Morgunblaðið - 12.10.1972, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 12.10.1972, Qupperneq 22
22 MORGtTNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12, OKTOBER 1972 Guðný Guðjóns- dóttir — Minning Maður er nefndur Jón Sig- urðsson og var bóndi í Hjörsey á Mýrum. Hann var kominn í beinan karllegg af Marteini Ein arssyni biskupi í Skálholti. Jón var maður tvíkvæntur. Með- al baima hans með fyrri konu var Akra-Jón, sem fyrstur hóf verzlun i Borgarnesi og Sigurð- ur, faðir Geirs skipstjóra í Rvik. Seinni kona Jóns var Sigríður, dóttir Hafliða Kol- beinssonar á Stóra-Hrauni í Hraunshverfi við Eyrar- bakka. Einkabam þeirra var Guðjón (1849—1924), sem fyrst bjó í Hjörsey, síðan á Ána- brekku, þá í Laxárholti og loks á Nýlendu við Akra, en var síð ustu ár sín í Reykjavík. Guðjón átti 13 börn, sem upp komust. Með fyrri konu sinni, Guðnýju Jöhannsdóttur, átti hann Sigríði saumakonu í Reykjavik, Jóhann jámsmið i Reykjavik, Guðrúnu konu Sig- urðar Þórðarsonar bónda I Skóg um á Mýrum, Jón bónda á Fífl- holtum á Mýrum, Runólf bók- bindara í Reykjavík, Guðmund skósmið og organista í Ólafsvík t Bróðir okkar, Ingólfur Kárason, klæðskeri, Kóngsbakka 16, lézt að Vífilsstöðum 10. okt. Lára Káradóttir, Þórir Kárason. og Reykjavik og Sigurð bónda í- Skíðsholtum á Mýrum. Eldri systkinin voru fædd á árunum 1871—1885 og eru nú öll látin. Seinni kona Guðjóns var Steinvör, dóttir Guðmundar Benediktssonar á Álftá O'g Sigr- íðar Andrésdóttur á Seljum, Jónssonar. Böm þeirra voru Guðný matreiðslukona í Reykja vík, sem lézt 1. okt. s.l., Sigríð- ur saumakona, sem ein er á lífi þeirra systkina og býr í Osló, áttræð að aldri, Egill málari (1894—1970), Guðmiundur verka- maður (1896—1928), Friðrik tré smiður (1897—1964) og Skafti bókbindari (1902—1971), allir i Reykjavík. Guðný, frænka min, sem ég mæli nú eftir, var fædd 29. júli 1889 að Ánabrekku og heitin í höfuðið á fyrri konu föður síns. Hún ólst upp hjá foreldrum sín- um i Laxárholti, unz hún hleypti heimdraganum 18 ára gömul til að freista gæfunnar og teita frama í Reykjavik. Vann hún þar miargs konar srtörf til að byrja með. Um eins árs skeið var hún vinnukona Indriða Ein t Innilegar þaikkir fyrir auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför, Karls Jónssonar, bankaritara, Eskifirði. Guðrún Jóhannesdóttir. t Útför föður okkar, t Þökkum auðsýnda gamúð við Bjarna Jónssonar, andlát og jarðarför föður Haga, Sandgerði, fer fram frá Útskálakirkju okkar, laugardaginn 14. október. At- Jóns Þórðarsonar, höfnin hefst með húskveðju að Stafnesveg 6, Sandgerði Miðfelli. kl. 14. Fyrir hönd vandamanna. Sigurður Bjarnason, Jóna Bjarnadóttir. Börnin. t Eiginmaður minn, Dr. thecá EIRÍKUR V. ALBERTSSON, fyrrverandi prestur og prófastur, andlaðist aðfaranótt 11. október síðastliðinn. Sigriður Bjömsdóttir. t Minningarathöfn um son okkar, SAMÚEL SVEINSSON, sem drukknaði af vélskipinu Freydísi frá Akranesi, 8. júlí, fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 13. október kl. 10.30. Fyrir hönd systkina hins látna, Hulda Þ. Fjeldsted, Sveinn Jónsson. t Útför eiginmann's míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS P. DUNGAL, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. okt. kl. 3. Þeir, sem vildu minnast hams, eru vinsamlegast beðnir að láta liknarstofnanir njóta þess. Elisabet Dungal, böm, tengdasonur og bamabörn. arssonar rithöfundar, en síðar á heimili Bjöms Jónssonar ráð- herra. Hélt hún síðan tryggð við þá fjölskyldu og var lengi hjá Sveini Björnssyni, siðar forseta, áður en hamm flu'ttist til Dam- merk’uir. Guðný var búin miklum hæfi leikum til matargerðar, og hélt hún til Danmerkur til að mennta sig frekar í þeirri grein. Var hún þar í nokkra mánuði á veit ingahúsi í Tívolí í Kaupmanna- höfn. Gerðist hún sannkölluð listakona i matargerð og varð brátt eftirsótt til undirbúnings veizluhalda. Vann hún um hrið á Hótel Islandi og einnig í Val- höll á Þingvöllum. En lengst af matbjó hún á heimilum heldri borgara í Reykjavik. Þegar Sveinn Björnsson var orðinn þjóð'höfðimgi .á Bess'asitöðium var Guðný oftsinnis kölluð þangað til matreiðslu. Eldaði hún t.d. matinn í veizlu, sem haldin var í tilefni af fyrsta rikisráðsfund inum þar. Seinna var hún sæmd orðu Kekkonens Finnlandsfor- seta fyrir að matbúa ofan í hann. Sjálfum er mér i fersku minni frá barnsárum hvílikt til- hlökkunarefni var að vera boð- ið í mat til Guðnýjar á stórhá- tíðum, svo sem á jóladag eða á páskum. Ekki var það einung- is, að þau hjón væru afar barn góð, heldur blandaðist þar inn í hrein matarást á Guðnýju. Eng- inn bjó til mat eins og hún. Árið 1932 giftist Guðný eftir- lifandi manni sínum Karli Vil- fcjálmssyni loftskeytamanni frá Keflavík. Þau hjón bjuggu sér fallegt heimili, þar sem snyrti- mennska var i fyrirrúmi. Ekki varð þeim barna auðið. Síðustu ár in hafa orðið þeim erfið vegna veikinda beggja, og nú fyrr á þessu áfi seidu þau 'ibúð sina á Dunhaga 17 og fluttust að Hrafnistu, þar sem Guðný lézt. Meðan Guðný var upp á sitt bezta, áður en veikindi og elli tóku að herja á hana, var hún létt og glöð í lund, oft glett- in, en stundum meinstríðin, þeg- ar sá gállinn var á henni. Sér- vitur var hún nokkuð. Kímni- gáfa hennar var á þann veg, að hún hafði auga fyrir ýmsu smá- skrýtilegu, eins og þau systkin in fleiri. Var það i anda gam- allar íslenzkrar alþýðukimni, sem nú er óðum að víkja fyrir innfluttri aulafyndni. Guðný var hvatvís og þegar henni mis- líkaði fór hún ekki í manngrein arálit og lét þá gjarnan hvern heyra sitt. Kom fyrir að hún geisaði. Þeir, sem þekktu lítið til hennar, fyrtust stundum við. En þeir, sem þekktu hana, vissu, að henni gekk ekki illt til og mátu hana fyrir litriki. Skap Guðnýj- ar var ekki sífelld ládeyða, held ur gætiti þar ýmiissa veðirahrLgða. í raun var hún viðkvæm og góð kona og trygg vinum sínum. Mér þótti afar vænt um hana. Guðjón Friðriksson. Minning: Kristinn Sölvi Sigur- jónsson, Hellu ALLT Mf verður fyrr eða síðar að mæta návisit dauðans og lúta lögmáli hans. Eigi að siður er oft erfitit að sætta sig við þetta lögmál. Þegar ungt fólk, i blóma lífsins, kveður Mfið á þessari jörð og er hrifið burt frá ásfvinum sámum og vanda- mönnum, verða menn orðlausir og geta ekkert sagt, jafnvel þeir, sem í annan tima er ekki orða vant. Krisrtinn Sölvi Sigurjónsson var fæddur 24. júní 1950. Hann var því aðeins 22 ára er hann lézt 6. okt. sl. Foreldrar hans voru Guðrún Sölvadóttdr og Sigurjón Guð- mumdsson á ísafirði. Kann ég ekki að rekja eett hans frekar. Árið 1967 fluttist Kristinn frá Isiafirði að Hellu á Rangárvöll- um. Starfaði hann í glerverk- smiðjunni þar meðan heilsa hans leyfði. Þegar glerverksmiðjan Samverk var stofnuð af heima- mönnum á Heliu árið 1969, var Kristni falin þar verkstjóm. Sýn ir það betur en orð, hverja kosti hamn hafði til að bera, þegar svo ungum manni, eru falin slík ábyrgðar- og trúnaðarstörf. Þessu trausti brást Kristinn ekki. Veit ég ekki betur, en að hann hafi leysí störf sín vel og 9amvizkusamlega af hendi. Kristinn var mikill hagleiks- miaður. Málaði hann og teiknaði og smíðaði ýmsa hluti bæði úr tré og steini. Bera myndir hans og smáðisigripir handbragði hans flagurt vitni. Á sl. vori kvæntiíst Kritstinn Báru GuðnadótJtur á Hellu. Eru það hörð örlög ungrar konu að kveðja eiginmanm sinn með þess um hætti. Á saknaðarstund mega fátæk- leg orð siin ekki mikils, en ég veit að minninigar um góðan drenig veita huggun i sárum harmi. Ég votta eiginkonu Kristáns, móður hans og öðrum vanda- mönnum inmilega samúð mina. Jón Þorgilsson. Fjölþættar framkvæmdir í Ólafsfirði ölafsfirði 9. október. Nú er hafin á vegum Orku- stofnunar borun eftir heitu vatni í svokölluðum Laugarengis hvammi um einn og hálfan kíló metra frá Ólafsfjarðarkaupstað. Svo sem kunnugt er þá er ein elzta hitaveita landsins í Ólafs- firði og er borun þessi í þeim tilgangi að auka vatnsmagn veit unnar, sem nú er á mörkum Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför GUÐMUNDAR EGGERTS ÞORSTEINSSONAR, fasteignasala. Gyða Þórarinsdóttir, börn og systkini hins látna. Inniiegar þakkir færum við öllum þeim, er heiðruðu minningu GUÐRÚNAR M. BJÖRNSDÓTTUR frá Brjánslæk. Einnig þökkum við alla umhyggju í erfiðum veikindum hennar. Sérstakar þakkir færum við Guðmundi á Brjánslæk, afkomend- um hans og fjölskyldum þeirra. Fyrir hönd systkina og v&nzlafólks. Sæmundur Björnsson. þess að fullnægja þörfum kaup- staðarins. Áætlað er að bora um 300 m djúpa holu, en 120—160 m eru niður á bergganginn. 1 sumar hefur allmikið verið unnið að hafnarbótum í Ólafs- firði, grjótgarður við nýju hafn arkvína vestur af eldri höfn- inni hafði sigið nokkuð og var hann nú styrktur og lagfærður. Þá fór fram viðgerð á enda Vest urgarðs og steypt ofan á hluta aðal viðlegubryggjunnar, sem skemmd hefur verið um nokk- urt árabil. Fyrri hluta sumars var haldið áfram við að steypa aðalgötu og bætt við rúmum 200 metrum auk þess sem unnið var að gangstéttarlögnum. Þá er nú hafin bygging nýrrar slökkvi- stöðvar og verður þar einnig að staða fyrir björgunarsveit slysa vamadeildarinnar á staðnum. Nú hefur endanlega verið geng ið frá samningum um smíði á öðrum skuttogara fyrir Ólafs- firðinga. Hlutafélagið Sæberg hefur samið um smíðina I Frakk landi og er skipið væntanlegt í október 1973. Er það um 500 tonn. Stjómarformaður Sæbergs h.f. er Ásgeir Ásgeirsson, en framkvæmdastjóri Gunnar Sig- valdason. Hafnar eru framkvæmdir við stækkun Hraðfrystihúss Magnús ar Gamalíelssonar. Viðbygging- in verður um 450 ferm og 1 henni aðstaða fyrir starfsfólk og stækkun á fiskmóttöku. — Kristbin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.