Morgunblaðið - 25.07.1972, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLl 1972
Ólafur
Forsetahjónin ffang-a frá messu í fylgd sr. Guðmundar Óla
Ólafssonar. (Ljósm. Mbl. Sveinn Þorm.)
Aðalraeðumaður liátiðarinnar
dr. Björn Sigíússon.
arhlé, var hátiðardagskránni
haldið áfram.
36 manma kór, valinn af
Martin Hunger, af tilefni há-
tíðariinnar aömg lofsöngva úr
sálmabóik Guðbrands Þorláks
sonar, undiir stjóm M'artims.
Þá flutti dr. Bjöm Si.gfús-
ÓMUK klukkna dómkirkjunn-
ar hljómaði í eyrum þegar
við óktim í hlað í Skálhoiti.
Dumbungsveður lá yfir Bisk-
upstungiinum, en Skálholt var
eins og vin í eyðimörkinni, þar
sem sólin brauzt gegnum ský
in yfir kirkjunni og ljómaði
Skálholtstúnið og húsin.
Fjöldi manna var kominn til
að halda Skálholtshátið, sumir
á bíl fjöiskyldunnar, aðrir i
langferðabíhim.
Kirkjan var þétt skipuð þeg
ar forseti Islamds og frú gengu
inn i fylgd séra Guðmundar
Óla Ólafssonar, sóknarprests
í Skálholti. Á eftir kom prós-
esia presta og biskups, séra
Sigurbjöms Einai'ssonar og
séra Sigurðar Pálssonar,
vígslubiskups. Martin Hung-
er lék á orgelið. Hátíðlegt
andrúmsloft var í kirkjunni
þegar leikið var úr Þorlákstíð
um á trompeta og sólargeisl-
amir brotnuðu á gluggarúð-
um kirkjunnar, þar sem þeir
mögnuðust og vörpuðu lit-
skrúði þeirra á annars hvíta
veggina.
Eftir bænir, sálmasöng og
guðspjallið, flutti ungur prest
ur, séra Heimir Steinsson,
skörulega préd:kun.
Margir urðu þreyttir á að
standa og settust þvi út á tún-
blettinn. Þangað barst beim
Jónssonar setti sterkan svip
á sálmasönginm.
Eftir messu gekk fólk um
staðinn. 1 kjallara dómkirkj-
unmar stóð steinkista séra
Páls heitins biskups og
skruppu margir þangað nið-
ur. Ut gekk fólk svo um jarð-
gönig, sem skólapiltar gengu
um áður, milli skóla og
kirkju. Þá stóð skólimn sunm-
an við hana. Nú er risið upp
stórt skólahús að norðan.
Mörgum, sem í lögðu, var
gangan upp í turninn þreyt-
andi, en þegar upp kom sáu
menn vitt um.
En hverjir sækja Skálholts
hátíð? Margir áhugamenn
eru um uppbyggingu og endur
vakningu hlirtverks Skálholts
staðar. Að sjálfsögðu reyna
þeir að koma. Þá kemur auð-
vitað fjöldi nærsveitarmanna
og fjölskyldur úr Reykjavík.
Margir koma ár eftir ár. Fólk
er á öllum aldri, þó er heitd-
arsvipurinn un.gur. Á S'kál-
holtshátíðinmi er fleira ungt
fóik en m-aður sér á öðrum
Ikir'kjuhátíðum. Rómantísk
v nnsson og Brynd.s Valdennarsdóttir.
Þórdís Baldursdóttir.
saga Skálholts heillar unga
fólkið.
Við spurðum Gunnar Egils-
son, 22 ára sálfræðinema úr
Reykjavik, af hverju hann
sækti Skálholtshátið.
— „Saga Skáiholts hefur
dregið mig að staðnum. Ég
hef nobkrum sinnum komið í
Skálholt og einu sinmi áður
á Skálholtshátið.“
Ólafur W. Finnsson, 21 árs
háskólamemi og Bryndis
Valdemarsdóttir, sögðust oft
hafa verið á Skálholtshátíð,
Ólafur reyndar á þeim ölium,
siðan kirkjan var vígð.
— „Annars hef ég verið hér
í Skálholti undanfarin sumiur,
þar til nú,“ sagði Ólafur, ,,og
m.a. leikið á orgel fyrir ferða
menn, og verið kirkjuvörður.“
Þórdís Baldursdóttir er 17
ára og dáfögur, úr Kópavogi.
Hún hafði verið eitt sumar i
sveit hjá prestinum í Skál-
holti. Nú var hún komin á-
samt foreldrum sínum, i ann-
að sinn á Skálholtshátíð.
— „Ég hef mikinn áhuga
fyrir Skálholti og sérstaklega
sögu þes og lesið mér nokk-
uð til um hana.“
Em þarna var ekki aðeins
ungt fól'k. Matthías Svein-
björnsson er starfsaidursfor-
seti lögreglunnar i Reykjavik
og þar næst elztur að árum.
■— „Mér finnst alltaf hátið-
legt að koma að Skálholti,
sagði Matthías. Ég kom hérna
fyrst þegar kirkjan var vígð
en síðan þegar söngkóramót
norræmna lögreglumanna var
haldið 1966.“
Eftir rúmlega klukkustund
son aðalræðu dagsins. Hon-
um mæltist vel um hlutverk
Skálholts, sagnfræðilegt en
fyrst og fremst menningar-
legt. Landifræðilegt svið ræð-
unnar var þó ekki bundið við
Skálholt eitt né ísland, heldur
náði allt suður til Rómar.
Siðan lék Ingvar Jónasson
á víólu og kórinn söng verk
eftir Johan Walter og J. S.
Bach. Séra Tómas Guðmunds-
son flutti bæn.
Eh af hverju er haldin Skál
holtshátíð. Við spurðum Svein
björn Finnsson, ráðsmann í
Skálholti.
— „Skálholtshátíðin á ræt-
ur sínar að rekja til hreyfing
ar fárra áhugamanna, um end
urvakningu Skálholts, sem
kirkjulegrar og menningar-
legrar miðstöðvar. Undir for-
ystu núverandi biskups Is-
lands, herra Sigurbjörns Ein-
arssonar stofnuðu þeir Skál-
holtsfélagið árið 1949. Síðan
árið 1950 hafa Skálholtshátíð
ir verið haldnar, í þvi skyni
að vekja athygli á fyrra hlut-
verki Skálholts og kynna og
skapa einingu um viðhorf á-
hugamanna um endurreisn
staðarins. Skálholtshátíðina
ber alltaf upp á Þorláksmessu
á sumri þann 20. júlí eða
fyrsta sunnudag þar á eftir."
Giuuiar Egilsson.
Matthías Sveinbjörnssori.
um loftgöt í kirkjuturninum
söngur kirkjukórsins, sem dr.
Róbert Abraham stjómaði.
Trompetleikur þeirra Lárusar
Sveinssonar og Snæbjöms