Morgunblaðið - 16.09.1972, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.09.1972, Blaðsíða 11
11 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1972 Bjöm Matthíasson; Er landbúnaður hálfdrætt- ingur á við sjávarútveg? Það á ekki að linna látunum, sem ég kom aí stað með erindi mínu um daiginn ag veginn i út- varpinu þ. 14. ágúst sl., þar sem ég minntist nokkrum orðum á landbúnað og útgjöld tengd hon um. Siðan hafa tvær tyitftir greina birzt í dagblöðum um er- indi þetta. Tíminn lét sér ekki naegja minna en að senda mér elTief u sikammagreinar á sex dög- um, sem hlýtur að vera algjört Islandsmet í skammablaða- mennsku. SMÁUPPRIFJUN Þar eð orðið er nokkuð langt síðan ég lét heyra frá mér (Mbl. 22. ágúst), er rétt ég rifji upp aðalinntakið í því, sem ég hef skrifað um þessi mál. Árið 1970 námu útgjöld temgd landbúnaði réttum þriðj- ungi af hei'ldarverðmæti land- búnaðarframleiðslunnar, eða samtals 1229 m.kr., en þar af voru niðurgreiðslur á landbún- aðarafurðum innanilands 571 m. kr., útflutninigsuppbætur 332 m. kr. og önnur framlög 326 m.kr. Árið 1971 voru útgjöld temgd landbúnað: komin í rúman helm- ing af verðtmæti landbúnaðar- framieiðslunnar og námu sam- tals 2360 m.kr., en þar af eru verðlagsniðurgreiðslur á land- búnaðarafúrðum innanlands 1550 m.kr., útflutningsuppbætur um 400 m.kr. og önnur útgjöld til landbúnaðarmála um 410 m. kr. Nema útgjöild þessi samtals nær fimmtungi af heildarútgjöld um ríkisins á A-hluta ríkisreikn ines það ár. Útflutnimgsuppbætur eru nú orðnar svo háar, að þær eru farnar að nema u.þ.b. jatfhhárri upphæð og sjátfur útflutningur inn. Árið 1971 nam útflutningur landbúnaðaraifurða 399,9 m.kr., en útflutningsuppbætur voru að eins hærri upphæð. Á árunum 1967—69 hafa útflutningsuppbæt ur verið allt að þre- til fjórfald ar á við fob útflutningsverð á sumum vörutegundum. í ljós hefur komið við athug anir Framkvæmdastofnunarinn- air, að landbúnaðurinn gerir langtum minna en að skila sín- um skerf 1 þjóðarframleiðsiluna og er þar mifcill eftirbátur. Ár- ið 1969 voru 12,9% af vinnuafli þjóðarinnar í landbúnaði, en á sama ári skilaði þessi atvinnu- grein ekki nema 7,5% atf þjóð- arframleiðslunni. í skýrslu Efnahagis- og þró- unarstofnunarinnar (OECD) um Island stendur, að vinnuaflsaf- köst í landbúnaði séu ekki nema 59,7% af meðalvinnu aflisaftoöst- um þjóðarinnar, en til saman- burðar eru þau 116,2% af meðal tali fyrir sjávarútveg og fisk- vinnslu og 133,9% fyrir bygging arstarfsemi. Skýrsla OECD hef- ur þessar tðllur frá Fram- kvæmdásitofnuninni, én þær segja með berum orðum, að land búnaður sé réttur hálfdrætting- ur á víð sjávarútveginn og fisk vinnsluna og minna en það gagn vart bygginigariðnaðinum. Þetta síðasta atriði með vinnu aflsafköstin hefur komið sárlega við kaunin á andmiaalend- um mínnm. Fyrir þetta hef ég íengið á mig tvo heila skamrna- leiðara i Timanum, þar sem reynt er að vefengja tölur þess- ar á allan hátt. Forðast leiðara- höfundurinn, Tómas Karlsson, að nefna, að tölurnar séu úr op- inberum skýrslum og lætur i það skína, að ég hafi helzt búið þær til sjálfur. í>á hefur Inigi Tryggvason sikrifað um þetta í tveimur blaða greinum. Sú fyrri, sem birtist i Mbl. 26. ágúst, er full af haturs- fulluim atyrðum til min og kem- ur þar glöggt fram, að greinar- höfundur á í skapgerðarerfið- leikum og virðisit mikið í nöp við mig. Ekki mun ég svara í sömu mynt. Get ég ekki annað gert en óska Inga góðs gengis við að yfirstíga skapgerðarerfið leika sína. Ég hef aldrei fyrir- hitt mann á ævinni, sem mér hef ur ekki Mkað vel við og á því enigin napuryrði til. LAUG HAGSTOFAN A LANDBÚNABINN ? 1 umræddri grein heldur Ingi þvi fram, að vinnuvikur í land- búnaði séu oftaldar, en þar sem upplýsingar um skiptingu vinnu atfls á atvinnugreinar byggjast á þeim, hljóti niðurstöður um hin lélegu vinnuafllsafkösit í landbún aði að byggjast á stórkostlegri handvömm í opimbe-rri skýrslu- söfnun. Vil'l greinarhöfundur láta í veðri vaka, að Fram kvæmdastofnunin hafi ekkert Framh. á bls. 21 ÓTR LEGT ELEKTRONISK REIKNIVÉL MEÐ STRIMLI NÝTT MODCL VERÐ AÐEINS KR. 25.800.- REIKNAR ALLAR 4 TECUNDIR REIKNINGS — KONSTANT OC GEYMSLA /s á* SKRIFSTOFUVELAR H.F. V:=* ‘ HVERFISGÖTU 33 SÍMI 20560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.