Morgunblaðið - 10.10.1972, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 10. OKTÓBER 1972
19
Sólrún Elín Rögnvalds-
dóttir — Minning
Fædd 6. ás'iist 1906.
Dáin 29. septeinber 1972.
Sólrún Elín var íædd að Litlu-
Tungu í Miðfirði V-Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hennar voru
Rögnvaldur Lfndal, búfræðingur
og Guðrún Bjamadóttir, ljósmóð
ir, er þar bjuggu. Er Sólrún var
um eins árs gömul, fluttust for-
eldrar hennar að Hnausakoti i
sömu sveit, og þar var hún til
fjórtán ára aldurs. Síðan fór hún
til Hvammstanga á prýðisheim-
ili til vistar, þá búin að missa
föður sinn. Þaðan liggja svo spor
in til náms í Flensborgarskóla í
Hafnarfirði og síðan á Kvenna
skólann á Blönduósi. Eftir það
taka við störf hér og þar, eins
og títt var með ungar stúlkur á
þeim árum, þar til hún kynnt
ist í Reykjavík eftirlifandi manni
sínum, Ólafi Stefánssyni skip-
stjóra, og giftust þau 24. apríl
1934.
Með manni sínum eignaðist
hún tvo syni, sá yngri giftist og
fór að búa fjarri foreldrum, en
hinn eldri er ógiftur og nú með
föður sínum að móður sinni lát
inni. — Sólrún Elín var gáfuð
og glæsileg kona, andlit frítt,
líkaminn fagurlimaður, en það
sem menn tóku mest eftir, var
kvenlegur þakki O'g reisn. Oft
kom ég á heimili þeirra hjóna,
og voru þær stundir oft lengri
en til stóð, sem spjallað var yfir
kaffisopa um allt mögulegt. Það
var hrein lífsnautn og taldi ég
mig oft fara betri mann og
vitrari eftir þær samræður. Sér
staklega hafði hún lag á að
ivefja spjallið þeim léttleika og
kimni, sem gerði mann glaðan
og kátan er upp var staðið, jafn
vel þó um dapurleg efni væri
rætt. Síðustu mánuði hérvistar,
var hún sjúklingur á Vífilsstaða
hæli. Var henni vel ljóst að
hverju stefndi og tók sínum
skapadómi æðrulaust. Síðast er
ég heimsótti hana skynjuðum
við bæð'i, að þetta var lakaheim-
sóknin, þó að hún ixryigði
fyrir sig simuim vana létt-
leika og sagði að ef til vill ætt-
um við eftir að drekka saman
kaffisopa og spjalla saman. Sól
rún andaðist að morgni 29. sept
émber, og hélit hún sínum heil-
brigða andlega léttleika til
hinztu stundar.
Eiginmanni, sonum, svo og ást
vinum hennar, votta ég fyllstu
saimúð, en miinni á um leið að
öll erum við fædd til að deyja,
og stuttur viðskilnaður gerir end
urfundinn bjartari og fegurri.
Kæra vinkona, nú ertu komin
yfir móðuna miklu, til ljóssins
heima.
Það er margt að þakka eftir
langa samleið, en helzt vil ég
þakka þér að hafa verið til, og
að hafa verið sá gæfumaður að
hafa þekkt þig.
Guð þig geymi.
Óskar Guðlaugsson.
SKIPAUTGCRB RIKISINS
Ms. Esja
fer 16. þ. m. vestur um land í
hringferð. Vörumóttaka í dag og
fram til föstudags til Vestfjarða-
hafna, Norðurfjarðar, Siglufjarð-
ar, Ólafsfjarðar, Akureyrar, Húsa-
víkur, Raufarhafnar og Þórs-
hafnar.
Fiskiskip til sölu
Til sölu 100 lesta stálskip: Endurbygging hefur nýlega farið
fram á fiskilest, mannaíbúðum, aðalvél (skipt um block,
stimpla, slífar o. fl.), Ijósavél, rafkerfi, gír og togvindu. Skipið
er nú í slipp til gagngerðrar viðgerðar og eftirlits. Einnig til sölu
300, 250, 170, 150, 75 og nýlegt 50 lesta stálskip.
82, 77, 71, 55, og 50 lesta eikarbátar.
FISKISKIP, Austurstræti 14, 3. hæð,
símar 22475 — 13742.
Náttúrulækninga-
íélag Reykjavíkur
heldur félagsfund í Guðspekifélagshúsánu, Ingólfs-
stræti 8, fimmtudaginin 12. akt. kl. 9.
FUNDAREFNI:
Árni Ásbj'arnarsan skýrir frá siumiarstarfi
samtakanna.
Almennar umræður.
Stjómin.
Bœndur — Verktakar
Við höfum á lagej: núna: Jeppakeðjur
Jeppabenzínbrúsa
Weapankerrur
Jeppakerrur
Dráttarvélar
Gripaflutningavagna.
VÉLABORG, Skeifunni 8, sími 38557.
Það er aðeins einn
númer eitt
Næst þegar þú
kaupir verkfæri,
vertu viss um
að það sé
III
ii
Þeir sem eru
á vel negldum
snjódekkjum
komast leiðar sinnar.
GIMIMIVINNUSTOFAr
SKIPHOLTI 35, SÍMI 31055, REYKJAVÍK.
Ef að það er
eitthvað sem
Kidde hatar
þáerl
eldur.
Kidde handslökkvitæki
sjá rautt þegar þau sjá
eld. Með Kidde í hönd-
unum ertu öruggur um
llf og eigur fjölskyldunn-
ar. Kauptu Kidde strax í
dag, þau eru ódýrari en
þú heldur.
I.Pálmason hf.
VESTURGÖTU 3. SÍMI: 22235