Morgunblaðið - 12.10.1972, Blaðsíða 32
VEITINGABUÐ
(CAFITERIA)
Opiá frá 5 f.h. til 8 e.h
RAFIÐJAN — VESTURGÖTU 1T
SfMI: 19294
RAFTORG V/AUSTURVÖLL
____ SÍMI: 26660
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1972
20 milljaröa f járlagafrumvarp:
Stórfelld vísitölu-
skerðing fyrirhuguð
VABÐSKIPIN Albert og Týr
í Reykjavikurliöfn. Eins og
sést á myndinni, hefur Týr
verið málaður i lit Eandhelgris
græzlunnar. — Ljósm. Sv.
Þorni.
100% hækkun fjár-
laga á tveimur árum
Tekjuskattar einstaklinga
hækka um 1.347 millj. kr.
• Ríkisstjórnin lagfti í gær
fram frumvarp til fjárlaga
fyrir árið 1973. Niðurstöðu-
tölur eru 20,4 milljarðar kr.
• Samkvæmt þessu frum-
varpi er gert ráð fyrir að nið
urgreiðslum vegna verðstöðv
unarinnar verði hætt, er hef-
ur í för með sér stórfelldar
verðlagshækkanir. Kaup-
greiðsluvísitalan verður á
hinn bóginn skert, þar sem
ekki er gert ráð fyrir, að hún
breytist frá því, sem nú er.
• Gert er ráð fyrir, að tekju
skattur einstaklinga hækki
um 1,3 milljarða kr. frá fjár-
lögum þessa árs.
• Frá því núverandi ríkis-
stjórn tók við völdum hafa
fjárlög hækkað um nær-
fellt 100%.
Fjárlög fyrir árið 1971 námu
um 11 mil'ljörðuim kr. Fjárlög
þessa árs eru um það þil 16 mill
jarðár króna og samfcvæmt fjár
lagafrumvarpinu fyrir árið 1973
er gert ráð fyrir að þessi tala
hækki upp í 20,4 milljarða kr. —
Venjulega hækka niðurstöðutöl-
ur fruimvarpsins í meðförum
þingsins, þannig, að hækkunin
frá 1971 verður um 100%.
f athutgasemdum við fruimvarp
ið segir, að niðurgreiðsluáætlun
in miðist við það, að sú aukning
sem ákveðin var í júlí sl. sem
hluti verðstöðvunaraðgerða, hald
Framh. á bls. 31
Norðurland:
Markaðsástand leyfir
ekki álverksmiðju
Alusuisse reiðubúið að ræða málið
síðar — Stjórnskipaðri nefnd leizt
bezt á Gáseyri við Eyjafjörð
Týr skal hann heita
EKKI er ráðlegt að reisa álverk
smiðju á Norðurlandi að sinni,
vegna inarkaðsástands í lieim-
inum í dag. Eittlivað á Jx-ssa
leið segir í skýrslu nefndar, sem
sett var á fót vorið 1970 til þess
að kanna möguleika á því að
reist verði álverksmiðja á Norð
urlandi. Engir tækniiegir örðug
leikar eru á byggingu álversins
nðrir en þeir að markaðshorfur
leyfa það ekki og fyrirtækið því
ekki talið nægilega arðvænlegt.
Nefndin, sem um málið fjallaði
var samstarfsnefnd íslendinga
og manna frá Alusuisse. Alu-
suisse hefur hins vegar lýst yfir
vilja sínum til frekari viðræðna
um málið um leið og markaðs-
horfur hafa breytzt til batnaðar.
í lögum nr. 76 frá 13. maí 1966
um lagagildi samnings milli rík
isstjórnar ísiands og Alusuisse
Ltd. um álbræðslu i Straum.svik,
fjallar 37. gr. um rekstur á Norð
urlandi og vinnslu úr áli. Þar
segir svo: „Fari svo að ríkis-
stjórnin hyggi á það í framtíð-
inni að byggja álbræðslu á Norð
urlandi, lýsir Alusuisse yfir því,
að félagið er reiðubúið að taka til
vinsamlegrar athugunar þátt-
töku i slíku fyrirtæki í félagi við
íslenzka aðila svo fremi að það
sé fjárhagslega hagkvæmt. —
Alu®uisse myndi þá reiðubúið til
að leggja bræðslufyrirtækinu til
viðskiptalega og tæknilaga að-
stoð með sanngjörnum kjörum.
Alusuisse og ÍSAL eru reiðubú
in til þess að aðstoða islenzka
iðnaðaraðiia við þróun úrvinnslu
Framh. á bls. 31
Sparif jár-
skírteini:
100
milljónir
óseldar
ENN eru óseld sparifjárskírteini
að upphæð 100 milljónir króna
af sparifjárskirteinum ríkissjóðs
sem gefin voru út í mai sl. Útgáf
an þá var upp á 300 millj. kr., og
að sögn Björns Tryggvasomar,
seðlabankastjóra, er þetta lang-
hæsta útboð á slíkurn skírtein-
um, því að þar áður hafði útgáf
an venjulega hljóðað upp á um
100 milljónir króna.
Björn sagði, að alltaf væri taOs
verð hreyfing á þessum sikh’tieim-
um.
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að
Hvalur 9 skuli heita Týr á
meðan hann gegnir hlutverki
sínu sem varðskip. Hvalur hf.
hefur farið fram á að skipið
verði umskráð undir þessu
nýja nafni og hefur siglinga-
málastjóri fallizt á hið nýja
nafn. Hvalur 9, eða Týr eins
og franivegis ber að kaila skip
ið kom í fyrradag úr slipp og
hefur hann verið niálaður í
hinum gráa lit Landhelgisgæzl
iinnar.
Týr er goðanafn eims og
nöfn hinna varðskipanna. í
norrænni goðafræði var Týr
sonur Óðins, en nafnið Týr
merkir upphaflega guð og er
oft notað í samsetningium um
aðra guði, t.d. er Óðinn nefnd
ur hanga-týr og Þór reiðar-týr.
I M 350 s|MU*i)ánareikningar hafa
nií verið opnaðir i aðalbanka
Lanilshankans, og talið er, að
jafnmargir sparilánareikningar
samtals hafi verið opnaðir i úti-
búiim bankans, jMvnnig að alls
hafa um 700 reikningar verið
opnaðir á þeim skamma tima,
sem liðinn er síðan þessi nýjung
í bankajijóniistu var tekin upp í
LiindsÍKUtkaniini.
Nær alOir, sem opmað hafa
reifcmimga, ákváðu að gmeiða há-
marksgi'eiðsioj, 3.300 koróniur á
Goðin í heild sinni eru einnig
köiluð tívar.
Eftir örnefnum að dæma
var Týr mest dýrkaður í Dan
mörku. Snorri Sturluson lýsir
Tý svo: „Hann er djarfastr
ok bezt hugaðr, ok hann ræðr
mjök sigri í orrustum. Á hann
er gott að heita hreystimönn-
um. Þat er orðtak, at sá er
týhraustur, er umfram er
aðra menn ok ekki sésk fyrir.
Hann er ok vitr, svá at þat er
ok mælt, at sá er týspakr, er
vitrastr er.“ í íslenzkum heim
ildum er Týr alltaf talinn her
guð. Kemur það vel heim við
það, að í latneskum ritum er
hann oftast nefndur Mars,
sem er heiti rómverska her-
guðsins. Týr er einhendur, því
að hann lét hægri hönd sína
að veði í gin Fenrisúlfs.
mámuði hverjum, og er því hér
um að reeða um 2,3 mililjón knóna
Framh. á bls. 31
30 daga
gæzluvardhald
ÞRJÁTÍU daga gæzluvarðhalds-
úrskurður vair í gær kveðinn upp
yfir Helga Hóseaissyni, sem í
fyrradag sletti úr llfcndalli á for-
seta Isiands, forsetafrúnia, biskup
Framh. á bls. 31
Utanríkisráðherra:
Skýrslan í vélritun
Hefur ekkert um ummæli
Lúðvíks að segja
SKÝRSLA embæUismanna- spurður um ummæli Lúðvíks
nefndarinnar, sem ræddi við -lósepssonar, sjávarútvegsráð-
Breta um landhelgismálið, herra, er hann viðhafði á
var i vélritun í gærkvöldi og blaðamajina.fnndi fyrir nokkr-
hafði Einar Ágústsson þvi enn um dögum. Einar sagðist ekk-
ekki fengið hana í hendnr í ert hafa um ummæli hans að
gærkvöidi, er MbJ. ræddi við segja.
hann. Elnair var ennfremnr
Um 700 sparilána-
reikningar opnaðir
við Landsbanka íslands