Morgunblaðið - 25.07.1972, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚUl 1972
23
Mun það mest hafa valdið þeirri
ráðabreytni.
Unnur starfaði með ágætum
að Flúðum, en eftir nær aldar-
íjórðungs erfitt starf i
heimavistarskóla, óskaði hún
minni umsvifa og gerðist þá
kennari við Melaskólann í
Reykjavik. Einnig þar var hún
vel virt og vinsæl, enda þótt
|»á væru mjög breyttir tímar frá
því hún byrjaði kennslu. Senni-
lega hefir stjórn nemenda þar
reynzt henni sem öðrum, erfið-
ari en í sveitinni, enda hóparnir
stærri. En að sögn starfsfélaga
Unnar fór henni þetta allt vel
úr hendi, þótt starfsþrekið væri
tekið að dvína. Unni þótti vænt
um börnin og náði hylli þeirra.
Og hið fjölmenna starfslið skól-
ans virti hana og dáði. Góða
vini eignaðist hún þar og hélt
alltaf tryggð við skólann, eftir
að hún lét af störfum haustið
1955. Þá var heilsu hennar tekið
að hnigna og heyrnin bi'laði.
Hér hefir verið rakinn embætt
isferill Unnar, en margt er
ósagt. Meðan hún starfaði í
Hreppunum, var hún alltaf á
sumrum í Hruna og Hvammi,
fyrst hjá foreldrum sinum og
síðar hjá Helga bróður sínum
og Elínu Guðjónsdóttur, konu
hans. Vann hún þar eftir þörf-
um, hvað sem fyrir kom að eig-
in vild. Hún var ákaflega vei
vinnandi og mjög fjölhæf til
verka. Börn voru oft mörg á
heimilinu, m.a. oft sumardvalar-
gestir. Unni mun hafa verið ljúft
að sjá um þau, eftir því sem
þurfa þótti. Þá greip hún oft
til sagnalistar sinnar. Hún
kunni ógrynni sagna — og var
líka vel að sér I sögu. Sögur
sagði hún allra manna bezt. Ný-
lega heyrði ég merkiskonu hér
1 bæ, sem var í sumardvöl í
Hvammi, segja að i Hvammi
hefði sér liðVS vel, en mest
hefði hún hlalíkað til að heyra
Unni segja sögu.
Okkur kennurum lætur auð-
vitað misjafnlega vel að kenna
námsgreinamar. Svo var og um
Unni. En henni lét allra bezt
að kenna móðurmálið, sögu og
kristin fræði. Hún var trúuð
kona, en talaði litt um þau efni
nema við nána vini. Hún bar
ekki tilfinningar sínar á torg.
En hún var einörð kona og fast-
lynd, hógvær jafnan og virðu-
leg í framkomu. Hún var ákveð-
in í skoðunum og hélt fast á
máli sinu við hvern sem var,
skemmtileg í viðræðum og átti
til ósvikna kímnigáfu, sem hún
beitti þó hófsamlega. Engan
vildi hún særa, svo umtalsfróm,
sem hún var. Það var skemmti-
legt að heyra Unni segja frá
nemendum sínum og litla frænd
fólkinu. Hún ljómaði af ánægju
við þær minningar.
Árið 1950 urðu nokkur þátta-
skil í lífi Unnar. Þá fluttist hún
að Háteigsvegi 42 til Guðmund-
ar, mágs síns. Kona hans,
Ragnheiður, systir Unnar, hafði
andazt árið áður og Guðmundur
stóð einn uppi með son á barns
aldri, sem var uppáhald Unnar,
eins og reyndar öll hennar
systkinabörn. Nú vildi Unnur
rétta þeim feðgum hjálparhönd
og það gat hún bezt með því að
búa undir sama þaki. Þarna
hófst sambúð og samhjálp, er síð
an hefir staðið, báðum aðilum til
gagns og gleði. Unnur hefir æ
síðan átt heimili hjá þessum
ágæta mági sínum. Hann kvænt-
ist nokkru síðar afbragðskonu,
Amdísi Bjarnadóttur, hjúkrun-
arkonu. Þær Unnur urðu beztu
vinkonur. Árin liðu. Ný böm
fæddust á heimilinu. Unnur
rétti þeim hjálparhönd, svo sem
eigin frændliði, en þau endur-
greiddu með ástríki og umönn-
un sém einkum kom sér vel,
þegar halla tók undan fæti á
ævideginum. Síðasta áratuginn
hefir heilsa Unnar verið á völt-
um fæti vegna hjartabilunar,
slysa o.fl. Hún lá því oft í
sjúkrahúsum, en þess á milli var
hún heima og naut þar beztu
hjálpar alls heimilisfólks. Þeim
fannst það svo sjálfsagt og
ekki umtalsvert, en ég veit að
Unnur sjálf og ættfólk hennar
var svo ákaflega þakklátt fyrir
hjálp þá og ástúð er þau sýndu
henni.
Sjálf var Unnur sivinnandi í
höndum þegar heilsan leyfði,
bæði við að sauma, prjóna og
hekla ýmsa muni, er vinir henn
ar nutu góðs af. Á sumrum heim
sótti hún vini og frændur aust-
an fjalls, en oftast dvaldi hún
seinni árin með fjölskyldu mágs
síns í sumarbústað á æskustöðv
um hans í Skorradal. Unnur var
mikill náttúruunnandi, svo sem
faðir hennar og undi sér því vel
í hinu fagra umhverfi þar erfa.
Fyrir rúmum mánuði fékk
Unnur svo mikið veikindaáfall,
að hún var strax flutt í Borgar
spítalann. Þar naut hún ágætrar
hjúkrunar og skyldulið hennar
var oft til hjálpar eftir þörf-
um. Þannig var þessi ágæti
barnavinur umvafinn ástúð og
umhyggju barna, ungmenna og
skyldfólks síns elliár sín og allt
til hinztu stundar að kvöldi 17.
þ.m.
Ég sá Unni síðast við kveðju-
athöfn Guðmundar bróður henn
ar í vetur. Yfir henni hvíldi þá
tiginmannleg ró, er sýndi vel
þrek hennar og æðruleysi, sem
jafnan fyrr er þunga sorg bar
að höndum.
Með Unni Kjartansdóttur er
gengin göfug kona, tryggur vin
ur og ágætur ungmennaleiðtogi.
Ég veit að í hugum okkar vina
hennar og ættmenna hljómar í
dag þessi kveðja:
Vertu blessuð og sæl, Unnur
mín. Hjartans þökk fyrir sam-
fylgdina.
Ingimar H. Jóhannesson.
Unnur var fædd í Hvammi í
Dölum 26. október 1892, dóttir
prestshjónanna þar, sr. Kjartans
Helgasonar frá Birtimgaholti, síð
ar prests í Hruna og konu hans
Sngríðar Jóhannesdóttur, sýslu-
manns Borgfirðinga, og var Sig-
riður því systir Jóhannesar bæj-
arfógeta og alþingismanns.
Unnur lézt á sjúkrahúsi í
Reykjavík mánudaginn 17. júli
eftir skarama sjúkrahússvist.
Unnur fluttist tólf ára gömul
með fjölskyldu sinni að Hruna
og við þann bæ var hún jafman
kennd. Hún var elzt sjö systk-
ina, sem öll voru gædd fjöl-
hæfum gáfum og starfsþreki,
enda hafa þau öll skilað merku
lifsstarfi, þó að sum þeirra yrðu
ekki langlif, en þau eru nú öll
dáin nema Helgi bóndi í Hvammi
í Hrunamannahreppi. Hann er
enn við góða heilsu en hefur nú
að mestu látið bústörfin í hend-
ur sona sinna tveggja, sem þar
búa.
Þegar sr. Kjartan lét af prests
skap fluttist fjölskyldan að
Hvamrni, sem er þar skammt
frá og þar hefur fjölskyldan jafn
an átt samfundi og athvarf,
enda má segja að menmimgar-
blærinn, sem rikti i Hruna, hafi
fest djúpar rætur í Hvammi, og
veit ég að Unni fannst til síð-
ustu stundar, að hún væri að
fara heim þegar leiðin lá upp
að Hvammi.
Unnur lauk kenmaraprófi árið
1915, en næstu árin leitaði hún
ekki eftir fastri kennarastöðu,
enda átti hún á þeim árum við
allmikla vanheilsu að striða.
En árið 1923 tók heimavistar-
barnaskóli til starfa í Ásum í
Gnúpverjahreppi og þangað
réðst hún skólastjóri við stofnun
skólans og gegndi hún því starfi
til ársins 1937, en þá varð hún
skólastjóri á Flúðum í Hruna-
mannahreppi. Árið 1946 varð
hún svo kennari við Melaskólann
í Reykjavík og kenndi hún þar
til ársins 1955, en þá lét hún af
störfum sökum heilsubrests. Á
Reykjavikurárum sínum bjó
hún fyrst hjá mági sínum Kr.
Guðmundi Guðmundssyni trygg
imgafræðimgi og systur sinni
Ragnheiði, en er hún lézt var
hún áfram á heimilimu, og hjá
seinni konu Guðmundar, Arn-
disi Bjarnadóttur, átti hún alltaf
hlýju að mæta og naut þar kær
kominnar hjúkrunar eftir að
heilsan brást, enda var Unnur
eins og tryggasta amma barn-
anna á heimilinu, sem ólust þar
upp með 'nenni, eftir að hún lét
af störfum sem kennari.
Ég sem rita þessar línur kynnt
ist Unni er ég var bam að aldri.
Ásaskóli, þar sem Unnur var
skólastjóri um 14 ára skeið, er
skammt frá æskuheimili mínu
og því urðu kynnin af skólastarf
inu þar náin og mér sem barni
þótti sú starfsemi, sem þar var
tekin upp, ákaflega merkileg, og
skólaheimilið í Ásaskóla til fyrir
myndar á allan hátt.
Þegar ég lit nú til baka til
þeirra ára, þá er mér ljóst, að
þetta voru ekki bamalegar hill-
ingar, heldur óumdeildar stað-
reyndir, sem þægilegt er að
minnast.
Margt bar til að Unni tókst að
gera Ásaskóla að jafn merkri
kennslustofnun og raun bar vitni.
Hún var mjög vel menntaður
kennari,.hún las mikið og fylgd
ist því vel með margháttuðum
menningarstraumum og var því
ætíð fersk og óþreytandi upp-
fræðari, enda af flestum talin
kennari af Guðs náð. Hún kom
frá sterku menningarheimili og
flutti holla vætti og hætti þess
heimilis með sér í Ásaskóla.
Hún kunni einnig að velja sér
samstarfsfólk. Þannig var lengst
af með henni i Ásaskóla frænka
hennar Guðrún Haraldsdóttir
frá Hrafnkelsstöðum, og sá hún
um heimilisstörfin í skólanum
af þeirri prýði að á betra varð
ekki kosið.
Ég man ennþá vel eftir einu
haustkvöldi árið 1926, þegar ég
var 10 ára gamall, en það var á
fyrsta skóladeginum mínum. Ég
hafði bæði hlakkað til og kviðið
fyrir ,að fara i skólann, en þetta
var fyrsta sinn, sem ég fór að
heiman til að vera nætursakir.
Með viðmóti sínu eyddu skóla-
stúlkumar, (en svo voru þær
Unnur og Guðrún jafnan nefnd-
ar), ölium kvíða hjá okkur litiu
krökkunum, en traust og von-
gleði fylltu hugann. Með hverri
kennslustund óx lönigunin til að
læra meira og tómstundirnar í
Ásaskóla liðu í græskulausum
leikjum eða skemmtilegum og
fræðandi kvöldvökum, þar sem
Unnur hafði eínstakt lag á að
flytja okkur á skemmtilegan
hátt sina mannúðarstefnu, sem
var hrein og fölskvalaus og
henni hjartans mál. Skólagang-
an var ekki löng á þessum árum
samanborið við það sem nú tíðk
ást, en þó hika ég ekki við að
fuilyrða, að flestir þeir sem áttu
þess kost að vera í skólanum
hjá henni Unni hafi fengið undra
mikil lyklavöld að áframhald-
andi menntun, hvort sem það var
á skólabekk eða við sjálfsnám.
Árið, sem ég var 12 ára gamall,
var ég snúningastrákur i Hruna.
Mér er þetta sumar fyrir margra
hluta sakir ógleymanlegt. En
því minnist ég á þetta hér, að
þar var mér ljóst hve dýrmætt
veganesti Unnur bar með sér úr
föðurgarði. 1 Hruna ríkti gláð
værð og myndarskapur í öllu
heimilishaldi, en þar var einnig
ætlazt til að hver heimilismaður
skilaði góðu dagsverki. Sr. Kjart
an var einstakur uppfræðari og
sem dæmi um það má nefna, að
það henti oftar en einu sinni að
hann fór með okkur krakkana,
og yngra fólkið á bænum, eftir
messu út í túnfótinn til þess að
kenna okkur að þekkja grösin,
sem uxu þar. Á þessum árum
var Hrunaheimilið mannmargt
og gestanauð þar mikil. Frú Sigr
íður hafði því í mörg horn að
Idta og leysti flesta daga af
hendi bæði mikið og langt dags
verk. En aldrei heyrði ég henni
hrjóta styggðaryrði af vörum og
ósjaldan spurði hún mig hvort
mig langaði ekki í aukabita eða
hvort ég þyrfti ekki að skipta
um sokka eða eitthvað þvi um
líkt. Þessi umhyggja móðurinn-
ar fyrir börnum og fræðslugleði
föðurins voru Unni einnig i blóð
borin.
1 æviskrá hemnar verður ritað
að hún hafi ekki gifzt og verið
bannlaus. Sannleikurinn er þó
sá, að hún átti mikið í börnun-
um, sem hún kenndi og um-
gekkst og er ég einn þeirra, sem
get borið því vitni. Þegar hún
varð þess vör að mig langaði til
að fara í langskólanám, en
treysti mér illa til þess af fjár-
hagsástæðum, bauð hún mér
að hjálpa mér eins og ég þyrfti.
Það gerði hún án þess nokkum
tíma að minnast á endurgjald
eða hampa því á nokkum hátt.
Hún hafði þann þroska áð gefa
án nokkurs endurgjalds.
Nú þegar leiðir skilja um sinn,
þá hugsum við börnin hennar til
hennar með þakklátum huga
fyrir allt það, sem húm hefur gef
ið okkur i veganesti á einn eða
annan hátt.
Hún hafði bjart yfirbragð og
það stafar birtu af lífsleið henn
ar og minningin um hana er i
hugum okkar, sem áttum hana
fyrir kemnara, einstaklega björt
og fölskvalaus.
Hjalti Gestsson.
Sólveig Danivals
dóttir — Minning
MÉR ear ljúft að minnast firæmku
minnar Sólveigar Danivalsdótt-
ur, en hún lézt 5. júlí sl. á sjúkra
húsinu í Keflavík, eftir stutta
sjúkraiegu.
Sólveig var fædd 27. október
1880 að Héraðsdal, Tungusveit í
Skagafiirði. Foreldrar hennar
voru Jóhanna Jónsdóttir og
Danival Kristjánsson, sem lenigst
aí bjuggu á Litla-Vatnsskarði í
Húnavatnssýslu.
Sólveig var elzt alsystkina
sinna, en þau voru alls 8, auk
tveggja eldri hálfsystra, en tveir
bræður hennar, Danival og Sig-
urjón eru látnir fyrir nokkrum
árum. Mikið reyndi á duignað og
fiestu Sólveigar á svo fjötavennu
heimiii, enda hefur þar verið
lagðiur sá grundvölillur, sem
ávallt einkenndi liif og störf
hennar síðar, en það var einstök
iðjusemi og trúmennska í hvi-
vetna.
Blztu systkinin, þau Sólveig og
Danival fóru ung að árum á lýð-
skólann á Hvítárbökkum, sem þá
var nýtekinn til starfla undir
stjórn hins framsýna manns, Sig-
urðar Þórólfssonar. Það þurfti
mikinn kjark í þá daga til þess
að fara i slíka námsferð, sérstak-
lega fyrir þá, sem ekki höfðu ann
að að bakhjarli en góðar óskir
foreldra sinna, en sáralitil fjár-
ráð. Þessa skólanáms minntust
þau systkinin ávallt síðan með
gleði og þökk, en Sólveig lærði
síðan karlmaninafatasaum á Sauð
árkróki.
Árið 1915 giftist Sólveig Páli
Friðrikssyni, múrara, sem þá
var ekkjumaðuir og átti eina dótt-
ur, Helgu, en hún lézt á bezta
aldri frá manni og ungum syni.
Sólveig og Pálil bjuggu lengst af
á Sauðárkróki. Páll var mikið
fjarverandi vegna starfs síns,
þar sem hann byggði ibúðarhús
og kirkjur, bæði í heimahéraði
og úti um land.
Þau eignuðust 3 dætur: Ingi-
björgu búsetta á Eyrarbakka, en
hún missti mann sinn Lárus
Andersen á sl. ári; Helgu gifta
Hilmari Biering, búsett í
Reykjavik og Jóhönmiu gifta
Þórði Ásgeirssyni, búsett í Kefla
vík.
Páll lézt 1935 eftir marga ára
vanheiísu, en þá voru dæturnar á
unga aldri. Sólveig varð þvi að
leggja mjög hart að sér við fram
færslu dætra sinna. Henni var
gefinn óvenjumikill sálarstyrkur
og æðruleysi, sem bezt kom i
ljós eftir að heilsa hennar bilaði,
en hún var fötluð mörg síðustu
æviárin. Hennar mikla gæfa var
að geta dvalizt á heimilt dóttur
sinnar, Jóhönnu, og manns
hennar, Þórðar Ásgeirssonar.
Umhyggju þeirra fyrir Sólveigu
verður lengi minnzt af þeim sem
til þekktu og börn þeirra fimm
voru ömmu sinni hjálpleg og
góð. Hinar dætur hennar, Ingi-
björg og Helga voru ætíð i nán-
um tengslum við móðnr sína og
fjölskyldur þeirra.
Sú minning, sem Sólveig
skilur eftir sig, verður okkur
ávallt ljúf, enda einkenndu hana
einlægni og góður vilji, dreng-
skapur og trygglyndi. Sólveig
lifði í friði og sátt við umhverfi
sitt alla tíð og ég veit að sá frið-
ur mun verða með henni um
eilífð.
Ég skrifa þessar linur fyrir
hönd systk nanna og foreldra
okkar méð einlægu þakklæti
fyrir samveruna. Dætrum og öðr
um ættingjum vottum við okkar
innilegustu samúð.
Kristján Pétursson.
— Á sumardegi
Framh. af bls: 14
ina, að hún kostar ekki aðeins
vinnu og peninga, heldur, eða
réttara sagt miklu fremur þolin-
mæði — að bíða eftir árangrinum,
það er þrautin.
Á ég þá ekki við landkynn-
ing af þvi alræmda tagi, að „ís-
land sé nefnt á nafin“ sem oítast
og víðast, heldur hitt, að rödd
þess verði svo sterk og nái svo
haldfföstum hljómgrunni, að það
geti léð góðum málium lið, látið
eitthvað sæmilegt af tilvist sinni
leiða.
Weopon- og jeppnkenur
Vorum að fá nokkrar notaðar, stórar kerrur,
dekkjastærð 750x20/8.
Eigum einnig nokkrar JEPPAKERRUR,
óseldar.
GÍSLI JÓNSSON & CO. H.F.,
Skúlagötu 26 — Sími 11740.