Morgunblaðið - 10.10.1972, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, t»RI£>JUDAGUR 10. OKTÓBER 1972
Myndin er tekin í Melbourne
síðdegis á laugardag af
kennslukonunni Mary Gibbs
og sex nemendiun hennar á
aldrinum 5—11 ára, en þeim
tókst að sleppa frá tveinmr
bófum, sem ruddust inn í
kennslustofu og höfðu þær á
brott með sér. Með þeim á
myndinni eru tveir lögreglu-
þjónar og lengst til hægri er
Lindsay Thompson, mennta-
málaráðherra Victoriu-ríkis,
en hann beið með tilskilið
lausnargjald skammt frá
þeini stað þar sem Mary Gibbs
og stúlkurnar höfðu verið skild
ar eftir í lokaðri bifreið. Þótti
Mary Gibbs sýna mikla
áræðni og stillingu og tápleg
framkoma hennar hefur vakið
athygli og aðdáun.
Lögreglan hefur handtekið
tvo menn, sem eru grunaðir
um ránið. Þeir eru báðir
fjölskyldumenn. Þess skal get-
ið, að mannræningjarnir
komu aldrei að sækja það
lausnargjald er upp var sett.
Indland
viðurkennir
A-Þýzkaland
Bonn, 9. okt. NTB—AP.
INDLANDSSTJÓRN ákvað lun
helgina að viðurkenna austur-
þýzku ríkisstjómina, eftir að
langar og umfangsmiklar viðræð
ur höfðu farið fram um málið.
Síðustu tvö árin hafa löndin haft
aðalræðismann í höfuðborgum
laudanna. Stjórnmálasérfræðing-
a. líta svo á að viðurkenning Ind
verja á Austur-Þýzkalandi sé
mjög mikilvæg, enda þótt hiin
komi ekki með öllu á óvart og
verði Indland að teljast mest
þeirra ríkja — utan kommún-
istarikjanna —, sem viðurkennt
hafa Austur-Þýzkaland fram að
þessu.
1 tilkynningu indversku stjórn
arinmar sagði að viðurkenning
væri báðum lönchmuim í hag, og
í gærkvöldi sa'gði Erich Hön-
eeker, flokksleiðtogi, að gagn-
kvæm viöurkanjito'g Indlands og
Þýzkalands myndi stuðla að
framgamgi friðar í Ev-rópu og
heimi öllum. Vestur-þýzka rikis-
stjórnin kvaðst ha.rma, að Ind-
verjar hefðu ákveðið að viður-
kenna A-Þýzk'alami, en það hefði
hins vegar f'uiliam rétt til að gera
slikt, ef því sýndist svo.
Tilkynning um stjörnmálasiam
band kom fáeimuim kluk'kustuinid-
um áður en v-þýzki ráðuneytis-
stjórinn, Egon Bahr, hélt til
Moskvu til að ræða við fulltrúa
sovézácu stjórnarinnar, m.a. um
viðlieitnd tii að koma samskipt-
um Vestur- og Auistur-Þýzka-
iands i eð-lilegt horf.
Nú h-afa alls 36 riki vi'ðurkennt
sitjórn Auistur-Þýzkalands.
— Noregur
Framhald af bls. 1
þjóðarflokkurinn renni hýru
auga til embætta kirkju- og
kennslumála og félagsmála, en
Vinistri aftur á móti muni sækj-
ast eftir samgönguráðherraemb
ætti og dómsmála.
Tekið er fram í fréttastofu-
fregnum, að allt séu þetta vanga
veltur, og frétta vart að vænta
fyrr en líða tekur á vikuna.
Tito boðar
hreinsanir
i júgóslavneska kommúnista-
flokknum og að nokkrum féiög-
um hans verði stefnt fyrir rétt.
Þetta kemur fram í blaðavið-
talá, sem hin opwnbera frétta-
stofa TANJUG birti sL laug-
ardag, en þar segir Titó fullum
fetum, að hann muni hvorki
sýna náð né miskunn eða leyfa
tilfinningasemi að hafa áhrif á
rannsóknirnar innan flokksins.
Titó, sem er orðinn áttræður
að aldri, segir í viðtalinu, að
hann vilji gjarnan fara að taka
sér hvild frá störfum, en hann
verði að halda áfram stöðu simni
til þess að tryggja hina sósíal-
ísku þróun í Júgóslavíu.
Belgrad — NTB
TITO, forseti Júgósiavíu, hefur
boðað að á næstunmi muni fara
fram umfangsmiiklar hreinsamir
Ýmis blöð í Noregi hafa látið í
ljós að Korvald og stjórn hans
muni eiga í hinum mestu erfið-
léikum, enda hefur stjórnin að-
eins að baki stuðning 47 þing-
manna úr nefndum þremur flokk
um — þ.e. ef þeir munu þá ailir
styðja hana.
1 ríkisstjórnarviðræðunum nú
taka þátt frá Kristilega þjóðar-
fiokknum auk Korvalds, Asbjöm
Haugstvedt og Knut Myrstaf;
Hallvard Eika, Gunnar Garbo og
Johan Kleppe frá Venstre og
Erland Steenberg, John Austr-
heim, Dagfinn V&rvik og Per
Borten frá Miðfiokknum. Ekki er
búizt við, að Borten sækist eftir
embætti i væntanlegri stjóm.
13
i stuttu máli
Hjónabandsskóli
Berlín, AP.
Austur-Þjóðvesrjar hafa
komið á laggirnar skóla fyrir
fólk, sem hyggst ganga í
hjónaband og er markmið
hams að koma í veg fyrir von-
brigði og átök.
í skóla þessum verða nám-
skeið um ýmsa þætti hjóna-
bands og heimiKsiialds, sva
sem lagaleg atriði, hýbýla-
prýði, heimilishagfraeði, snyrt
ingu og heilsufræði, barns-
fæðiimigar og kynlíf og sérstak
ir fyrirlestrar eru haldir uim,
„Að velja sér lífsforumaut“.
Kvensjúkdómasérfræðingar
og sálfræðimgar svara skrií-
legum spurninigum ómafm-
greihdra þátttakemda um
„hvers kyns vz daimáii varð-
andi vináttu og ást“, að þvi
er segir í frásögn ADN-frétta-
stofuranar af þessum nýja
skóla.
Fríverzlunarsvæði
Miðjarðarhafsríkja
Lúxemborg, NTB.
Utanríkisráðherrar EBE-
ríkja.nna komu saman til
fundar í Lúxemborg í dag til
þess að ræða leiðir til að
koma á fríverzlunarsvæði
Miðjas-ðarhafsríkja. Er gert
ráð fyrir því, að aðildarríki
slíks svæðis yrðu Spánn,
Grikkland, Tyrklamd, Malta,
Túnis, Alsír, Marokkó, fsrael,
Líbanon, Jórdania, Egypta-
land og Kýpur.
EBE hefur þegar viöskipta-
samninga við þessi ríki, en
þeir eru mismunandi að eðli
og umfangi. Evrópumefndin
hefur sett saman tillögur um
he;:’dar'iaiU'Sin má>a þessara
ríkja þar sem gert er ráð fyr-
ít friverzlun með iðnaðarvör-
ur og að nokkiru leyti lamidbúm-
aðarvörur. Búizt er við að
Banöaríkj amenn verði helzti
gagnrýnanidi slíks fyrirkoimu-
!ags.
Flóttatilraunin
kann að lengja fangavist Daveys
— brezka piltsins, sem dæmdur
var fyrir eiturlyf jasölu
í Tyrklandi
Hugsanlegt er talið, að
fangelsisdvöl brezka piltsins,
Timothys Daveys, sem í haldi
er i Tyrklandi vegna eitur-
lyfjasölu, verði framlengd um
átján mánuði vegna flóttatil-
raunar hans sl. föstudag.
Davey var dæmdur í sex og
hálfs árs fangelsi og hefði
hugsanlega sloppið með
skemmri tíma, ef hann hegð-
aði sér vel, en þær vonir virð
ast nú úr sögunni.
Timothy Davey, sem er að-
eins fimmtán ára að aldri, var
handtekinn í ágústmánuði
1971 ásamt þremur ungum
mönnum öðrum, tveimur
fröfllskum og éinum austur-
rískum, er þeir reyndu að
seija lögreglumanni eiturlyf.
Dómur var kveðinn upp yfir
honum í marz sl. og þótti
býsna þungur, þar sem dreng
urinn var svo ungur að aldri.
Fyrst eftir dómsuppkvaðn-
ingu var hann í haldi í Sag-
malcilar fangelsinu í Istan-
bul, en í ágúst sl. var hann
fluttur í betrunarbúðir í Kal-
aba, þar sem gæzla var til-
tölulega lítil.
Upp komst um flótta Dav-
eys á föstudagsmorgun, er
hann svaraði ekki nafnakalli
við fótaferð. Var þá þegar haf
in gagnger leit að honum og
fannst hann loks um kvöld-
ið i tollstöð, í landamærabæn
um Cilvegozu í Adana og var
þá að reyna að komast yfir
landamærin til Sýrlands. 1
för með honum var þýzkur
vinur fjölskyldu hans, Her-
mann Rolf að nafni. Telur
tyrkneska lögreglan, að hann
hafi undirbúið flóttann.
Davey var dulbúinn sem
stúlka, í hippaklæðnaði og
með síða hárkoilu. Hann
hafði falskt vegabréf með
nafninu ungfrú Jonathan Mic
hel og flugfarseðillinn frá
Istanbul til Adana var gefinn
út á þvi nafni.
Móðir Daveys, sem er 32
ára að aldri, og fimm önnur
börn hennar, 4—13 ára, hafa
dvalizt í Istanbul undanfarið,
hafzt við á tjaldstæði skammt
fyrir utan borgina. í síðustu
viku fóru þau til Ankara til
þess að vera nær Davey og
var þá Hermann Rolf í för
með þeim. Tollverðir hermdu,
áð konan og börnin hefðu far
ið yfir sýrlenzku landamærin
um Cilvegozu á föstudag
nokkrum klukkustundum áð-
ur en Davey og Rolf komu
þangað.
Mynd þessi v&r tekm í Istan'ni! skömi ii! eftir að Ðavey
var tekinn, er hann var að reyna að fara yfir Iandaina-rin
til Sýrlands. Davey, með síða hárkollu, er annar frá vinstri,
Hermann Rolf, er ungi skegg j iði maðnrinn, þrið.ii frá hægri.