undanförn- um mánuðum. Einn ráðherr- ann gekk svo langt í því efnt í vitvarpsumræðum að segja að mestu verðhækkanirnar væru þá um garð gengnar. Stjórnavandstaðan hefur hins vegar frá upphafi varað við dýrtíðarstefnu ríkisstjórnar- innar. Seint og um síðir rank- ar ríkisstjórnin við sér og iðrast eftir dauðann og gera yfirhót meS bráðabirgðaráð- stöfunum. sem engan varan- Iegan vauda Ieysa.“ Jakobsson Jakob svarar FYRIR nokkrum vikum birtist í brezka blaðinu Yorkshire Post grein eftir íhaldsþingmanninn Patrick Wall um þá ákvöröun ís- lenzkra stjórnvalda að færa út landhelgina og lagalegan rétt ís- lendinga til þess. Fyrr í þessum mánuði birtist svo í sama blaði grein eftir Jakob Jakobsson, fiski fræðing, þar sem hann svarar grein Walls og eins og segir i for mála blaðsins að greininni „fjatl ar hann þar um málið frá vís- j indalegum sjónarhóli fremur en | pólitískum“. í grein sinni getur Jakob um þýðingu þess fyrir ísliendinga að þorskstofninn verði verndaður, svo að hann hljóti ekki somu ör- lög og síldarstofninn, sem nú sé nær algjörlega úr sögunni við Is landsstrendur. Hann bendir á hversu allt efnahagslíf íslend- inga sé viðkvæmt fyrir slík'jm áföllum, og nefnir að þjóðartekj ur fslands hafi minnkað um 17% árin 1967—68 eða fyrst eftir að aflabrestsins á síidveiðunum gætti. íslendingar hafi þó rétt úr kútnum að nýju með aukinni J veiði annaixa tegunda. Jakob hrekur þessu næst ýms- ar fullyrðingar Walis. sem koma fram i- grein hans um fiskveiðar íslendinga — þar á meðal að veiði rækjubáta innan 12 mílna markanna séu ástæðan fyrir Wall rýrnun ýsustofnsins við fslands- strendur. Bendir Jakob á, að að- eins séu tvö ár frá þvi að rækju miðín við suðvesturströndina fundust og veiðar þar geti ekki farið að hafa áhrif fyrr en í fyrsta Iagi 1973—74, auk þess sem þessar veiðar séu undir mjög ströngu eftirliti. Eins tekur Jak f FRÉTTATILKYNNINGU, er MorgunWaðinu Itefur borizt frá Stúdcntaráði, er greint frá for- mannaráðstefnu heildarsamtaka stúdenta á Norðurlöndtim. sem haldin var hér 21. og 22. júní sl. L'mræður á ráðstefnunni skiptust i þrjá nteginflokka: menntamái, fjárhagsleg hags- munamál stiidenta og alþjóöa- mál. Að því er viðvíkur mennta- málunum, var aðallega rætt um þróun æðri menntunar í fram- tiðinni, þar á meðal um Efna- hagsbandalag Evrópu og mennt- unarstefnu þess. 1 fréttatilkynn- ingunni segir ennfremur. að mik- ill uggur hafi komið fram við of ob þá staðhæfingu Walds, að heild arafli þorsks hafi verið tiltölu- lega jafn í 10 ár; meðaltalið sé 669 þúsund tonn 1960—70 og 750 þúsund tonn árið 1971. Segir Jak ob að þessar töiur komi ekki heim og saman við opinberar upplýsingar, sem liggi fyrir um þorskafla við ísland — sam- kvæmt þeim séu meðaltalslandan ir á þorski af íslandsmiðum á þessum tima 402 þúsund tonn. Jakob tinir til fleiri atriði máli mikla sérhæfingu og einhæfingu framhaldsnáms, sem leiða muni til þess að menntunin verði sér- eign sérstakrar yfirstéttar, en slíkt stuðli að því að styrkja stöðu valdastéttanna og veiki vitund fólks um stöðu sina i Jþjóðfélaginu og eðii hins kapi- talíska þjóðfélags. I sambandi við fjárhagsleg í hagsmunamái var mest rætt um j námslaun, um það efni segir orð [ rétt í fréttatilkynningunni: „Dan ir höfðu uppi nýstárlegar hug- myndir og áætlanir í þvi sam- bandi. Samkvæmt þeim eiga námslaun að koma fyrir allt nám að loknu skvldunámi, vegna þess að nám sé þjóðhagslega sínu tf! stuðnings, en segir síðan: ..Ég vona að allir geti skilið að þar sem þorskveiðar eru aðal- tekjulind íslands, geta íslending ar ekki tekið þá áhættu að láta þessa þýðingarmiklu auðlind lúta alþjóðlegri stjórnun. Þvi verður að færa út landhelgina. Á sama hátt ætti Bretland að gera sér Ij'ósa ábyrgð sína sem strandríki, sem hefur yfir að ráða þýðingarmestu uppeldis- stöðvum siidar í Norðaustur-At- lantshafi, og ganga í lið með ís- tendingum hvað varðar nauðsyn stórrar fiskveiðilögsögru til vernd unar og áhrifarikrar stjórnunar.“ arðbær vinna og þvi beri að launa hana eins og aðra vinnu. Til að fjármagna þessar launa- greiðslur er hugmynd þeirra að sérstakur skattur verði lagður á alla atvinnurekendur í land- inu, þannig að þeir borgi náms- launin, en ekki almenningur, sem hefur nógar byrðar að bera.“ Síðan segir, að fulltrúar hafi yfirleitt verið sammála þessu í grundvallaratriðum, en sumir hafi verið mjög efins um að hægt væri að framkvæma þessar greiðslur til námsmanna i ná- inni framtíð. Ráðstefnan samþykkti tvær ályktanir: Sú fyrri var gegn „árásarstriði Bandarikjanna i Vietnam og Indó-Kina.“ Síðari ályktunina samþykktu allir full- trúamir, nema Sviar. Þar segir m.a., að erlendar herstöðvar séu ósamboðnar fullveldi þjóðar, og Noregur, Danmörk og Island eru hvött til að hætta þátttöku i NATO. Formannaráðstefna — heildarsamtaka stúdenta á Norðurlöndum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.