Morgunblaðið - 10.11.1972, Side 20

Morgunblaðið - 10.11.1972, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. NÖVEMBER 1972 Minning: Kristinn Ágúst Eiríksson, járnsmiður Faeddur 19. ágúst 1908. Dáinn 5. nóvember 1972. Þegar ég frétti að Kristinn Ágúst Eiríksson væri að missa sjónina, þóttist ég vita að nú væri fokið í flest skjól fyrir hon um. Vinnusamari og vinnuglað- ari mann hef ég aldrei hitt á ævinni. Ungur að árum verður hann fyrir þvi að hreppa brjóst veiki, og eftir það má heita að hann hafi ekki stigið heilum fæti á jörð. Þrátt fyrir þessi veik- indi leggur hann út á þá braut að gerast járnsmiður og stund- ar þá iðju til dauðadags, síðast i Landssmiðjunni. En Kristinn var ekki bara góður járnsmið- ur. Hann var hagur á tré, og það var engu likara en að allt sem hann snerti og kallazt gat vinna léki í höndunum á honum. Hið myndarlega heimili hans og Helgu að Vesturvallagötu 2, er til vitnis um það. Snyrtimennska þessara hjóna var svo einstök bæði utanhúss og innan að at- hygli vakti, garðurinn við hús- ið svo vel snyrtur að þeir sem leið áttu um götuna gátu ekki stillt sig um að nema staðar og skoða þennan fagra blett sem eitt sinn hafði verið fisk- reitur Eiriks Eirikssonar. Krist- inn var hreinasti meistari í garð vrkju og hlaut fyrir það viður- kenningu hjá fegrunarnefnd Reykjavíkurborgar. Hann unni sér aldrei hvíldar nema í sumar- frium, og í þau skipti sem hann þurfti að liggja í sjúkrahúsum. Ekki var hann fyrr sioppinn út úr þessum stofnunum en hann var kominn að verki i smiðjunni, eftast eldsnemma á morgn- ana, og hjólaði þá í hvaða veðri sem var. Þórbergur segir að í Peykjavik séu þrjár árstíð- ir, nefnilega istíð, ryktíð og saurtíð, að mig minnir. Kristinn kynntist þeim öllum á meðan hann stundaði hjólreiðarnar. Sextugur að aldri fær hann sér bíl og tekur bílpróf. Og enn virð- ist hann vera ódrepandi, svo mikil var seiglan og hugur- ínn til vinnunnar, enda voru þeir margir sem ekki vildu trúa þvi að slíkur maður gæti verið þjáður mjög. Undirrituð var t.d. farin að telja sér trú um að kjarkurinn sem hann hafði til að bera gæti haidið í honum lifinu til margra ára í viðbót. En svo bregðast krosstré sem önnur tré. Þegar eljumaðurinn finnur að hann er að verða blindur þá brotnar hann. Góðvinur hans Helgi Ingvarsson fyrrum yf- irlæknir á Vifilsstöðum heifði lengi stáðið honum til annarrar handar í veikindum hans. En eins og komið var fyrir Kristni var þó sá læknir beztur sem vitj aði hans í líki Rukkarans mikla. Það gerðist árla morguns hinn 5. þ.m. Kristínn og Helga voru miklir höfðingjar heim að sækja og átt um við hjónin margar ánægju- stundir á heimiii þeirra. Fyrir rúmum tíu árum þegar dótt ir okkar Anna Matthildur og Eiríkur sonur þeirra hjóna héldu brúðkaup sitt, flutti Kristinn snjalla tölu fyrir minni brúðhjónanna. Tækifærisræð- ur voru hans líf og yndi og fræg ar orðnar. Á slikum stundum var hann ómissandi, og reglulegt samkvæmisljón. Konu sína dáði hann mjög og hafði engu minni mætur á tengdadótturinni en sín um eigin dætrum, þeim Sesselju og Önnu. Fyrir þetta má ég vera honum innilega þakklát. Hann var bæði vinsæll og trygglynd- ur, og lagði oft leið sína í sjúkra húsin að vitja gamalla stofufé- laga. Um margra ára skeið heim sótti hann einn slíkan hvern sunnudag. Hvað skyldum við vera mörg sem notum þannig frí timann okkar? Með Kristni er fallinn í valinn góður eigin- maður, faðir, tengdafaðir og afi. Hann unni barnaböm- um sínum af öllu hjarta, en aldrei sá ég hann kjassa þau. Eflaust hefur hann hugsað sem svo, að allur væri varinn góður, jafnvel þótt hann væri ekki á nokkurn hátt talinn smit- beri. Hann var allra manna þrifnastur og snyrtimenni að eðl isfari. Af þremur börnum þeirra heiðurshjóna Sesselju Guð- mundsdóttur og Eiríks Eiríks- sonar sem forðum bjuggu í litla húsinu við Vesturvallagötu er nú aðeins eitt á lífi. Það er frú Guðrún Hvannberg á Hóla- torgi. Með henni og Kristni voru alltaf nokkrir dáleikar, og mun hún nú sakna góðs bróður og vinar. Guðmundur bróð- ir þeirra er látinn fyrir mörg- um árum. Að endingu vil ég þakka Kristni gleðistundim- ar sem við áttum saman. Konu hans og öðrum ástvinum hef ég þegar vottað samúð mína. En ekki má gleyma nágrönnum hans. Persónuleiki hans setti svip á umhverfið þar sem hann átti heima, og nú býður mér í grun að Vesturvallagatan verði ekki sú hin sama og áður með- an hann var á dögum. Farðu sæll Kristinn Ágúst og guð geymi þig. Auður Matthíasdóttir. Kristinn Ágúst Eiríksson, járnsmiður lézt að heimili sínu, Vesturvailagötu 2, hér í bæ, að morgni þess 6. nóvember s.l. Kristinn hafði verið heilsutæp- ur undanfarið, þó kom þessi and látsfregn okkur vinum hans og vinnufélögum mjög óvænt. Þvi fjarri var það að Kristinn hefði á nokkurn hátt látið bilbug á sér finna, þvi fram á það síð- asta var hann fullur áhuga fyr- ir lífinu og starfinu. Kristinn Ágúst var fæddur 19. ágúst 1908 að Vesturvaliagötu 4, foreldrar hans voru hjónin Sesselja Guðmundsdóttir og Ei- ríkur Eiriksson fiskimatsmaður. Kristinn var yngstur þriggja systkina. Bernskuheimili Krist- ins var rómað fyrir snyrti- mennsku og ráðdeild, enda kom fljótt í Ijós hvaða áhrif það hafði haft á hinn unga mann, því hann og allt hans bar þess merki til hinztu stundar. Krist- inn var sérstakt snyrtimenni og þoidi ekki í kringum sig annað en það sem fegraði umhverfið, þurfti ekki annað en sjá hús hans og garð, enda hlaut hann viðurkenningu fyrir. Vorið 1925 réðst Kristinn sem nemandi á vélaverkstæði h.f. Hamars í Reykjavík og lauk þar námi í rennismiði. Kristinn var mjög félagslynd- ur og fl'jótt ófeiminn víð að tjá sig á mannfundum, enda komst hann ekki hjá að taka að sér öll möguleg félagsstörf. Árið 1934 hinn 19. maí giftist Kristinn eftirlifandi konu sinni Helgu Sveinsdóttur og eignuð- ust þau 3 mannvænleg börn, sem öll eru gift, voru hjónin mjög samhent og búnaðist vel. Kristinn Ágúst vann alla sína ævi sem járnsmiður og hygig ég að aldrei hafi hvarflað að honum að hverfa frá iðn sinni. Hann var mjög starfsamur mað- ur og vel látinn á vinnu- stað, enda hjálplegur og vildi allra vanda leysa. Ég þykist vita að þeir, sem hann vann fyr- ir, hafi verið ósviknir af dags- verki hans. Kristinn Ágúst vann i Lands- smiðjunni uim 30 ára bil, við vinnufélagamir söknum hans og þökkum honum samstarfið. Frú Helgu, börnum hennar, tengdabömum og bamabömum, biðjum við allrar blessunar og geymi þau og varðveiti minning- una um góðan dreng. Þorvaldur Itryn jólfsson. Kristinn Ág. Eiriksson, járn- smiður, Vesturvallagötu 2 hér í borg lézt að heimili sínu að morgni 6. nóvember s.l. Þessi fregn kom félögum og vinum Kristins Ágústs á óvart þrátt fyrir vitneskju um að Kristinn Ágúst hefði átt við ára tuga líkamlegt heilsuleysi að stríða. Kristinn Ágúst var fæddur í Reykjavík 19. ágúst 1908 sonur Sesselju Guðmundsdóttur og Eiríks Eiríkssonar. Kristinn Ág. var sonur fátæks verkamanns og mótaður af því. Vegna þessa, skipaði hann sér strax sem unglingur i rað- ir þeirra er kröfðust breytinga, réttláts og mannlegs þjóðskipu- lags. Sautján ára, 1925, hóf Krist- inn Ágúst nám s«n járniðnaðar- nemi hjá Hamri h.f., þar með markaði hann sér vettvang starfslega og félagslega ævi langt. Strax að loknu iðnnámi 5. júni 1929 gekk Kristinn Ág. í ^ Félag jámiðnaðarrrjanna og var þaþ félagi nr. 53, en\nú éru þeir sem gengið hafa í ■ það félag 1600. Frá 1930' og til dagsins er hann lézt, hófust og stóðu af- skipti Kristins Ágústs af félags- legum málefnum. Mörg féiög og • sajnfélagsleg efni áttu hug Kristins Ág., en Félag járniðnað armanna átti hug hans fyrst og . sklast. Samtök berklasjúklinga, • bindindishreyfing, , stjórnmála : sarotök jafnaðarmanna óg sósícil ista, þar var hans félagslegi starfsvettvangur. Kristinn Ág. var stjómarmaður í Félagi járn iðnaðarmanna í tæpan áratug frá 1941—1949, í samtökum berkla sjúklinga, bindindismanna og fleiri samtökum var hann stjóm armaður oftsinnis. En Kristinn Ágúst er dæmi um félagshyggju- manninn sem ekki er alltaf 1 stjórn eða nefnd, þess vegna var hann oft áhrifamestur sem hinn óbreytti félagi. Hinn virki óbreytti félagi í ölium félagasam tökum er sá sem knýr á og breyt ir viðhorfum og samfélagi. Þetta var verkefni og áhugi Kristins Ág. og hann rækti þetta verk- efni ekki vegna launa eða við- urkenninga, heldur vegna áhuga á því að gera líf hins fátæka: betra og fegurra. Kristinn Ág. var gæfumaður, hann átti áhugaefni mörg, en eitt var honum ofar öllu, heimilið, Helga og börnin, og þó var hon um oft ekki ijóst hvort var núm- er eitt heimilið eða Félag járn- iðnaðarmanna. Helga, og heimili hennar og Kristins Ágústs, gaf honuim vissulega kraft til að sinna hinum félagslegu verkefn um, og nú þegar Kristinn er all-, ur þökkum við félagar hans í Félagi járniðnaðarmanna Helgu og börnunum, hve þau gáfu okk- ur stóran hlut í huga og tóima Kristins. Félag járniðnaðarmanna kaus Kristinn Ágúst Eiriksson heið- ursfélaga á 50 ára afmæli félags ins í apríl 1970, og félagið mun heiðra minningu Kristins Ág. með því að herða enn á barátt- unni fyrir betra og fegurra mannlífi. Ég undirritaður kom sem ungl ingur í nám í jámiðn í Héðni 1943 og mætti Kristni Ág. og sennilega hefur það ráðið örlög- um mínum meir en anpað. Ég þakka nú fyrir leiðsögn, stuðn- ing og vináttu. Fyrir hönd allra samherjanna þakka ég fyrir eidmóðinn og bar áttukjarkinn. Áhrif Kristins Ág. munu lengi vara í Félagi járn- iðnaðarmanna. Félag jámiðnaðarmanna vott- ar frú Helgu Sveinsdóttur, bömium og bamabörnum samúð vegna andláts Kristins Ág. Eirikssonar. Guðjón Jónsson formaður Félags jámiðnaðarmanna. Háþrýsti þvottatæki Höfum fyrirliggjandi Morrison háþrýstiþvottatæki með 105 kg þrýsting á cm 2. Tækið er fyrir kalt vatn og fylgir því yfir 30 metra þrýstislanga. Hentug til hreingeminga á vélum, verkfærura. skipsbotnum o. fí. Gott verð. SEIFUR H.F., Umboðs- og heildverzlun, Kirkjuhvoli, sími 21915. draumarekkjan er tvíbreitt rúm frá Kristjáni Siggeirssyni hf Nú getið þér lótið Kristjón Siggeirsson h.f. setja saman fyrir yður draumarekkju sem uppfyllir jafnvel ströngustu kröfur yðar. Hvort sem þér viljið sofa í einbreiðu (75, 85 eða 100 cm) rúmi eða tvíbreiðu (170x200 cm) úr eik eða tekki, með eða ón gafla eða nótt- borða- með einni, tveim eða þrem fótafjölum, eru möguleikarnir fyrir hendi í nýju drauma- rekkjunum fró Krisfjóni Siggeirssyni hf. Komið, skoðið og sannfærist. HÚSGAGNAVERZLUN -á KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF. Laugavegi 13, sími 25870, Reykjavík. o*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.