Morgunblaðið - 08.12.1972, Blaðsíða 4
22*0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
14444 © 25555
14444 ‘S' 25555
BfLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
SKODA EYÐIR MJNNA.
SHODfí
LEIGAN
AUÐBREKKU Ægfc
SfMI 42600!
BÍT.ALEIGA.N
8-23-lT
sendian
HÓPFERÐIR
Tíl leigu f lengri og skemmri
ferðii 8—34 farþega bílar.
Kjartan Ingimarsson,
simi 32716.
ÓLAFUR ÞORLÁKSSON
Má If I utn i ngsskrif stof a
Laugavegi 17 — sími 11230.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1972
STAKSTEINAR
Fjöðrin góða
Allan sinn ráðherradóm
liefur Magnús horfinn verið
að máta fjaðrir til að skreyta
hatt sinn með. Af þessum
sökum hefur ef til vill minna
orðið úr verki en efni stóðu
til. En nú þykist Magnús vera
búinn að finna þá fföður, er
hæfi bezt, og jafnframt það
mál, er afsakað geti rósemi
hans fyrir Samtökum frjáis-
lyndra og vinstri manna. —
Verðnr á næstnnni Iagt fyrir
Alþingi ný útgáfa af grunn-
skólafrumvarpinu.
Að þvf er frétzt hefur um
þetta frumvarp má ráða, að
það er að litiu leyti sniðið
eftir ísienzkum staðháttum
og menningu, heldur meira
að þeim lögiinri sænskum, er
bezt hafa dugað til að sra
frá unglingum þar í iandi alla
sjálfstæða hugsun. Þaðan er
meðal annars sú hugmynd að
gera alla kristindómsfræðslu
útlæga úr skólum landsins,
— gera múhameðstrú og
dýrkun stokka og steina jafn-
réttháa þeirri kristni, sem yf-
ir nítíu og fimm hundraðs-
hiutar þjóðarinnar játa.
1 stað kristindómsfræðsi-
ttnnar á að koma „triiar-
hragðafræðsla", þar sem börn
um verður innrætt að líta á
alla trú sem hjátrú, — eins
konar ópíum fyrir almúgann.
En svo er guði fyrir að
]>akka, að Alþingi hefur liing-
að til borið gæfu til að
standa vörð um réttindi
kristninnar í landinu. Verður
þv'í ekki trúað að éreyndu,
að þingmenn láti glitfjöi'íiir
menntamálaráðherrans verða
jafn stásslega á að líta, þeg-
ar úr þingsöltinum kemur.
Atlagan gegn
skólunum
En það er fleira varhuga-
vert við hið nýja frumvarp.
Samkvæmt því á að minnka
mjög vald skólanna og færa
það í hendur sálfræðinga og
félagsfræðinga. Nú eru menn
slíkra fræða út af fyrir sig
ekki hættulegir umhverfi
sínu, en hitt ætti öllum að
vera ljóst, hversu varhuga-
vert það er, að láta menn,
sem aldrei hafa komið nálægt
skólum eða kennslu, vera yf-
irrétt í þeim efnum. Það kann
ekki góðri lukku að stýra.
Reynslan erlendis er líka
sú, að svipaðar hugmyndir
um stjórn skóia hafa aliar
leitt til niðiirlægingar iieil-
brigðrar skólastjórnar.
Þeir skólamenn, sem sýnt
hefur verið frumvarpið, hafa
skipzt í tvo hópa. Þeir, sem
fylgjandi eru alræði „menn-
ingarinnar" fagna að sjálf-
sögðu þessu frumvarpi, en
þeir, sem meira þykir um
vert sjáifstæði nemenda
sinna og skólanna sjálfra,
taka frumvarpinu með þeirri
tortryggni, er hæfir. Enda
varð einum þeirra vísa á
munni, þegar hann hafði séð
grunnskólafrumvarpið:
Skáikarnir treysta skóla —
grunninn
skrambi er lítið vit í því.
En það er of seint að byrgja
brunninn
þegar barnið er dottið ofan í.
spurt og svaraÓ
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Hringið í síma 10100 kl
10—11 frá mánudegi til
föstudags og biðjið um
Eesendaþjónustu Morg
nnblaðsins. i
FORSYTHEÆTTIN
Eiríka Friðriksdóttir, Ejós
heimuni 2? spyr:
Get’jm við fengið aftur að
sjá sjónvarpsþættina um For
sytheættina. Þegar þeir voru
sýndir var sjónvarp alls ekki
komið til ailra hluta landsins
eða jafn útbreitt og það er
nú?
Jón Þórarinsson, deildar-
stjóri Sjónvarpsins sv'arar:
Það n.un ekkert tæknilegt
því til fyrirstöðu að fá þessa
þætti aftur. En það er svo
mikið framboð af nýjum þátt
um, að við hikum við að fara
út í erdursýningar á þátt-
um sem taka klukkustund á
viku í hálft ár. Slíkt er ekk-
ert smámál.
Jón Þórarinsson bað Les-
endaþjónustuna að geta þess,
að sjónvarpinu bærust mjög
oft óskir um endursýningu á
þáttum t.d. vegna bilun-
ar eins sendis úti á landi.
Slík bilun svipti Húsvíkinga
og nágranna þeirra ein um
Ashtonþáttaama. I slíkum til-
vikum er erfitt eða óinögu-
legt að verða við : ann-
ars sanngjörnum óskum því
jjað hefur mikla og flókna
samningagerð í för með sér.
Þá óskuðu margir ungling-
ar eftir endursýningu á dæg
urlagasamkeppni sem nýlega
var sýnd hér. Sá þáttur var
frá Evroviision og etr sendur
til fjólda sjónvarpsstöðva um
Kvrópi. Þar er- mjög ákveð
ið samið um eina sýningu þátt
anna og endursýning kemur
ekki til greina.
Stcingríniur Thorsteinsson,
Skipholt' 16 spyr:
Hvað á að gera við óbyggt
svæði er afmarkast af Nóa-
túni, Stangarholti og Skip-
holti, og hvenær má ætla að
íramkvæmdir hefjist?
Aðalsteinn Richter, skipu-
Iagsstjóri Reykjavíkurborgar
svarar:
í skipulagi borgarinnar er
þetta svæði kallað opið svæði
við Stangarholt, þvi milli
svæðisins og Skipholts og
Nóatúns verður húsaröð.
Skipulagsnefnd samþykkti
skipulag þessa svæðis 19. okt.
1970 og það var staðfest í
borgarráði 27. okt. 1970. Á
þessu svæði á að reisa leik-
skóla og opið leiksvæði. Síð-
an eiga að koma aðkomugöt-
ur tvær að þessu svæði svo
og bílastæði fyrir húsin nr.
6—28 við Skipholt og fyrir
húsin nr. 24—32 við Nóatún.
Hvenær framkvæmdir hefj
aist við þetta svæði heyrir
ekki undir deild skipulags
borgarinnar, en ákvörðun þar
um er tekin af borgarstjórn
og borgarráði i sambandi við
fjárhagsáætlaimr.
Eiríka Friðriksdóttir, Ljós-
heimum 22, spyr:
Getur Morgunblaðið ekki
haft fasta upplýsingaþætti
um ný vísindi og visindarann
sóknir? Slíkir þættir eru fast
ir þættir stórblaða og að ég
held t. d daglega í New York
Herald Tribune.
Styrmir Gunnarsson, rit-
stjóri MbL, svarar:
Morgunblaðið hefur við og
við birt slíka þætti og má þar
siiðast nefna regliulegar grein-
ar frá Baldri Hermannssyni
sl. vetur. Að gefnu tilefni
þessarar fyrirspumar verður
þetta tekið til athugunar á
ný.
Anna María Sigurðardóttir,
Hæðargarði 46, spyr:
Er möguleiki á að Stjörnu-
bíó sýni aftur myndina
„Funny girl“?
Þorvarður Þorvarðsson
hjá Stjörnubíói svarar:
Sá möguleiki er fyrir hendi
en þó ekki fyrr en eftir ára-
mótin, en þá er líklegt að
myndin verði aftur á dagskrá
hjá Stjörnubíói. Myndin var
fyrst sýnd i apríl 1971 og aft-
ur í nóvember 1971.
Ellert Már, fyrrum varð-
skipssjóliði, spyr:
Árið 1974 höldum við Is-
lendingar upp á 1100 ára af-
mæli byggðar' á Tslandí.
Vitað er að íslandi verða
gefnar gjafir af vina- og við-
skiptaþjóðum okkar í tilefni
afmælisins.
Hvernig skyldi því verða
tekið af forráðamönnum há-
tíðahaldanna 1974, ef t. d.
Sovétmenn eða Bandaríkja-
menn viikiu gefa okikur Isflend
ingum fullkomið björgunar-
og varðskip í tilefni af 1100
ára afmælinu.
Indriði G. Þorsteinsson,
framkvæmdastjórl Þjóðhátíð-
arnefndar svarar:
Slík boð myndu ekki koma
til Þjóðhátíðamefndar, held-
ur til stjórnvalda sem þá fara
með völd á Islandi, svo við
nefndarmenn þurfum ekkl að
brjóta heilann um þetta.
Ms. Helda
fer frá Reykjavík um miðja
næstu viku, austur um land. —
Vörumóttaka föstudag og mánu-
dag til Austfjarðahafna, Þórs-
hafnar, Raufarhafnar, Húsavík-
ur og Akureyrar.
SKIPAÚTGER3
RÍKISIilS
1 tilefni af 70 ára afmæli
mínu þakka ég hjartanlega
forstjóra Ála.oss fyrir höfð-
inglega gjöf, sem mér var
færð frá fyrirtækinu og
starfsfótki fyrir sínar giafir
og öllum, sjjn færðu mér
skeyti, blóm og margt fleira.
Lifið heil.
Sigurbjörg Björnsdóttir.
Tilboð óskast
í búsáhöld, tilvalin fyrir verbúðir eða mötuneyti,
ennfremur netafellingarvélar.
Upplýsingar í síma 50437.
Bændur athugið
Við viljum vinsamlega minna ykkur á, að þann 31.
desember n.k. rennur út fresturinn, sem veittur var
til umsóknar um stofnlán til búvélakaupa.
Félag búvélainnflytjenda.
Bronco — Bronco
Vil kaupa FORD BRONCO árgerð ’67, ’68 eða ’69.
Aðeins mjög góður bíll kemur til greina.
STAÐGREIÐSLA. SÍMI 81335 Á SKRIFSTOFUTÍMA.
Opið til kl. 10 í kvöld
Sérverzlun með SÓFASETT.
Ábyrgðarskírteini.
VALHÚSGÖGN, Armúla 4.