Morgunblaðið - 09.09.1972, Page 28
LESIO
teSgg'
DflGLEGR
JWorjjiinliIaíiií)
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1972
JftorðimWntiití
nuGivsmGiR
*§L-’®22400
4ra ára telpa
beið bana
Lögreglan lýsir eftir 2 vitnum
BANASLYS varð á Seltjarnar-
nesi í gærkvöldi um klukkan
17.40. I»ar varð Iítil telpa, 4ra
ára undir sendiferðabíl og beið
nær samstundis bana. Slysið varð
við nýbysrffingu, íbúðablokk við
T.jarnarból og- eru engin vitni að
slysinu komin fram. Biður rann-
súknarlögreglan þau að gefa sig
fram, ef einhver eru.
Aróra
norðan
við
Færeyjar
LANDHELGISGÆZLAN
heyrði í gær í freigátunni Ár
óru og var hún í stefmu á
Færeyjar. Hafsteinn Haf-
steinsson hjá Landhelgisgæzl
unni sagði að augsýnilega
hefði Áróra verið nokkuð
langt úti á hafi.
Freigátan lagði af stað frá
Skotlandi fyrir þremur dög-
um og var þá að fara í eftir-
Utsferð uim Norðurhöf — eins
og það var orðað. Ferðin var
ákveðin fyrir hállfiu ári, að
því er brezka flotamálaráðu-
neytið hefur upplýst. Á ferð
sinni mun Áróra koma við á
íslandsmiðum.
Brúðar-
gjafirnar
brunnu
Akureyri, 8. september.
LAND-KOVEB-jeppi úr Mið-
firði með mikhim og verð-
mætum farangri brann að
mestu á Moldhaugnahálsi síð-
degis í dag. Ung hjón, sem
voru í jeppanum, sakaði ekki.
Ungu hjónin eru nýgift og
maðurinn var að flytja brúði
sína í átthaga hans vestur í
Miðfirði, þar sem þau ætla að
setjast að. Aftur í jeppanum
var farangur konunnar, fatn-
aður og aðrir persónulegir
munir, svo og allmargar
brúðargjafir þeirra.
Þegar komið var á Mold-
haugnaháls, 11 km frá Akur-
eyri, fundu þau reykjarlykt í
bílnum, stöðvuðu hann og
fóru út til þess að aðgæta
hvaðan hún kæmi. Þegar mað
urinn opnaði vélarhlífina gaus
upp eldur frá véiinnj og barst
fljótlega í olíuna, svo að af
varð mikið bál. Þau fengu
ekki við neitt ráðið, því að
eldurinn læsti sig um allan
bílinn í skjótri svipan.
Bráðlega ba r að bíl og
bilstjóri hans kom boðum til
lögreglu og slökkviliðs á Ak-
ureyri. Er skemmst af að
segja, að hjónin urðu að horfa
á búslóð sína brenna þarna á
þjóðveginum meðan beðið var
slökkviliðsins.
Bróðir ökumanns átti jepp-
ann, sem var kaskotryggður.
— Sv. P.
Tildrög slyssins eru þau, að
tveir menn höfðu verið að flytja
vörur inn í húsið og var annar
kominn út í bílinn, en hinn ekki,
sem var inni i húsinu. Beið ekiHl
inn eftir honum. Komu þá tveir
menn og báðu bílstjórann um
að hjálpa sér við að draga bíl í
ganig, sem bilaður var á Nesvegi.
Ætlaði maðurinn að verða við
beiðni þeirra og tók af stað,
heyrði einhvenn skruðning unidir
bílnum og stöðvaði hann.
Er bílstjórinn kom út úr bíln-
um og leit undir hann lá telpan
undir bílmum framarlega. Hún
hafði verið á litlu þríhjóli við
bílinn og bíistjórirwi ekki orðið
henniar var. Mennirnir tveir, sem
komu til þess að biðja bilstjór-
ann aðstoðar, eru vi’nsamliegast
beðnir að hafa samband við rann
sókmarlögregluna.
Síldarverkun í Isbirninum í g ær.
— Ljósm. Sv. Þorm.
Mikil hey um allt land
Nokkuð hefur hrakizt af heyjum
á Suður- og Vesturlandi
MIKIL hey eru um land allt og
margir bændur eru aflögufærir
og vilja selja, en engir kaup-
endur eru, nema ef væru hesta-
menn úr Reykjavík. Eitthvað á
þessa lund fórust Gísla Kristjáns
syni ritstjóra orð í viðtali við
Mbl. í gær. Þótt hey séu mikil,
eru þau þó misjöfn, en á Vestur-
og Suðurlandi hafa hey hrakizt
nokkuð og í gær og fyrradag
unnu bændur að því að bjarga
í hús þeim heyjum, sem beðið
hafa í göltum á túnum úti frá
því 10. ágúst.
Á Norðaustur- og Austurlandi
er heyskap svo til lokið og eru
þar um sveitir mikil og góð hey.
Á Norðurlandi hefur undanfam-
air vikur verið skúrasamt, allt
austur í Þingeyjarsýslur og hef-
ur það nokkuð tatfið fyrir hey-
verkurn. Nú síðustu dægur hef-
ur snjóað nyrðra og eru bændur
að bjarga þeim heyjum sem enn
hafá ekki náðst inn.
Eins og áður sagði eru bændur
nú að nota þurrkinn á Suður-
og Vesturlandi til þess að koma
hálfþurru heyi I hús. Sums
staðar mun eitthvað vera óslegið
af túnum, en bændur hafa yttr-
leitt ekki borið við að slá nú,
þar eð bjarga hefur þurft heyj-
um í hús áður. Um Suður- og
Vesturland er hey nokkuð gróf-
gert. Ekki er vitað, hvort hey
hafa skemmzt og verður reynsl-
an ein að skera úr því, því að
heyin hafa staðið úti í um 3
vikur.
Kartöfluuppskera leit vel út,
en nú er ekki vitað, hvort bænd-
ur hafi orðið fyrir einhverju
tjóní nyrðra vegna frosta. Bú-
ast má við því að grös fari að
falla, frysti fleiri nætur og vöxt-
ur kartaflna stöðvist a.m.k.
Sunnanlands eru kartöflubændur
nú i óða önn að taka upp úr
görðunum og tekur Grænmetis-
verzluniin við kartöflum enn.
Þyrlur Landhelgis-
gæzlunnar komnar
59 erlendir togarar við landið í gær
og eru
ÁREKSTRALAUST var á mið-
uniim umliverfis landið í gær,
að því er Hafsteinn Hafsteins-
son hjá Landhelgisgæzlunni tjáði
blaðinu í gær. Togarar voru tald
ir við strendur landsins í gær og
var talning fremur erfið fyrir
Norðaustiirlandi. Erlendir togar-
ar voru samtals 59, 33 brezkir að
veiðum, 5 á siglingu. 18 vestur-
þýzkir að veiðum, 2 færeyskir
og einn belgískur. Belgíski tog-
arinn var að veiðnm í hólfi VI,
samkvæmt samkomnlaginu frá í
í, -radag við Belgíumenn.
Tuttuigu brezkir togarar voru
að veiðuim fyrir innan og utan
50 mílna mörkin vestur atf Kol-
beinsey og austur af Hvalbak
voru 30 brezkir togarar á svip-
uðum sióðum og áður. Þá voru
5 brezkir togarair á Halamum og
einn vestur-þýzkur. 3 vestur-
þýzkir togarar voru að veiðum
á línunmi á Víkurál og 13 að veið
um fyrir Suðvesturliandi.
Eins og komið hefur fram í
fréttum átti Landhelgisgæzlan
von á tveimur li-tlum þyrlum frá
Bandaríkjumum og komiu þær til
landsins í gær með stórri fliuitn-
ingafluigvéfl. Þyrlumar eru a.f
Sex slösuðust
í umferðinni
— þar af 4 börn 3ja-7 ára
SEX manns slösuðust í umferð-
arslysnm á fjórum klukkiistund-
um í Reykjavík í gær, þar af
fjögur börn. Ekki var þó talið
að um alvarleg meiðsli væri að
ræða.
Fyrsta sjysið varð um kl.
11.30 i Stigahlíð við Suðurver.
1 ar varð 3ja ára dremgur undir
fólksbifreið, eftir að hemlar bif-
reiðarimnar höfðu bilað. Um kl.
13 varð 17 ára piltur á reiðhjóli
fyrir fóiksbifreið á mótum
Framh. á bls. 27
gerðinni Bell 47-3B-2
sams kcxroair þyrl'ur og notaðar
Framh. á bls. 2
Síld
til Húsavíkur
og Reykjavíkur
EINS og getið var í blaðinu í
gær var síld bæði söltuð og
fryst á Stöðvarfirði í fyrrakvöld.
í gær va.r verið að frysta síld
á Húsavík og í Reykjavík. Öll
er þessi síld úr Norðursjó og
bæði á Húsavík og hjá ísbirn-
inum í Reykjavík var hún tinnin
í beitu.
Síldin, sem kom til Isbjamar-
ins í gær var úr Ásberg RE 22.
Aflinm var um 50 tonm, ísaður í
kassa. Til Húsavíkur kom í
fyrradag Héðimn ÞH 57 og var
með 1.500 kassa. Samkvæmt
upplýsingum fréttaritara Mbl. á
Húsavík lítur síldin, sem þang-
að kom ved út og var húm umnin
í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur, en
nokkur hluti aflamagnsdns var
fluttur til Grenivíkur. Sagði
fréttaritarinn að það mætti til
tíðinda telja að við vinmsluma í
gær hefðu unmið stúlkur, sem
aldrei höfðu komið nærri síldar-
verkun áður.
Miðasala L.R.
enn lokuð
Hússtjórnin hótar að loka húsinu
í kvöld, er fyrsta sýning
leikársins á að fara fram
LOKAÐ var emn í miðasölu Leik
félags Reykjavíkur i gær og
höfðu enn i gærkvöldi ekki náðst
samningar nm leigukjör félags-
ins næsta starfsár þess. Þó varð
ekkert gert úr þeirri hótun að
bera Leikfélagið út á liádegi i
gær og í gærkvöldi æfðu leikar-
ar félagsins Dóminó, sem sýna
á í kvöld og annað kvöld.
Guðmundur Pálsison, fram-
kvæmdastjóri félagsins sagði í
viðtali við Mbl. í gær að hús-
stjóm Iðnó hetfði að nokknu dreg
ið úr kröfum þeim, sem hún
hefði sett upp fyrir leigu húss-
ins. T.d. hefði ákvseðimu um breyt
ingar á húsimu vegna krafna frá
hinu op'nbera verið mildaðar og
einnig var fallið frá kröfummi
um að engar hljóð- eða sjón-
varpsupptökur ma..itu fara fram
í húsirou nema með lieyfi hús-
stjórnar. En emn stiendur hús-
stjómin fast á upphæð leigunn-
ar, sem er 50 til 60% hærri í
krónutölu miðað v ð árið í fyrra.
Guðmiundur sagði að hússtjórn
in hótaði nú að loka hús'imu fyr-
ir sýniin.gunia í kvölid og annað
kvöld, en miikil salia hefur verið
á þessar tvaar ieiksýnimigar og
hafa miðar verið seldir á skrií-
stofu fölagisinis, sem er I viðbygg
ingu sunnan við Iðnó.